Vísir - 30.09.1965, Qupperneq 16
VISl R
Flnrmtudagur 30. sept. 1965.
Rætt við Jón Guðbrandsson dýralækni og Ingólf Guðmundsson ó Þórustöðum
Helltittiður400mjólkurlítrum á dug
Ekki verður annað séð en kom
izt hafi verið að fuliu og öllu fyr
ir miltisbrandinn, sem gerði vart
við sig fyrir nokkru á Þóru-
stöðum í Ölfusi og drap sex kýr
fyrir Ingólfi Guðmundssyni
bónda.
Vísir átti í gær tal við Jón
Guðbrandsson dýralækni á Sel-
fossi. Hann sagði að svo virtist
sem miltisbrandurinn væri með
öllu úr sögunni á Þórustöðum.
Alls drápust 6 kýr af 41, sem
voru í fjósi. Hinum var gefið
pensilín og væri ekki annað að
sjá en að þær væru stálslegnar.
Blaðið hafði fregnað að tveir
menn hefðu veikzt á Þórust.
og innti Jón dýralækni eftir því
hvort það myndi hafa verið af
miltisbrandseitrun. Jón sagði að
það væri ekki sitt að svara því,
þar er þeir hefðu verið sendir til
annars læknis en sín. Hann
kvaðst þó telja vafasamt að á
lykta að um sýkingu hafi verið
að ræða, Annar mannanna hafi
fengið ígerð, en hinn fundið
til eymsla. Hins vegar hafi það
, verið talið sjálfsagt eins og á
stóð að senda mennina til læknis
rannsóknar og læknirinn hafi
gert viðhlítandi ráðstafanir,
enda hafi mönnunum ekki orðið
frekar meint af.
Þá skýrði læknirinn frá því að
kýmar hefðu ver'ið grafnar og
allar ráðstafanir verið gerðar
sem nauðsynlegar gátu talizt,
m. a. hefur allri mjólk verið
hellt niður frá því er vitnaðist
um veikina á Þórustöðum, en.
það er nú bráðum hálfur mán-
uður.
Vísir spurði hvort það myndi
verða gert enn um sinn, og
hvort það væri vegna varúðar
ráðstafana gegn miltisbrandin-
um sjálfum, eða hvort orsak-
anna væri að leita til pensillin-
inngjafarinnar.
Jón dýralæknir sagðist ekki
geta sagt með vissu hvenær
mjólkursala og neyzla yrði leyfð
að nýju. en það myndi væntan-
lega ekki líða langt þangað til.
Áður verður þó að ganga fylli
lega úr skugga um það að ekki
geti stafað af henni hætta. Ráð
stafanirnar eru fyrst og fremst
gerðar miltisbrandsins vegna,
því að pensilínáhrif fjara út að
fjórum dögum liðnum frá inn
gjöf. Að lokum tók dýralæknir-
inn fram að Þórustaðabóndinn
biði fyrir bragðið gífurlegt tjón.
Vísir sló einnig á þráðinn til
Ingólfs bónda Guðmundssonar á
Þórustöðum og innti hann eftir
því hve mjólkurmagnið væri
mikið sem hann hefur hellt nið
ur.
„Ég veit ekki um heildarmagn
ið“. svaraði Ingólfur „en það
voru 400 lítrar á dag fvrst f stað.
Þá mældum við það síðan höfum
við ekki mælt það, en gera má
ráð fyrir að það sé eitthvað á-
þekkt magn.“
Penfield ambassador.
25 áru afmæli stjórnmáhsumbunds
íslunds og Bunduríkjunnu
Sendiráð Bandarikjanna á ís-
landi mun minnast þess sérstak-
lega á morgun, 1. október, að á
þessu ári eru liðin 25 ár síðan
stjómmálasamband var tekið upp
milli íslands og Bandarikjanna. 1
því tilefni hefur Upplýsingaþjón-
usta Bandaríkjanna sent blaðinu
lista yfir sendiherra sína á ís-
landi, en þeir hafa á þessum aldar
fjórðungi verið átta talsins og
starfstúni þeirra verið frá tæpu ári
upp í meira en frmrn ár.
Fyrsti sendiherrann, Lincoln
MacVeagh, afhenti embættisskil-
riki sín 1. október 1941, en áður
höfðu Bandaríkin haft hér ræðis-
mann, Bertil Kuniholm, frá því í
maí 1940. Annar sendiherrann tók
t’il starfa 7. október 1942, Leland
B. Morris Á eftir honum 14. júní
1944, kom Louis G. Dreyfus. Hann
hefur sent hingað kveðju í tilefni
þessara tímamóta, þar sem segir m.
a.: „Starfstími minn á íslandi var
einn ánægjulegasti þátturinn í 41
„Allir í leik" sett
upp í Kópavogi
Sigurjón Ólafsson, mynd- Listamaðurinn hefur haft
höggvari seldi Kópavogskaup- myndina á lóð sinni undanfarin
stað nýlega höggmynd sina ár en hún hefur ekki verið sett
„AHir í leik“, en það er lágmynd upp á réttan hátt og kemur til
höggvin i grástein með að njóta sín betur á lágum
Ætlunin mun vera sú að setja stöpli.
myndina upp í skrúðgarði Kópa Myndin átti upphaflega að
vogs við Hlíðarhvamm næsta fara austur á Stokkseyri, en þeg
sunnar, en endanleg ákvörðun ar til kom varð ekkert úr því,
hefur þó ekki verið tekin um þeir sem ætluðu að kaupa lentu
staðsetningu. i erfiðleikum með flutning á
Mynd þessa gerði Sigurjón höggmyndinni.
fyrir 10-12 árum.
árs starfi mín í þágu þjóðar minn
ar. Við hjónin erum mjög þakklát
fyrir að hafa átt þess kost að
kynnast íslandi og íslenzku þjóð-
inni. Okkur er alltaf sérstök á-
nægja, þegar íslenzkir vinir okkár
heimsækja okkur í Santa Barbara.
Síðustu gestir okkar voru hinn við
felldni og ötuli forsætisráðherra
íslands og kona hans,“ tiíitg9pei.uí
Næst kom Richard P. Butrick,
29. april 1948, þá Edward B. Law-
son 22. september 1949 og síðan
John J. Muccio 12. október 1954
Ári síðar var hann gerður ambassa
dor Hann var lengur sendiherra
hér en nokkur fyrirrennara hans
eða til 16. desember 1959. 19. febrú
ar 1960 varð T Thompson ambassa
dor hér. Hann hefur nú sent
kveðju, þar sem segir m.a.: „Við
hjónin munum alltaf minnast hinn
ar einlægu gestrisni og vinsemdar
sem við nutum alltaf á Islandi.. og
vináttubandanna, sem v’ið
hnýttum þar. Við munum verða að
dáendur Islands alla tíð, því að eins
og land okkar hefur það kunnað að
meta glldi lýðræðisins og rétt ein-
staklingsins frá upphafi sögu
þeirra.“
Næstur á eftir Thompson kom
hingað James K. Penfield 24. maí
1961 og gegnir hann embættinu
enn
Framhald á bls. 6.
Bjami Benediktsson.
Ný bók eftir dr. Bjarna Bene-
diktsson forsætisráðherra
S/ðoro bindi
komið
,Land
og
uf a vegum
lýðveldi'
AB
Út kemur nú um helgina ný
bók eftir dr. Bjama Benedikts-
son forsætisráðherra. Er það
bókin Land og lýðveldi, síðara
bindi. Fyrra hefti bókarinnar
kom út á vegum Almenna bóka-
félagsins á þessu vori. 1 þess-
ari nýju bók forsætisráðherra
eru margar ritgerðir um íslenzk
þjóðmál á undanfömum ámm
og er bókin hin girnilegasta til
fróðleiks.
Land og lýðveldi, síðara bindi, er
ágústbók félagsins. Sem kunnugt
er kom fyrra bindið út á sl. vori
og fjallaði einkum um þá þætti
þjóðmálabaráttunnar, sem að öðr
um þræði vita út á við, ýmist
stjórnarfarslega eða efnahagslega,
auk þess sem þar eru m. a. rakin
ýmis sagnfræðileg rök sjálfstæðis
Framh. á 6. síðu.
Launþegaráðstef n |
an á Akureyri
Eins og áður hefur verið sagt
frá efna Sjálfstæðismenn i laun-
þegasamtökunum til ráðstefnu á
Akureyri um næstu helgi. Ráð-
stefnan verður haldin i Sjálf-
stæðishúsinu og hefst laugardag
inn 2. okt kl. 3 e. h. og lýkur á
sunnudagskvöld.
Á ráðstefnunni verður fjallað
um atvinnu- og verkalýðsmál og
verða m a. eftirtalin mál rædd:
Þróun kaupgjalds- og verðlags-
mála, skipulag og starfsemi
verkalýðssamtakanna, vinnu-
löggjöfin, framleiðsla og
markaðsmál og atvinnumál á
Norðurlandi.
Framhald á bls. 6.
Sigurjón Ólafsson við listaverk sitt „Allir f leik“ f morgun