Vísir - 01.10.1965, Síða 1

Vísir - 01.10.1965, Síða 1
VISIR DAGSVERK EFTIR VIÐ SUR T5E YJA RHIÍSIÐ Tveir eldsvoSar SAMÞYKKTU „Það er ekki nema dagsverk eftir, þá er húsið tilbúið“ sagði Steingrímur Hermannsson, for- maður Rannsóknarráðs ríkisins í morgun er Vísir spurði hann um byggingaframkvæmdir í Surtsey. Undanfarið hefur verið unnið við bvgginguna í Surtsey, nema f gær, því að í sterkri austanátt er ekki hægt að vinna vegna mikils öskufalls frá nýja gosinu. Þorbjöm Broddason hefur staðið fyrir byggingafram- kvæmdum, en með honum hafa unnið smiðir úr Vestmannaeyj- um svo og sjálfboðaliðar. Var Þorbjöm ráðinn til að dveljast í eynni nú í sumar við athuganir, en úr því gat ekki orðið þar sem byggingaframkvæmdirnar töfð- ust mjög. Var ástæða þess sú að er nýja gosið hófst þaktist fyrir Framhald á bls. 6. Ákaflega mikil hrifning ríkti <<S>- á hljómleikum Sinfóníuhljóm- [ sveitarinnar í gær og var það al, mannamál þar, að sjaldan1 hefðu hljómieikar hennár tek- J izt betur en nú. Þetta máttu i kallast Beethoven-hijómleikar.1 Hér á myndinni sem tekin var] á hljómleikunum sjást þeir i tveir menn sem mest var þökk1 uð þessi kvöidstund, píanóleik ] arinn Askenasi og hljómsveitar i stjórinn Bohdan Wodisczko. Myndin var tekin er verið var ] að flytja áttunda píanókonsert i Beethovens. Á eftir stjómaði \ i Wodisczko einni vinsælustu sin; fóníu Beethovens þeirri þriðju < sem köiluð hefur verið Hetju- ] sinfónían. Prentarafélagið hélt fund í gær um fimm leytið í Iðnó. Var hann fjölsóttur, rúmlega 200 manns á honum. Til um- ræðu voru samningar þeir sem náðst höfðu um nóttina milli Prentarafélagsins og Félags prentsm'iðjueigenda. Pétur Stef- ánsson, formaður félagsins, gerði grein fyrir samningunum og á eftir honum töluðu nokkr ir aðrir félagsmenn. — Að því búnu voru samningarnir sam- iðnaðarbankinn opnar á Akureyri Sigurður Ringsted bankastjóri Á næstunni opnar Iðnaðarbanki íslands útibú á Akureyri. Verður það annað útibú bankans utan Reykjavíkur, en fyrsta útibúið var stofnað í Hafnarfirði. Otibússtjórinn á Akureyri verð- ur einn af kunnustu bankamönn- um staðarins, Sigurður Ringsted. Hefur Sigurður starfað í 19 ár við Landsbankann á Akureyri og er þar aðalgjaldkeri. Hið nýja útibú Iðnaðarbankans á Akureyri mun verða til húsa að Geislagötu 6, í hinu nýja og glæsi- lega Sjálfstæðishúsi Akureyrar. Fær bankinn þar ágætt húsrými á neðstu hæð og er nú unnið að því af kappi að innrétta það. Verð- ur verkinu væntanlega lokið um mánaðamótin, og getur þá útibúið tekið til starfa. Við útibú Iðnaðar bankans nyrðra munu í fyrstu starfa þrír menn ,en vonir forráða- manna standa til þess að skjótt þurfi að fjölga starfsliðinu. þykktir mótatkvæðalaust. Á sama tíma var fundur haldinn í Félagi prentsmiðjueigenda, og var samningurinn einnig sam- þykktur þar. Þar af leiðandi kemur nú ekki til verkfalls prentara í ár. Samningarnir voru 1 aðalatrið um á þessa leið: Kauphækkun verður fyrir starfsmenn á fyrsta ári 6%, á öðru og þriðja ári 9.7% og auk þess tilfærslur á milli aldursflokka. Þá voru veitt nokkur fríðindi m. a. það að unnið verður hálfa laugardaga eða fram til kl. 12 á hádegi í október, nóvember og desember og þýðir það að vinnuvikan verður 43 stundir til jafnaðar. Veikindadagar verða 14 í stað 12 áður. Þá var einnig ákveðið að laun prentnema skuli hækka, þannig að þau verða á fyrsta ári 45% af launum prentara, á öðru ári 55%, á þriðja ári 65% og fjórða ári 75% af fuílum launum prent ara . Tveir eldsvoðar urðu í Reykjavík í gær og nótt og talsvert bruna- tjón í báðum tilfellunum. Klukkan rúmlega 5 síðdegis í gær var slökkviliðið kvatt að Út- skálum við Suðurlandsbraut. Þar brann fjárhús og hlaða, ásamt því heyi sem í hlöðunni var. Unnu slökkviliðsmenn í allt gærkvöld og alla nótt að ryðja heyinu meira eða minna brunnu út úr hlöðunni, því BLAÐfÐ í DAG Bls. 3 Sendiherrar Banda rikjanna á íslandi. - 7 S. þ. og U Thant Föstudagsgrein. — 8 Iieimsókn í Kópa- vogshælið. - 9 Viðtal við Penfield ambassador. alltaf var eldur að gjósa upp í því j að nýju. Það var ekki fyrr en kl. 7 í morgun að slökkviliðsmenn komu til baka af brunastað. Bæði fjárhúsið og hlaðan voru járnklædd timburhús og mun ekki hafa verið sérstaklega til bygging- anna vandað, enda gamlar orðnar j og úr sér gengnar. Skammt frá var hesthús og hey og tókst að verja það. Um eldsupptök er ekki kunn- ugt. Eigandi hlöðunnar skýrði lög- reglunni frá að heyið hefði verið látið inn í hlöðuna fyrir 2 mán. Þá Framh. á bls. 6. Eldgos / sjó út af Reykjanesi í MORGUN um tíu-leytið varð þess vart, að nýtt eldgos væri byrjað neðansjávar út af Reykja nesi. Voru það flugmenn af Loft- leiðavél, sem urðu þessa fyrst varir. Flugstjóri hennar 'var Smári Karlsson. Þeir skýrðu frá því, að þar á nokkru svæði væri sjórinn með einkennilegum ljós- grænum litbrigðum og væri eins og þar væri að brjóta á. Þá sáu þeir ösku og vikur á sjónum. Skömmu síðar fór flugvél frá vamarliðinu og flaug yfir svæðið og einnig vél Flugmála- stjóra og urðu þeir sömu fyrir- bæranna varir. Þeir voru þó ekki lentir aftur þegar blaðið fór í pressuna. Svæði þetta er talið um 45 mílur suðvestur af Keflavíkur- flugvelli, en það er alllangt suð- vestur af Eldey og virðist þetta vera á hinu sama eldgosasvæði, þar sem eyja kom upp á fyrri tímum. PRENTARAR

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.