Vísir - 01.10.1965, Blaðsíða 5
V í SIR . Föstudagur 1. október 1965.
SVEINN EGILSSON H.F.
UMBOÐIÐ LAUGAVEG 105 SlMI 22466
Útvarpið í Jakarta, höfuðborg
Indonesiu, tilkynnti í morgun,
að í gær hefði verið komið í
veg fyrir framkvæmd áforms
um að steypa af stóli Súkarno
forseta, en til þess átti að stefna
liði til Jakarta hinn 5. þessa
mánaðar, og eru hershöfðingjar
nokkrir sagðir hafa bruggað
þessi ráð. Hafa margir hershöfð
ingjar verið handteknir í Ja-
karta og búizt við frekari hand-
tökum hershöfðingja út um land
ið. Tekið er fram, að Súkamo
forseti sé úr allri hættu og hans
vel gætt, vörður verið settur
við opinberar byggingar, og ann
ars staðar, eins og þurfa þykir.
Það var Untung herdeildarfor-
ingi, yfirmaður hersveitar þeirr
ar, sem lífvörður Súkamo er
valinn úr, sem lét til skarar
skríða gegn hershöfðingjunum,
og kvaðst hann hafa talið það
skyldu sína að vemda forset-
ann.
Untung segir, að hershöfðingj
arnir, sem handteknir voru, hafi
átt sæti í herforingjaráði, svo
nefndu Dewan Ho Jenderal, og
hafi Upplýsingaþjónusta Banda-
ríkjanna stutt það með leynd.
Untung segir enn fremur, að
hershöfðingjarnir hafi verið all
athafnasamir frá f ágúst
snemma, en þá veiktist Súkarno
alvarlega. Hafi þá lifnað vonir
hershöfðingja þessara og ann-
ara launfjandmanna forsetans,
en er það brást, að forsetinn
létist eins snemma og þeir
gerðu sér vonir um, ákváðu þeir
að steypa honum á svonefndum
ARIswerzes-degi 5. október.
Landsfundur brezkra krata
féllst á efnahagsstefnuna
Landsfundur brezka verka-
mannaflokksins aðhylltist stefnu
stjórnarinnar, sem miðar að því
að treysta efnahag landsins og
gjaldmiðil, en einn mikilvægasti lið
ur þeirrar stefnu er baráttan til
þess að halda kaupgjaldi og verð-
lagi í skefjum.
Fyrir fundinn í gærkvöldi lék
talsverður vafi á um úrslitin og
mikið talið undir því komið hvem
ig fulltrúar verkalýðsfélaga, sem
ekki vom búnir að lýsa yfir af-
stöðu sinni, greiddu atkvæði. En
svo fór að stjómin sigraði og í
atkvæðagreiðslunni um mikilvæg-
asta liðinn, þ. e. að knýja megi
verkalýðsfélögin, ef þörf krefji, til
þess að tilkynna kaupkröfur fyrir
fram sigraði stjórnin með örugg-
um meirihluta (atkvæðahlutföll 3:2
henni í vil).
Callaghan og fleiri ráðherrar
vom mættir á fundinum. Hann
lýsti yfir: Orrustunni um pundið
er lokið með fullum sigri. Stríðinu
til þess að treysta efnahaginn er
ekki lokið, en markinu verður náð
ef stuðningur bregzt ekki.
Sterlingspundið komst í gær i
hærra verð en nokkm sinni fyrr
á fimm misserum.
Landsfundinum lýkur í kvöld.
NYIR AMERiSKI
BiLAR
ARGERfl 1966
FMCM'FOfíD'COIMr*