Vísir


Vísir - 01.10.1965, Qupperneq 5

Vísir - 01.10.1965, Qupperneq 5
V í SIR . Föstudagur 1. október 1965. SVEINN EGILSSON H.F. UMBOÐIÐ LAUGAVEG 105 SlMI 22466 Útvarpið í Jakarta, höfuðborg Indonesiu, tilkynnti í morgun, að í gær hefði verið komið í veg fyrir framkvæmd áforms um að steypa af stóli Súkarno forseta, en til þess átti að stefna liði til Jakarta hinn 5. þessa mánaðar, og eru hershöfðingjar nokkrir sagðir hafa bruggað þessi ráð. Hafa margir hershöfð ingjar verið handteknir í Ja- karta og búizt við frekari hand- tökum hershöfðingja út um land ið. Tekið er fram, að Súkamo forseti sé úr allri hættu og hans vel gætt, vörður verið settur við opinberar byggingar, og ann ars staðar, eins og þurfa þykir. Það var Untung herdeildarfor- ingi, yfirmaður hersveitar þeirr ar, sem lífvörður Súkamo er valinn úr, sem lét til skarar skríða gegn hershöfðingjunum, og kvaðst hann hafa talið það skyldu sína að vemda forset- ann. Untung segir, að hershöfðingj arnir, sem handteknir voru, hafi átt sæti í herforingjaráði, svo nefndu Dewan Ho Jenderal, og hafi Upplýsingaþjónusta Banda- ríkjanna stutt það með leynd. Untung segir enn fremur, að hershöfðingjarnir hafi verið all athafnasamir frá f ágúst snemma, en þá veiktist Súkarno alvarlega. Hafi þá lifnað vonir hershöfðingja þessara og ann- ara launfjandmanna forsetans, en er það brást, að forsetinn létist eins snemma og þeir gerðu sér vonir um, ákváðu þeir að steypa honum á svonefndum ARIswerzes-degi 5. október. Landsfundur brezkra krata féllst á efnahagsstefnuna Landsfundur brezka verka- mannaflokksins aðhylltist stefnu stjórnarinnar, sem miðar að því að treysta efnahag landsins og gjaldmiðil, en einn mikilvægasti lið ur þeirrar stefnu er baráttan til þess að halda kaupgjaldi og verð- lagi í skefjum. Fyrir fundinn í gærkvöldi lék talsverður vafi á um úrslitin og mikið talið undir því komið hvem ig fulltrúar verkalýðsfélaga, sem ekki vom búnir að lýsa yfir af- stöðu sinni, greiddu atkvæði. En svo fór að stjómin sigraði og í atkvæðagreiðslunni um mikilvæg- asta liðinn, þ. e. að knýja megi verkalýðsfélögin, ef þörf krefji, til þess að tilkynna kaupkröfur fyrir fram sigraði stjórnin með örugg- um meirihluta (atkvæðahlutföll 3:2 henni í vil). Callaghan og fleiri ráðherrar vom mættir á fundinum. Hann lýsti yfir: Orrustunni um pundið er lokið með fullum sigri. Stríðinu til þess að treysta efnahaginn er ekki lokið, en markinu verður náð ef stuðningur bregzt ekki. Sterlingspundið komst í gær i hærra verð en nokkm sinni fyrr á fimm misserum. Landsfundinum lýkur í kvöld. NYIR AMERiSKI BiLAR ARGERfl 1966 FMCM'FOfíD'COIMr*

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.