Vísir


Vísir - 01.10.1965, Qupperneq 2

Vísir - 01.10.1965, Qupperneq 2
VÍSIR . Föstudagur 1. október 1965, GLIMUMENN ARMANNS HEFJA VETRARSTARFIÐ Gísli Guðmundsson þjúlfur eldri f lokkunu Glímuæfingar Glímudeildar Glímu félagsins Ármanns hefjast i byrjun október og munu fara fram í í- þróttahúsi Jóns Þorsteinssonar við Llndargötu á mánudags- og fimmtu dagskvöldum kl. 7—10,30. Verða þær tvíþættar, eins og áður, ann- ars vegar æfingatímar eldri glímu- manna og hins vegar drengja. Þeir yngri verða í tveim fyrri tímunum en eldri i siðari tímunum frá kl. 9. Æfingar verða við það miðaðar, að auka þrek og þol, lipurð og fæmi, jafnframt þvi sem léttleiki og fágun íþróttarinnar verða einn mikilvægasti þáttur þjálfunarinnar að áratugagömlum sið Ármenninga. Þjálfari eldri flokks glímumanna deildarinnar hefur verið ráðinn hinn góðkunni glímumaður Gísli Guðmundsson, sem var í röð beztu glímumanna landsins um árabil og íslandsmeistari margsinnis. Það orð fór af glímum hans, að hann glímdi einungis af fimleik, snerpu og fegurð. Þá hefur einnig ráðizt til deild- arinnar sem aðstoðarþjálfari glímu kóngurinn þekkti Rúnar Guðmunds son, bróðir Gísla. Ekki þarf að frægja glímur hans fremur en bróð ur hans, því orðstír góðs glímu- manns lifir. Æfingatimar yngri flokks verða nú fjórir í viku í stað eins undan- farin ár. Var þessi fjöigun nauð- synleg vegna mikillar þátttöku og áhuga hinna verðandi glímumanna. Kennari yngri flokks deildarinn- ar verður Hörður Gunnarsson, eins og áður. Hefur honum tekizt á tveim árum að þjálfa upp stóran hóp drengja, sem margir hverjir eru góð glímumannsefni. Æfingar hafa þeir sótt með ágætum og munu á sl. vetri allt að 100 dreng- ir hafa notið tilsagnar hans. INNANFÉLAGSMÓT. í lok æfingatímabilsins síðari hluta apríl vorú innanfélágsmói Ár manns háð, en það er hin árlega Flokkaglíma Ármanns og Bikar- glíma Ármanns. í Flokkaglímunni var glímt í 3 þyngdarflokkum karla, unglingafl.. og 5 aldursflokkum drengja. Alls voru þátttakendur 42. Sigurvegarar einstöku flokkum urðu þessir: í 1. þyngdarflokki karla: Hörður Gunnarsson, 2. fl. karla: Pétur Sig urðsson, og í 3. fl. karla: Guðmund ur Freyr Halldórsson 1 unglingafl. sigraði Þorsteinn Hraundal og hlaut hann einnig Sigurjónsskjöldinn að launum fyrir sigur í Skjaldarglímu drengja í Ármanni, en skjöldurinn var gefinn til minningar um Sigur- jón heitinn Pétursson á Álafossi. Úrslit í drengjaflokkum urðu þau, að í 1. fl., 13-14 ára, sigraði Agnar Ásgrímsson, í 2. fl. 12-13 ára, Ág- úst Einarsson, i 3. fl., 11-12 ára, Sveinbjörn Garðarsson, i 4. fl. 10-11 ára, Kjartan Ólafsson, og 1 5. fl., 10 ára og yngri: Gunnar Hilmars- son. Verðlaunapeningar og bikarar voru afhentir f karlaflokkum að lokinni keppni. Bikarglíma Ármanns fór fram um miðjan maí. Tóku þátt f henni 6 glímumenn. Sigurvegari varð Pétur Sigurðsson. SKEMMTIKVÖLD FYRIR DRENGI. Skemmtikvöld var haldið f maf- bvrjun fyrir yngri flokkana, og voru þar afhent sigurlaun f ungl- ingaflokki og drengjaflokkum. Auk þess, að þrír vinningaflestu dreng- imir f hverjum fjokki hlutu verð Strákarnir á myndinni eru af yngstu kynslóðinni hjá Ármanni. Þeir heita Gunnar og Hörður Hilmarssynir 6 og 5 ára gamlir, og Rúnar Bergsteinsson 6 ára. GLÍMUSÝNINGAR. I sumar hefur sýningarflokkur Glfmudeildar Ármanns sýnt í 12 launapeninga. váhn Agnar Ásgrfms ^kiþti, 'báéði glfmú og foma leiki, son bikar til eignar, sem glímu- deiidin hafði gefið f þessu skyni. Ágúst Einarsson vann einnig til eignar fagran silfurbikar en hann hefur þrívegis í röð sigrað f sfn- um flokki. Þá var Þorsteini Hraun- dal afhentur Sigurjonsskjöldurinn. Skemmtikvöld þetta sóttu 40-50 drengir, sem þágu veitingar í boði glímudeildarinnar .horfðu á kvik- myndir, auk fleira efnis, er haft var til fróðleiks og ánægju. Armenningar sigursælnstir á Unglingameistaramótinu Við beztu undirtektir, hvort heldur sýnt hefur verið f Háskólabfói, að Árbæ, Jaðri eða sérstakar sýning- ar hafa verið hafðar fyrir erlenda ferðamenn við önnur tækifæri. í sýningarflokknum hafa verið frá 12-25 gh'mumenn hverju sinni. ÆFINGAR I VETUR. Æfingar munu fara fram f Iþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar við Lindargötu, eins og áður segir, á mánudögum og fimmtudögum kl. 7-10,30. Allar upplýsingar fást á skrif- jstofu Ármanns, f Iþróttahúsinu við Lindargötu, sími 13356, á mánudög HSÍ-ÞING Á MORGUN um, miðvikudögum og föstudögum kl. 8-9,30 e.h. Þar fer innritun einn ig fram. vwvwwwwwwww Matthildur Guðmundsdóttir Unga sundfólkið í Ármanni varð | Hrafnhildur Kristjánsdóttlr úr Ár- hlutskarpast á Unglingamelstara-1 manni vann flestar greinar eða 5 j mótl íslands í sundi sem fram fór j talsins með boðsundunum og Matt-1 fyrir nokkru á Sauðárkróki. Hlutu j hildur Guðmundsdóttir vann einnig! Ármenningar 114 stig samanlagt, 5 greinar með boðsundunum. : ili KR við Kaplaskjólsveg f Reykja en Selfyssingar komu næstir með j Armenningar fengu 11 meist- vik ársþing Handknattleikssam- j 79 stig og þá Ægir með 48 stig. I arastig af 16, Selfyssingar 3 melst- | arastig, Ægir 1 og Akumesingar 1. Á morgun fer fram f félagsheim bands Islands. Þingið verður sett kl. 14. BÆTT ÞJÓNUSTA BETRI ÞJÓNUSTA OPIÐ TIL KL. 10 í KVÖLD Alla föstudaga til kl. 10 á kvöldin og alla laugardaga til kl. 4 e. h. Verzlunin KRÓNAN Mávahlíð 25. Sími 10733

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.