Vísir - 01.10.1965, Síða 16

Vísir - 01.10.1965, Síða 16
s •• ■’ .-■■■■•' ■ : ' i p Wm, *$ZX-":: ÍiKI Féll niður á lundgunginn 1 gærmorgun, laust eftir að m. s. Gullfoss var lagztur upp að hafn argarðinum f Reykjavíkurhöfn og fólk tekið að streyma í land, féll kona á landganginum og var hún flutt í sjúkrahús að athugun i slysa varðstofunni lokinni. Talið er að hér hafi þó ekki verið um slys að ræða í þess orðs eiginiegu merkingu, heldur mun konan hafa fengið aðsvif og hnigið niður. 1 slysavarðsrtofunni úrskurð- aði læknir að konan myndi hafa fengið kransæðastíflu og talið sjálf sagt að flytja hana í sjúkrahús, sem var og gert. Konan heitir Marianne Sten Ólafsson og er til heimilis að Bergstaðastræti 45. Þannig litur hið nýja skip Reykjafoss út. Það er systurskip Skógafoss og er hin glæsilegasta fleyta. Nýtt skip Eimskipafélagsins Reykjafoss afhent á sunnudaginn Eimskipafélag íslands er nú að eignast nýtt skip. Það heitir Reykja- foss, systurskip Skóga- Dean Rusk sendir kveðju í tiiefni 25 ára afmælisins 1 tilefni af þvi, að á þessu ári eru Hðin tuttugu og fimm ár síðan fsland og Bandaríkin hófu form- Bandaríski söng- og leikflokkurinn við Sögu í morgun. Bandarískur kvæða söngur i Lindarbæ Ieg samskipti sín á milli með opn- ' aðalræðismannsskrifstofu í New un ræðlsmannsskrifstofu í Reykja York af íslands hálfu, gekk am vik af hálfu Bandaríkjastjómar, og bassador Bandaríkianna hér, herra James K. Penfield, í gær á fund Emils Jónssonar, utanríkisráðherrá, og flutti honum bréf með kveðjum frá Dean Rusk, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. í bréfi þessu lýsir Dean Rusk ánægju sinni yfir því, að á þessum árum haf; gagnkvæm virðing, skiln ingur og samúð meðal þessara tveggja þjóða farið sívaxandi, en vekur jafnframt athygli á, að þessi einkenni séu einmitt óhjákvæmi legt skilyrði fyrir vinfengi milli bæði einstaklinga og þjóða. Þakkar ráðherrann þetta ekki sízt þvi hversu vel starfsliðunum við sendi ráð beggja ríkja hafi tekizt að leysa af hendi skyldustörf sín. Emil Jónsson hefur fiutt herra Rusk þakkir fyrir þessa kveðju og jafnframt tjáð honum, að íslenzka þjóðin kunni að sínu leyti vel að meta þau vináttutengsl sem skap- azt hafa milli þessara þjóða sfn- hvorum megin við Atlantshafið á undanförnum aldarfjórðungi. VÍSITALAN Kauplagsnefnd hefur reiknað vísitölu framfærslukostnaðar í byrjun september 1965 Reyndist; hún vera 174 stig eða tveimur stigum hærri en i ágústbyrjun ' 1965. Þessi hækkun stafar af1 hækkun á húsnæðislið vísitöl- unnar og af hækkun smjörlíkis- verðs og hitaveitutaxta. foss. Er nú verið að ljúka öllum frágangi á honum í skipasmíða- stöðinni í Álaborg. Verð ur hann afhentur Eim- skipafélaginu á sunnu- daginn kemur. Eftirlit með smíði skipsins af hálfu Eimskipafélagsins hafa haft Viggo Maack skipaverk- fræðingur og Jónas Böðvarsson skipstjóri, sem verður skipstjóri Reykjafoss fyrstu tvær ferðir háns. Eftirlit með niðursetningu véla hefur haft Geir Geirsson vélstjóri. Reykjafoss er hið fegursta og rennilegasta skip, sem fyrr seg- ir systurskip Skógafoss. Það er að brúttó rúmlesta tölu 2614 tonn en Dead Weight 3870 tonn. Þann 8. október mun skipið leggja úr höfn í Álaborg og taka vörur í Póllandi, það er I Gdansk og Gdynia og einnig I Gautaborg, en miklir flutningar eru nú á vörum til landsins. Er skipið væntanlegt hingað til Reykjavíkur um 20. október. Jónas Böðvarson skipstjóri sigl- ir því hingað heim og tvær fyrstu ferðimar. Hann sigldi éinnig Skógafossi heim I fyrra Fatakassarnir bí'ða útskipunar til Grænlands. Fatagjafir til Grænlendinga Brinkman American Theatre Group heitir bandarískur söng- og leikflokkur, sem nýkominn er hing að til lands frá Vínarborg. Flokkurinn mun í kvöld halda sýningu í Lindarbæ fyrir boðsgest'i til að minnast þess að 25 ár eru liðin síðan stjómmálasamband var tekið upp milli Islands og Bandaríkj anna, og mun þar verða sungið úr kvæðabálknum „Spoon River Ant- hology" eftir Edgar Lee Master. Brinkman leikflokkurinn dregur nafn sitt af aðalleikkonunni, Ruth Brinkman, en eiginmaður hennar, Franz Schafranek, er leikstjóri hópsins. Le'ikflokkurinn hefur að- setur í Vínarborg, en leikendur I allir eru bandarískir. Tvö undanfarin ár hafa kven félög Aðventista hér á landi gengizt fyrir fatasöfnun til fá- tækra Grænlendinga. Lífskjör margra Grænlend- inga eru afar slæm, og margir þjást þar af skorti á matvæl- um og klæðnaði og einkum yf ir vetrarmánuðina. Kvenfélög Aðventista hér á landi hafa því gengizt fyrir söfnun fata, bteði nýrra og vel með farinna not- aðra og sent flugleiðis til Græn 'lands að hausti til. Nú er verið að senda þriðju sendinguna og er sem fyrr aðallega úm að ræða skjólfatnað og úlpur, ull- arfatnað og peysur og annað sem hentar vel í vetrarkuld- um. 15 ár eru nú liðin síðan Að- ventistar hófu líknarstörf sin í Grænlandi, og hafa þeir reist þar kirkju og sjúkrahús. Er likn arstarfsem’in I Grænlandi á veg um Norður-Evrópudeildar Að- ventista, en margt af starfsfólk inu er danskt.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.