Vísir - 20.11.1965, Síða 8

Vísir - 20.11.1965, Síða 8
8 V l S 1R . Laugardagur 20. november iat>D. WÍL~. iátfwg AVgrJKgr■wv VISIR Otgefandi: Blaðaútgáfan VISIR Framkvæmdastjðri: Agnar Ólafsson Ritstjðri: Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson Þorsteinn Ó. Thorarensen Auglýsingastj.: Halldðr Jónsson Sölustjóri: Herbert Guðmundsson Rltstjórn: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur) Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald: kr. 80,00 á mánuði innanlands f Iausasölu kr. 7,00 eintakið Prentsmiðja VIsis — Edda h.f. Gjaldeyrisstaðan Stjómarandstæðingar hafa mjög reynt að villa um fyrir almenningi í sambandi við gjaldeyrisstöðuna. Þeir halda því fram ,að hún hafi ekkert batnað, jafn- vel versnað, og se ekkert betri en þegar vinstri stjórn- in fór frá völdum. Hafa þeir í þessu skyni notað alls konar villandi tölur og útreikninga, sem erfitt er fyrir aðra að átta sig á en þá, sem vel fylgjast með þess- um málum. Almenningur hefur lítil tök á að sann- prófa slíka útreikninga, eða á að minnsta kosti ekk- ert við það, og í trausti þess eru blekkingarnar bornar fram af þeirri óskammfeilni, sem stjórnarandstæð- ingar sýna í þessum áróðri. Gjaldeyrisstaðan er eitt af því, sem ber órækast vitni um rétta efnahagsmálastefnu viðreisnarstjórn- arinnar. Flestir ættu að muna, hvernig þessum mál- um var komið þegar vinstri stjómin fór frá, og hefði gjaldeyrisstaðan ekkert batnað, heldur jafnvel versn- að síðan/væri allt löngu komið í strand. Þessu er líka þveröfugt farið, eins og raunar allir heilvita menn hljóta að sjá og skilja, ef þeir bera saman ástandið nú og fyrir 6 árum. Þróunin hefur verið sú, að gjald- eyrisstaðan hefur farið batnandi ár frá ári, og um síð- ustu áramót má telja að fullnægjandi árangri hafi verið náð; og framvegis má vænta að nokkur aukn- ing gjaldeyrisforðans verði í meðal árferði, til sam- ræmis við aukið umfang ríkisviðskipta. Þessi þróun gjaldeyrisforðans er að sjálfsögðu merki um hagstæðan greiðslujöfnuð og góða stjóm lánamálanna gagnvart útlöndum. Fólk lætur sér yfir- leitt fátt finnast um tölur til sönnunar í svona tilvik- um, enda hefur það slæma reynslu af meðferð á þeim, en þeir sem kunna að halda að eitthvað sé hæft t. d. í skrifum Tímans um gjaldeyrisstöðuna, ættu að at- huga staðreyndimar eins og þær koma fyrir í dag- legu lífi nú og bera þær saman við það sem var fyrir 6 árum. Bætt læknisþjónusta i strjálbýli Læknisþjónustu í strjálbýlinu hefur lengi verið mjög áfátt. Sums staðar hefur reynzt ómögulegt að fá fasta héraðslækna. Ungir læknar hafa ekki viljað taka þetta starf að sér. Talið er, að margar ástæður valdi, og þótti ríkisstjórninni nauðsyn bera til að rannsaka þetta nánar. Vár í því skyni skipuð sérstök nefnd 1964 og árangurinn af starfi hennar varð sá, að ný læknaskipunarlög voru samþykkt á síðasta þingi. Með lögum þessum er stefnt að því, að búa fólk- inu í strjálbýlinu sem allra sambærilegasta aðstöðu í þessu efni við þá, sem í þéttbýli búa, og lögin munu áreiðanlega stuðla mjög að því, að svo verði. Listasafn ísaf jarðar stofnað Á síðasta listaverkauppboði Sigurðar Benediktssonar gerð- ist það .að Listasafn ísafjarðar keypti tvö málverk. Það var Guðmundur Sigurðsson fulltrúi í Landsbankanum sem var um- boðsmaður listasafns þessa og- bauð hann í tvær myndir sem hann keypti fyrir það, málverk frá Þingvöllum eftir Kjarval sem honum var slegin á 25 þús- und krónur og litla mynd af sjávarhömrum eftir Þórarinn B. Þorláksson sem seld var á 7500 krónur. Þétta er all athyglisvert og óvenjulegt að listasafn úti á landsbyggðinni bjóði í gömul málverk. Forsaga þess er að frú Elín Sigriður Halldórs- dóttir ekkja Jóns Þ. Ólafssonar stofnaði með erfðaskrá sinni minningarsjóð bræðranna Jóns Þ. Ólafssonar og Rögnvaldar Ólafssonar húsameistara og átti hlutverk sjóðsins m. a. að vera að styðja að listrænni feg urð ísafjarðar. Stofnfé sjóðsins var 487 þús. kr„ en við síðustu áramót voru í honum 545 þús. krónur. Ákveðið er í stofnskrá sjóðs- ins að höfuðverkefni hans skuli vera að koma á fót lista- safni Isafjarðar með kaupum á listaverkum. 1 því skyni fékk sjóðurinn í ár 25 þús. kr. ríkis- styrk og er vonazt til að þeirri styrkveitingu verði haldið á- fram. Kaupin á máiverkunum tveimur á uppboði Sigurðar Benediktssonar voru fyrstu listaverka kaup sjóðsins, en þeim mun verða haldið áfram eftir því sem fjárhagur sjóðs- ins leyfir. Hefur bæjarstjóm ísafjarðar ákveðið að Lista- safnið fái húsnæði í rishæð- inni yfir Sundhöll bæjarins í sambýli vði Byggðasafn ísa- fjarðar. Lág jólafargjöld Hinn 1. desember n. k. ganga hin lágu jólafargjöld Flugfélags Islands í gildi. Jólafargjöldin gilda nú frá Kirkjubygging undir búin í Laugarási Sóknarnefnd Ássóknar inni í Laugarási er nú farin að hugsa sér til hreyfingar um kirkju- byggingu, en guðsþjónustur sóknarinnar hafa farið fram i Hrafnistu. Hefur sóknamefndin nú útnefnt þrjá menn í nefnd, sem hefur átt í viðræðum við Arkitektafélagið um að efna til verðlaunasaml^ppni um kirkjubyggingu. Tveir staðir koma til greina að reisa kirkjuna á, annar þeirra er garðsvæðið í brekk- unni miðsvæðis upp af Laug- arásveginum, hinn er háhæð- in á hinu óbyggða svæði skammt frá þeim þremur há- hýsum, sem þar hafa verið byggð. M fleiri erlendum borgum en áður, eða alls fimmtán. Jólafargjöldin eru um 30% lægri en venjuleg fargjöld á /áömu flugleiðum. Þau gilda sem fyrr segir frá 1. des. til 1. jan. 1966, en auk þess er gildis- txmi hvers farseðils einn mán- uður frá því ferð er hafin. Þessi sérstöku ódýru jólafar- gjöld munu enn sem fyrr auð- velda námsfólki, svo og öðrum íslendingum sem erlendis dvelja, að halda jól og nýár heima á Fróni. Flugfélagið beinir þeim til- mælum til aðstandenda náms- fólks ytra, og annarra þeirra er hafa í hyggju að notfæra sér þessi sérstöku fargjöld, að hafa samband við skrifstofur Flug- félags Islands, sem veita allar nánari upplýsingar. SK'&Z. V* Islenzk bók fær bronsverð- laun á alþjóðlegri sýningu í júníbyrjun í sumar var haldin hin árlega alþjóðlega frfmerkjasýning f Vín í Austur- ríki. Var samskonar sýning haldin árið áður f Parfs og verður á næsta ári í Washing- ton D. C. Sýnt var þarna efni f um 6000 römmum og f einum þeirra var fslenzka árbókin, „íslenzk frímerki“, sem er sérstakur verðlisti yfir fslenzk frímerki, og hefir undanfarin 9 ár gengt í senn hlutverki verð lista og handbókar. Dómnefnd sýningarinnar, þ. e. a. s. bókmenntadeildarinnar, sæmdi verðlistann bronce medalíu fyrir efnisgæði og vinnu, en aðalsýningamefndin einnig fyrir þátttökuna. Þetta er f fyrsta skipti, sem íslendingur tekur þátt í bók- menntadeild alþjóðlegrar frí- merkjasýningar. Tímraritið Frímerki segir frá þessu í sfðasta blaði undir fyr- irsögninni „Stórsigur fyrir ís- lenzka frímerkjasafnara“. Frímerkjamiðstöðin, Týsgötu 1, sýnir um þessar mundir verð listann og verðlaunin, ásamt ýmsu frá sýningunnj í glugga sínum. Höfundur listans er Sigurður H. Þorsteinsson, sem er jafn- framt ritsjóri frfmerkjaþátta Visis. Myndin er af verð- launapeningnum, sem Sigurður fékk fyrir íslenðka verðlistann. Skálatún fær 180 þús. kr. dánargjöf Þann 6. sept. 1964 andaðist hér f bæ Vilborg Hróbjarts- dóttir, fædd 27. marz 1879, en í erfðaskrá hafði hún mælt svo fyrir að allar eigur hennar skyldu renna til „Skálatúns- heimilisins" f Mosfellssveit. Skiptum í dánarbúi hennar er nýlega lokið og kom í hlut Bamaheimilis templara að Skálatúni erfðafé að upphæð kr. 183.050.78. Stjórn Skálatúnsheimilisins vottar aðstandendum hinnar látnu konu virðingu sina og þaltklæti og metur mikils þann hug, sem liggur að baki þessari veglegu dánargjöf.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.