Vísir - 02.07.1966, Síða 2

Vísir - 02.07.1966, Síða 2
r VÍSIR . Laugardagur 2. júlí 1966. VEL HEPPNAÐ SUNDMEISTARAMOT „Þetta er skcmmtilegasta sundmeistaramót, sem ég hef tekiö þátt í“, sagði einn sund- mannanna frá Reykjavík við undirritaðan í gærdag, Hörður B. Finnsson úr ÍR, sem um eitt skeið átti Norðurlandametiö í 100 metra bringusundi, en varð nú að þola tap fyrir hinum efnilega fsfirðingi, Fylki Ágústs syni. Hörður sagði, aö fram- kvæmd mótsins, sem hvíldi að mestu leyti á herðum Noröfirð- inganna, hefðl verið sérlega göð. Sundmeistaramótið fór fram í fegursta veðri, einkum fyrri dag inn, og verður hinum fjölmörgu keppendum eftirminnilegt, ekki sízt vegna þess hve Noröfirð- ingar sýndu mótinu mikinn á- huga og fylltu áhorfendastæðin báða dagana. Myndin, sem hér fylgir, var tekin á Norðfirði fyrri dag móts ins. Það eru Ármannsstúlkurn- ar, sem settu nýtt íslandsmet í 4x100 m fjórsundi, sem eru á myndinni. Eygló Hauksdóttir er lengst til vinstri, þá kemur Matthiidur Guðmundsdóttir, Hrafnhildur Kristjánsdóttir og Guðfinna Svavarsdóttir. Mynd-. ina tók ung og efnileg sund- kona úr Ármanni, Sigrún Ein- arsdóttir, og virðist hún ekki síður efnileg sem ljósmyndari. í baksýn sést svolítiö af Nes- kaupstað og bak við Ármanns- liðið sér í Erling Pálsson, for- seta Sundsambandsins, og ýmsa starfsmenn mótsins. 3. deildin hefst — tveir leikir í hinni nýju deild fjórir í 2. deild um helginu Knattspyrnan verður efst á blaði um helgina eins og oftast. Keppnin í 1. deild verður ekki í gangi, en 2. deildin því kröft- ugri og fara þrír leikir fram i henni og tveir fyrstu leikimir í 3. deild verða nú leiknir. Þessir leikir fara fram: ÍSAFJÖRÐUR. Kl. 16 í dag leika Isafjörður og Breiðablik fyrir vestan og hér er um áhrifamikinn leik fyrir Kópavogsmenn að ræða, en sigur mundi gefa þeim aðgöngumiðann að úrslitunum i deildinni í Laugardal síðar í sumar, líklega gegn Fram eða Haukum. SIGLUFJÖRÐUR. Kl. 16 á morgun leika heimamenn við lið FH. FH mun örugglega freista þess að ná sigri, enda er liðið í fall- hættu í 3. deild. Hins vegar eru Siglfirðingar haröir i horn að taka og verða ekki auðveldir á heimavelli sinum. NJARÐVÍK. Kl. 16 á morgun leika Suðurnesjamenn við Vest- mannaeyinga á grasvellinum 1 Njarðvík. SAUÐÁRKRÓKUR. Á morgun fer fram fyrsti leikurinn í ný- stofnaöri 3. deild í knattspyrnu. Það eru heimamenn sem leika við Ölfusinga og hefst leikur þeirra kl. 16. SELFOSS. Klukkustundu eftir að leikurinn á Sauðárkróki hefst, munu Selfyssingar og lið Skallagríms í Borgarnesi hefja leik sinn í 3. deild. Það verður sem sagt mikið um að vera á knattspymuvöllum landsins, en höfuðborgarbúar fá þar ekkert að þessu sinni, en verða að bíða þar til á mánudagskvöldið. Þá leika ÍSLAND og DANMÖRK (lið yngri manna en 24 ára) kl. 20.30. —• jbp. y f ^ , s s sí SJ % % "s ¥ """ v ' ' ' ' Þama er Kjartan Kjartansson úr Þrótti, einn af unglingalandsliðsmönnunum, sem um helgina æfa ; Laugarvatnlí að brjótast í gegnum vörn Keflavíkur UnglingalandsliBiB í æf- mgabúBir á Laugarvatni Unglingalandsliðið í knattspyrnu knattspyrnu, sem fer fram innan (18 ára og yngri) mun um helgina skamms í Noregi. fara í æfingabúðir á Laugarvatni, en þetta er liður í undirbúningi fyrir Norðurlandamót unglinga i Liðið fór í gærkvöldi ásamt þjálf ara sínum, Guðmundi Jónssyni og fulltrúa Unglinganefndar KSÍ, aust ur og verður þar við æfingar þar til á sunnudagskvöW. í dag mun liðið fá góða heim- sókn, það er meistaraflokkur Fram sem kemur og Ieikur leik við liöið á hinum glæsilega grasvelli fþrótta kennaraskólans á Laugarvatnl.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.