Vísir - 05.07.1966, Qupperneq 2
VI S IR . Þriðjudagur 5. júlí 1966.
DANASIGUR I 8. SINN
— íslenzka liðið brásf vonum manna — „Sár von-
brigði#/, segir formaður KSÍ — Leikurinn eins og ein-
vígi markvarðar og miðvarðar íslands gegn danska liðinu
# „Þetta voru sár vonbrigði“. Þessi orð átti form. Knattspyrnusambands
íslands, Björgvin Schram, eftir leik íslands við Dani í flokki leikmanna 24
ára og yngri. Undir þetta hefðu víst allflestir hinna 7100 áhorfenda í Laug-
ardal getað skrifað — þetta voru einhver sárustu vonbrigði á knatt-
spymusviðinu um langt skeið. Ef til vill var það ekki markatalan 3:0, sem
gerði þetta að verkum, hún út af fyrir sig var ekki voðaleg, heldur hitt, að
íslenzka liðið sýndi aldrei í þessum leik þann neista, þann áhuga og vilja,
sem nauðsynlegur er einu landsliði til vinnings.
# Þetta hafði danska liðið og enda þótt segja megi að öll þrjú mörkin hafi
komið vegna mistaka á einhvern hátt í vöm íslands, var liðið vel að svo
stómm sigri komið. Aftur á móti hefði verið gaman að sjá lið, sem hefði
barizt til síðasta blóðdropa fyrir að fá það tækifæri að bera landsliðsbún-
inginn. En það gerðu okkar menn ekki. Mér er ekki grunlaust um, að sum-
ir bláu búninganna hafi farið svitalausir í búningatöskuna aftur.
Frá lciknum í gærkvöldi. Her 1
mann Gunnarsson, miðherji ís- í
lenzka Iiðsins á þama I hóggi |
við einn leikmanna danska liðs
ins.
En hver er ástæðan fyrir þessu
getuleysi. Eyleifur Hafsteinsson
sagði eftir leiklnn sem vonlegt var
að hann v^eri hundóánægður með
leikinn: „Ég get aldrei fellt mig við
tap og er aldrei ánægður með tap-
leik. Danska liðið var betra og út
hald þess brást ekki f seinni hálf-
leik eins og hjá okkur. Við erum
heldur ekki með samstillt lið. Hvað
gagna 2 samæfingar fyrir lands-
lið?“, sagði hann. „Við getum unn
ið þetta lið“, sagði Eyleifur enn-
fremur, „en það kostar vinnu og
æfingu.“
Fyrri hálfleikurinn í gærkvöldi
var á köflum allsæmilegur hjá ís-
lenzka liðinu. íslendingar sóttu þeg
ar f byrjun og uppskám hom-
spymu. Danir tóku sfðan við og
sóttu mun meira næstu 15 mínút-
urnar og áttu m.a. tvö góð tæki-
færi, en Guttormur varði þá gott
skot og annað skotið fór gróflega
framhjá.
Á 18. mín. ógnaði Hermann
Gunnarsson, miðherji íslenzka liðs
ins mjög með gegnumbroti upp
vinstri kantinn og gaf fyrir, en held
ur seint til að hægt væri að skora,
rétt á eftir fékk Eyleifur háan bolta
yfir Vömina, gerði heiðarlega til-
raun til að skjóta viðstöðulaust en
tókst ekki.
Á 26. mfn. varði Guttormur
glæsilegan skalla fyrir miðju mark-
inu, gómaði knöttinn ofarlega upp f
horninu og tókst að halda bolt-
anum f fallinu. Eftir þetta áttu ls-
lendingar ágæta sóknarlotu og ógn
uðu allnokkuð, þó aldrei kæmist
Hildebrandt markv. f hann vem-
ÍSLAND - DANMÖRK
r 1 tölum
Fyrri hálfleikur Fyrri hálfleikur
ísland: 0 Danmörk: 0
Skot á mark 4 Skot á mark 12
Framhjá 2 Framhjá 6
Yfir 0 Yfir 0
Varið 2 Varið 3
Skalli að marki 1 Skalli að marki 1
Framhjá 1 Varið 1
Homspymur 3 Homspymur 4
Aukaspymur 3 Aukaspymur 5 e
Rangstöður 1 Rangstöður 1
Innköst 12 Innköst 18
Stangarskot 0 Stangarskot 1
Varið f hom 0 Varið f hom 2
Bjargað á lfnu 0 Bjargað á línu 1
Seinni hálfleikur Seinni hálfleikur
ísland: 0 Danmörk: 3 /
Skot á mark 6 Skot á mark 11
Framhjá 2 Framhjá 5
Yfir 0 Yfir 2
Varið 4 Varið 3
Skalli að marki 1 Skalli að marki 3
Framhjá 1 Framhjá 2
Homspymur 2 Homspyrnur 5
Aukaspymur 7 Aukaspyrnur 11
Rangstöður 1 Rangstöður 3
Innköst 12 Innköst 16
Bjargað á Ifnu 1 Bjargað á lúm 0
Stangarskot 0 Stangarskot 0
Varið í hom 1 Varið f horn 0
lega krappan. Á 36. og 43. mfnútu
bjargaði fslenzka vömín naumlega,
f annað skiptið var úthlaup Gutt-
orms Iélegt en i það síðara varði
Guttormur óvænt hörkuskot frá
Jörgensen h. innherja af stuttu
færi og boltinn hrökk f þverslá og
út þar sem vöminni tókst að koma
boltanum af hættusvæðinu. Lauk
hálfleik með jafntefli 0:0.
Saga hörmunganna hófst f seinni
hálfleik. Það er segin saga að sfð
ari 45 minútumar em oftast pislar
ganga íslenzkra liða gegn erlend
um. Það virtist allt á þrotum hjá
liðinu, nema helzt vöminni, sem
stóð lengi vel, en var farin að
slaka talsvert undir lokin. Þó byrj
uðu íslendingar á að ógna og var
Hörður Markan þar að verki og
bjargaði danski markvörðurinn 1
hom. Guttormur bjargaði góðum
skalla Marcussen miðherja litlu
sfðar í hom.
Loks eftir klukkutíma leik og
tveim mínútum betur þó, skora
Danir sitt fyrsta mark. JÖR&
EN JÖRGENSEN, nafni hunda-
dagakonungsins fræga var hér
að verki, elns og svo fjölda
mörgum sinnum í þrem heim
sóknum sfnum til landsins.
Nafni hans hundadagakóngur-
inn kom að visu aðeins tvfveg
is til Islands og gerði mikinn
usla f hinni dönsku stjóm lands
ins, en nú kom Jörgensen inn-
herji f þriðja sinn og virðistgera
viðlfka usla f knattspymuheim-
inum, þvf hann hefur alltaf skor
að megnið af mörkunum, sem
dönsku liðin, sem hann leikur
með hafa skorað (Holbæk og
SBU). Jörgensen fékk góðan
bolta frá Marcussen í mjög op-
inni stöðu og enda þótt Gutt-
ormur gamall vinur hans frá því
fyrir nokkrum ámm, þegar ungl
ingalið Holbæk kom á vegum
Þróttar, reyndi eftir megni að
loka markinu, varð ekki spom
að við marki.
Eina virkllega markskotið frá
islenzka llðinu kom á 31. mfn.
í seinni hálfleik og skaut Guð
mundur Haraldsson þá af víta-
teig naumlega framhjá.
Á 34. mín. var Jörgen Jörgensen
enn búinn að skora Markið kom
upp úr aukaspymu og var held
ur slysalegt, boltinn snerti
Magnús Jónatansson, hrökk af
honum í Anton og siðan inn
fyrir til Jörgensen, sem skall-
aði ömgglega út í bláhom
marksins án þess að Guttormur
gæti ráðið við það.
3:0 kom einnig slysalega.
Boltinn kom úr sólarátt að fs-
lenzka markinu. Anton sá ekki
gjörla hVemig boltinn kom að
honum lyfti fætinum upp og
rann boltinn inn fyrir til mið
herjans Marcussens og skoraði
hann úr ömggu færi 3:0 og
vom þá rúmar tvær mínútur
til leiksloka.
Danska liðið í gær spilaði góða
knattspymu gegn hægfara og stöð
um íslenzkum leikmönnum. Bolt-
inn gekk oft mjög vel á milli leik
Framh. á bls. 6.
Úrvalslið Fjóns kom í nótt
Lelkur fyrsta leikinn af fjrem annað kvöld
í nótt kom tll Reykjavfkur úr-
valslið knattspymufélaganna á
Fjóni, Fyns Boldspil Unlon. Llðlö
kemur hlngað á vegum K.R.R. og
leikur 3 leiki f Reykjavfk.
Fyrsti leikurinn verður á mið-
vikudagskvöld á Laugardalsvelli
gegn Reykjavfkurúrvalsliði. Hefst
leikurinn kl. 20.30. Forsala að-
göngumiða er í dag og á morgun
við Útvegsbankann.
Annar leikurinn verður á föstu-
dagskvöld kl. 20.30 og mæta Dan-
imir þá lslandsmeisturunum K.R.
Þann leik dæmir danski milliríkja-
dómarinn Frede Hansen, sem er í
stjóm F.B.U. og fararstjóm liðsins.
Sfðasti leikurinn verður við úr-
valslið af Suðvesturlandi og velur
landsliðsnefnd það lið. Sá leikur
fer fram á mánudagskvöld á Laug-
ardalsvelli og hefst kl. 20.30.
1 danska liðinu em 23 menn, 18
leikmenn og 5 manna fararstjóm.
Aðalfararstjóri er varaformaður
F.B.U., Hartvig Johansen, en með
honum stjómarmennimir Frede
Hansen og Svend Áge Petersen.
Stjómandi liðsins er Jörgen Les-
chly Sörensen, serr frægur var
fyrir nokkrum árum sem atvinnu-
maður á ítalfu og lék tvívegis með
úrvalsliði Evrópu, og þjálfari liðs-
ins er Jack Johnson, þjálfari B
1913.
Þrír af leikmönnum F.B.U. voru
þátttakendur f landsleiknum á
mánudag á Laugardalsvellinum,
Paul Johansen, markvörður, Bent
Jensen, innherji, og Niels Kilde-
moes .útherji. Þeir verða eftir hér
og leika með F.B.U.
Leikmenn F.B.U.:
Poul Johansen, KFUM, markv.
Knud Engedahl, B 1913, markv.
Oie Möller Hansen B 1913 bakv.
John Ejlertsen, B 1913, framv.
Knud Næshave, B 1913, miðframv.
Kai Hansen, 0 B, bakv.
Tommy Madsen, KFUM, miðframv.
Preben Hansen, O B, framv.
John Kúndböll, O B, framv.— innh.
Jörgen Nielsen, KFUM, bakv.-fr.v.
Palle Káhler, B 1909, útherji
Niels Kildemoes, KFUM, útherji
Bent Jensen, B 1913, innherji
Ame Dyrholm, B 1913, innherji
Helge Jörgensen, KFUM, innherji
Per Bartram, O B, miðframherji.
Carsten Wiingren, KFUM, útherji
Per Bartrom, O B, miðframherji.
Leikmennimir em allir frá félög-
um í Odense, og eru: B 1909 og
B1913 f efri helming 1. deildar-
innar, en KFUM og O B keppa um
efsta sætið í 2. deild. Bæði 1.
deildarfélögin hafa á undanförnum
árum verið í hópi sterkustu fé-
laga f Danmörku og hafa nokkr-
um sinnum tekið þátt í Evrópubik-
arkeppnunum fyrir félagslið.