Vísir - 05.07.1966, Blaðsíða 6

Vísir - 05.07.1966, Blaðsíða 6
6 VlSIR . Þriðjudagur 5. júlí 1966. Ráðgjafarþing Indónesíu bannar „allan kommúnisma" Ráðgjafarsamkundan í Indonesíu bannaði í morgun „allan kommún isma, Marxisma og Leninisma í landinu." Samkundan tók einnig ákvöröun um að skipa sérstaka nefnd, sem Lektor — Framh. af bls. 1. starílnu af Eiríki Hreini Finnboga- syni, sem gegnt hefur lektorsemb- ættinu s.l. þrjú ár, en nú verið ráðinn forstöðumaður Borgarbóka- safns Reykjavikur. Nútlmaíslenzka er skyldugrein fyrir alla þá, sem leggja stund á norrænu við háskólann í Gauta- borg og eru haldin tvö námskeið á vetri, byrjendanámskeið og fram-. haldsnámskeið og eru nemendur skyldugir til að sækja byrjenda- námskeiðið. Sagði Njörður, að á s.l. vetri hefðu nemendur á byrjenda- námskeiðinu verið 18—20, en 8—9 á framhaldsnámskelðinu. Auk lektorsembættisins í Gauta- borg er annað lektorsembætti í Svi- þjóð,' i Uppsölum, og kennsluskylda I Stokkhólmi og er Sveinn Skorri Hciskuldsson lektor þar. Njörður P. Njarðvík hefur und- anfarið verið kennari við Mennta- skólans í Reykjavík, en auk þess verið framkvæmdastjóri bókaút- gáfunnar Skálholt, formaður lands prófsnefndar og gegnt fleiri störf- um. fær til rannsóknar kennisetningar og stjómmálastefnu Súkamó for- seta. ^ Þessi ráðgefandi þjóðarsam- kunda fer í rauninni nú formlega með völd í landinu. Súkamó forseti markaði stefn- una 1960, er hann lýsti yfir að landið væri „socialistiskt og móti heimsvalda- og nýlendustefnu“ og að það vildi styðja hverja þjóð, sem berðist fyrir sjálfstæði sínu. Um leið og þetta fréttist barst skeyti um það frá Havana á Kúpu, $ð ambassadorinn þar ætti að hlýðnast fyrirmælum varðandi frá vikningu hans, og kvaðst hann mundu fylgja áfram þeirri stefnu, sem Súkamó' hafði boðað. 8€<fl — Framhald af bls. 16 margar leiðir verið famar til þess að reyna að koma í veg fyrir kalskemmdir en með litl- um árangri og hefur ekki enn fundizt nokkurt viðhlítandi ráð við þeim. Jón Trausti Steingrímsson búnaðarráöimautur í Eyjafjarð- arsýslu sagði blaðinu að kals gætti víða, í sýslunni. Talsvert mikið kal væri í Grýtubakka- hreppi og utantil í Svalbarðs- strandarhreppi en minna bæri á kali innar í Eyjafirðinum. Reikna mætti með 20—30% kalskemmd- um á mörgiun túnanna á þess- um fyrrgreindu svæöum. SKIPAFRÉTOR -SKIÞAUrGtKB BIKISINS Ms. Herdubreid fer vestur um land í hring- férö 9. þ. m. Vörumóttaka á þriðjudag og árdegis á mið- vikudag til Kópaskers, Þórs- hafnar, Bakkafjarðar, Borgar- fjarðar, Mjóafjarðar, Stöðvar- fjarðar, Breiðdalsvíkur og Djúpavogs. — Farseðlar seldir á föstudag. iþróttir — framhald at bls. 2 mannanna langtímum saman og á flestum sviðum voru Danimir betri en íslenzku piltamir. Langbezti leikmaður Dana og raunar á vell inum í gær var framvörðurinn Ni- els Erik Andersen og væri ekki undarlegt þó sá leikmaður eigi eft ir að komast oft á blaö í A-lands leikjum Dana. Á vömina reyndi lítið sem ekkert, en greinilegt var að þar vom góðir leikmenn með góða knattmeðferð og um fram allt góðan skalla. I framlínunni var miðjutríóið gott, en útherjamir vom furðu litið nýttir. íslenzka liðið var eins og fyrr segir eins og vængbrotinn fugl einkunj í síðari hálfleiknum og framlínan var allan tímann „úti að aka.“ Baráttugleðina var aðeins að finna hjá Herði Markan og Hwír vepa fer KotlÍCa nu sigurfor __ mn+!n iimlandið? EEfllBvlC Vegna þess aö koníca býður alla kosti vandaðra myndavéla fyrir ótrúlega gott verð GEVAFÓTÓ Austurstræti 6 22955 SKOÐIÐ STRAX SCorsice. EE matic NEW fLOADING] vSYSTEM, I Raðhús í smíöum Tíl sölu raðhús, sem eru 2 stofur, 4 svefnher- bergi, eldhús, bað, þvottahús og geymslur. Allt á sömu hæð. Bílskúr. Húsin seljast púss- uð og máluð að utan, með tvöföldu gleri og útihurðum. FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN Austurstræti 12 II. — Sími 20424 og 14120 Kvöldsíml 10974. STÚLKA ÓSKAST Rösk stúlka óskast til afgreiðslustarfa. VERZLUNIN VÍÐIR Starmýri 2 . Símar 30420 og 30425 AUKAVINNA Laghentur maður, sem getur aðstoðað við viðhald og viðgerðir á húsbyggingu, óskast. Sími 38885. nokkur einstaklingstilþrif hjá Her manni, — búið. Framverðir liðs ins vom heldur slakir og langt und ir þvf, sem þeir hafa sýnt með sfn um félagsliðum, en aftasta vömin var það sem íslenzka liðið flaut á lengst af. Bakverðimir báðir, þeir Guðni Kjartansson og Jóhannes Atlason komu vel frá sínu, en beztu menn fsl. liðsins vom mark vörðurinn, Guttormur Ólafsson og miðvörðurinn Anton Bjamason. Báðir áttu þeir sín mistök, en þeir gerðu líka margt frábærlega vel. Þrátt fyrir þetta var þetta ynd islega sumarkvöld í Laugardal skemmtilegt. Knattspyrna í svo fellegu veðri á fellegum leikvelli, getur varla orðið annað en góð skemmtun. Engu að siður snem menn heim með vonbrigði, því enn einn landsleikur við Dani var tap- aður og höfum við þó reynt að sigra í 20 ár án árangurs I 9 skipti. Leikurinn f Olympíukeppninni 1959 færði okkur næst þessu takmarki, þá náðu Danir jafntefli á sfðustu stundu, — og urðu síðan aðrir í lokakeppni leikanna í Róm. En þá áttu. 1 við líka knattspymumenn, sem vora færir um að leika 2x45 mínútur.... Dómari var Skotinn W. J. Mull an og kom lítt til hans kasta í leiknum. Línuverðir vom Hennes Þ. Sigurðsson og Guðmundur Guð mundsson. -jbp." Gladwyn — Framh af bls. 1. yfirráðum Þjóðverja 1944. Hon- um hefur þó aldrei tekizt að gegna þvl hlutverki og ég hef enga trú á að för hans nú til Rússlands muni færa hann neitt nær þvf marki. — Stalín leit ekki við umleitunum de Gaulles á sínum tíma, og þó mikið veð- ur sé gert út af ferð generálsins nú f Frakklandi, þá álít ég aö hún hafi mistekizt. Frakkar eru ekki f aðstöðu til þess að gegna þessu hlutverki. De Gaulle hefur aldrei fengið það, sem hann ætlaði í utan- rfkismálum, hélt lávarðurinn á- fram, — ef einhver árangur hef- ur almennt oröið af afskipturo hans á þessum sviðum, hefur hann ætíð orðið andstæður þvf, sem hann ætlaðist til. Það má minna á för hans til S-Ameríku, sem leit út fyrir að vera mikil sigurför, en nú em samskipti Frakklands og S-Ameríku langt frá því að vera góð, de Gaulle er mikiö gagnrýndur fyrir kjarn orkutilraunir í Kyrrahafi og verzlun milli þessara landa hef- ur lítið sem ekkert aukizt. Til- raunir hans til þess að nálgast Kínverja hafa einnig mistekizt, þótt ekki liti svo út fyrir nokkr- um mánuðum. Afskipti hans af Alsírmálinu urðu til þess að ' stað þess að fá franskt A!di eins og hann ætlaðist til, fékl; hann alsírskt Alsir (það er ekki víst að allir séu þama sam- mála lávarðinum, en eins og kunnugt er, tókst de Gaulle að afstýra innrás hersins í Frakx- land, þegar hershöfðingjar þar gerðu uppreisn gegn frönsku ríkisstjóminni. Vegna baktjalda- makks við hershöfðingjana gaf franska þjóðþingið de Gaulle einræðisvald í eitt ár, en fyrsta verk de Gaulles var að svíkja herinn og tókst honum að gera að engu stjómmálalegt vald franska hersins þar, sem var orðið hættulegt franska ríkinu. Við það og annað tókst honum að skapa jafnvægi f innanlands- málum). Þannig hélt lávarðurinn áfram að ræða um de Gaulle, en þar sem hann þekkir de Gaulle per- sónulega, var hann spurður að því hvað hann áliti um mann- inn de Gaulle. Ef hann er „briili- ant“, hvemig viki því þá við að hann gerði ekkert nema vit- leysur í utanrikismálum, hvar greind hans kæmi fram, því lítil hrifning væri meðal Frakka af afskiptum hans af innanríkis- málum? Ég þekki de Gaulle vel, sagöi lávarðurinn. Hef þekkt hann síð- an hann var í útlegðinni í heim- styrjöldinni síðari. Ég álít hann mikinn mann og stðrgreindan og get ekki verið sammála um að hann hafi ekkert gert í inn- anríkismálum. Með sterkri, hálf- gerðri einræðisstjóm hefur hon- um tekizt að skapa mikið jafn- vægi innanlands og þó stefna hans í innanríkismálum sé ef til vill ekki fullkomin, þí hefur sterk stjóm, eins og hans, mik- ið jákvætt gildi. )

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.