Vísir - 24.08.1966, Blaðsíða 2
7
VÍSIR. Miövikudagur 24. ágúst 1966.
Glæsilegt íslandsmet
Pessir ungu hlauparar settu á sunnudaginn nýtt íslenzkt met .
4x800 metra hlaupi, en sú grein fór fram jafnhliöa tugþrautar-
landskeppninni. Það var sveit KR, sem bætti stórlega 10 áre
gamalt met þeirra gömlu kappanna Harðar Haraldssonar, Heimií
Stígssonar, Guðmundar Lárussonar og Þóris Þorsteinssonar úr
Ármanni. Metið var 8 mín., 2.8 sek, en KR-sveitin, Þorsteinn Þor
steinsson (1:55,7), Agnar Leví (1:59,1), Þórarinn Ragnarsson (2:02,1),
og Halldór Guðbjörnsson (1:56,9) fékk samanlagðan tíma 7:53.8, sem
er gott og eflaust geta piltarnir bætt afrek sitt til muna, enda
var Þórarinn langt frá sínu bezta, eftir æfingaleysi undanfarið, en
hann var nýkominn úr hinni umtöluðu ferð umhverfis landið með
hraðbátnum Susie Wong.
Aðrar aukagreinar á mótinu voru fimmtarþraut kvenna og vann
þingeyska stúlkan Sigrún Sæmundsdóttir meö 3263 stigum, en
næst var Lilja Sigurðardóttir, einnig úr HSÞ með 3196 stig. Agn-
ar Leví vann 10 km. hlaup á 33.38.9 og Kanadamaöurinn Hylke
van der Wal vann 1500 m. hlaup á 3.55.8.
BIKARKEPPNIN
<|> MELAVÖLLUR
í kvöld, miövikudag, 24. ágúst.kl. 1) leika:
Fram — Valur b.
Dómari Grétar Norðfjörð
★ Tekst b-liði Vals að sigra Fram í kvöld?
Mótanefndin.
GAMLA „SAXAÐFERÐIN"
DUGÐI JÓNI TIL SIGURS
Kanadískt mel
í gærkvöldi fór fram
„alþjóðlegt mót“ í frjálsum
íþróttum á Laugardalsvell
inum í slagveðursrigningu
og kulda. Voru þessi skil-
yrði mikil viðbrigði, því
undanfarið hefur samið vel
með frjálsíþróttamönnum
og veðurguðunum.
Engu að síður náðu
nokkrir þátttakenda góð-
um árangri.
Hápunktur mótsins átti að vera
hástökkið og varð það raunar.
Hinn ungi hástökkvari A.-Þjóð-
verja Joachim Kirst náði aðeins að
í slagviðrinu
stökkva 1.90 metra og hefði ein-
hver spáð honum sigri með þeirri
hæð, hefði hann vitað að Jón Þ.
Ólafsson ætlaði að nota gamla
„sax-stílinn“, sem hann gerði með
stórkostl. góðum árangri og stökk
2 m. slétta en allir hástökkv-
arar nota grúfustílinn eins og
kunnugt er. Jón sagði ástæðuna
fyrir þessu þá að smátognun í
nára leyfði honum ekki að nota
aðra aðferð. Hafa sennilega fáir
eða engir hástökkvarar í heiminum
notað þessa sérkennilegu og
skemmtilegu aðferð með þessum
árangri í ár a.m.k.
Af öörum afrekum má nefna
góðan árangur í kastgreinunum.
Guðmundur Hermannsson lét ekki
vindinn beint í fangið á sig fá og
varpaði kúlunni 16.22 metra og
vann þá grein örugglega, en vind-
urinn hjálpaði kringlukösturunum
og vann Þorsteinn Alfreðsson úr
Kópavogi öruggan sigur með 49,18,
en Þorsteinn Löve kastaði 47.02.
í 1500 metra hindrunarhlaupi
vann rnnadamaðurihn van der
Wal og setti nýtt Kanadamet á
4.17.4. Fyrirfram var hann ör-
uggur með metið, því þessi vega-
lengd hefur ekki verið hlaupin
fyrr af Kanadamanni, og hafði
Wal tilbúna skýrslu til að senda
sínu sérsambandi tii að fá metið
viðurkennt. Halldór Guðbjömsson
varð annar í þessu hlaupi á 4.29.8.
Þrátt fyrir veðrið náði Þorsteinn
Þorsteinsson ágætu afreki í 400
metrum og hljóp á 51.6! í lang-
stökki var keppnin mjög jöfn.
Ólafur Guðmundsson stökk lengst
6,72 metra, Kjartan Guðjónsson
6,66 og Dónald Jóhannesson 6.64.
í 100 metra hlaupi kvenna vann
Halldóra Helgadóttir á 14.1, en
þýzk stúlka, Barbara Hemmels-
kamp hljóp á 14,9 sek.
KEPPNI í KERL-
HÖRÐ
INGARFJÖLLUM
Móti þessu var frestað vegna
veðurs í júlí sl. en á laugardag, 20.
ágúst, voru keppendur komnir til
leiks í KerlingarfjöIIum og mótið
fór fram stuttu eftir hádegið í
hæðunum við Fannborg. Veður var
gott, sólskin og logn og færið
nokkuð hart, grófur sumarsnjór.
Mótsstjóri var Valdimar Ömólfs-
son, ræsir Einar Eyfells, tíma-
vörður Eiríkur Haraldsson, mark-
stjóri Sigurður Guðmundsson, yf-
irportvörður Gunnar Eyfells.
Keppendur voru um 30, frá ísa-
firði, Ármanni, KR og ÍR. Úrslit
urðu sem hér segir:
KVENNAFLOKKUR:
32 hlið, 200 m hæðarmismunur.
1. Jóna Jónsdóttir, ísafirði 98.0
2. Marta B. Guðmundsd. KR 98.2
3. Hrafnh. Helgad., Ármanni 98.5
DRENGJAFLOKKUR:
32 hliö, 200 m hæðarmismunur.
1. Eyþór Haraldsson, ÍR 87.8
2. Tómas Jónsson, Ármanni 88.2
3. Haraldur Haraldsson, ÍR 94.0
TELPNAFLOKKUR:
25 hlið, hæðarmismunur 170 m.
1. Margrét Eyfells, ÍR 78.6
2 Jóna Bjarnad., Ármanni 83.5
3. Edda Erlendsdóttir 94.5
IÍARLAFLOKKUR:
45 hlið, hæðarmismunur 280 m.
1.-2. Haraldur Pálsson, ÍR 135.5
1.-2. Leifur Gíslason, KR 135.5
3. Sigurður Einarsson, ÍR 139.2
Sú nýjung var við mót þetta,
að í staðinn fyrir eina ferð í stór-
svigi voru famar tvær ferðir. Valdi
mar Ömólfsson tilkynnti að þetta
væri í fyrsta skipti sem þetta fyr-
irkomulag væri notað í stórsvigi
á íslandi. Að móti loknu fór fram
verðlaunaafhending i Fannborgar-
skálanum og þakkaði mótsstjórinn
keppendum fyrir komuna í Kerl-
ingarfjöll í annað sinn í sumar.
Hann gat þess sérstaklega, að all-
ir 5 keppendur í telpnaflokki,
Margrét Eyfells, Jóna Bjarnadóttir,
Edda Erlendsdóttir, Edda Sverris-
dóttir og Guðbjörg Sigurðardóttir
höfðu haft mjög skemmtilega
frammistöðu á móti þessu, og eru
um þessar mundir námsmeyjar
í Skíðaskálanum i Kerlingarfjöll-
um. Ennfremur gat mótsstjóri um
þá skemmtilegu tilviljun, að sig-
urvegarinn í drengjaflokki, Eyþór
Haraldsson, ÍR, mun nú færast upp
í C-flokk, þar sem Eyþór er að
verða 16 ára. Eyþór hefur á sínu
keppnistímabili í drengjaflokki
unnið margan sigurinn og það
fylgja honum innilegar óskir um
góða framtíð. Ennfremur gat móts-
stjórinn um skemmtilega keppni í
kvennaflokki þar sem 3 af kepp-
endunurt, Jóna, Marta og Hrafn-
hildur eru svo jafnar að um tíma
var erfitt að sjá hver mundi verða
sigurvegarinn. í karlaflokki voru
snör átök samanber úrslitin þar
sem Haraldur Pálsson og Leifur
Gíslason komu inn á nákvæmlega
sama tíma.
Eftir verðlaunaafhendinguna var
haldin kvöldvaka. Fannborgar-
menn léku fyrir dansi og ekki
vantaði áhugann, þar sem auk
keppendanna úr Revkjavík var
námsflokkur skólans 40 ungling-
ar, drengir og stúlkur úr Reykja-
vik. Skólinn hefur undanfarið
verið svo þéttskipaður, að öll
svefnpláss á gólfinu hafa líka verið
í notkun.
Sunnudagsmorgun 21. ágúst
fóru reykvískir skíðakeppendur á-
samt námsflokki skólans til æf-
inga og var þá haldin tímataka hjá
Reykvíkingunum áður en lagt vai
af stað til baka til Reykjavíkur urr
fimmleytið.
Skiðakeþpendur þakka Fann
borgarmönnum fyrir skemmtilegas
samverustundir og vonast til aí
örinur eins keppni geti farið fran
á sumri komandi.
JASON
IEÐURJAKKAR
RÚSKINNSJAKKAR
fyrir herra
fyrir drengi
SENDUM I PÓSTKRÖFU
VIÐCERDIR
LEÐURVERKSTÆÐI
ÚLFARS ATLAS0NAR
Bröttugötu 3 B
Sími 24678.
FEUGSIÍF
VÍKINGAR!
Sýnum í kvöld kvikmynd frí
úrslitaleik heimsmeistarakeppn
innar í knattspyrnu mill
Englands og Vestur-Þýzkaland:
í Lindarbæ kl. 8.15. — Allii
Víkingar velkomnir.
Stjómin.