Vísir - 24.08.1966, Blaðsíða 6

Vísir - 24.08.1966, Blaðsíða 6
6 V1SIR. Miðvikudagur 24. ágúst 1966. Kvikmynd þessi er gerð eftir skáldsögu J. R. Salamanca sam- nefndri, en sú skáldsaga var valin „bók mánaðarins" í Bandaríkjun- um á sínum tíma. Sagan greinir frá reynslu ungs uppgjafaher- manns, sem fær atvinnu í hæli fyrir auðugt, geðtruflað fólk, og kemur þar m. a. við sögu ung og fögur stúlka, sem hann hrífst af, eins og flestir aðrir, og reynir hann að skyggnast inn í töfraheim hennar en heillast svo af henni, að hann verður að lokum fyrir svo alvar- legri geðtruflun sjálfur, að hann verður að leita hjálpar í stað þess, að hjálpa öðrum. Margt er dapur- legt og örlagaþrungið á þeim vett- vangi, sem fólk þetta dvelst á, allt fólk, sem á bágt, og ræður ekki gerðum sínum, en myndin er at- hyglisverð og snilldarvel leikin og þarf ekki annað en nefna nöfn eins og: Warren Beatty, Jean Se- berg, Peter Fonda. — Myndin er af þeim Peter Fonda og Jean Seberg. —I. i Surtsey — Framh. at bls. 1. hægt er að ímynda sér að sé í Sahara. Þegar gengið var upp á fjallið fyrir ofan gosstöðvamar sást að hraun rann úr þremur gíg um og rennur hraunið eins og straumhörð á í austur til sjávar. Var gosið tígulegt ásýndar og stóðu gosstrókamir 50—100 metra í loft upp úr gígunum þremur og Sumarmót Bridgesambands Islands verður haldið í lok þessarar viku að Laugarvatni. Mótið hefst með ávarpi forseta samtakanna kl. 20.30 á föstu- dagskvöld. Verður þá háð tví- menningskeppni. Á laugardag verður keppt í sveitakeppni og lýkur mótinu á largardagskvöld meö verðlaunaafhendingu. Ekki er að efa að margir munu hafa hug á því að taka þátt í sumarmótinu nú eins og jafnan áður. Þátttöku ber að tilkynna til Friðriks Karlssonar, sími 20554 eða til Óskars Jónssonar, Selfossi, sími 201. Á aðalfundi sambandsins fyrr í sumar baðst fráfarandi stjórn undan endurkosningu og voru þessi kosin í stjóm: Forseti: Friðrik Karlsson, Revkjavlk. Aðrir í aðalstjórn voru kosnir: Sigurður Helgason og Steinunn Snorradóttir, Reykjavík, Mikael Jónsson, Akureyri, Óli Kristins- son, Húsavík, Kári Jónasson, Kópavogi og Sigurður Þórðar- son, Hafnarfirði. í varastjórn vom kosnir: Ragnar Þorsteins- sáust engin þreytumerki á gosinu á fimmta degi eftir að það hófst. Meö tíðindamanni í eyjunni var fréttamaður útvarpsins, sem þama var mættur til að taka upp gos- hljóð, en Ríkisútvarpið átti fyrir aðeins goshljóð frá Syrtlingi. Dvöldu fréttamenn Vísis og út- varpsins í góðu yfirlæti í Surtsey I gær og fylgdust með gosinu. Nán ar verður sagt frá þeirri dvöl í blaðinu á morgun. Fjögur innbrot í Reykjovík sl. nótt Þjófar voru mikió á ferli í Reykjavík síöustu nótt. Brotizt var inn á fjórinn stöðum vxðsvegar um borgina, og í einu tilfellinu náðist þjófurinn eftir skamma stund. Á fyrsta tímanum í nótt var brotizt inn í Söbecks-verzlun á homi Safa mýrar og Háaleitis. Þjófurinn naut þýfisins aðelns skamma stund, þvi að lögreglan gómaði hann stuttu síðar. Þá var brotizt inn í Steypu stöðina við Elliðaárvog, einnlg hjá Kr. Kristjánssyni að Suðurlands- braut 2 og hjá Magnúsi Th Blöndal Vonarstræti 4b og 4c, en ekki var vltað í morgun, er blaöið frétti sfðast til; hve miklu var stolið á þessum stöðum, en rannsóknarlög- reglan var að rannsaka málið. son og Þorsteinn Laufdal, Reykjavík, Bogi Sigurbjöms- son, Siglufirði, Guðmundur Há- konarson, Húsavík, Óskar Jóns son, Selfossi og Gestur Auðuns- son, Keflavík. Á fundinum gengu þrjú ný fé- lög í sambandið. Það voru bridgefélög Skagastrandar, Hveragerðis og Fáskrúðsfjarð- ar. Sú breyting var gjörð á framkvæmd íslandsmótsins, að næst munu 10 sveitir keppa I meistaraflokki um íslandsmeist- árat’tilinn, þar af hafa 2 sveitir rétt frá Norðurlandi og 2 af Suðvesturlandi utan Reykjavík- ur. Er þess að vænta að þessi breyting verði til að auka vin- sældir íslandsmótsins. Fyrirlestur — Framhald af bls. 16 í Kaupmannahöfn, sem dr. Heger komst í kynni við íslenzkar bók- menntir, og var hann m.a. um skeið nemandi Finns Jónssonar og kymitist einnig dr. Valtý Guð- mundssyni. Dr. Heger vinnur um þessar mundir að þýðingu á Ólafs sögu helga á tékknesku. Guntla bíó — Framh. aí bls. 7 unni. Þá skal að lokum minnzt á kvikmyndina, „Of Human Bond- age,“ eftir samnefndri skáld- sögu, brezka höfundarins W. Somerset Maughams sem fyr- ir skömmu kom út í ís- lenzkri þýðingu, „í fjötrum" en sú skáldsaga er talin ein með þeim beztu frá hendi þessa mik- ilvirka og mikilsmetna höfund- ar. Kim Novak leikur aðalhlut- verkið, en Ken Hughes hefur Ieikstjóm á hendi. Einnig má minnast á „Molly Brown“, íburð armikla söng- og dansmynd með Debbie Reynolds og Harve Presnell I aðalhlutverkum. Er þó ekki talinn nema helmingur þeirra kvikmynda, sem Gamla Bíó hefur á boðstólum fyrir gesti sína áður en langt um líð uur, en rúmsins vegna verða þeim því miður ekki gerð skil að sinni. Hókon Bjarnason Framh. af bls 9 birkiskógur vex ekki nema einn teningsmetri viðar á einum hekt ara lands. Við höfum flutt inn birkifræ frá Norður-Noregi þó við fengjum ekki hraðvaxnara birki með því móti. Birkið vex aldrei eins hratt og barrtrén. Við reynum að skapa meiri fjöl hreytni f íslenzkri náttúru með barrtrjánum. Það er nóg rýmið á íslandi, við byrgjum ekki fjallasýn þótt plantaö sé út trjám. jjað hafa komið fram skoð- anir sem eru andstæðar skógræktinni. Það eru andlegir apakettir, sem þetta segja. Það lifir enginn á því að sleikja steina. Við eigum að hafa okkar staði til þess að rækta á, það er ekki hægt að gera norðlæg lönd byggileg nema með því að rækta skóga, og það gefur meira í aðra hönd en búskapur. TXæfir veðráttan hér skóg- ræktinni? — Á Norður- og einnig á Austurlandi er loftslag skylt meginlandsloftslagi eins og það er víða um heim nálægt skógarmörkum. Sams konar loftslag nema rakara og svarar til þess að það sé eins konar fjallaloftslag borið saman við önnur lönd. En það sem gerir að ræktunarskilyrði hér eru með sérstökum hætti eru þess ar miklu dægursveiflur á hita, sem við höfum hér. IJafið þið í hyggju að koma upp nokkrum nýjum stöðv- um á næstunni? — Á næsta ári, í fjaröarbotn um Vestfja 3a. í Geirþjófsfirði sem er inn úr Amarfirði. Þar verður ekki reist stöð strax held ur plantað út á eyðijörð. Einn ig hefur verið stungið upp á geysilega mikilli ræktun lerkis Hjartans þökk til allra er minntust mín 27. júlí. Lifið heil. Jón Mathiesen. Sumarmóf bridgemannu austur á Fljótsdalshéraði fyrir ixman Hallormsstað, en frá því er ekki hægt aö skýra að sinni. — En hvaö um friðunina? Tjað hefur borið á því og virð- ist vera að færast i aukana núna að birkikjarr og birkiskóg ar eru ekki látnir i friöi. Menn virða lög og reglugerðir aö vett ugi og leyfa sér að reka fé inn í skógræktargirðingar, sumir leggja þær niöur og eyðileggja þær. Menn hafa beitt fé sínu innan þessara svæða eins og t. d. í Laugardalnum og þessu er víðar svo farið þar sem eftir- litsmaöur er fjarri eins og í Þórsmörkinni og Breiödal. Eink- I um er það að vori og hausti að fé er rekið inn í skógrækt- | argirðingar en offjár kostar aö \ koma við eftirliti. Einnig hefur komið fyrir að bændur hafi kveikt í kjarri í þeirri trú að þeir fengju betra beitiland. Kannski er varzlan slæleg frá okkar hálfu, en þaö er ekki gott að koma við vöm- um, þegar menn fara að eins og þjófar á nóttu, taka valdið í sínar hendur og sleppa fé að næturlagi eins og í Þórsmörk. Einnig er mikið um það aö menn flytji fé sitt inn á afrétt Þingvalla og Grafnings og sleppa fénu inn á kjarrlendið. Fjárþunginn hér sunnanlands er oröinn svo mikill að féð leitar austur í kjarrlendi Grafnings- ins og eyðileggur þar skóglendi og víst er um það, að fé hefur verið flutt þangað á bílum. Einnig hefur komiö fyrir að notuð hafa veriö hormónalyf til þess að útrýma birkikjarri. Þeir byrjuðu á þessu norður í Kelduhverfi í Axarfiröi. Þetta varðar allt við lög, það varðar við landslög að eyöileggja birki gróður og verður framvegis gengið harðar eftir því aö þess- um lögum verði framfylgt en áður. Stúlka óskast Rösk, ábyggileg og handlagin stúlka getur fengið vinnu hálfan eða allan daginn í miðbænum. Uppl. að Skeiöarvogi 35 kl. 5—7. Lundi — Framhald af bls. 16 unnu við fiskvinnslustöðvamar voru að elta fuglinn um allar bryggjur og þurrkuðu hann inni í húsum yfir nóttina, en slepptu honum út á sjó um morguninn. Einnig leggja böm og ungl. mikla vinnu í að bjarga fuglinum, en geysilegur áhugi virðist ríkja meðal þeirra, sem og eldri Eyjabúa á náttúrufræði. Hefur starfsemi Friöriks Jessonar, sem hefur komið upp á eigin spýtur lang merkilegasta nátt- úmgripasafni á íslandi, án nokk urs efa stuölað mjög að þessum áhuga. — Sigurður Jónsson sjávarlíffræðingur frá París, sem vinnur nú að athugunum á botnföstum sjávargróðri við Surtsey á vegum Surtseyjarfé lagsins segir, að í Vestmanna- eyjum sé hafin „vísindaleg her- væöing“ undir handleiðslu Frið riks Jessonar. Hæli — Framhald af bls. 16 ir á þeim hælum, sem þegar hefur verið minnzt á. Bíða margir árum saman eftir þvl að geta komið að- standendum sínum fyrir á hælum, sem þessum þar sem þeir njóta við- unandi aðbúnaðar og fá þá aðhljmn ingu sem hæfir. Er sýnt að þótt byggt sé hæli á Akureyri leysir það ekki úr þörfinni nema til skamms tíma því að á Akureyri og í ná- grannasveitum, Þingeyjarsýslu og Eyjafirðinum eru núna taldir vera 60 vangefnir. Verður hælið á Ak- ureyri rekið að einhverju leyti sem undirdeild Kópavogshælisins og haft samráð um val vistmanna við sérfrótt starfsfólk Kópavogshælis- ins. Fjárframlög til byggingarinnar koma úr hinum sameiginlega tappa- sjóöi Styrktarfélaganna en auk þess með eftirtekjxim alls konar fjáröflxmar annarrar sem styrktarfé lagið á Akureyri beitir sér fýrir. Akureyrarbær sér fyrir rekstrar- kostnaði en hann hefur árlega inn 90-100 þús. kr. með 10 kr. árgjaldi á hvern íbúa. Var árgjaldið fyrst heimt inn fyrir 4 árum. ÚTSALAN Rauðarárstíg 20 heldur áfram. Fatnaður á börn og fullorðna, m.a. á börn: Skyrtur, gallabuxur, terylenebuxur, mjaðmabux- ur, peysur, úlpur. Á fullorðna: Peysur, skyrtur, nær- föt, sokkar, kvenmokkasíur og strigaskór karlmanna. lífsalan Hauðarórstíg 20 (horni Njálsgötu og Rauðarárstígs). Byggingameistarar i Árbæjarhverfi Höfum kaupendur að 2, 3 og 4 herb. íbúðum. Við höfum marga kaupendur að þessum stærðum íbúða. Vinsaml. hringið í okkur Höfum til sölu 5 herb. hæð með sér hita og inn gangi og 40 ferm. bílskúr v/Rauðalæk. Mjög góð íbúð. , TRYGGINGAR OG FASTEIGNIR Austurstræti 10, 5. hæð. Sími 24850. Kvöldsími 37272. Stúíka óskast til afgreiðslustarfa í kjörbúð. Uppl. í verzlun inni í dag. Sunnubúðin, Mávahlíð 26 simi 18725

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.