Vísir - 24.08.1966, Síða 4
4
ví c
24. ágúst 196».
Toppur og „tröppuklipping"
Þeim fer fjölgandi dömunum,
sem eiga hárkollutoppa, yfir-
leitt búðarkeypta. Sumar eiga
þó toppa gerða úr þeirra eigin
hári. Toppamir eru mjög hent-
ugir eins og Kvennasíðan hef-
ur nú reyndar drepiö á fyrr
og hér sjáum við eitt dæmi um
hvernig nota má hárkollutopp-
inn. i
Stúlkan á myndunum er með
stuttklippt hár, í vinstri vangan
um er það „tröppuklippt“ en
í hægri vanganum er síddin sú
sama og í hnakkanum og allt
fram að „tröppunni" við vinstra
eyrað.
, Hárið er vafið upp á rúllur
eins og sést á teikningunni og
síðan er þaö greitt skáhallt nið-
ur yfir ennið og segja hár-
greiðslumeistarar að slík hár-
greiðsla fari einkum vel þeim,
sem eru með beint (stórt)
nef. Með einu handtaki má
breyta um svip hárgreiöslunnar,
hártoppurinn er festur á hvirf-
ilinn, vafinn upp og stúlkan er
óneitanlega sparilegri svona.
8
Á
mjólkur-
hyrn-
urnar
Margar reykviskar húsmæöur
eru ekki fyllilega sáttar við um
búðir þær sem mjólkin er seld
í nú — hyrnurnar. Eitt af því
sem að þeim er fundið er hve
erfitt er að hella úr þeim —
þótt klippt sé af einu hominu
eins og leiðbeiningar á hyrnun-
um segja að gera skuli fer oft
svo að mjólkin hellist útfyrir
það ílát sem hún á að fara f.
Kvennasíðan sá í þýzku blaði
mynd af litlum stút, sem notað-
ur er í mjólkurhymur þar I
landi. Er hann sagður einkar
hagkvæmur og mjög fljótlegt
að festa hann á hyrnumar.
Loka má stútnum með litlu loki
þegar geyma á mjólkina. Þetta
er mjög ódýrt áhald og væri
því vel þegið ef einhver inn-
flytjandi eða plastframleiðandi
tæki sig fram um að útvega eða
framleiða slíka stúta og koma
þeim á markaöinn.
Vetrarbúningur ungu stúlkunnar:
BUXNADRAGT ÚR GRÁU
FLANNELI
Súkkulaðikaka
Hér er uppskrift að súkku-
laðiköku, sem tilvalið er að
leyfa bömunum að gera þegar
rigning er úti og þau hafa ekk-
ert við að vera. Kakan er ekki
bökuð, aðeins sett í form og
látin storkna. Það sem þarf til
er:
250 grömm af kexi, ferkönt-
uðum, sætum hveitikexkötum, 2
egg, 2 matskeiðar strásykur,
250 gr. jurtafeiti, 250 gr. suðu-
súkkulaði, 2 matskeiðar rjómi.
Eggin eru þeytt með sykrin-
um. Jurtafeitin brædd og hrærð |
hægt saman við eggin. Súkku- j
laðið brætt í rjómanum og j
eggjadeiginu blandaö í og hrært í
um leið stöðugt í 10 mínútur. |
Úr „deiginu" og kexinu er
síðan búin til lagkaka, eitt lag
súkkulaðideig, eitt lag kex o.
s. frv. og er bezt að nota jóla-
kökuform. Látið „kökuna"
standa á köldum stað og
storkna. Skerið með beittum
hníf í sneiöar.
Vetrarfatnaðurinn er nú að
koma á markaðinn í stórborg-
um nágrannalandanna og auð-
vitað er hann samkvæmt nýj-
ustu tízku, sem að nokkru er
byggð á því sem fram kom á
tízkusýningunum í París í fyrra
mánuði.
Franskt kvennablaö fór fyrir
skömmu á stúfana til aö velja
vetrarföt á ungar stúlkur og
einkenndist valið af hlýjum og
hentugum fötum. Meðal þess
sem blaðið vildi láta ungu stúlk
una klæðast í vetur var eins
konar buxnadragt, en buxna-
dragtir hafa átt miklum vin-
sældum að fagna í Evrópu þar
á meöal á íslandi undanfarið.
Þessi buxnadragt var úr hinu
sígildu gráa flaueli, buxna-
skálmamar beinar með upp-
brotum og jakkinn meö renni-
lás og geysistórum stungnum
vösum. Minnir þetta óneitan-
lega dálítið á sjóliðabúning,
nema hvaö liturinn er grár en
ekki blár. Kraginn er stór og
góður en upp undan honum
kemur hlý loöhúfa og sér rétt
í andlitiö.
Klæðnaður sem þessi ætti að
henta vel hér á okkar kalda
landi.
Þótt Evrópúkonur séu hrifnar
af buxnadrögtum, þá er ekki
þar meö sagt að allir séu það.
Eileen Ford, tízkuskólastjóri í
New York (hún er oft kölluð
sýningastúlkumamman) lýsti
því yfir er hún var á ferð í
Evrópu fyrir skömmu að buxna
dragtin muni ekki „slá £ gegn“
vestanhafs. Maður fær hvergi ,
aðgang ef maður er í buxna-
dragt (hér á hún við spari-
buxnadragtir) hversu falleg sem
hún er. Við erum svo ströng í
sambandi við siðferði.
Við sama tækifæri sagði
Eileen Ford um stuttu kjólana:
Það er að byrja að bera á þeim
í USA, en þeir koma aldrei til
með að ná til allra. Þeir valda
umferðarslysum í New York.