Vísir - 27.10.1966, Page 2
2
VISIR . Fimmtudagur 27. október 196b.
Glímuæfingar Ár-
manns að hefjast
Vetrarstarf Glímudeildar Ár-
manns er nú aö hefjast. Eins og
undanfarna vetur munu glímu-
deildarfélagar skiptast i eldri og
yngri flokka við æfingar, sem
verða í íþróttahúsi Jóns Þorsteins-
sonar við Lindargötu.
Æfingatímar karla 15 ára og eldri
verða á þriðjudögum kl. 21.30—
22.30 og á fimmtudögum kl. 21—
22.30.
Drengjaflokkar munu æfa á mið-
vikudögum og laugardögum sem
hér segir:
Drengir 12 ára og yngri kl. 19—
19.45.
Ungur Framari bendir á svæðið, þar sem Fram á eftir aö standa fyrir öflugu æskulýðsstarfi.
<S>-
BÆTT AÐSTADA FYRHl FRAM
ER ORDIN BRÝN NAUDSYN
» Tvö af stærstu íþróttafélögum Reykjavíkur, Fram
og Þróttur, eru um þessar mundir að leggja í kostn-
aðarsamt fyrirtæki, byggingu á vallarmannvirkjum á
svæðum þeim sem félögunum hefur verið úthíútað.
Sagt var frá því á dögunum, þegar Þróttarar hófu að
ýta til fyrir vellinum á landareigninni við Sæviðarsund.
?ram hefur f engið svæði í Álftamýrarhverfi á skemmti-
'egum stað.
^ Jón Þorláksson, formaður Fram ræðir þetta mál
lokkuð í grein sinni í nýútkomnu FRAM-blaði og fer
’rein Jóns hér á eftir, en hún ber yfirskriftina Lítið á
ikurinn:
I Reykjavík hafa hin ýmsu
'iróttafélög lagt undir sig, ef svo
íá að orði kveða, heilu íbúahverf-
.1. í beinu framhaldi af því, er ekki
sma eðlilegt, að íbúamir veiti við
omandi félögum margvíslegan
uðning. Elztu félögin, sem upp-
aflega áttu aðsetur í þröngum
ring gamla miðbæjatins, fá nýtt
lóð til endumýjunar viöa að úr
ýjum íbúahverfum, enda stækkar
argin ört.
í þau skipti, sem umræður
íanna á meðal beinast að starfi
óróttafélaganna, er oftast minnzt
. afrek þeirra og stöðu hvers til
ínars á sviði kappmóta, en hinum
.unvemlega tijgangi þeirra
eymt, sem lýtur að uppeldishlið-
,ini.
Á hverju ári bætast félaginu
ölmargir nýir meðlimir, sem
argir hverjir koma fyrst af ein-
:ærri .forvitni, aðrir af hvatningu
’.dri félaga, og enn aðrir, sem höfðu.
jgsað sig um lengi, áður en þeir
:váðu f hvaða félag þeir skyldu
. ^ láta skrá sig. Hin fyrsta móttaka
; fyrstu kynni af félaginu hafa
úkla þýðingu. Á þeim aldri, sem
estir koma f fyrsta sinni, eru böm
far eftirtektarsöm og aöfinnslu-
iöm. Það er því ekki nokkur vafi
. þvf, aö skilyrði til móttöku
ýrra félaga og dvalar þeirra hjá
laginu er háð aðstöðunni, sem er
rir hendi hverju sinni.
Lftið á akurinn! Hann bfður þess,
5 verða yrktur. Leggjum öll
önd á plóginn, til þess að draumur
<kar allra megi rætast. Félagið
„okkar gamla góða Fram“, skorar
nú á alla félagsmenn og velunnara
þess, að styðja með ráðum og dáð
þá framkvæmd, sem unnin verður
á uppeldis- og þroskasvæði þvf,
sem staðsett er á einum ákjósan-
legasta stað borgarinnar, með tilliti
til vaxtar og viögangs um langan
aldur.
Við erum þess fullviss, aö síauk-
inn skilningur forystumanna borg-
armála á tilvemrétti og gagnlegri
starfsemi íþróttafélaga, mun eiga
sinn stóra þáttt í því, að áður en
langt um líður getum við boðið
þátttakendum okkar viðunandi skil
yrði til íþróttaiðkana, okkur öllum
til gagns og sannrar gleði. Okkur
sem í dag gegnum forystuhlutverki
í Knattspyrnufélaginu Fram, er
fullvel ljós sú staðrejynd, að nú-
verandi aöstaöa til starfseminnar,
er sú hin sama og félagið hafði
fyrir tuttugu árum, heilum tveimur
áratugum og meira en það.
Meö hverju ári, sem undan er
gengið, hefur aðsókn aukizt í þátt-
töku beggja íþróttagreinanna, sem
á starfsskrá félagsins eru, og er
þess vegna augljóst mál, að ef ekki
rætist úr aðstöðunni, mun blasa
við algjör stöðnun. Látum það
aldrei spyrjast, þótt á móti blási
í þessari baráttu okkar fyrir bætt-
um aðstæðum, að stöðnun nái tök-
um á okkur, þvf hún er háskaþrep
í afturför. Við skulum vera minnug
hughreystingarorða Willy Brein-
holst, sem segja „að við skulum
bera höfuðið hátt, því þaö gæti
gengið verr“. Við skulum líta björt-
um augum á framtfðina með það
hugfast, að ekkert verk er of erf-
itf fyrir „æskuafl", samhenta
menn og konur á bezta aldri í
blóma Ufsins. Því teljum við nú, að
úthlutun hins nýja svæðis í
Kringlumýri, megi verða hvatning
til átaka við framkvæmdir, sem
enginn má skerast úr leik að taka
þátt f. Það er fyrst og fremst, upp-
bygging leikvanganna. Félagsheim-
ili er okkur ekki síður nauösynlegt,
-þar sem aðstaða yrði stórum auk-
in til kynninga og leiðbeininga-
starfsemi, svo og funda og skemmti
starfsemi á margan hátt. Um bygg-
ingu íþróttahúss eru talandi tölur
og margar staðreyndir fyrir hendi
um að kostnaður viö slíka bygg-
ingu yrði vart undir tug milljóha.
Og á dagskrá hefir því verið sú
hugmynd að reyna að komast að
samkomulagi við fræðsluyfirvöldin
um byggingu íþróttasalar, sem fé-
lagið hefðii afnot af á móti skóla-
kennslu. lim úthlutun svæðisins,
eru kvaðir á hendur Fram um að
einn af þremur stærri leikvöngun-
um veröi byggður með malaryfir-
borði, og notist hann sem leik-
svæði fyrir Álftamýrarskóla á vetr-
um. Öllum ætti að vera það Ijóst,
Hrifning
aö álitlegur hópur nemenda f þess-
um skóla eru, og verða, meðlimir
í félaginu okkar. Það á þess vegna
ekki að vera nein ástæða til þess
að halda, að þessi samyrkja muni
há á nokkum hátt starfsemi okkar
á svæðinu, heldur hitt, að á fyrstu
skólaárunum drögum við athygli
margra áhugasamra félaga að
íþróttunum, og er þá með sanni
sagt að „ungur nemur, sér gamall
temur“. Og hin mikilvæga þunga-
miðja fundin, að leiöa æskumann-
inn réttan veg til heilbrigðrar og
þroskandi útiveru á sumrum og
hollrar iöju og leikja inni á vetr-
um.
Framh. á bls. 6.
Drengir 13—14 ára kl. 20—21.
Innritun fer fram á æfingum eða
á skrifstofu Ármanns í sama húsi,
sími 13356.
Síðustu ár hefur mikill fjöldi
drengja lært glímu hjá Glímudeild
Ármanns og stundað æfingar af
kappi. Má geta þess, aö 187 drengir
sóttu æfingar síðast liðinn vetur,
auk hinna eldri glímumanna, svo
alls munu nokkuð á þriðja hundrað
manns hafa stundað æfingar á
vegum Glímudeildar Ármanns.
Mikil fjölbreytni var í deildar-
starfinu árið sem leið og voru
haldnir fræðslu- og skemmtifundir,
glfmusýningar eldri og yngri glímu-
manna, bæði í Reykjavík og úti
um land, einnig innanfélagsglímu-
mót, Flokkaglíma Ármanns og Bik-
arglíma Ármanns. Flokkaglíman
mun hafa verið fjölmennasta glfmu
mót á starfsárinu, þátttakendur
alls 53. Þá ber að geta glímuflokks
deildarinnar, sem fór sýningaför
til Færeyja í sumar, og geröi hina
beztu ferö, eíns og áður hefur
komið fram.
Kennaralið gh'mudeildarinnar.
Þjálfarar Glímudeildar Ármanns
í vetur verða í karlaflokkum þeir
Gísli Guðmundsson, hinn góðkunni
glímusnillingur, sem kenndi einnig
á sfðasta vetri, og Hörður Gunn-
arsson, en hann hefur verið aðal-
kennari yngri flokka undanfarin
ár og þjálfað og stjómað sýningar-
flokki félagsins.
í kennaralið deildarinnar bætast'
þeir Grétar Sigurðsson og Pétur
Sigurðsson, sem báðir hafa um
áratuga skeiö verið meðal beztu
glímumanna landsins, þótt ekki
hafi þeir lengi tekið þátt í opinber-
um kappglímumótum. Munu þeir
annast kennslu f yngri flokkum á-
samt Fferði Gunnarssyni.
I
Um þúsund manns komu f
gærkvöidi til að horfa á sýn-
ingu danska fimleikaflokksins
frá Ollerup, þrátt fyrir harða
samkeppni þeirra sem að þess-’
ari ágætu fþróttasýningu stóðu
við hlið íslenzka tilraunasjón-
varp, sem bauð sjónvarpsunn-
endum upp á hið fjölbreytileg-
asta efni.
Mikil hrifning ríkti i Laugar-
dal f gærkvöldi og flokknum
var þakkað með ferföldu húrra-
hrópi að lokinni sýningu. í
kvöld sýnir flokkurinn skóla-
nemendum listir sínar kl. 20.15.
...... ........................... .......—>.v...........■■ ■