Vísir - 27.10.1966, Qupperneq 6
6
VlSIR . Fimmtudagur 27. október 1966.
© Sameinaö alþingi.
í gær var reglulegur fundur sam
einaðs alþingis. Rædd var fyrir-
spum Jóns Skaftasonar (F) um
Vesturlandsveg. Ingólfur Jónsson
samgöngumálaráðherra svaraðj fyr
irspurninni og spunnust út' af
henni nokkrar umræöur. Ennfrem-
ur tók til máls Matthías Á. Mathie-
sen (S). Þá var rædd fyrirspurn
Ragnars Amalds (K) um störf
tveggja nefnda til að athuga at-
vinnuástand á Norðurlandi. Egg-
ert G. Þorsteinsson, félagsmálaráð-
herra, syaraði fyrirspurninni. Einn-
ig tók til máls Jóhann Hafstein,
dómsmálaráðherra. Loks var rædd
fyrirspum Ingvars Gislasonar (F)
um rekstrarvandamál hinna smærri
báta. Til máls tóku Eggert G.
Þorsteinsson, ráöherra og Guðlaug
ur Gíslason (S).
© Þá var tekin til umræðu þings-
ályktunartillaga Þórarins Þórarins-
sonar (F) um kaun Seðlabankans
á víxlum iðnaðarins. Jóhann Haf-
stein iðnaðarmálaráöherra og Gylfi
Þ. Gíslason, viöskiptamálaráðherra
tóku einnig tii máls. Fleira var ekki
rætt.
• Lögð voru fram tvö þingskjöl.
Tillaga til þingsáiyktunar um rann-
sókn á kaupmætti tímakaups verka
manna í dagvinnu (Þ.Þ., E.Á., — F)
og frumvarn til laga um heimild
fyrir ríkisstjórnina til aö selja eyði
jörðina Vola í Hraungerðishreppi
(Á.Þ. — F, R.J. — S)
Slys —
íþrótfir —
framhald af bls. 2
Þegar Knattspyrnufélagið Fram
hefir gert hið nýja svæði sitt í
Kringlumýri, að hinum mikla akri
íþrótta, mun ekki verða langt að
bíða uppskerunnar.
„Því eins og þér sáið, munuð þér
og einnig uppskera".
Með fyrirfram þökk fyrir liðsinni
þitt,
og þúsundfalt hljótir að launum.
Hvað er oss ei megnugt,
ef hver gerir sitt,
i hversdagsins fjölmörgu raunum?
Látum nú til skarar skríða,
skundum fram á völl.
Brátt ekki eftir neínu að bíða,
brosir sól og jörðin öll.
J. Þ.
Framh af bls. 1.
fæstir árekstrar í ágúst, 168, og
september 161.
Slys í umferðinni fyrstu 9 mán-
uði ársins skiptast þannig eftir
flokkum. Fárþegar 87, böm 78,
ökumenn 70, hjólreiðamenn 42,
gangandi menn 26, konur 20 og
dauðáslys 2.
í fyrra var skiptingin allt árið
þannig: Farþegar 138, ökumenn 77,
böm 66, hjólreiðamenn 48, gang-
andi menn 30, konur 18 og dauða-
slys 8.
Athygli skal vakin á því aö slys
á hjólreiðamönnum em óvenjulega
mikil, því að fjöldi reiðhjóla í um-
ferðinni er ekki mikill. Stafa slysin
sennilega mikið af því, hve ör-
yggisútbúnaður reiöhjóla er oft á
tíðum lélegur (t.d. í sambandi við
ljós, kattaraugu o.s.rfv.).
Sýna töflur, sem gerðar hafa verið
yfir ágúst og september um það
hvenær sólarhringsins árekstramir
verða, að flestir árekstrar verða á
samsvarandi tímum báða mánuö-
ina. Verða árekstramir flestir þeg-
ar umferðin er þéttust eins og bú-
ast mátti við. Flest umferðarslysin
í ágúst urðu milli kl. 17 og 18 eða
9.60% allra umferðarslysa. 9.12%
urðu milli kl. 18 og 19, 8.64% urðu
milli kl. 13 og 14 og 8.16% milli
kl. 12 og 13. Einkennandi er að
fjöldi umferðarslysa eykst skyndi-
lega rétt fyrir kl. 9 á kvöldin eða
í þann mund sem fólk er að fara
í kvikmyndahús og aftur eykst
fjöldi slysanna rétt fyrir miðnætti
þegar sama fólkið er aö fara heim.
Slysin urðu fæst frá kl. 5 til 7.30
á morgnana, engin skráö slys
í ágústmánuði.
Tölumar í september em mjög
sambærilegar. Þá urðu slysin flest
milli kl. 13 og 14 eða 9,68% allra
umferðarslysa.
tónleika í nágrannalöndunum.
Hann er formaður „Norræna
sólistaráðsins“.
Bruland hefur einu sinni áð-
ur komið hingað til lands, með
norska stúdentakórnum áriö
1961. Hann hefur getið sér góð-
an oröstír sem hljómsveitar-
stjóri í Bergen, Þrándheimi og
Osló og í ýmsum borgum utan
heimaiands síns. Hefur hann oft
verið ráðinn til að stjóma fíl-
harmoníuhljómsveit Berlínar.
Skók —
Bruland
Framhald af bls. 1.
norsku útvarpshljómsveitarinn-
ar. j
Báru þeir Bruland og Walldén
saman bækurnar, píanóleikar-
inn lék nokkrar trillur, hitnaði
í hamsi og snaraði sér úr jakk-
anum. Rétt á eftir fór einn úr
hljómsveitinni að dæmi hans og
loks stjómandinn og hófst þá
æfingin með fyrstu tónum
„Fljótslns“.
Efnisskrá hljómleikanna í
kvöld er skipuð hljómsveitar-
verkum frá Norðurlöndunum
þar á meðal tveim þáttum
„Sögusinfóníu“ Jóns Leifs.
Sem fyrr seglr er Walldén
mikils metinn pianóleikari í
heimalandi sínu og hefur haldið
Framhald af bls. 1.
A-flokki en Júgóslavía nr. 2. íslend-
ingar höfnuðu þá í C-flokki og
urðu þar nr. 1, en Tyrkland og»
Mexfco, sem einnig tefldu þá til
úrslita í C-flokki urðu nr. 11 og 12.
Mongólía komst hins vegar x B-
flokk og náði þar 8. sæti og Aust-
urríkismenn höfnuðu í 6. sæti,
einnig f B-flokki._____
Hagfræðingor —
Framhald af bls. 16
hvað um íslendinga við nám er-
lendis. Af þessum tölum sést, að
í framtíðinni má búast við nokk-
urri fjölgun í þessari stétt.
Eins og að framan greinir, eru
um þessar mundir liðin 25 ár frá
þvf að kennsla í viðskiptafræðum
hófst við Háskólánn. Undanfari
kennslunni í Háskólanum var Við-
skiptaháskólinn, sem starfaði frá
1938. Sá skóli var stofnaður aö
tilhlutan Jónasar frá Hriflu og að-
allega ætlaður til þess að mennta
menn til starfa við utanríkisþjón-
ustuna. Þessi skóli var síðan sam-
einaöur Háskólanum árið 1941, eft-
ir miklar deilur á Alþingi. í dag
eru 3 prófessorsembætti við við-
skiptadeildina, og í vetur verður
fjórða embættið væntanlega lög-
fest, þá kenna tveir dósentar við
deildina og nokkrir aukakennarar.
Á laugardag gangast Félag við-
skiptafræðinema og Hagfræðafélag
íslands fyrir hátíðahöldum til að
minnast þessara merku tímamóta.
Verður nánar sagt frá þessum há-
tíðahöldum og frg viðskiptakennslu
í Viðskiptaháskólanum og Háskóla
íslands í blaðinu síðar.
Ólafsfiörður
Þessi mynd frá Ólafsfirði átti
að koma með viðtali við bæjar-
stjórann á Ólafsfirði sem birtist
á opnu blaðsins í gær, en vegna
mistaka kom mynd frá Ólafsvik
í hennar stað og eru lesendur
beðnir velvirðingar á þessum
myndaruglingi.
Synjdð
Framhald af bls. 16
Reykjavíkur og Keflavíkur til
þess aö fá skólavist.
Talaöi blaðið nýlega við Þor-
kel Steinar Ellertsson skóla-
stjóra að Eiðum, sem sagði að
115 nemendur hefðu verið í skól
anum í fyrra og hafi 45 nemend-
ur lokið námi eða hætt því aö
vetri Ioknum. Sá f jöldi nemenda,
sem við gátum bætt við okkur
í haust nam þeirri tölu en nýjar
umsóknir um skólavist hjá okk-
ur voru 135.
Þessi skóli er bæði gamall og
rótgróinn á svæðinu, elzti héraðs
skóli á landinu og auk þess er
hann i tízku svo aö unglingamir
sækja fyrst um skólavist hjá
okkur áður en þeir leita annað,
sagði Þorkell. Þetta ástand er
slæmt þegar unglingamir verða
að sækja út fyrir mörk sýslunn-
ar til þess aö fá skólavist og
dæmi em til þess að þeir hafi
þurft að leita allt til Reykjavík-
ur og Keflavíkur um skólavist.
Með því að fræðslukerfið er
að breytast á þann veg að
skyldunáminu verði bætt viö
bamaskólana I stað unglinga-
skólanna áður má gera ráð fyrir
að rýmkist í skólanum og em
uppi áform um það að leggja
niður fyrsta bekk Eiðaskóla jafn
vel á næsta hausti og taka
fleiri nemendur í efri bekkina,
sem því svarar.
Vatnsveita —
Framh. af bls. 1.,
sprettu , í landi jarðarinnar
Syðstu-Markar i Rangárvalla-
sýslu, og ei lögð þaðan 22 km
löng leiðsla til sjávar og liggur
leiösla í sjóinn í landi jarðar-
innar Bakka i Landeyjum.
Eins og kom fram f fréttum í
sumar, hafði verið gerð athugun
á að fá þyrilvængju til að flytja
byggingarefni upp að uppsprett-
unni, en upp mikla og erfiða
brekku er að fara. Hafði verið
leitað til vamarliðsins um flutn-
ing efnisins, og tók vamarliðið
mjög vel í þá bón Eyjaskeggja,
en við nánari athugun kom í
ljós að mjög erfitt og áhættu-
samt yrði að athafna sig á þyrlu
þama, enda er uppsprettan í
gili, og þröngt um allt aðflug.
Mun líklega verða að grípa til
gamalla vinnubragða og nota
hesta til að flytja byggingarefn-
ið þangað upp eftir. Þama er
um að ræða mikið timbur og
um 20 tonn af tilbúinni steypu.
Mun þvi hesturinn („þarfasti
þjónninn“) leysa vandann í
þessu tilfelli, er tækniútbúnað-
inn þrýtur.
Magnús Magnússon sagði að
lagning sjálfrar leiöslunnar til
sjávar heföi gengið mjög vel. Nú
væri aöeins eftir að leggja leiðsl
una á nokkrum erfiðum köflum.
mestur hluti leiðslunnar væri
þarna asbestleiðslur, með 10
tommu innanþvermál, en á hin-
um erfiðu stöðum, sem áður
segir frá, veröa leiðslumar þrjár
og úr plasti. Er hver þeirra
leiðslna 6 tommur að innanþver
máli. Þessi fyrrgreindu plaströr
eru sérstaklega gerð fyrir þess
ar framkvæmdir hjá Reykja-
lundi og þola þessar leiðslur
meiri þrýsting, en venjulegar
leiðslur af sömu gerð. Við þess-
ar framkvæmdir hafa unnið um
20 manns. Verkstjórar og flokks
stjórar svo og vörubifreiða-
stjórar við framkvæmdimar eru
frá Vestmannaeyjum, en flestir
verkamanna svo og gröfumenn
og traktorsmenn eru frá héruð-
unum í kring.
Eins og áður segir verður
strax £ vetur hafizt handa um
framkvæmdir í Eyjunum sjálf-
um við lagningu dreifingarkerf-
is svo og byggingu dælustöðvar
og vatnsgeymis, ef tíð og fjár-
hagur bæjarfélagsins leyfir. Þeg
ar hefur verið gert nýtt dreif-
ingarkerfi fyrir fiskiðnað Eyja-
búa, og verður vatnið úr landi
tengt beint inn á það kerfi.
Iðnldnasjóður —
Framhald af bls. 1.
vélaiðnaöar, vegna forgöngu rik-
isstjómarinnar. Samkeppnisaðstaða
iðnaðarins hefði verið stórlega
styrkt með margvislegri opinberri
fyrirgreiðslu.
Hins vegar er Ijóst sagði Jóhann
Hafstein að finna verður ný úr-
ræði í stað þeirra að Seðla-
bankinn endurkaupi afurðavíxla
iðnaðarins, þar sem tryggingar
skortir yfirleitt vegna fyrirkomu-
lags á framleiðslu og sölu. Farin
heföi verið sú leið I vissum tilfell-
um að vátryggingarfélögin tryggðu
víxla iðnaðarins og kæmi til greina
að fara þá leið í fleiri tilfellum.
Hins vegar væri nú til athugunar
hvemig Seölabankinn gæti á auð-
ve’dari og hagkvæmari hátt en áð-
ur aukið við fjármagnsveitingar til
iðnaðar.
Austin 7. árgerð '62
Til sölu og sýnis. Uppl. í Fiskhöllinni eftir
kl. 4.00 í dag.
Bílaprýði auglýsir
I .1
Teppaleggjum bíla og klæðum sæti með
lambsskinnum og öðru venjulegu efni. Gjörið
svo vel og reynið viðskiptin.
Bílaprýði, Skúlagötu 40 — Sími 23070.
Lokað vegna jarðarfarar
Skrifstofur lögreglustjóraembættisins verða lokaöar á
morgun frá kl. 9—12 f.h. vegna jarðarfarar Erlings Páls-
sonar, yfirlögregluþjóns.
Lögreglustjórinn i Reykjavik.