Vísir - 27.10.1966, Síða 15
V í SIR . Fimmtudagur 27. október 1966.
' --ft'
EFTIR: CAROL 6AYE
* ☆
☆ *
m
Þ •
spam
og með stóra tannbakshringi dingl-
andi í eymasneplunum. Jenny tók
eftir að hann horfði fast á þær, um
leið og hann gekk framhjá. Líklega
vonaði hann að þær mundu láta
hann spá fyrir sér, datt Jenny í
hug.
— Hvor okkar á að fara fyrst?
spurði Fran þegar hann var farinn
inn í tjaldið.
— Þú.
— Mundu nú að segja mér hrein-
skilningslega frá öllu, sem hann
segir viö þig, sagði Chris hlæjandi.
Hún leit við um leiö og hún fór:
— En setjum nú svo að hann spái
að ég skilji við þig —út af háum
dökkhærðum manni?
— Hver veit, nema hann segi
mér, að ég muni skilja viö þig út
af grannvaxinni. ljóshærðri stúlku,
svaraði Chris hlæjandi og brosti til
Jenny um leið.
— Ég held að ég verði að ganga
dálítið um héma, sagði Chris þegar
Fran var farin. — Segðu Fran að
ég verði þama niðurfrá, þar sem
verið er að kasta kókoshnetunum.
Ég þef bamalega gaman af þeirri
íþrótt.
— Gætum við ekki dmkkið te
saman á eftir spurði Róbert Drake.
— Þegar Jenny er búin að fræðast
af sfgaunanum, meina ég.
— Jú, það er sjálfsagt vel til
fallið, sagði Chris og hvarf.
— Ég veit ekki hvom ykkar ég
er reíðari, þér eöa Fran, sagði
Jenny við Róbert.
— Það finnst mér ranglátt af þér,
svaraði- hann.
— Hvers vcgna léztu sem þú
hefðir aldrei séð Fran fyrr en í
dag?
— Hvað átti ég að gera, góða
mín? Segja eiginmanninum að ég
hefði hirt hana í óskilum í bóka-
safninu?
— Þú gengur fram af mér, Ró
bert.
Hann hló. — Það fer þér ljóm-
andi vel að vera reið, Jenny. En
það hef ég líka sagt þér fyrr. Þú
hefur líklega gleymt, að þér þótti
talsvert mikið til mín koma héma
einu sinni.
Hún mundi það vel og fyrirleit
sjálfa sig um leið. Og hún sagði
við sjálfa sig, að það gæti ómögu-
lega verið satt. En hann hafði ver-
ið reglulega heillandi þegar hún
hitti hann í fyrsta skipti. Þá var
gaman að vita af honum nærri sér,
hann var svo nærgætinn og svo á-
fjáður að bjóða henni út með sér
og skemmta henni. Hún hafði marg
sinnið boröað hádegis- og miðdegis-
verö með honum. Og stundum
höfðu þau skroppiö til London og
farið í leikhús, dansað á eftir og
ekki komið heim fyrr en langt var
liðið á nótt.
En svo kom að kvöldinu, sem
hann hafði ótvírætt látiö hana
skilja, að hann ætlaöi sér ekki að
láta nægja aö vera kunningi henn-
ar. En jafnframt kom á daginn, að
honum hafði ekki komið til hugar
að giftast henni. Hann fór ekki
dult með að hann væri maður, sem
ætti ekki heima í hjónábandi.
Hann hafði reynt það tvisvar og
farið illa í bæði skiptin. En þau
gætu skemmt sér vel saman, eigi
að síður, sagði hann. Þau gætu
ferðazt eitthvað saman. Skroppið
eitthvað burt um helgar,' til að
byrja með. Það ætti að vera hægt
að trúa frú Mayfield og Lily fyrir
bömunum um eina helgi? Og eng-
inn þyrfti að vita hvað lægi bak
við.
Hún sagði sárreið að sig varðaöi
ekki um hvers vegna hann vildi
ekki giftast sér. Hún vildi ekki
giftast honum, hvaö sem í boði
væri. 1 fyrsta lagi vegna þess að
hún væri ekki ástfangin af honum.
Og í ööm lagi vegna þess að hún
elskaöi annan mann. Og hún var
alls ekki á því, að „að þau gætú
skemmt sér vel saman.“ Og þeg-
ar hann dirfðist að stinga upp á,
að þau fæm eitthvað burt saman
... Hún sagði honum að hún vildi
aldrei sjá hann framar, og að sér
væri óskiljanlegt að hún skyldi
hafa verið svona oft meö honum.
Þá haföi hann farið frá henni glott-
andi og kallað hana óþolandi
flónska telpu. Og sagði svo, aö hann
sæi eftir að hafa eytt tfma og pen
ingum í að vera með henni.
Svo haföi hún ekki heyrt neitt
í honum í heilan mánuð. En þá
símaði hann og bað hana fyrir-
gefningar. Hvort hún vildi ekki fyr-
irgefa honum og hitta sig aftur?
Hún svaraöi að þar væri ekki
um neina fyrirgefningu að ræða.
En aðalatriðið væri, að hana lang-
aði ekkert til að hitta hann. Og í
öðm lagi væri faðir bamanna í
þann veginn aö koma heim. Þess
vegna hefði hún um margt að
hugsa. Og loks sagði hún: — Því
miður, Robert, en þessu er lokið
milli okkar. Meira hef ég ekki að
segja.
Nú voru liðnir þrír mánuðir siðan
þetta gerðist og hún hafði ekki séð
hann aftur fyrr en í dag. Hana furð-
aði á að sjá hann í svona sam-
kvæmi. Svo datt henni í hug að
hann mundi hafa komið vegna þess
að hann bjóst við að hitta Fran
þama. Kannski vildi hann fá tæki-
færi til aö hitta hana svo allir
sæju og kynnast manninum henn,
ar svo hægt væri að gera honum
heimboð og þiggja boð af honum.
Jenny fór að efast um aö Fran
hefði haldið loforð sitt um að hitta
hann ekki aftur ...
— Þú svaraðir ekki spurningunni
minni? sagði Robert storkandi.
— Ég man ekki um hvað þú
þú varst að spyrja um.
— Ég spurði hvort þú hefðir
gleymt aö einu sinni þótti þér
talávert varið í að vera meö mér.
— Hafi svo verið þá hef ég ver-
ið mikið flón þá, sagði hún.
— Ég vona að okkar yndislega
Fran tali aldrei við mig í þessum
tón.
Hún hvessti á hann augun. — Er
það svo að skilja að þið hafið
I stefnumót ennþá?
| — Vitanlega.'
— Ertu gersamleg^ samvizku-
laus?
— Já, alveg.
— En ef ég segi nú Chris þetta?
, sagði hún bitur.
Hann horfði rólega á hana. —
í Ég hugsa að þú gerir það ekki.
— Ég mjmdi ekki treysta því
væri ég í þínum sporum.
, — Þú segir honum það ekki,
vegna þess að þú elskar hann, og
þú veizt að ef hann fer að van-
treysta Fran líður honum óbærilega
illa. Og það viltu ekki — því að
þú ert þannig gerð. *
Það var í annað skiptið sem
hann sagöi þetta við hana. í fyrra
skiptið hafði hann sagt það í sim-
anum, daginn sem hann hafði
spurt eftir Fran, og nú endurtók
hann það þama.
Áður en hún gat sagt meira kom
Fran út úr tjaldinu og flýtti sér
til þeirra.
— Hann er afbragð, Jenny. Hann
sagði mér margt stórmerkilegt.
— Eigiö þér að strjúka með há-
um dökkhærðum manni? spurði
Robert.
— Nei. Eruð þér kannski von-
svikinn?
— Nei, lamaður.
Fran hló dátt. — Það vonaði ég
líka. Nú ert þú næst.
Jenny svaraði stutt að sig lang-
aði ekki til aö láta spá fyrir sér.
— Ertu hrædd um að þú heyrir
eitthvað óþægilegt? spurði Robert.
Hún roðnaði. — Nei, ekki vit-
und. Mér finnst þetta bara svo
flónskulegt.
— Mundu aö þetta er gert f þágu
góðs málefnis, sagöi Fran.
— Svo að þú verður að fara,
Jenny. Ég hef meira að segja borg
að fimm shillinga fyrir þig og sagt
að þú komir að vörmu spori...
Hún leit í kringum sig. ■— Hvar
er Chris?
— Hann er að leika sér að kókos-
hnétum.
— Er hann ekki oröinn full gam-
all til þess?
— Hann hefur gaman af því,
sagði Jenny stutt.
— Flýttu þér nú inn í tjaldið,
sagöi Fran og sneri sér svo að Ro-
Passamyndir
Teknar í dag — Tilbúnar á morgun.
Sér tímar eftir samkomulagi.
Ljósmyndastofa Péturs Thomsens
Ingólfsstræti 4. Sími 10297, eftir kl.
7 sími 24410.
-forwnaf-
ÞÝZKAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR
úr harðplasti: Format innréttingar bjóða upp
á annaS hundraS tegundir skópa og litaúr-
val. Allir skópar með baki.og borðplata sér-
smíðuff. Eldhúsið fæst me3 hljóSeinangruð-
um stólvaski og raftækjum af vönduðustu
gcro. - Sendið c3a komið me3 mól af cldhús-
inu og við skipuleggjum eldhúsið samstundis
og gerum yður fast verðtilboð. Ótrúlega hag-
stætt verð. Munið að söluskattur er innifalinn
í tilboðum fró Hús & Skip hf. Njótið hag-
stæðra grciðsluskilmóla og /^S— — —.
lækkið byggingakostnaðinn.
HÚS & SKIP ,hf.- lAUGAVIbl II • 5IMI XKIS
Rottulegi sjómaðurinn, sem reiddist við
tilkynninguna, hellti svívirðingum yfir pró-
fessorinn.
En fríði, ungi maöurinn sagði honum
halda sér á mottunni.
Mig grunaði aö sjómaðurinn myndi grípa
til sinna bragöa, svo að ég hóf upp spjótið
og fylgdist með.
_______________________________15
bert. — Mig hálflangar í te. En
yöur? Kannski þér gætuð hugsað
yður aö útvega mér tebolla.
— Ég talaði svo um við manninn
yðar að við drykkjum öll te sam-
an eftir dálitla stund — þegar
Jenny kæmi frá sígaunanuin. —
Finnst yður það ekki heppilegt?
— Jú, vitanlega, sagði Fran en
varð allt í einu ólandarleg á svip-
inn. — Flýttu þér Jenny, sagði hún.
— Við Drake föirum og náum í
borö handa okkur á meðan. Og þeg-
ar þú ert búin þá nærðu í Chris
Orðsending
Nú geta þeir bíleigendur, sem aka
á hálfslitnum eða slitnum sumar-
dekkjum látið breyta þeim í snjó-
munstruö-dekk á aðeins 20 mín. og
kostar aöeins frá kr. 100 (pr. dekk)
Veriö hagsýn og verið á undan
snjónum. Við skoöum ykkar dekk
að kostnaöarlausu.
Opið virka daga kl. 8-12.C3 og
14 - 20, laugardaga frá kl. 8 -
12.30 og 14 -18, og sunnudaga
eftir pöntun í sima 14760.
MUNSTUR OG
HJÓLBARÐAR
Bergstaðastræti 15
(gengið inn frá Spítálastig)
METZELEB
hjólbarðamir sru sterkir og
mjúkir, enda vestur-þýzk gæða
vara.
Hjólbarða- og benzínsaían
við Vitatorg. Sími 23900
Barðinn h.f.
Ármúla 7. Sími 30501
Aí "enna t erzlunarfélagið h.t.
Skipholti 15. Sími 10199