Vísir - 27.10.1966, Blaðsíða 16
i
VISIR
Fhnmtudagiir 27. október 1966.
Fjölskyiiliiffirgjöid
hjö Flugfélaginu
Hinn L nóvember n. k. sanga í
gildi sérstök fjöiskyldufargjöld á
flugleiðum milli íslands og Norður-
landa og gilda bau til 31. marz
1967.
Þetta er annar veturinn sem
þessi hagstæðu fargjöld eru f gildi,
en þeim var komið á fyrir frum-
kvæði Flugfélags íslands og fékk
félagið þau samþykkt á ráðstefnu
Alþjóðasambands flugfélaga, IATA,
sem haldin var í Aþenu árið 1964.
Fjölskyldufargjöldin til Norður-
landa eru háð svipuðum reglum og
þau fjölskyldufargjöld, sem gilda á
flugleiðum Flugfélags ísiands innan
lands, en samkvæmt þeim greiðir
forsvarsmaður fjölskyldu fullt far-
gjald en aðrir fjölskylduliðar, (maki
og böm upp að 26 ára aldri) að-
eins hálft gjald.
Það skal tekið fram, aö enda
þótt Flugfélag Islands hefði frum-
kvæði um setningu þessara hag-
stæðu fjölskyldufargjalda milli Is-
lands og Norðurlanda, þá njóta far-
þegar annarra flugfélaga, sem
fljúga á sömu flugleiðum, Loftleiöa
og Pan American, sömu kjara.
Skortur á hagfræðimenntuðu fólki
tefur framgang ýmissa mála
Um þessar mundir eru liðin 25
ár frá því að kennsla hófst í við-
skiptafræðum við Háskóla íslands.
Stjórn Félags viöskiptafræðinema
boðaði í því tilefni blaðamenh á
sinn fund nýlega og skýrði frá
Arás á vaktmann
við höfnina
— þegar lögreglan ætlaöi oð handtaka meintan
t
árásarmann, gekk drukkinn félagi i lið með
árásarmanninum. — Þeir fengu báðir gistingu
í nótt var kært til Iögregl-
unnar vegna árásar drukkins
manns á vaktmann um borð í
Reykjafossi. Lögreglan kom á
staðinn og fann brátt meintan
árásarmann, en þegar lögreglu-
þjónar ætluðu aö handtaka
hann, réðist drukkinn félagi á-
rásarmannsins að lögregluþjón-
unum. Upphófust nokkur handa-
lögmál milli lögregluþjóna og
mannanna tveggja, sem lauk
meö því aö félagarnir fengu
gistingu í Síðumúla I nótt. —
Vaktmaðurinn í Reykjafossi
mun ekki hafa slasazt neitt eða
injög óverulega vegna árásar-
Forsætisráðherra flytur er-
indi í Stokkhólmsháskóla í dag
hátíðahöldum, sem félagiö gengst
fyrir um næstu helgi í samvinnu
við Hagfræðafélag íslands. Á fyrr-
greindum blaðamannafundi voru
einnig mættir prófessor Árni Vil-
hjálmsson, og Bjami Bragi Jóns-
son hagfræðingur. Bjarni Bragi
Jónsson sagði m. a. á fundinum,
að svo mikill skortur væri á hag-
fræðimenntuðum mönnum, að mik-
ill dráttur væri á framkvæmd ým-
issa mála, sem hrinda ætt; í fram
kvæmd.
Þessi þróun hefur átt sér stað,
þrátt fyrir stóraukna aðsókn að
viöskiptafræðideild Háskólans, t. d.
hafa um 32 stúdentar innritað sig
til viðskiptafræðináms að meðal-
tali s.l. þrjú ár. Hefur fjölgun nem-
enda sérstaklega aukizt eftir að
reglugerðinni um námið í við-
skiptadeild var breytt 1964. Hag-
fræðafélag íslands sem er félag
hagfræðimenntaðra manna (þ. e.
bæði viöskiptafræðingá og.hagfræð
inga telur nú um 200 félagsm. en í
dag eru 145 stúdentar við nám í
viðskiptafræðum og alltaf er eitt-
Framh. á bls. 6.
Ólafur B. Thors
form. Heimdallar
Aðalfundur Heimdallar, félags
ungra sjálfstæðismanna í Reykja-
vík, var haldinn í gærkveldi 1 Sig-
túni. Fjölmenni var á fundinum.
Tillögur uppstillingamefndar um
stjóm félagsins fyrir næsta ár
voru samþykktar og er Ólafur B.
Thors formaður Heimdallar.
Bjarni Benediktsson, for
sætisráðherra og frú hans,
sem um þessar mundir eru
í opinberri heimsókn í Sví-
þjóð, heimsóttu í gær borg
ina Linköping. Héldu hinir
ísl. gestir frá Bromma-flug-
velli í Stokkhólmi í gær-
morgun. f Linköping og ná-
grenni eru starfandi tvær
af stærstti verksmiöjum
Norðurlanda, hinar víð-
frægu Saab-flugvélaverk-
^miðjur, sem reyndar eru
þekktari hér á landi fyrir
bifreiðir sínar, og Facit
skrifvélaverksmiöjurnar,
sem eru í Aatvidaberg.
Þá héldu forsætisráðherrahjónin
til búgarös hins sænska þingmanns
Einars Gustafsson, en búgarður
þessi er f Karby. í fylgd með hin-
um ísl. gestum í ferð þessard voru
Kling, dómsmálaráðherra Svía og
frú hans, Granberg, sendiherra
Svía á Islandi og frú og Ámi
Tryggvason, sendiherra íslands í
Svíþjóð og kona hans. Komiö -var
til'Brommaflugvallar í gærkveldi,
en flugvöllur þessi er f sjálfri
Stokkhólmsborg.
I morgun heimsóttu forsætisráð-
herrahjónin og fylgdarlið þeirra
hinar heimsfrægu sænsku verk-
smiðjur Telefon AB L. M. Erics^on
og snæddu þar hádegisverð í boði
framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Um hálf fjögurleytið í dag flytur
forsætisráöh. erindi í Stokkh.há-
skóla á vegum Félags um utan-
ríkismál, og að því loknu heldur
forsætisráöherrann fund með blaöa
mönnum á hóteli því, sem hann
býr á. I kvöld verður síðan kvöld-
veröarboð íslenzku forsætisráð-
herrahjónanna á Grand Hotel.
Hundrað synjað
um skólavist
Um hundrað nemendum varð
að synja um skólavist að Eiðum |
þetta skólaár en skólann sitja nú {
115 nemendur og er fullsetinn i
með þá tölu. Þeir nemendur, j
sem sóttu um skólavist og enga
úrlausn hlutu voru ílestir úr
Austfirðingafjóröungi. Bárust
langflestar umsóknir um þriðja
bekk skólans og virðist því sem
þeir nemendur á Austurlandi,
sem hyggja á nám fram yfir
skyldunámið séu í mestu vand-
ræðum með að afla sér þeirrar
Búrfellsdeilan:
FUNDUR I DAG
Samningsfundur var haldinn i
gær með dciluaðilum aö vinnu-
deilunni við Búrfellsvirkiun. Sam-
kvæmt upplýsingum Björgvins Sig-
urðssonar, framkvæmdastjóra
Vinnuveitendasambandsins, sem er
samningsaöði í deilunni fyrir Foss-
kraft, haía náðst samningar um
viss atriði deilunnar, en einhvers
staðar stendur hnífurinn ennþá í
kúnni. Samningsfundur er boðaður
kl. 2 í dag. Náist ekki samkomu-
lag fyrir helgina munu verka-
mcnn við Búrfell efna til skyndi-
verkfalls á mánudag og þriðjudag.
mcnntunar. Fara þó nokkrir
þcirra að skólanum i Lundi i Ax-
arfirði en dæmi eru um það að
nemendur verði að sækja í aðra
landsfjórðunga til þess aö fá inn-
göngu i skóla. Er ekki einsdæmi
að nemendur fari að Laugar-
vatni, i Reykholt og sumir ungl-
inganna hafa oröið að sækja til
Framh. á bls. 6.
„Gegnum hljóðmúrinn#/
„Gegnum hljóðmúrinn“, listaverk Ásmundar Sveinssonar var í
gær, rétt sem snöggvast, sett upp fyrir framan Loftleiðabygglng-
una á Reykjavíkurflugvelli, en þar mun listaverkið standa í fram-
tiðinni. Var verið að athuga hvernig bezt væri að koma myndinni
fyrir, hvemig bezt væri áð snúa henni, en síðan var hún fjarlægð
aftur því að eftir er að gera undirstöðumar.
Myndin er sem kunnugt er unnin í Sindra, undir umsjá Jóns
Gunnars Ásgeirssonar og er það sexföld stækkun á frummyndinni.
Innan skamms tíma mun verða lokið við undirstöður myndarinnar
og henni komið endanlega fyrir.
0k á 120 km. hraða eft-
ir Miklubraut
Bifreiðin tekin af honum
Bifrciö var tekin af ungum
manni, sem ók á ofsalegri ferð
austur eftir Miklubraut í nótt.
Urðu lögregluþjónar fyrst varir
við bifreiðina á Miklubrautinni,
þar sem hún liggur austur úr
Hlíðunum. Tókst lögregluþjón-
unum að halda í við bifreið unga
mannsins og gátu mælt hraða
bifreiðarinnar nokkrum sinnum
þar til eltingaleiknum lauk aust-
ur á móts við Rauðagerði. Mæld
ist hraðinn um 120 km. Farið
var með bifreiðina og unga
manninn niður á lögreglustöð,
þar sem lögreglan tók bifreiðina
í sína vörzlu.