Vísir - 23.12.1966, Side 3
VÍSIR . Föstudagur 23. desember 1966.
Verzlunargluggar stórborgarinnar voru skreyttir og vegfarendur staönæmdust fyrir framan þá. Leik-
fangasmiðurinn var uppistaöan í skreytingu þessa glugga.
Fyrir framan stórverzlunina Macy’s stóð þessi jólasveinn og hringdi
bjöllunni sinni. Við hliðina á honum var kassi, en í hann gátu
vegfarendur stungið skilding handa einhverri góðgerðarstofnuninni.
JÓL UjNDIRBÚIN
Á YESTURHYELI
JARÐAR
Jólahald er nú í undirbúningi
um hinn vestræna heim. Þótt
jólahátíðahöldin sjálf séu með
sitt hverjum hætti í hverju
landinu fyrir sig er jólaösin hin
sama. Sömuleiðis siðurinn að
skreyta híbýli, götur og torg
fyrir jólin. Skreytingamar em
misjafnlega miklar og glæsilegar
og ná allt frá aðalverzlimargöt-
um stórborganna til aðalgötu
smábæjarins, en allar em þær
fyrstu boðberar ljósahátíðarinn-
ar miklu í desember.
I myndsjánni í dag birtum
við svipmyndir frá undirbúningi
jólanna á tveim stöðum á vest-
urhveli jarðar, sem blaðamanni
Vfsis gafst kostur á að heim-
sækja fyrir skömmu í boði
Loftleiða — New York og San
Juan, höfuðborgar Puerto Rico.
Ys og þys á götum milljóna-
borgarinnar New York. Eftir
klukkan 16 eykst mannstraum-
urinn á helztu umferðargötun-
um og þröngin inni í stórverzl-
ununum verður enn meiri.
Fyrir utan stórverzlanir eins
og Macy’s og Gimbels standa
jólasveinar og sveifla bjöllum
sínum, við hliðina á þeim er
venjulega kassi, sem vegfarend-
ur eiga að stinga skildingi í i
góðgerðaskyni fyrir eitthvert
styrktarfélag. Búðargluggar em
allir uppljómaðir og prýða þá
margar og glæsilegar skreyting-
ar.
Jólaösin hefur enn ekki náð
hámarki sinu innan dyra i
verzlununum. Þar er samt margt
um manninn og allt milli himins
og jarðar fæst þar til gjafa í
sérstökum jólaumbúðum. Á
efstu hæðunum er svo venjulega
komið fyrir „Santa Claus“, jóla-
sveini þeirra Engilsaxa. Og
þangað leita bömin til þess að
koma óskalista sínum á fram-
færi. Nýlega var frá því skýrt
í frönsku blaði að nú hefðu
róbótar-vélmenni leyst jóla-
sveinana af hólmi þar úti, og
óskaseðlunum væri nú stungið
í rafeindareikni en ekki varð
þannig fyrirbæri á veginum
þann stutta tíma sem dvalizt
var í New York. Gamli jóla-
sveinninn í rauðu fötunum sin-
um og með hvíta skeggið
virtist enn sem komið var vera
í hávegum hafður.
Heldur var það einkennilegra
qð sjá jólaskrautið hengt upp
milli páhnatrjáa, og á milli húsa
yfir götur San Juan. Þar hafði
nýi tíminn haldið innreið sína
á þann veg að flestar skreyting-
ar voru úr plasti.
Engir jólasveinar voru þar á
ferli og má vera að þeir séu
aðeins síðar á ferðinni en í
milljónaborginni New York.
Verzlunargluggar voru flestir
skreyttir og mikið á sama veg og
við eigum að veniast enda marg-
ar verzlanimar útibú frá stórum
vöruhúsum milljónaborgarinnar
i norðri.
Hér sést fjölleikahúsið, auðvitað hreyfðust öll leiktækin.
Götumyndin er allt önnur í San Juan én i stórborginni New York. Þarna gengur fólk léttklætt um
í hitanum. Skreytingamar eru úr plasti, sem þolir hitann betur.
V