Vísir - 23.12.1966, Qupperneq 8

Vísir - 23.12.1966, Qupperneq 8
B 00 VÍSIR Utgefandi: hlaöadtgáfan VTSIR Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson ASstoðarrltstjóri: Axel rhorsteinson Frfttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingar: Þingholtsstræti 1, símar 16610 og 15099 Afgreiðsla: Túngötu 7 Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 linur) Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuSi innanlands. i lausasölu kr. 7,00 elntakið Prentsmiðja VIsis — Edda hf. Jól í auölegð I dag er annasamasti dagur ársins. Verzlunarfólkið stendur kófsveitt við afgreiðsluborðin og reynir að gera sitt bezta við að fullnægja óskum viðskiptavin- anna um hinar réttu jólagjafir, hinar réttu jólavö'rur og hinn rétta jólamat. Þeir, sem ekki þurfa að þjón- usta almenning á þessum degi, eru á þönum búð úr búð að ljúka jólainnkaupum sínum á síðustu stundu. Og allar líkur benda til þess, að jólin í ár verði dýrari en nokkru sinni fyrr, eins og jól undanfarinna vel- gengnisára. í dag ríkir hvorki friður né rósemi hug- ans, heldur spenna og þreyta. Á morgun verður geng- ið frá umbúnaði síðustu jólagjafanna, jólatrén verða skreytt, og hin mikla umferð bíla, hlaðinna jólagjöf- um, mun einkenna borgina síðdegis. Það verður vart fyrr en annað kvöld, að slaknar á spennunni og jólin sjálf taka hug manna. Og þó munu þeir verða margir sem verða uppteknir af jólamatnum, opnun jólapakk- anna, jólakaffinu á eftir, og fara síðan beint í svefn- inn. Óþarfi er að hugsa af angurværð um liðna tíma, en hins vegar munu margir láta hugann reika til gömlu jólanna, þegar þjóðin var fátæk og hin verald- lega dýrð jólanna minni. Óneitanlega eru jólin orðin býsna ólík jólum fyrri tíma, rólegum og frið- sömum sveitajólunum. En þjóðin hefur gengið götuna fram eftir veg og veit að slíku fylgir jafnan, að gömlu er kastað fyrir borð og nýtt tekið upp í staðinn. Þjóð- in hefu'r viljað berjast til að skapa sér góð lífskjör og lífsöryggi. Sú öld, sem nú er að .líða, hefur ein- kennzt af þrotlausri vinnu, þrotlausum dugnaði og þrotlausum áhyggjum fyrir komandi degi. Þessi bar- átta hefur borið hinn glæsilega árangur, sem við sjá- um hvarvetna í kringum okkur. Síðustu árin hefur sporið verið greikkað á götunni fram eftir veg. Landbúnaðurinn hefur vélvæðzt í rík- um mæli, sjávarútvegurinn á nýjan flota glæsilegra fiskiskipa, og iðnaðurinn er að taka sjálfvirkni og fullkomin vélakerfi í þjónustu sína. Meirihluti lands- manna býr í eigin húsnæði, hvarvetna sjást ný hús- gögn, ný teppi, ný málverk, ný eldhústæki, eldavélar, grillofnar, ísskápar og jafnvel frystikistur og upp- þvottavélar, ný sjónvarpstæki og nýir bílar. Velmeg- unin hefur flætt yfir landið á síðustu árum, svo að þjóðin stendur nú í fremstu röð á því sviði. Óhjákvæmilegt er, að hinir nýju hlutir og hinn nýi hugsunarháttur velmegunarþjóðfélags ryðji úr vegi gömlum verðmætum sem öðru gömlu. En óskandi er, að sem fæstir fari á mis við rósemi hugans og jólafrið- inn, sem einkenndu gömlu jólin, og í þeirri von ósk- ar Vísir öllum lesendum sínum gleöilegra jóla! V1SIR . Föstudagur 23. desember 1966. Listir-Bækur-Menningarmál Eiríkur Hreinn Finnbogason skrifar bókmenntagagnrýni. Geir biskup i vinarbréfun 1790 — 1823 Finnur Sigmundsson bjó til prentunar Bókfellsútgáfan Reykjavik 1966 JOréfabækur Finns Sigmunds- sonar eru nú orðnar 7 að tölu og hver annarri merkari. Segir hér f formála, að þessi sé hin síðasta, og verður þvf ekki tekið með neinni gleði af þeim fjölmörgu, sem mætur hafa feng ið á bókum þessum. Því að þær eiga allar sammerkt f þvf, að þær veita ekki aðeins glöggan skilning á því ágæta fólki, sem ritaöi bréfin, heldur það sem er enn mikilsverðara, betri skilning en nokkur önnur prentuð rit á íslenzku þjóðlífi þeirra tíma, þegar bréfin voru rituð, þ.e. 19. öldinni, einkum fyrri hluta hennar. Þá börðust íslendingar fyrir lífinu við kjör, sem eru svo ólík okkar kaupglöðu timum sem mest má verða. Þá var efnaleg fátækt, en andleg reisn, sem kemur ekki sízt fram í þeim bréfum kvenna, sem dr. Finnur hefur safnað, og þessari bók, bréfum Geirs biskups góða. Geir Vídalín var fyrsti biskup yfir öllu Islandi næstur á eftir Gissuri Isleifssyni (d. 1118). Hann hefur þá sérstöðu meðal íslenzkra biskupa, að enginn var svo fátækur sem hann, en sjálfsagt enginn betri. Hann var satt að segja mjög ólíkur þeim öðrum íslenzkum biskupi sem hlaut sama viðumefni, m. a. að því leyti, að frá Guömundi góða stafaði stöðugt ófriður og of- stæki, en frá Geir friöur og um- burðarlynd góðvild. Mackenzie, sem var hér á ferð sumarið 1810, hafði nokkuð saman við Geir biskup að sælda og dáðist að kunnáttu hans og þekkingu, en ofbauð fátæklegur búnaður hans og húsakynni, eins og fram kemur í bók hans, en hann bætir þvi við, að þegar hann hafi kynnzt íslenzku þjóðinni, hafi hann séð, að biskup var ekki fátæklegar til fara en aðrir. Má því e.t.v. segja, að biskup- inn hafi að þessu leyti verið dæmigerður fulltrúi þjóöarinnar á þessum tíma — andlega mikill, illa klæddur. Það ber a.m.k. alls ekki að kenna einhverri sér- stakri óráðsíu biskups fátækt hans, jafnvel þótt hann vildi öllum gott gera. Allir voru fá- tækir þá, embættismenn jafnt sem aörir, vegna stöðugs verð- falls peninga. Um það segir bisk up í einu bréfanna, þegar hann ræðir um efnahag landsmanna: „Hér af getur þú nærri hver embættismannakjör eru. Um mig sjálfan vil ég ekki tala svo fljótt, en að sá sparsami ass- assor Gröndal, sá duglegi Mco- nom Isleifur Einarsson, endog Bezti mágur, sá alþekkti öko- nomiski bölsóti .. séu aHir að sökkva f stórar skuldir, það er þungt að vita“ (61). Um bréf Geirs biskups má segja, að þau séu heillandi lest- ur, bæði vegna hans auðuga tungutaks og mjög svo við- felldna Iffsviðhorfs. En undir- niðri eru þau átakanieg eins og tímamir, þegar þau eru rituö. Biskup mun að eðlisfari hafa verið glaölyndur maður og glett- inn, og er hann algerlega laus viö víl og barlóm 1 bréfum sín- um. Hefur þetta lundarfar ef- laust fleytt honum yfir margt, meðan aðrir lögðustísinnisveiki, eins og Gröndal. En þrátt fyrir kímnina er svo hér, að oft er eins og að baki sjái í opið sár. Bréfin eru flest til Bjama Þor steinssonar, síðar amtmanns á Stapa, sem verið hafði skrifari hjá biskupi áður en hann fór til Hafnar, og var erlendis í mörg ár. Og þar eð annar tilgangur bréfanna er að segja fréttir, kemur biskup víða við, og vegna þess sýna bréfin okkur svo óvenjulega langt inn í þjóð- lífið, — þjóðlíf hjálparleysis, yfirvofandi mannfellis, þjófa, morðingja og yfirfulls tukthúss. Það er betra biskupi landsins, sem vegna skarpskyggni sinnar og blíðra tilfinninga gerir sér þetta ljósara en flestir aðrir, að vera ekki alltof uppvægur. Biskupi ber að vera strangur prestum sinum, en þag er Geir biskupi örðugt eins og allt er f pottinn búið, því að hann gat ekki litið á nokkur mál öðru visi en frá mannlegu sjónarmiði. Gamall prestur vanrækir emb- ætti sitt og biskupi berst um það kæra frá amtmanni. Um þaö segir svo: „Ég skrifaöi prófasti að rannsaka þetta efni, og reyndist þá of mikig satt í því, karlskepnan ekki hefur prédikað á vetmm, þegar kalt hefur ver- iö, ekki farið í húsvitjun og sjaldan spurt böm í kirkju. En undir eins upplýstist, að hann er hestlaus, reiðtygjalaus og klæðlaus. Nú sé ég það eina til ráöa, að hann resigneri, og þá liggur ekkert fyrir honum nema sveit hans á Suðumesjum. Guð náði rentukammerið fyrir með- ferðina á honum!“ Því má bæta við, að þessi gamli prestur hafði áður verið kirkjuprestur á Hól- um og prófastur í Hegranes- þingi, en búig við erfíðan fjár- hag, eftir að Hólastóll var lagður niður. En srvo ber kfmnin stimdum allt annað ofurliði, t.a.m. þegar biskup skýrir frá láti sr. Eggertt Eirikssonar í Glaumbæ: „Hann var mestur reiðmaður allra Skagfiröinga alla sína tíð, á- flogamaður vig betri kost, skáld sæmilegt, þó heldur níðskæld- inn“ (174). Um einstök mál og persðnur em þessi bréf fróðleg, svo sem um Ásgrím Hellnaprest og af- stöðu biskups til hans, sem var honum afskaplega lik, en þó virðist biskupi satt að segja of bjóða sumt. Einnig em bréfin m.a. fróðleg um Benedikt Jóns- son Gröndal, sjúkleika hans, af- stöðu hans til Jörgensens o. fl. Gaman er að siá, hvað biskup skrifar um tvo imga menn, sem báðir em að fara til Hafnar í fyrsta sinn, en urðu síðar fræg- ir menn. Um Þorleif Repp segir hann: „Meðal þeirra mörgu landa minna, sem utanlands fara í ár, er Þorleifur sonur Guðmundar prests Böðvarsson- arr, eins félaus og guð hjá Seneka ..., en að ætlun minni einar meg betri gáfum, þar hjá ungur, óriðinn og framgjam. Gjörðu svo vel og ráð þú honum heilt, og vertu honum í góðum hótum, því ég hygg, að hann sé mannsefni.“ (130). Um Björn Gunnlaugsson, stærðfræöing segir biskup: „Bjöm held ég væri vel brúk- anlegur sem slæbebest hjá hverjum mathematíkus, því hann er þar heima sem víðar annarsstaðar." (155). Frágangur bókarinnar er allur hinn vandaðasti, eins og annarra bréfasafna Finns Sigmundsson- ar, látlaus og smekklegur. E. H. F.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.