Vísir - 04.02.1967, Blaðsíða 1

Vísir - 04.02.1967, Blaðsíða 1
57. árg. - Laugardagur 4. febrúar 1957. - 30. tbl. Kostar 860 þúsund að þjálfa einn fiugstjóra fyrir Boeingþotu F.l. Þjálfun hvers flusstjóra hjá ’ Flugfélagi íslands, sem starfa mun á Boeing-þotu félagsins kostar um 860 þús. kr. auk ým- iss annars smærri kostnaöar. Þjálfun aöstoöarflugmanns kost- ar 430 þús. kr. Hafin er i Reykjavík þjálfun 12 flugmanna og sex vélamanna fyrlr flug á hinni væntanlegu Boeing-þotu Flugfélags Islands. Fer undirbúningsþjálfun þessi fram undir handleiöslu Siguröar Þorkelssonar verkfræðings hjá Landssíma íslands og Guðmund- ar SnorrasoiHir yflrmanns flug- umsjónar F.l. Hefur Guðmundur verið í þjálfunarstöð Boeing í Seattle til aö kynna sér nauð- synleg atriöi varðandi þessa þjálfun. Flugmennirnir og véla mennirnir munu síöar halda til Seattle ttl frekari þjálfunar. Á- höfn þotunnar verður 8 manns, flugstjóri, flugmaöur og ’ véla- maður auk fimm flugfreyja. Far þegafjöldi verður 119. Jóhann Gíslason deildarstjóri fluígrekst ursdeildar hefur yfirumsjón meö þjálfun og móttöku Boeingþot- unnar fyrir F.I. FÍ flytur Gullfossfar- þega heiman og heim Þeir munu starfa á Boeing-þotu Flugfélags Islands. Myndtn er tekin á þjálfunamámskeiöi, sem stend ur yfir í stöðvum Flugfélags íslands á Reykjavíkurflugvelli. (Ljósm. Vísis B.G.) í fyrramálið kl. 7 fara tvær Cloudmastervélar Flugfélags ís- lands Skýfaxi og Sólfaxi með 140 farþega til Lissabon, en þar ganga þeir um borð í Gullfoss, sem flytur ^ þá í skemmtiferð. Jafnframt flytja þessar vélar farþegana, sem fóru utan með Gullfossi til Lissabon heimleiðis um London og koma þeir á þriðiudagskvöld. Sveinn Sæ- mundsson, blaðafulltrúi Flugfélags Islands, sagðist hafa sannfrétt að ferðalöngunum um borð í Gullfossi hefði liðið miög vel og að beir væru hæstánægðir með ferðalagiö. 178 þús. smálestír af fiskimjöli framleiddar stðasta ár Mjölframleiðsla Iandsins 1966, Isýnt að magniö muni nema um I leiðslunnar hei'ur aukizt mjög hin var meirj en hún hefur nokkru 178.000 smálestum, en árið áður seinni ár. Á nýliðnu ári nam fram- sinni verið áður. Þó að endanleg- var heildarframleiðslan 1 173.578 leiðsla loðnumiöls 19.000 lestum ar tölur liggi ekki fyrir enn, erllestir. — Hlutur loðnumjölsfram-1 en aðeins 8105 lestum árið áður. Aflayfirlit: Afíahæstu hnubátarnir með rúmar 100 lestir / janúar Vertíðin hefur eínkennzt al aflatregðu og ógæftum bað sem af er. Smærri bátarnir hafa flest ir róið með Iínu. Togveiðibátar i Eyjum og á Suðurnesjum hafa iítið róið, enda er aflinn næsta tregur. Síldarbátarnir, sem komu að austan undir janúar- lok búast flestir til netaveiða, nema nokkrir, sem ennþá veiða síld við Vestmannaeyiar og hafa fengið reytingsafla upp á síð- kastið, um 100 tonn þegar bezt lætur. Nokkrir stærrj bátanna hyggja á loðnuveiðar. -•«> Fjárhagsáætlun Kópavogs samþykkt • Fjárhagsáætlun Kópavogs- kaupstaðar fyrir árið 1967 liggur nú fyrir og eru niðurstöður hennar 79.5 millj. króna. Af þessari upp- hæð er gert ráð fvrir 17.605.000 kr. til félagsmála. 10.485.000 til fræöslumála, 10,5 millj. kr. til gatna og holræsagerðar og 10 milljón krónum t:l skólabygginga. 9 Aðaltekjuliðir samkvæmt á- ætluninni verða: Otsvör 60 millj. kr., jöfnunarsjóðsframlag 11 millj. kr. og aðstöðugjöld 4.8 millj. króna. Hér fer á gftir stutt yfirlit yfir afla vertíðarbáta í ,ein- stökum verstöðvurp í janúar: Hamar frá Rifj aflahæstur í ' janúar — 106 tonn. Tveir stórir bátar reru með línu frá Rifi (Hellissandi) í jan- úar og einn Iítill dekkbátur. Heildaraflinn var 201 tonn. Aflahæstur var Hamar með 106 tQnn, og er hann aflahæsti ver- tíðarbáturinn frá verstöðvum SV-Iands í ianúar. Hafrún GK fékk 75 tonn. Einn netabátur er byrjaður að róa frá Rifi, Pétur Sigurðsson RE en afli hefur verið næsta tregur. Fiskur virð- ist ekki vera genginn í Breiða- fjörðinn ennþá, en þar var góð- ur netaafli í fyrra og þangað sóttu margir sunnanbátar, svo að fjöröurinn var þéttriðinn netatrossum. 4 fiskvinnslustöðv ar (þar af 3 nýjar) taka á móti fiski í Rifi og Hellissandi. og 1 frystihús, en búizt er við að baðan rói 13 bátar á vertíðinni i vetur. Ólafsvíkurbátar að byrja á netum. Valafell var eini stóri bátur- inn sem reri með línu frá Ólafs- vík 1 janúar og fékk hann 84 tonn í 13 róðrum í mánuðinum. Nokkrir bátar eru byrjaðir neta veiðar frá Ólafsvík, en hafa afl- að lítið, eða 4 og allt niður í Framh. á bls 10 Hér er um mikla aukningu að ræða sem vert er að gefa gaum. Loðhuveiðar hafa verið stundaðar árum saman, en eingöngu til beitu og aðeins fá ár síðan farið var að vinna hana 1 verksmiðjum að nokkru ráði. Það eru sannarlega góð tiðindi þegar svo til ný at- vinnugrein myndast hér á landi. Ef til vill eru fleiri fisktegundir hér við land sem vert væri að gefa gaum, og má 1 því sambandi benda á sandsílið og spærlinginn. Þorskmjölsframleiðslan var nokkru minni áriö 1966 en árið áður, en karfamjölsframleiðslan var nokkurn veginn sú saraa. Búast má við að karfamjölsframleiðslarr minnki á næstu árum vegna sam- dráttar í togaraútgerðinni. Um áramótin ’65 ’66 var gott verð á fiskimjöli og hafði það komizt í hámark ihaustiö 1965. Upplýsingarnar 1 þessa frétt eru byggðar á grein, sem Jónas Jóns- son reit 1 tfmaritið Ægi, fyrsta hefti þessa árs, en Fiskifélag Is- lands gefur tímaritið út eins og kunnugt er. 32 nemendur MA á leikför í Reykjavík Leikfélag Menntaskólans á Ak- ureyri hefur tvær sýningar í Reykjavík á Biedermann og brennu vargarnir eftir Max Frisch í Tjam- arbæ í dag og á morgun. Hefst sýningin 1 dag kl. 20 og kl. 16 og 20 á morgun. Þrjátfu og tveir nem- endur MA eru staddir'í Reykjavík vegna sýningarinnar. Leikinn er eftirléikur, sem var felldur niður þegar leikritið var sýnt hér f Reykjavík fyrir fáum árum. Leik- félag Menntaskólans hefur haft fimm sýningar á leikritinu á Akur- eyri, tvær á Húsavík. Fyrirhuguð er auk sýninganna í Reykjavík ein á Akranesi á þriðjudag. Leik- stjóri er Erlingur Halldórsson. Próf í Hóskólanum Siðustu prófunum i Háskól- anum er nú að ljúka. í fyrradag luku embættisprófi i læknis- fræði Ólafur Mixa og Páll B. Helgason. Að þessu sinni luku þrjú BA-prófi þau Evsteinn Björns- son, Gunnar Jónsson og Sigríð- ur P. Erlingsdóttir. Möguleikar á samstarfi um nýja dráttarbraut kannaðir ! Bragi Hannesson, borgarfulltrúi ; Sjálfstæðisflokksins, flutti tillögu | þess efnis á borgarstjómarfundi sl. fimmtudag, að hafnarstjóra og hafn arstjórn yrðj falið að gera ítarlega könnun á þörf fyrir nýrrl dráttar- braut í Reykjavik, þar sem fram kvæmdir eru nú hafnar við 1. á- fanga Sundahafnar. — Jafnframt lagði hann til, að athugað yrði, hvort möguleiki væri á samstarfi þeirra aðila í borginnl, sem hags- j muna hafa að greta, um þetta mál j og hvort ástæða /er til að hvetja Fiskiskip landsmanna hafa stækk að ört hin seinni ár og eru flest þeirra, sem nú eru keypt til lands- ins, stálskip. Aðstaða til viðgerðar hefur ekki vaxið að sama skapi, enda er töluvert um það, að stál- fiskiskipum sé siglt utan fil við- gerða, m.a. til Færeyja. — Viðgerð ir á fiskiskipum er ekki hægt að1 stunda nema hluta ársins vegna veiðitímans og því hentugt að hafa nýsmíðar samhliða viðgerðunum. Nægur markaður er innanlands fyr- ir stálfiskiskip, en undanfarin ár hafa verið smíðaðar um 4000 brúttólestir árlega fyrir Islendinga í 150-400 tonna fiskiskipum. Um þessar mundir er verið. að reisa nýjar dráttarbrautir í Njarð- víkum, Akranesi, Stykkishólmi, Isafirði og Neskaupstað, sem geta tekið upp stór stálfiskiskip til við- geröar. Á Akureyri er verið að und irbúa smfði dráttarbrautar, sem mun geta tekið upp 2000 lesta skip og í athugun er að koma upp drátt arbraut í Hafnarfirði sem gæti tek ið upp 600 lesta skip. Stálskipasmíði innanlands hefur eflzt mjög undanfarið. 1 Garða- hreppi eru nú 3 skip í smíðum, á Akureyri er unnið að smfði nýs stálskips og stálskipasmfðar eru í þann veginn að hefjast á Akranesi ísafirði og f Njarðvíkum. Tillaga Braga Hannessonar var breytingartillaga við tillögu Guð- jóns, Jónssonar (A'lþ.bl.), sem var að mestu leyti samhljóða efnislega nema þar var gert ráð fyrir sér- stakri 7 manna nefnd sem yrði fal ið þetta verkefni. — Var breytingar tillaga Braga samþykkt með 8 at- kvæðum gegn 5. I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.