Vísir - 04.02.1967, Blaðsíða 16

Vísir - 04.02.1967, Blaðsíða 16
I VISIR < /ICUI Uctl 1(/UI Hnskólanum færð- ar 100 þúsund krónur að gjöf Forráðamenn fyrirtækisins J. Þorláksson & Norðmann hafa af- hent Háskóla íslands 100 þús. kr. að gjöf í minningarsjóð Jóns Þor- lákssonar verkfræðings, til styrkt- ar verkfræölnemum við Háskóla ís lands eða til framhaldsnáms við er- lenda háskóla. Gjöfin er afhent í tilefni af 50 ára afmæli J. Þorláksson & Norð- mann h.f. en sjóðurinn var stofnað ur á 75 ára afmælisdegi Jóns Þor- lákssonar árið 1952 af ekkju hans frú Ingibjörgu Þorláksson. Úthlutanir úr sjóðnum fara fram árlega. K0MUM SAMAN TIL ÞESS AÐ VIÐHALDA KYNNINGUNNI" Niðjasamtök Gunnlaugsstaða héldu árlegan fagnað sinn i gærkvöld,talað við Oskar Jónsson, einn af 16 systkinum, sem stofnuðu samtókin — Síöast þegar ég vissi ætl- uðu urn 140 manns að koma á fagnaðinn, allt afkomendur og tengdabörn hjónanna Jóns Þór- ólfs Jónssonar bónda á Gunn- laugsstöðum í Stafholtstungum í Borgarflrði og Jófríðar Ás- mundsdóttur frá Höföa í Þver- árhlíð, sagði Óskar Jónsson, einn af. 16 börnum þessara merkis- hjóna, þegar blaðlð talaði viö" hann fyrir skömmu. Er Óskar talsmaður Niðjasam taka Gunnlaugsstaða sem héldu árlegan fagnað sinn í Lindarbæ í gærkvöldi. Eru niðjasamtökin ærið merkilegur félagsskapur þar sem hann er bundinn við eina ætt, systkinin 16, sem öll eru á h'fi og maka þeirra, böm, barnabörn og barnabarnabörn. Er blaðinu ekki kunnugt um jafn fjölmenn niðjasamtök sem koma saman reglulega. Upphaflega voru samtökin stofnuð að Bifröst í Borgarfirði þann 4. júlí 1965 af systkinun- um 16. — Ég held að fátítt sé að stofnað sé til svona ættarsam- taka, segir Óskar, þótt ættarmót hafi veriö haldin hér í bænum. Við höfðum hugsað okkur að koma saman einu sinni á ári og í byrjun hugsuðum við okk ur fremur að halda mót annað hvert ár uppi í Borgarfirði og héldöm í fyrra þannig skemmt- un og höldum því sennilega á- fram. En svo langaði okkur, þau af ættinni, sem erum bú- sett í Reykjavik og nágrenni að Framh. á bls 10 Skákkeppni stofnana hefst 15. febrúar — keppt um Visis-bikarinn Skákkeppni stofnana hefst 15. þ.m. i Lidó. Þetta er 8. firma- keppnin, en þátttaka fyrirtækja hef ur jafnan verið góð. í fyrra tóku 40 sveitir þátt í keppninnl. Keppt er um verðlaunabikar, sem dagblað ið Víslr gaf á sinum tíma. Teflt verður í tveimur flokkum 6 umferðir eftir Monrad-kerfi, tvær umferðir á kvöldi. A-sveit Búnaðarbankans sigraði í fyrra f A-fiokki og B-sveit Hreyfils í B-flokki. Samkvæmt reglum keppninnar falla 7 neðstu sveitirnar í A-flokki niður f B-flokk, en 7 éfstu sveitir í B-flokki flytjast upp í A-flokk. Hver sveit keppir á 4 borðum, en sveitin má vera skipuð allt að 7 mönnum, 3 varamönnum. Jón Kristinsson sér um fram- kvæmd mótsins fyrir hönd Skák- sambands íslands og tekur við þátt tökutilkynningum í síma 19927 og veitir allar nánari upplýsingar. — Auk þess má sk'Ia i''>tttökutilkynn ingum í pósthólf 674. i Loftleiðir flytja i nýja farmiðasólu: Innréttuðu á mánuði! Loftleiðir láta ekki að sér hæða, þegar byggingafram- kvæmdir eru annars vegar. 1 morgun opnuðu Loftleiðir glæsi- lega söluskrifstofu í 80 fermetra húsnæði að Vesturgötu 2, þar sem llstaverk íslenzkra málara prýða harðviðarveggi og dún- mjúk teppi á gólfum. Fyrir rúm- um mánuði var Rafrorka með verzlun sína í þessu húsnæði, en Loftleiðir keyptu húsið í desembermánuði og hófu þegar í ársbyrjun að innrétta það með þeim árangri að nú er allt til- búið. Til þessa hafa Loftleiðir búið við heldur þröngan húsakost fyrir farmiðasölu sína, nú síð- ast í Lækjargötu 2, Austurstræt- ismegin, en þar var aðeins hægt að koma fyrir 2 skrifborðum vegna þrengsla. Gerði starfs- fólkið að gamni sínu í gær og sagði aö einn hefði alltaf orðið að vera úti í einu til að allir kæmust að, sem vildu. „Þetta var líkt og á loftbor, — við unnum á hálftíma vöktum“. Húsnæðið að Vesturgötu 2 keyptu Loftleiðir af Verzlunar- Framh. á bls 10 Niðjar Gunnlaugsstaðaættar, fjölmennustu niðjasamtök sem um getur komu saman í Lindarbæ í gærkvöldi. Slökkvistöðin / Keflavík senn I Samkvæmt upplýsingum sem Helgi S. Jónsson, slökkviliðsstjóri, veitti blaðinu, mun fvrsti áfangi nýrrar slökkvi- og lögreglustöðvar byggingar í Keflavík verða tekinn í notkun um mánaðamótin febrúar marz. Helgi sagði að sá áfangi, sem nú er verið að liúka viö, sé ^aðeins einn fjórði hiuti fyrirhug- aðrar byggingar. Geymslurými i þessum hiuta verður fyrir sex bif- reiðir, en auk þess verður þar varðstofa og eitt herbergi til við- bótar. í kjallara eru geymslur og kyndiklefi. Aðstaöa verður til við gerða á slökkviliösbifreiðunum, en slökkviliöið á nú 3 bifreiðir og á von á þeirri fjórðu í marz. Slökkviliðið annast brunavarnir á skaganum, m. a. í Sandgeröi, Grindavík, Garði, Niarðvíkum og Keflavik. Á síðastliðnu ári urðu útköll 58 í allt, og skiptust þau niður á fyrrgreinda staði. Brunar urðu bæði í húsum og bátum. 24 menn eru í slökkviliðinu, en enginn fast- ráðinn ennþá, sagði Helgi. Bygging slökkvistöðvarinnar hófst í ágúst sl. og mun fyrsti áfanginn verða tilbúinn til notk- unar um mánaðamótin febrúar — marz, eins og fyrr ségir. Þórarinn Ólafsson er trésmiða- meistari við bygginguna, og er hún hin vandaðasta að öllum frá- gangi, sagði Helgi að lokum. Gunnar Gunnarsson í 14-17 sæti í Júgóslavíu Gunnar Gunnarsson teflir nú á^ millisvæðamóti f Júgóslavíu — í l Vranjacka Banja og síðast þegar fréttist frá Gunnari voru fimm um- ferðir eftir og hann í 14-17 sæti með fjóra vinninga. Efstir á mót- inu voru þeir Ivkov og Matanaovic með 8y2 vinning hvor, Georghiu og Fuchs með ll/2 vinning og síðan þeir Hamann, Barczay og Kostro með 7 vinninga og Lengzel og Jansa með 6]/2 vinning hvor, en Gunnar gerði jafntefli við hina þrjá síðasttöldu. Gunnar á eftir að tefla við Iv- kov, Georghiu, Barczay og Pach- man, sem allir eru fremur sterkir skákmenn. Fyrstu skákir Gunnars á mótinu fóru heldur illa, en hann hefur sótt sig upp á síðkastið. Þátttakendur eru 18 í mótinu. Sjólfstæðísfélögin ó Akureyri Spilakvöld verður n.k. sunnudags kvöld í Sjálfstæðishúsinu á Akur- eyri. Hefst það kl. 20.30. Félagsvist og góð verðlaun. Maríus Helgason umdæmisstjóri flytur ávarp. Skemmtiatriöif Dansað til kl. 1. Forsala aðgöngumiða verður i skrlf stofu Sjálfstæðisflokksins Hafnar stræti 101 á sunnudae kl. 2-3. )

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.