Vísir - 04.02.1967, Qupperneq 2
I
V í SIR . Laugardagur 4. febrúar 1967.
Danska liðiö viö komuna til landsins i gær.
REYKJA VÍK Á í HÖGGI VIÐ
SEX AF SILFURMÖNNUM DANÁ
Reykjavík og Kaup-
mannahöfn munu kljást
á handknattleiksvelli í
dag í Laugardal. Þá mun
íslenzkum áhugamönn-
um gefast kostur á að
sjá 6 af dönsku silfur-
mönnunum í leik. Einn
leikmanna Kaupmanna
hafnarúrvalsins forfall-
aðist á síðustu stundu,
Bent Jörgensen frá Stad
ion — fékk ekki frí úr
herþjónustu, en í hans
stað kom Per Krustrup
frá MK31.
Danska liöig er að öðru leyti
þannig skipað: Arno Norsek,
HG, og Steen Sörensen, IK25,
eru markverðir. Jörgen Frand-
sen, Stadion, Verner Gaard,
HG, Gert Andersen, HG, Per
Claus Jörgensen, Ajax, Kurt
Christensen, Ajax, Max Nielsen,
MK 31, Per Krustrup, MK31,
Gunnar JUrgens, HG, Börge
Thomsen, HG og Arne Ander-
sen, Efterslægten.
í dag fer fram' aöalleikurinn,
leikurinn við ' Reykjavfkurliöið,
en á morgun stendur slagurinn
milli Kaupmannahafnar og
reykvísku meistaranna Fram, en
á þriðjudag munu dönsku gest-
imir snúa heim á leið, en hing-
að komu þeir í fyrrakvöld.
Eins og sjá má hefur lið
Kaupmannahafnar verið valið
með HG sem uppistöðu, enda
er það lið eitt af leiðandi liðum
í dönskum handknattleik og
hefur verið mörg undanfarin
ár.
Reykjavíkurliðið verður skip-
að mörgum snjöllum leikmönn-
um: Þorsteinn Björnsson, Fram,
og Einar Hákonarson, Víking;
Sigurður Einarsson, Gunnlaug-
ur Hjálmarsson og Guðjón Jóns
son allir úr Fram, Jón Hjaltalín
Magnússon og Einar Magnússon
úr Víking, Hermann Gunnars
son, Stefán Jónsson og Ágúst
Ögmundsson allir úr Val og
Karl Jóhannsson úr KR.
Loks
+ Loks sigraði KR í sund-
knattleik!
if Eftir þessu hafði verið
beðið f 23 ár, — og loksins eftir
mikla þrautseigju, sem oft vill
einkenna KR-inga, hafðist það
af að sigra. Og nú á ekki að
láta staðar numið, heldur halda
áfram, það eiga ekki að líða
önnur 23 ár þangað til næsti
sigur vinnst.
ic Þessi mynd af KR-liðinu
var tekin í Sundhöllinni í fyrra-
kvöld. Lengst til hægri er for-
maður KR, Einar Sæmundsson,
sem var einn þeirra, sem var
með í að sigra Ármann fyrir 23
árum, en lengst til vinstri er
Þorsteinn Hjálmarsson, sem ný-
lega tók við þjálfun KR-liðsins,
en um mörg undanfarin ár hef-
ur hann séð um þjálfun Ár-
menninga, sem svo lengi hafa
verið sigursælir.
Borgakeppni í handknattleik
í dag kl. 17 Reykjavík — Kaupmannahöfn. Dómari: Hannes Þ. Sigurðsson. Forleikur: Unglingalandslið karla
A og B. Verð miða kr. 125 og kr. 50 fyrir börn.
HKRR