Vísir - 22.02.1967, Blaðsíða 3

Vísir - 22.02.1967, Blaðsíða 3
V1S IR. Miðvikudagur 22. febrúar 1967, 3 „Ég elska þig.“ Halldór Vilhjálmsson sem Pétur, Bryndís Helga- dóttlr sem Halla og Brynjólfur Bjarnason, dóttursonur Brynjólfs Jóhannessonar fer þarna meö hlutverk afa sfns, Andrés, hinn marg-skorna sjúkling. — Önnur aðalhlutverk leiksins leika þeir Magnús Guænarsson (Dr. Svendsen) og Siguröur B. Oddsson (Stór- ólf leynilögreglumann). Skólahljómsveitin; Bjöm Björnsson, Halidór Kristlnsson, Guðmundur Jónsson og Georg Gunnarsson. „Allt á öörum endanum, það má nú segja. Það gengur mikið á sfðustu dagana fyrir skemmt- irúna, þannig hefur það alltaf verið“. Myndsjáin brá sér á bak viö tjöldin I Sigtúni og hitti þar aö máli Gunnar Pálsson formann Nemendamótsnefndar Verzlun- arskólans, en nefnd sú ber hita og þunga dagsins fyrlr þessa stærstu skemmtun skólans. Þar stóð yfir lolcaæfing á skemmtiatriðum og andrúmsloft ið var brungið spennu. „Redd- aramir“ vom á sífelldum þön- um með magnara og önnur tól, sjálfar stjörurnar elgrandi um I annarlegu hugarástandi, sem skapast einatt á seinustu augna blikunum fyrir stórátök. Jan Morávek sat við píanóið og beið eftir þvl að magnaram ir yrðu tilbúnlr fyrir söngkvint ett. Morávek hefur æft söng með nemendum og stjómar Nemendamótskómum, sem syng ur meðal annars lög úr söng- leiknum „The sound of music“ Þrjár léttklæddar námsmeyj ar vom í þann veginn að Ijúka sínu atriði á dansgólfinu, Jazz- ballett frá Dansskóla Sigvalda og lófatak kvað við i salnum. Allt að því þriöjungur skólans vírtist vera viðriöinn þessa há- tíð, enda er skemmtiskráin æði fjölþætt. Auk áðumefndra at- riða má nefna Annál ársins, skólahljómsveitina og sfðast en ekki sízt leikritið „Allra meina bót“ eftir Patrek og Pál með lögunum hans Jóns Múla, sem gerðu garöinn frægan á sínum tíma. Leikurinn er nokkuð stytt ur í flutningi 6. bekkinga (stú- dentsefna). — Lelkstjóri er Pét- ur Einarsson, einn af leikurum Leikfélags Reykjavíkur. Þetta er aö sjálfsögöu stærsta atriði dagskrárinnar og þaö sem mest- an undirbúning kostar. Undir A síðasía snúning Fyrír Nemendamót Verzlunarskólans söngvana Ielkur skólahljómsveit in, en aðalleikendanna er getiö hér í myndatextunum. Nemendamótiö fór svo fram með pomp og pragt í gærkvöldi en Gunnar Pálsson kvaðst von ast til þess að skemmtunin yrði endurtekin tvisvar fyrir yngri nemendur skólans einhvern tíma nú í vikunni en húsnæðiö rúmar ekki alla nemendur skól ans og síðan fyrir foreldra og aðstandendur á sunnudag. Undirbúning mótsins kvaö Gunnar hafa staðið sfðan í októ ber og á ýmsu gengið. Þó væri það nú svo, eins og oftast að allt þyrfti að lenda á síðasta snúning.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.