Vísir - 22.02.1967, Blaðsíða 16
Rómlega tveggja atda eltl-
stöðvar að koma undan jökíi
Eftir því sem jöklar minnka og
styttast hér á landi, kemur i si-
fellu eitthvað fram sem hefur
verið hulið undir þeim i árhundruð.
— Eldstöðvar eftir gos, sem varð
í Öræfajökli árið 1727, eftir þvi
sem heimildir herma, eru nú að
koma i ljós við Sandfellsfjall, þar
sem oftast er farið upp á Öræfa-
jökul. Dr. Sigurði Þórarinssyni
hefur verið gert viðvart um þetta,
en rannsóknir hafa ekki farið fram
á eldstöðvunum enn. — Einn
bræðranna á Kvískerjum í Öræfa-
sveit, Sigurður, hefur ritaö
um þessar eldstöðvar og mun grein
eftir hann birtast í næsta tölublaði
Jökuls, tímarits Jöklarannsóknar-
félagsins, að því er dagbl. Tíminn
herrnir. — Gosið var mjög mikið
að þvl er sögur herma, og olli
manntjóni.___________________
Með því skásta sem við höfum komizt í
— segir Arinbjörn Sigurðsson skipstjóri, sem
kom með 260 tonn eftir 8 daga við Grænland
Togarinn Sigurður var nokkuð
siginn af karfafarminum, þegar
hann Iagðist að Geirsbryggjunni
á miðnætti sem leið. — Kom
beint frá Grænlandi með 260
lestir innanborðs eftir 8 veiði-
daga þar. Skipið hafði aðeins
fárra tíma dvöl hér, sigldi aftur
út fyrir morgunsárið á leiö til
Þýzkalands í söluferð. Þar er nú
karfaskortur og góðar söluhorf-
ur, eins og sölumet Maí sýnir.
Vísir ræddi lítillega við skip-
stjórann á Sigurði, Arinbjörn
Sigurðsson, rétt, eftir að skipið
lagðist að bryggju.
— Jú, þa'S er rétt, kvað hann,
aflinn hefur verið 1 góður þarna
við Grænland og skipin hafa
ekki verið þar mjög mörg að
veiðum, en þau koma sjálfsagt,
þegar búið er að segja svona
rækilega frá þessu í blöðunum.
— Fenguð þið þetta í hrotum?
— Aflinn var, já, nokkuð
misjafn mest 10 tonn f hali,
góðir 5 pokar.
— Hefðirðu viljað vera þarna
á skuttogara?
— Ja, hvort sem væri, en
þetta skip er ágætlega búið,
hefur ekkert verið til sparað
að gera það vel úr garði. Þessi
árangur sem nýrri skipin hafa
náð á fjarlægum miöum sýna
bezt þörfina á að endumýja
togaraflotann.
— Er ekki mikið af Þjóðverj-
um við Grænland, verksmiðju-
togarar. hjaöur hefur heyrt. aö
þeir séu að moka upp þorskin-
um, sem ætlar að ganga seinni-
Framh. á bls 10
Fjórar tölvur vœntanlegar
til landsins í vor
— Fimmta tólvan hefur verið póntuð til
afhendingar í janúar næstkomandi
1 maí og júní' næstkomandi eru
fjórar tölvur væntanlegar til lands-
ins, en fimmta tölvan hefur verið
pöntuö til afhendingar í janúar
næsta ár. — Þrjár tölvur eru
starfandi hérlendis eins og stend-
ur, svo hér er um mikla aukningu
að ræða, en geysileg þensla hefur
verið í notkun tölva um heim all-
an. — Má geta í því sambandi að
nú eru um 40.000 tölvur starfandi
í Bandaríkjunum, en í upphafi var
ráð fyrir því gert, að ekki væri
verkefni fyrir nema um 40 tölvur
þar í landi.
Lands'banki íslands og Samband
ísl. samvinnufélaga fá fyrstu tvær
tölvumar í maí af gerðinni IBM-360
model 20, en þetta eru fyrstu tölv-
ur, sem hingað koma af þriðju
Framh. á bls. 10
Rauða skikkjon
frumsýnd á
laugardag
„Rauða skikkjan“ verður frum-
sýnd í Reykjavík á laugardag-
inn kemur kl. 17 og verður hún
sýnd samtímis í tveimur kvik-
Imyndahúsum, Austurbæjarbíói
|Og Háskólabíói. Verða síöan
sýningar á henni klukkan 19 og ý
'21 og á sunnudag verða einnig ,
Iþrjár sýningar. Aðgöngumiðar )
verða seldir að frumsýningun- S
,um, en nokkrum boðsgestum <|
verður boðið á sýninguna í Há-
skólabíói.
Framh. á bls 10
Skuttogara? —ja, hvort sem væri. Þetta er vel búið skip, ekki
síður. — Arinbjöm Sigurðsson i brúnni á Sigurði.
Aðalfundur Fulltrúaráðs
sjálfstæðismanna í Kjósar-
sýslu
Gisli Andrésson endurkjórinn formaður
Ágústsson af Seltjarnamesi, Ás-
bjöm Sigurjónsson, Álafossi og
Hjalti Sigurbjörnsson, Kiðafelli.
Að loknum aðalfundarstörfum
hófust umræður um stjómmála-
alþingismennimir Sverrir Júlíus-
viðhorfið, og voru frummælendur
son og Axel Jónsson.
Að loknum framsöguræöum hóf-
ust umræöur og tóku þessir til
máls: Jón M. Guðmundsson,
Reykjum, Sigurgeir Sigurðsson,
Seltjarnarnesi, Matthías Á. Mathie-
sen, alþm., Snæbjörn Ásgeirsson,
Seltjamarnesi, Pétur Benediktsson,
bankastjóri, Jónas Magnússon frá
Stardal, Sigsteinn Pálsson, Biika-
stööum, Oddur Andrésson, Neðra-
Hálsi, Guömundur Gíslason, Kópa-
vogi og Gísli Andrésson, formaður
Fulltrúaráðsins.
Aðalfundur Fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Kjósarsýslu var
haldinn í Hlégarði fimmtudaginn
16. þ.m. GíslS Andrésson hrepp-
stjóri, Neðra-Hálsi, formaöur Full-
trúaráðsins setti fundinn og stjórn-
aði honum. Fundarritari var Sigur-
geir Sigurðsson, sveitarstjóri Sel-
tjarnarnesi. Formaður flutti skýrslu
stjómarinnar og kom þar fram að
undirbúningur að alþingiskosning-
unum í vor er hafinn I sýslunni.
Gísli Andrésson var endurkjör-
ir.n formaður Fuiltrúaráðsins, aör-
ir í stjórn eru Snæbjörn Ásgeirs-
son, Magnús Erlendsson og Sig-
| urður Sigurðson, allir af Seltjarn-
arnesi, Páll Ólafsson, Brautarholti
og Helgi Jónsson, Felli.
1 Kjördæmisráð voru kjörnir:
Snæbjöm Ásgeirsson og Stefán
Scotland Yard rannsakar
eiturlyfja - spillinguna
I yær voru tvær 18 ára stúlkur fluttar
meðvitundarlausar / sjúkrahús og lézt ónnur
Átta ára drengur, Friðrtk Friðriksson, til heimilis að Skólabraut 49,
Seltjarnamesi, varð fyrir bíl á móts við Skólabraut 1 um kl. 3 í gær.
Hann meiddist á höfði, en ekki alvarlega. Var hann á leið yfir braut-
sna helm til sín úr skólanum, þegar hann varö fyrir bílnum. Friðrik litli
var fluttur á Slysavarðstofuna og sfðan heim til sín. Myndin er tekin
rétt eftir að sjúkrabifreiðin kom á staðinn. VirðSst sem bremsur hafi
veriö litlar sem engar á afturhjótam, a.m.k. sjást för aðeins eftir
framhjólin á myndinni.
Eiturlyljanotkun veldur nú
mjög auknum áhyggjum á Bret-
landi — stjórnarvöldum, öðrum
yfirvöldum og almenningi. Frá
þessu var sagt í brezka útvarp-
inu í gær í inngangi að frétt
um, að tvær ungar stúlkur —
18 ára — hefðu verið fluttar
meðvitundarlausar í sjúkrahús
vegna eiturlyfjanotkunar, og
væri önnur látin. Scotland Yard
hefir nú til rannsóknar þaö,
sem gerðist áður en stúlkurnar
voru fluttar í sjúkrahúsið.
Samkvæmt bendingu frá Al-
þjóðalögreglunni INTERPOL
hefir Scotland Yard einnig til
rannsóknar, hvort alþjóðaeitur-
lyfjahringur hafi bækistöð í
London, en til þessa hefir ekki
verið taliö, að starfandi væri
nein eiturlyfjamiðstöð þar,
heldur væru það einstaklingar
sem smygluðu þeim inn í landiö,
en sumt væri stolið eða fengið
með lyfseðlum undir fölskum
forsendum o.s.frv. — Tveir
belgískir lögreglumenn eru
Scotland Yard til aðstoðar í
þessu efni,
Líklegt er að mál þessi veröi
brátt rædd í brezka þinginu.
í brezkum blöðum hefir verið
skýrt frá því, að nýlega hafi
lögreglan gert skyndihúsrann-
sókn í hófi, sem haldið var i aí-
skekktu húsi á suðurströndinm
en þarna voru svo kallaðar
Framh. á bls 10