Vísir - 22.02.1967, Blaðsíða 13

Vísir - 22.02.1967, Blaðsíða 13
13 f V1SIH. Miðvikudagur 22. febrúar 1967. Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna Ritstjórar: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og SigurÖur Á. Jensson STORGLÆSILEG AFMÆL- ISHÁTÍÐ HEIMDALLAR / £§ ára afmælishátíð Heimdallar var haldin hátíðleg s.l. laugardag í Lídó. Hátíðin hófst með borð- haldi, sem fjölmargir yngri og eldri Heimdallarfélagar sóttu. Eft ir að borðhaldinu lauk var stiginn dans fram eftir nóttu. Fyrst flutti Jón E. Ragnarsson, veizlustjóri, setningarávarp. Hann gat þeirra árnaðaróska og gjafa er félaginu höfðu borizt í tilefni afmælisins, en þær voru fjölmargar og veglegar. Eftir að gestir voru setztir að borðum flutti formaður Heimdallar Ólafur B. Thors deildarstjóri ávarp og þakkaöi fyrir hönd félagsins þann hlýhug er félaginu hafði veriö sýndur. Forsætisráðherra, dr. Bjami Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins fiutti Heim- dalli árnaðaróskir f. h. miðstjóm ar Sjálfstæðisflokksins og hvatti Heimdallarfélaga til enn meiri á- taka á sviði þjóðmálanna. Þá reis úr sæti Björgólfur Guö- mundsson varaform. Hcimdallar og mælti fyrir mlnni Heimdallar. Meðan setið var undir borðum fluttu ávörp Fulltrúaráðs Sjálf- stæðisfélaganna i Reykjavik, Bald vin Tryggvason, og formaður S. U. S. Ámi Grétar Finnsson. Á há- tíðinnl mælti fyrir minni Sjálf- stæðisflokksins, Sigurður Ágúst Jensson, og fyrir minni fósturjarð- arinnar, Þorsteinn Pálsson. Magn ús Jónsson óperusöngvari söng einsöng við undirlcik Ólafs Vignis Albertssonar og leikararnir Ámi og Klemenz fluttu skemmtiþátt. Hátíðin þótti takast sérstaklega vel en hátt á fimmta hundrað manns sótti fagnaðinn. Frá klúbbfundinum með Eysteini Jónssyni Fyrir nokkru síðan hélt Heimdallur klúbbfund með Eysteini Jónssyni, formanni Framsóknarflokksins. Ræddi hann um Framsóknarflokkinn. Fundurinn var mjög vel sóttur og tókst prýðilega. Fjöldi annarra greina er í blað- inu, svo sem Hugleiðingar um stærðfræðikennslu eftir einn kenn ara skólans, Sigurð Ingimundar- son. Einnig er rætt um listir, verzlunarmál og hvalvinnslu svo eitthvað sé nefnt. Borgarstjóri, Geir Hallgríms- son ritar ávarp. — Ritstjóri er Gunnlaugur Briem og hefur hann leyst starf sitt mjög vel af hendi. Blaðið mun verða selt af nemendum skólans. Btaðburðarbörn óskast strax i Hjarðarhaga Kambsveg Dagbl. VÍSIR, afgr., Túngötu 7, sími 11660 Voru sæmdir gullmerki Heimdallar Heimdallarfélagar sem sæmdir voru gullmerki félagsins sem viðurkenningu fyrir vel unnin stðrf f þágu þess, talið frá vlnstri: Ólafur Egilsson, Magnús L. Sveinsson, Jön E. Ragnarsson, Birgir ísl. Gunn- arsson, Ólafur B. Thors, formaður Heimdallar er afhenti merkin, Styrmir Gunnarsson, Ragnar Kjartans- son, Bjarni Beinteinsson, Ólafur Jensson og Jóhann Ragnarsson. Gjafir sem Heimdalli hárust • Jóhann Hafstein dómsmálaráðherra færði félaginu veglegan silfurskjöld frá nokkrum gömlum Heimdallarfélögiun. Auk nafns félagsins og gefenda, er Ietrað á skjöldinn brot úr kvæði eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi: „Átakið skapar afl og þrótt, f erfiði dagsins skal gæfan s6tt.“ • Styrmir Gunnarsson færði félaginu pianó f.h. fyrrverandi formanna Heimdallar. • Ragnar Kjartansson framkæmdastjóri færöi félaginu glæsilegan ræðustól frá núverandi og fyrr- verandi framkvæmdastjórum Heimdallar. 9 Marfa Maack, formaður Hv.atar, færði félaginu að gjöf ferðabækur Olafs Olavfusar. • Guðmundur Benediktsson, bæjargjaldkeri, gaf félaginu fjölmargar hagnýtar bækur um stjómmál. • Eyverjar F.U-S. í Vestmannaeyjum gáfu félaginu myndarleg málverk. • Vegleg leðurskjalamappa barst félaginu frá ónefndum gömlum Heimdallarféiaga. • Runólfur Pétursson, varaborgarfulltrúi, gaf Launþegaklúbb Heimdallar aðalvinninginn i happ- drætti kvöldsins, sem hann vann. Það var páskaferð með M.s. Gullfoss. • Peningagjafir bárust frá Málfundafélaginu Óðni og Landsmálafélaginu VerðL Verzlunarskólablað Um næstu helgi kemur út 33. árgangur Verzlunarskólablaðsins. Er það kynningarrit skólans og kemur út árlega þegar Nemenda- mót V. I. er haldiö. Verið er að leggja síðustu hönd á blaðið, en það verður að þessu sinni 104 síð- ur. Efni þess er mjög fjölbreytt að vanda og láta nemendur þar í ljós skoðanir sínar á ýmsum mál efnum. Stærsti þáttur blaðsins ex helgaður umræðum um framtíð verzlunarmenntunar. Þar er rætt við nokkra aðila sem starfa við fræðslustörf og verzlun. Ennfrem ur er leitað álits nokkurra nem- enda V. 1. V

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.