Vísir - 22.02.1967, Side 9

Vísir - 22.02.1967, Side 9
V1SIR . Miðvikudagur 22. febrúar 1987. 9 MILUÓNIR m KJARAJÖFNUNAR Á hverju ári rennar gífurlegar fjá'rupphæðir um Tryggingastofnun ríkisins. Þær koma frá ríki, bæj- arfélögum og einstaklingum og fara út úr stofnun- inni sem alls kyns bætur og styrkir vegna sér- stakra ástæðna þeirra, sem við fénu taka. Einn megintilgangurinn er kjarajöfnun hjá landsmönn- um aukið öryggi. Lög um alþýðutryggingar voru fyrst sett árið 1936, en núgildandi löggjöf er frá árinu 1963. Samkvæmt lögum um al- mannatryggingar nr. 40 frá 30. apríl 1963 teljast eftirfarandi þrír tryggingaflokkar til al- mannatrygginga:: 1. Lífeyris- tryggingar, 2. Slysatryggingar, 3. Sjúkratryggingar. „Tygginga- stofnun ríkisins annast líftrygg- Íingarnar og slysatryggingamar og hefur með höndum umsjón og yfirstjóm sjúkratrygging- anna, allt undir yfirumsjón rík- isstjómarinnar (félagsmálaráðu- neytisins)“, segir i 2. grein fyrrgreindra laga. Greinar trygginganna eru sjálfstæðar deildir í Tryggingastofnuninni með eigin fjárhag og bera ekki ábyrgð á skuldbindingum hverr- ar annarrar. Heimili og vamar- þing Tryggingastofnunnar ríkis- ins er í höfuðborginni, Reykja- vík. Sjúkrasamlög annast sjúkratryggingar og skulu þau vera til í hverjum kaupstaö og hreppi landsins. Þó getur ráð- herra að fengnum tillögum tryggingaráðs og með sam- þykki hlutaðeigandi sjúkrasam- lagsstjórna ákveðið að eitt og sama sjúkrasamlagið annist sjúkratryggingar í fleiri hrepp- um innan sömu sýslu eða i kaup stað og nærliggjandi hreppum. Einnig má láta hluta sveitarfé- laga fylgja sjúkrasamlagi ná- grannasveitarfélaga. í hverju sýslufélagi skal og vera til hér- aðssamlag, undir stjórn sýslu- manns eða bæjarfógeta. Skipulag Tryggingaráðs Tryggingaráð, fimm þing- 3 kjörnir menn, hefur eftirlit með -■ rekstri og starfsemi Trygginga- % stofnunar ríkisins og gætir þess s; að hún starfi í samræmi við lög og reglugerðir á hverjum tíma. Endurskoðunardeild stofnunar- (, innar starfar einnig undir eftir- f liti Tryggingaráðs. Ráðið sker einnig úr ágreiningi um bætur. ■ Leita verður samþykkis Trygg- ingaráðs á hinin árlegu fjárhags- { áætlun stofnunarinnar, ársreikn ingum, ákvörðunum um iðgjalda upphæðir, öllum heildarsamn- ingum viö lækna, sjúkrahús og önnur slík dvalarheimili, megin- reglum um notkun heimildar- ákvæða, öllum lánveitmgum og kaupum og sölu á verðbréfum i svo og ýmsum öðrum ákvæðum I eftir því sem almannatrygginga • lögin segja til um. Vinnuveit- ■ endasamband íslands, Alþýðu- samband íslands, Stéttarsam- £ band bænda og Landssamband ' íslenzkra útvegsmanna skipa g' hvert um sig einn mann sem | hefur rétt til að taka þátt f umræðum trvggingaráðs og gera | tillögur, þegar skipt er í áhættu- ‘j flokka og ákveðin iðgjöld at- I vinnurekenda til slysatrygginga ■ og er Tryggingastofnuninni skylt að láta þeim í té allar upplýs- 1 ingar, sem nauðsynlegar eru $ vegna þess starfs. \ Hverjir eiga rétt á bótum? Samkvæmt lögunum frá 1963 eiga þeir rétt til bóta frá líf- eyristryggingum, sem eru ís- lenzkir ríkisborgarar og hafa átt lögheimili á Islandi a. m. k. 10 ár eftir 16 ára aldur eöa síð- ustu 5 árin áður en umsókn um bætur ér lögð fram. Þó er ekki krafizt þessa lágmarkstíma þeg- ar um er að ræða örorkulífeyrir manns, sem hafði óskerta starfs- orku er hann tók hér lögheimili. Hið sama gildir og um fjölsk.b., mæðral. og fæðingast. og trygg- ingaráði er heimilt að víkja frá tímaákvæðum í öðrum tilfellum þegar sérstaklega stendur á. Nánari ákvæði fjalla um ís- lenzka ríkisborgara, sem hafa lögheimili erlendis og erlenda ríkisborgara. Lífeyristrygging- amar flokkast í ellilífeyri, ör- orkulffeyri, örorkustyrk, maka- bætur, fjölskyldubætur, bama- lifeyri, mæöralaun, fæðingar- styrk, ekkjubætur og ekkjulíf- evri. Slysatryggingar taka til sjúkrahjálpar, dagpeninga, ör- orkubóta og dánarbóta. Slys er það samkvæmt lögum um launatryggingar, ef maður slas ast við vinnu svo að hann deyr eða verður óvinnufær minnst 10 daga. Jafnframt er tekið fram, að valdi slys óvinnuhæfni skemmri tíma, sé heimilt að greiða sjúkrakostnað, þegar um hann er að ræða, þegar hlutað- eigandi sjúkrasamlag ekki greið- ir kostnaðinn. I lögunum er einnig skilgreint hvað sé vinna í skilningi almannatryggingalag- anna og er það auk hins al- menna sendiferðir í þágu at- vinnurekstrar, nauðsynlegar ferðir til og frá vinnu, ferðir sjó- manna í þágu útgerðarinnar eða ferðir í hans eigin þágu, sem leiða af starfi sjómannsins. Til slysa teljast einnig sjúkdómar, sem stafa af skaðlegum áhrifum efna, geislaorku eða öðru hlið- stæðu, sem rlkjandi eru í hæsta lagi fáa daga og rekja verður til vinnunnar. Tilteknir atvinnu- sjúkdómar valda, samkvænt reglugerð bótaskyldu. Öllum, sem eru sextán ára og eldri er skylt að tryggja sér rétt til bóta, sem sjúkra- trygging veitir með greiðslu ið- gjalda í þvf sjúkrasamlagi, er starfar þar sem hlutaðeigendi hefur lögheimili. Undanþegnir tryggingaskyldunni eru þeir, sem haldnir eru sjúkdómi sem lög um rfkisframfærslu sjúkra manna og örkumla taka til, á meðan þeir dveljast f sjúkrahúsi eða hæli á kostnað ríkisfram- færslunnar. Börn samlags- manna, þar með talin stjúp- böm og fósturböm yngri en 16 ára, sem eru á framfæri þeirra, em sjúkratryggð með þeim. Sömu aðstöðu og fósturböm skulu í þessu sambandi hafa böm, sem fara til dvalar um ó- tiltekinn langan tíma á heimili samlagsmanna, hvort sem greitt er með þeim eða ekki og hver sem foreldraráðin hefur að lög- um. Réttindi sjúkrasam- iagsmanna í samþykktum sjúkrasamlaga skal tekið fram hverra réttinda samlagsmenn njóta. Ætíð skal þó sjúkrasamlag veita þá hjálp, sem hér segir: 1.) Ókeypis vist að ráði samlagslæknis f sjúkra- húsi, sem samlagið hefur samn- ing við, eins lengi og nauðsyn krefur, ásamt læknishjálp og lyfjum svo og annarri þjónustu, sem sjúkrahúsið veitir. Samlag greiðir þó ekki sjúkrahúsvist lengur en 5 vikur alls vegna elli- kramar og alvarlegra langvinnra sjúkdóma, sem önnur lög taka til. 2.) Almenn læknishjálp utan sjúkrahúsa hjá samlagslækni sjúklings eða öðrum lækni ef slíkar vitjanir eru heimilaðar í samþ. samlagsins. Samlags- menn greiða þó fyrir viðtal á lækningastofu og vitjun smá- vægilegt gjald. 3.) Nauðsynlegar rannsóknir og aðgerðir eftir til- vísun samlagslæknis hjá sér- fræðingum að % hlutum. — Sjúkrásamlag getur takmarkað heimild samlagslækna til tilvís- ana. 4.) Lyf, sem samlagsmanni er Iffsnauðsynlegt að nota að staðaldri, skulu greidd að fullu, önnur að hluta. 5.) Röntgen- myndir og röntgenskoðun skulu sjúkrasamlög greiða að þrem fjórðu hlutum. 6.) Sjúkrasam- lögin skulu greiða sjúkradag- peninga, samkvæmt nánari á- kvæðum. 7.) Dvöl umfram 9 daga vegna fæðingar í sjúkra- húsi eða fæðingarstofnun. 8.) Óhjákvæmilegan ferðakostnað samlagslæknis til sjúklings eða sjúklings til sjúkrahúss. Um öll þessi atriði eru nánari ákvæði f lögum um alm.trygg- ingar og verða þau ekki rakin hér. Sfðan gildandi lög voru sett hafa verið gerðar á þeim breyt- ingar, t. d. 1963 vegna hækkun- ar á bótum almannatrygginga annarra en fjölskyldubóta um 15%. Þá var þeim tvfv. breytt árið 1964, í fyrra skiptið voru bætur aðrar en fjölsk.b. enn hækkaðar um 15% og f síðara skiptið sett f lög að iðgjöld öku- manna bifreiða skuli miðast við gjaldárið f stað undanfarandi árs. Þá má geta þess að á árinu 1964 var f lagasetningu um verð tryggingu launa kveðið svo á, að verðlagsuppbót skyldi greidd á bætur almannatrygginga. Árið 1965 var gerð sú breyting á al- mannatr.lögunum að rýmk- tjð voru tekjumörk þau, sem ráða um rétt bótaþega til ið- gjaldaundanþágu hjá lífeyris- tryggingum og ráðherra veitt heimild til að breyta upphæð- um bóta almannatrygginga í samræmi við brevtingar, sem framvegis yrðu á grunnkaups- taxta verkamanna við almenna vinnu. Hefur þessi heimild ver- ið notuð tvisvar. Loks var ráð- herra veitt heimild til, að fengn- um tillögum tryggingaráðs, að ákveöa greiðslu 5% uppbótar á elli- og örorkulffeyri frá 1. júlí 1964 til samræmingar almenn- um kauphækkunum, sem áttu sér stað um þetta leyti. Nokkr- ar aðrar breytingar voru einnig gerðar. Bótagreiðslur nema hundruðum milljóna króna Löggjöfin frá 1963 og fyrr- greindar breytingar miðuðu að eflingu almannatrygginga og aukningu bótagreiðslna. T. d. hækkaði elli- og örorkulífeyrir árið 1964 um 26,1% frá meðal- tali 1963. Lífeyrir hækkaði um 10,8% á árinu 1965 miðað við árið áður, svo dæmi séu tekin. Heildarbótagreiðslur lífeyris- trygginganna að meðtöldum bamsmeðlögum jukust úr tæp- lega 796 milljónum króna árið 1964 í nærri 901 milljón króna árið 1965. Bætur slysatrygginga jukust úr tæplega 20 milljónum króna árið 1964 í rúmlega 33 milljónir króna árið 1965. Árin 1963, ’64 og ’65 greiddu sjúlcra- samlögin 153,1, ca. 220 og ca. 259 milljónir króna vegna sjúkrakostnaðar og f sjúkradag- peninga 7,1 milljón árið 1963, 15.4 milljónir 1964 og 18,3 miilj. 1965. (Tölur tveggja síðasttöldu áranna eru bráðabirgðatölur). Bætur lffeyrisdeildar námu árið 1955 rúmlega 125 milljónum, ár ið 1960 rúmlega 340 milljónum, 1961 tæpl. 450 milljónum, 1962 tæpl. 521 milljón og árið 1963 tæplega 614 milljónum króna. | Uhdanfarinn aldarfj. hef- • ur orðið mikil breyting á aldurs- § skiptingu þjóðarinnar. Hefur & fjölgun fólks á starfsaldri orðið hlutfallslega minni en fjölgun fólks á ellilífeyrisaldri, en hefur þó bömum fjölgað Iangmest. Hefur aldursskiptingin að sjálf • sögðu mikil áhrif á lffeyristrygg ingamar. Árið 1940 voru 31.8% landsmanna 15 ára og yngri, en sú hlutfallstala er nú komin upp í 36—7%. Fólk á starfsaldri, 16 —66 ára, var árið 1950 61.6% þjóðarinnar, en er nú um 56— 7% landsmanna. Fólk á ellilíf- eyrisaldri, 67 ára og eldra, var árið 1940 6.7% þjóðarinnar en er nú rúmlega 7% allra Iands- manna. Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur Iffeyristrygginga árið 1965 rúmlega einum mill- jarð króna, en tekjur slysatrygg- inga rúmlega 50 milljónum kr. Árið áður vom tekjur lífeyris- trygginga 999.4 milljónir en slysatrygginga rúmlega 46 millj. Tekjur Iffeyristrygginga námu árið 1955 rúmlega 156.5 milljón- um króna en árið 1956 rúmum 177.4 millj. Tekjur almanna- trvgginga koma að stærstum hluta frá rfkissjóði og næst- stærstum frá hinum tryggðu. Þannig ber ríkissjóður 36% út- gjalda lffeyristrygginga, hinir tryggðu 32%, sveitarsjóðir 18% en atvinnurekendur 14%. Út- gjöld vegna greiðslu fjölskyldu- bóta greiðast að fullu úr ríkis- sjóði. Otgjöld slysatrygginga eru borin af atvinnurekendum með greiðslu iðgjalda, nema eigendur ökutækja og aflvéla standa skil á greiðslum vegna trygginga þeirra sjálfir. Tekjur sjúkrasam laga fást með iðgjöldum sam- lagsmanna en auk þess ber rfk- issjóði að greiða til sjúkrasam- Iags upphæð, sem er jafnhá greiddum heildariðgjöldum auk 10% af þeirri upphæð. Hlutað- eigandi sveitarsjóður greiðir framlag til sjúkrasamlagsins, sem nemur helmingi aljra greiddra iðgjalda. Sjúkrasamlög eru nú rúmlega 220 talsins. Alþýðutryggingaar efld- ar ár frá ári Alþýðutryggingar f þeirri mynd, sem þær eru nú, voru fyrst færðar í löggjöf landsins árið 1936 með lögum nr. 26 frá 1 febrúar það ár. Jafnframt var Tryggingastofnun rfkisius sett á fót og tóku lögin gildi 1. aprfl 1936. Var þá kveðið svo á, að stofnunin skyldi vera f fjórum Framh. á bls. 5 Hingað sækir fólk daglega þúsundir króna f allskyns bótum lffeyristrygginga og slysatrygginga. Myndin er tekin f afgreiðslu Tryggingastofnunar ríldsins. Á föstum útborgunardögum Jcoma hundr- uöir manna og eftir árið hafa milljónir runnið inn og út úr stofnuninni. — (Ljósm. Vísis B.G.)

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.