Vísir - 15.08.1967, Side 3
VÍSIR. Þriðjudagur 15. ágúst 1967.
f
Skíðaskólinn «' Kerlingarfjöll-
um nýtur nú sívaxandi vinsælda
þann stutta tíma ársins, sem
hann er starfræktur. Á þeim
7 árum, sem liðin eru frá því
hann tók til starfa hefur honum
mjög vaxið fiskur um hrygg. í
byrjun var hann til húsa í sælu-
húsi Ferðafélags Islands þar
efra, en nú hefur verið byggður
sérstakur skáli, sem hýsir Skíða
skólann. Skálinn er mjög vist-
legur, svefnloft er þar fyrir
rúmlega 30 manns en á neðri
hæð er matsalur, sem jafnframt
er notaður til kvöldvökuhalds.
Myndsjá Vísis átti kost á því
fyrir nokkru að dvelja nokkra
daga með þeim Kerlingarfjalla-
bændum Eiríki Haraldssyni,
Valdimar Ömólfss. og Sig. Guð
mundss. sem allir annats skíða-
En það er fleira gert þarna
en staðið á skíðum daginn út og
daginn inn. Farið er f gönguíerð
ir, t. d. er mjög fallegt inni í
Hveradölum, en þangað er til-
tölulega stuttur gangur frá þeim
stað, þar sem skíðabrekkumar
eru. f»á er og fariö í styttrS
gönguferðir, en landslag er
þarna mjög fjölbreytt og til-
komumikið, og því margt að
sjá. Ekki má svo minnast á
dvöl í Kerlingarfjöllum, að
sleppt sé kvöldvökunum. Á
hverju kvöldi em kvöldvökur
haldnar. Ákveðnir hópar skipt-
ast á að sjá um skemmtiatrlðin
og þess á milli er sungið af
miklu fjöri. I sönglistinni eru
skíðakennararnir frumkvöðlar
og þama eru mörg Iögin sung-
Sn, sem orðið hafa til hiá hag-
yrðingum. sem dvalizt hafa í
Kerlingarfjöllunum. Nú, ef
menn kunna ekkl textana viö
lögin, er bara trallað undir.
Mikill fjöldi fólks kom i
KerlingarfjölISn um verzlunar-
mannahelgina, enda stutt að
fara eftir vegarspottanum frá
Kjalvegi, aðeins um 9 km. —
Mátti sjá á bílastæðinu við
Skíðaskólann margt bíla, Volks-
wagen-bíla, Bronco-, Willys- og
Landrover-jeppa. í flestum voru
skíðamenn sem komu upp eftlr
til að bregða sér á skiðS, en í
sumum var fólk á leið norður
Kjöl, en kom við í Kerlingar-
fjöllum til að fá sér kaffi, há-
degis- eða kvöldmat, sem þar
er sclclur.
Dvölin þama í Kerlingarfjöll-
um er íiestum alveg ógleyman-
leg, enda sanna vaxandi vinsæld
ir Skíðaskólans, að sívaxandi
fjöldi fólks kemur þar tll viku-
dvalar í fjallakyrröinni.
kennslu með mikilli prýði, enda
allir ágætir skíðamenn (Valdi-
mar varð t.d. meistari á franska
stúdentameistaramótinu árið
1957). Venjulega tekur eitt
skíðanámskeið um vikutíma og
hefur verið svo til fullskipað í
hvert þeirra í sumar. Á þessu
sumri eru áætluð þrjú unglinga-
námskeið auk 8 venjulegra nám
skelða eingöngu ætluö ungling-
um, og er meiri eftirspurn
eftir sætum í þau námskeiö, en
hægt er að anna.
Dvölin þama efra var mjög
skemmtileg, og er varla hægt að
segja frá henni í orðum, þeir
elnir, sem þarna hafa dvalið,
víta hve • skemmtilegt er þar að
vera. Dvalið er við skíðaæfing-
ar í snióríkum hlíðum Fann-
borgar, en svo nefnist eitt fjall-
ið í Kerlingarfjallaklasanum.
Þar er að finna skíðabrekkur við
flestra hæfi. Mjög góðar byrj-
endabrekkur eru þar, og hinar
bröttustu reynast jafnvel of erf-
iðar fyrír okkar beztu skíða-
menn. Ekki var það verra, að
einmitt þessa 6 daga, sem dval-
ið var þarna efra, var veður
með afbrigðum gott, logn og
heiðskírt fyrstu dagana, en
skýjað síðari hluta námskeiðs-
ins Voru flestir því fegnir, að
■
sól skeín ekki allt námskeiðið,
því að sólin barna er mjög sterk
snjóbirta mikil og vilja menn
brenna nokkuð f andliti, ef
stöðugt sólskin er leneri tíma.
Skíðaskólinn ■' Kerlingarfjöll-
um leggur höfuðáherzluna á að
kenna byrjendum skíðaíþrótt-
ina, enda var svo, að af þelm
30 þátttakendum í þessu skíða-
námskeiði, voru 20 algerir byrj-
endur. Fáir hefðu eetað trúað
þvt í lok námskeiðsins að þetta
fólk hefði aðeins verið á skíð-
um í 5 daea, svo miklar voru
framfarirnar, enda kcnnsian
með afbrlgðum góð.
Eftir svo sem 2ja stunda skíðaæfingar er útbýtt nestlspökkum og drykkjarföngum meðal námskeiðs-
fólks. Hér sést hluti hópsins vera að gæða sér á matföngunum við Kasstalann, en svo nefnist bæki-
stöð Skíðaskólans þar efra. Athugið ritháttinn, það er skrifað KASSTALINN, vegna þess, að hann
er byggður úr kassafjölum!
Hér sjást skíðakennararnir þrír, talið frá líægri: Reynir Tómas Geirsson (kenndi í forföllum Sigurð-
ar Guðmundssonar), Valdimar Örnólfsson og Eirfkur Haraldsson.
\ .\s ' ^ \ ijyi
' v
Meðal þeirra, sem brugðu sér á skíði um verzlunarmannahelgina
var Guðlaugur Rósinkranz, þjóðleikhússtjóri.
Eiríkur Haraldsson sést hér kenna hluta af byrjendahópnum, en á þann hóp var lögð sérstök áherzla.
(Ljósm. Vísir af.)
ASKIÐUM í KERLINGARFJÖLLUM