Vísir - 16.12.1967, Qupperneq 16
jLaugaraagur 10. u
r
Islenzk kona fórst
í Bandaríkjunnm
íslenzk kona, Þórunn Ha;.!úóis-
dóttir Lopez, 39 ára að aldri, iézt
í bflslysi í Washington í Bandaríkj-
unum siðastliðinn þriðjudag. Mcð
henni í bifreiðinnl var móðir henn-
ar og liggur hún nú á sjúkrahúsi,
en ekki er talið að hún sé alvarlega
slösuð. Þórunn var gift bandarísk-
um manni og áttu þau fjögur börn.
ivSÝ
Lögreglan hefur heimild tii að fjarlægja bifreiðir, sem er Iagt svona, enda skapa þær hættu og óþægindi.
170-80 skráðir atvinnulausir á Siglufirði
Jólaösin hafin
fyrir alvöru
— Sfóðugt bætist i hóp atvinnulausra
Atvinnuástandið á Siglufirði er orðið mjög ískyggilegt.
Atvinnuleysisskráningum fjölgar með hverjum degi. Sam-
kvæmt upplýsingum, sem Vísir fékk í gær hjá bæjarskrif-
stofunni á Siglufirði eru nú milli 170 — 180 skráðir atvinnu-
lausir og búizt við að sú tala eigi eftir að hækka enn.
Eina atvinnuvon Siglfirðinga
er sú ag eitthvað veiðist úr sjó,
en gæftir hafa verið stopular I
haust og línubátar sjaldnast
komizt á sjó. Togarinn Hafliði
kom með á annað hundrað tonn
af fiski til Siglufjarðar á dögun-
um og skapaöi nokkra vlnnu *
frystihúsinu, en það er eini fjör
kippurinn, sem komið hefur í
atvinnulífið þar á staðnum um
langt skeið.
Siglfirðingar mega ekki ein-
ungis una atvinnuleysinu heldur
og samgönguerfiðleikum. Múla
vegurinn hefur viljað teppast
ekki síður en Skarðið ig sein
asf var vegurinn ófær 1 svo-
kölluðum Mánárskriðum nú á
stórhríðardögunum í vikunn'
Gera Siglfirðingar sér vonir um
að vegurinn veröi ruddur bráð-
lega.
Tryggustu samgöngurnar hafa
verið með Flóabátnum Drangi,
en hann hefur haldið uppi ferð
um einu sinni í viku slðan í
haust utan tvisvar að áætlunin
féil niður. Hefur þvi ómaklega
verið haldiö á lofti að DáUirmn
rækti ekki þessa áætlun sína f
og meðal annars héma i Vfsi.
og eru hiutaðeigendur beðnir af
sökunar á því.
Akstur bannaöur um miðbæinn i kv'óld
Lagt hefur verið bann við
allri bifreiðaumferð um Austur-
stræti, Aðalstræti og Hafnar-
stræti 1 kvöld milli kl. 20 og
kl. 22. en búast má við mikilli
umferð — bæði akandi og gang
andi— í miðborginni, þar sem
verzlanir verða opnar til kl.
22 í kvöld.
Lögreglustjórinn í Reykjavík
hefur sent frá sér sérstaka til-
kynningu þessa efnis og er þar
gert ráð fyrir þvi, að Laugavegi
frá Snorrabraut niður í Banka-
stræti verði einnig lokaö, ef
umferö verður mikil þar. Gild-
ir nú gjaldskylda viö stöðumæla
til kl. 22 í kvöld.
Það má segja, að jólaösin sé
þegar hafin, því svo mjög hef-
ur umferðin aukizt síöustu
daga. Þrátt fyrir það hefur lítið
orðið um umferöaróhöpp og
Framhald á bls. 10.
Þessi skemmtilegu dýr munu syngja nokkrar vísur fyrir bömin á
skemmtuninni í dag.
Fóstrunemar skemmta
börnum í dag
Nemendur Fðstruskólans i
Reykjavík hafa undanfarin ár efnt
a/saaaaa/wsaaaaa/ww
I
DAGAR TIL JÓLA
til skemmtunar fyrir börn, og
halda þeir skemmtun í dag í Aust-
urbæjarbíói. Er skemmtun þessi
einkum ætluð börnum undir skóla-
aldri, 3—6 ára, og eru mörg
skemmtiatriði m. a. leikþættir og
söngur og einnig munu jólasveinar
koma og heilsa upp á börnin.
Aðgöngumiðar verða seldir á kr.
40 í barnaheimilum og leikskólum
borgarinnar og f Austurbæjarbíói
frá ki. 1 í dag. Jón Júlíusson leik-
ari hefur leiðbeint fóstrunum við
skemmtunina.
Rannsóknarlögreglan verði undir
yfirstjórn lögreglustjóra
Tiliaga hefur nú komiö fram
á Alþingi um að setja rannsóknar-
lögregluna undir yfirstjóm lög-
reglustjóra Reykjavíkur, en ekki
sakadómara eins og verið hefur.
Friðjón Þórðarson, einn þing-
manna Sjálfstæðisflokksins, flytur
þingsályktunartillögu þessa og seg-
ir í greinargerð með tillögunni:
„Af sumum mönnum er þaö talið
óæskiiegt, að einn og sami dóm-
arinn rannsaki og dæmi sama mál-
ið, þar sem hann kunni að hafa
myndaö sér ákveðna skoðun um
niðurstöðu, áður en mál er full-
rannsakað og tekiö til dóms.“
Þingmaðurinn tekur það fram í
greinargerð sinni, að tilgangurinn
sé ekki að halla á einn eða neinn
með þvl að hefja máís á þessari
Hafnfirðingar
kveikja á jólafré
fró Friðriksberg
Á morgun verður kveikt á
myndarlegu jólatré, sem komið hef
ur verið fyrir á Thorsplani við
Strandgötu í Hafnarfirði. Er þaö
gjöf frá vinabæ Hafnarfjaröar,
Fridriksberg f Danmörku.
Dönsk kona búsett í Hafn-
arfirði, frú Britte Kristjánsson
tendrar ljósin. Ambassador Dana á
íslandi, Birgir O. Kronman, af-
hendir tréö, en bæjarstjóri Hafn-
arfjarðar, Kristinn Ó. Guðmunds-
son, veitir því viðtöku. Lúðrasveit
Hafnarfjaröar leikur undir stjórn
Hans Tloder og karlakórinn Þrestir
syngur undir stjórn Herberts H.
Ágústssonar. Kynnir verður Þor-
geir Ibsen, skólastjóri.
breyttu skipan. Þetta skipulag sé
hæpiö af ýmsum ástæðum, sem
þingmaðurinn tiitekur, en hafi tek-
izt furöanlega vel fram til þessa,
enda jafnan valizt hæfir og sam-
vinnuþýðir menn í embætti lög-
reglustjóra og sakadómara.
Hann bendir á, hvemig á Nbrö-
urlöndum og hvarvetna lögreglan
lúti í heild lögreglustjóra, en ekki
handhafa dómsvalds, enda muni
það sannast, að almenningur átti
sig ekki á þessari sérstæðu skipt-
ingu á stjóm iögreglunnar, sem
nú er. Allir teiji það sjálfsagt, að
öll lögreglan iúti sömu stjóm.
í stjórnarskránni er leitazt við
að gera dómendur sem óháðasta
’öörum störfum alls staðar, sem
því verður við komið, og virðist
þessi tillaga Friðjóns Þórðarsonar
einmitt ganga í þá sömu átt.
Áður var yfirstjóm Jögreglunnar
alirar í höndum lögreglustjóra en
það breyttist með lögunum um
dómsmálastörf frá 1939, þegar
sakadómaraembættið I Reykjavík
var stofnað. Telur Friðjón það hafa
verið af því, aö þá voru ekki gerð-
ar þær kröfur til lögreglustjóra,
aö hann fullnægði skilyrðum til
skipunar í héraðsdómaraembætti.
Nú er þessu oröið á annan veg
varið og því ekki það til fyrir-
stöðu því, aö lögreglustjóri stjómi
einnig rannsóknariögreglu.
Suður-Afríka fær
ekki brezk hergögn
Fellt á stjórnarfundi að afnema bannið
1 gær var haft eftir góðum heim-
ildum í London, að samþykkt hefði
verið á þriggja klukkustunda stjórn
arfundi, að aflétta ekki banninu
á hergagnasölu til Suður-Afríku,
en það var sett skömmu eftir að
stjóm Wilsons tók vlð völjium.
George Brown utanríkisráðherra
var ekki kominn heim til að sitja
fundinn og er sagður allreiður yfir
hversu Wilson hefir farið úr hendi
meðferð þessa máls í fjarveru
hans, en Brown er talinn helztur
þeirra ráðherra, sem aflétta vildu
banninu. Ekki er búizt við, að
Brown segi af sér vegna þessa
máls. Sagt er, að þeir James
Callaghan innanríkisráðherra og
Denis Healy landvamaráðherra
hafi frá því í byrjun vikunnar verið
að velta fyrir sér hvort ekki bæri
að aflétta banninu. Fyrir úrslitun-
um á fundinum liggur ekkert op-
inberlega, en Wilson hefir lofað
greinargerð á þingi eftir helgina.
i