Vísir - 10.01.1968, Side 1
)
Ekki flensa held-
ur íslenzkt kvef
Flestir læknar eru efins í því, að
Asíuinfiúensa sú, sem hefur herjað
í Bretlandi og Danmörku að undan
fömu sé ei' . kominn hingað til
lands eða hafi náð að breiðast út.
Mikiö hefur borið á lasleika hjá
fólki að undanförnu, en aö því er
Bragi Ólafsson, aðstoðarborgar-
læknir sagði í viðtali við Vísi, er
það „bara venjulegt íslenzkt kvef“,
sem hefur gengið.
Búast má við að inflúensan fari
nú að stinga sér niður, en inflúensu
faraldurinn í Bretlandi og Dan-
mörku hefur verið óvenjulega
skæður. Það færist í vöxt að
starfshópar láti sprauta sig gegn
flensunni og þá sérstaklega þeir
sem mikið komast í snertingu við
erlenda ferðamenn. Fólki, sem
finnst ástæða til að láta sprauta
sig gegn flensunni getur leitað til
I Heilsuverndarstöðvarinnar, en sér
staklega er ætlaöst til þess að gam
alt fólk og veiklað njóti þeirrar
þjónustu.
Stóru síldarskipin liggja nú mörg í Reykjavíkurh öfn og bíða átekta. Jakob Jakobsson segir næga
síld á miðunum, en erfitt er að ná henni vegnaþess hve djúpt hún liggur. Myndin var tekin í
morgun í vesturhöfninni.
Frestur til uð skila fiskverðinu rennur út í dag:
Samningaviðræður liggja niðri meðan
beðið er eftir fiskverðinu
□ Samningaviðræður útvegs- I bátakjarasamninga hafa alveg I fiskverðinu, en talið er, að út-
manna og sjómanna um I stöðvazt meðan beðið er eftir I vegsmenn vilji ekki semja með-
an ,óvissa rfkir um það, en út-
vegsmenn við Breiðafjörð og
Faxaflóa hafa bundizt samtök-
um um að róa ekki.
Sjómenn hafa hins vegar ekki
boðað vinnustöðvun, en um 60%
allra bátasjómanna í landinu munu
standa að kröfum um nýja báta-
kjarasamninga, 1
Framhaldsaöalfundi LÍU, sem
átti að hefjast þegar eftir áramót,
hefur verið frestað meðan beðið
Framhald á bls. 10.
Datt fram af
þakbnín og
lærbrotnaði
Átta ára gamall drengur lær-
brotnaði í gærdag, þegar hann hrap
aði fram af þaki verksmiðjuhúss
Reykdals í Hafnarfirði — fimm
metra hátt fall.
Drengurinn var að leik uppi á
þaki byggingarinnar, sem staðið
hefur ónotuð um nokkurt skeið,
ásamt fleiri leikfélögum sínum, er
slysið vildi til um kl. 17.
Þakið er bratt og börn í Hafnar
firði hafa iðkað það talsvert að
renna sér niöur þakið, en ávallt tii
þessa getað stöðvað sig í rennslinu
£ lur en þa ;æmu fram á þakbrún
ina. Nú varð á þessu misbrestur —
líklega vegna þess aö frost var kom
ið og ísing tekin að mindast a þak
ið og ísing tekin að myndast á
þakinu þegar slysið vildi til.
Flugflotinn um
áramótin:
81 FLUGVÉL
í árslok 1907 var flugvélaeign
landsmanna samtals 81 vél. Þar af
41 einhreyfilsvél, 16 tveggja
hreyfla, 1 þriggjahreyfla (þota F.í.)
13 fiögurrahreyfla og 2 þyrlur.
Á fáum sviðum hafa orðið jafn
miklar framfarir og í flugmálum.
Árið 1919 eignuðust íslendingar
fyrstu flugvélina, en nú eru 81 vél
í flugflotanum.
Margar þessara véla eru í eign
einstaklinga, þótt flugfélög og
flugskólar eigi flestar þeirra. Lang-
stærstu flugfélögin eru auðvitað
Flugfélag íslands og Loftleiöir, en
meðal annarra félaga eru:
Framhald á bls. 10.
Fjörutíu og einn skráður atvinnuiaus
— Margir bíða eftir vertíðarvinnu — Nægur mannskapur á bótaflotann
Talsvert hefur borið á
atvinnuleysi í borginni
seinustu vikurnar, eink-
um hjá verkamönnum,
enda hfefur engin vinna
verið við fiskvinnslu og
byggingaframkvæmdir
eru með minnsta mðti
um þennan tíma árs.
Fjöirutíu og einn hefur verið
skráður atvinnulaus í Reykja-
vík, flestir seinustu dagana. Þar
af eru 27 verkamenn, 2 sjómenn,
4 múrarar, 1 verzlunarmaöur, 1
járnsmiður og 1 prentmynda-
smiður, svo og 3 verkakonur og
2 iðnverkakonur.
Fáeinir eru þegar komnir á
atvinnuleysisstyrk, en búizt er
við aö fleiri komist á styrk
næstu daga. — Styrknum er
úthlutað til fólks, sem hefur
sannanlega verið atvinnulaust i
níu daga.
Sérstök nefnd er starfandi til
þess ag athuga atvinnuástandiö
í borginni og skipa hana fulltrú-
ar hagfræðideildar borgarinnar og
stjórn Ráðningastofunnar. Mun
hún væntanlega skila áliti til
borgarráðs eftir helgina.
Reikna má með, að allmiklu
fleiri en þeir sem skráöir eru
séu atvinnulausir og má þar til
dæmis nefna fólk, sem bíður eft-
ir því að vertíð byrji. — Eftir
því sem Vísir kemst næst.hefur
gengið óvenju greiðlega að ráða
mannskap á bátaflotann, en
venjulega hafa vertíðarbátar ver
ið í vandræðum með mannskap.
Þannig hefur blaðið til dæmis
frétt frá Suðurnesjum, að þar
sé skipað 1 flest skiprúm fyrir
vertíðina.