Vísir - 10.01.1968, Blaðsíða 8
8
V I K i R . Miúvikudagiu' 10. jamiar lötíö.
VÍSIR
Otgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinsson %
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson
Auglýsingar: Þingholtsstræti 1. Símar 15610 og 15099
Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. Sími 11660
Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuði innanlands
í lausasölu kr. 7.00 eintakið
Prentsmiðja Vfsis — Edda hf.
Skip — fleiri skip
j»að hlakkar heldur betur í Þjóðviljanum og Tíman-
um, þegar þrettán mönnum er sagt upp starfi í skipá-
smíðastöð Stálvíkur. Þá eru birtar stórar myndir á
forsíðu. Þessum blöðum ferst, því að það er alkunn
staðreynd, að menn héldu að sér höndum á vinstri-
stjómartímanum og stofnuðu ekki skipasmíðastöðv-
ar eins og Stálvík. Ef til vill geta þessi blöð upplýst,
hve miklar stálskipasmíðar voru á íslandi á þeim ár-
um!
Á viðreisnartímabilinu er fyrst farið að „leggja kjöl-
inn“ að þessari iðngrein, stálskipasmíði, í landinu. Og
svo ævintýraleg hefur uppbyggingin orðið, að nú er
fyrirhugað að byggja tvö strandferðaskip á Akureyri.
Mörgum glæsilegum stálfiskiskipum hefur verið
hleypt af stokkunum á undanfömum árum. Og mikil
framleiðslugeta hefur skapazt í þessari iðngrein. Allt
hefur þetta gerzt á fáum ámm.
Hins vegar hefur svo alvarlega hallað undan fæti í
sjávarútvegi, að í bili em menn hræddir við að leggja
út í frekari fiskiskipakaup. Og þá hlakkar í Þjóðvilj-
Rum og Tímanum: ,Það vantar verkefni, — vantai
verkefni. Allt er þetta ríkisstjóminni að kenna!‘
Þeir, sem fylgzt hafa með áhuga og dugnaði ríkis-
stjómarinnar í aðstoð við uppbyggingu skipasmíða
hér á landi, em vissir um, að fljótt muni að því koma,
þótt Stálvík hafi í bili þurft-að segja upp þrettán mönn
um, — að ekki áðeins þrettán menn verði ráðnir að
nýju, heldur miklu fleiri. " _
Stjómarandstöðublöðin segja, að ríkisstjórnin vilji
bara erlendar skipasmíðar og útlendan iðnað. Rétt er,
að ríkisstjórnin studdi útgerðarmenn og sjónjenn í að
kaupa erlendis frá fiskiskip, þegar ekki var hægt að
smíða stálskip hérlendis. En það er eitt af mikilvæg-
ari verkum viðreisnartímabilsins, að ríkisstjórnin
studdi af alhug viðleitnina til að koma upp innlendri
stálskipasmíði. Vita þeir gerst, sem í þessu hafa stað-
ið, hve miklir hollvinir þessa nýja framtaks þeir hafa
verið, iðnaðarmálaráðherra og sjávarútvegsmálaráð-
herra.
Iðnaðarmálaráðherra hefur sí og æ vakið athygli
á, hve miklir framtaksmenn hafa verið að verki við
uppbyggingu þessarar atvinnugreinar. Erfiðleikamir
hafa alltaf blasað við þessari ungu iðngrein. Eins hef-
ur það verið með íslenzkan veiðarfæraiðnað, sem iðn-
aðarmálaráðherra hefur lagt sig í líma við að styðja,
— gegn stjómarandstöðu og jafnvel gegn eigin flokks
mönnum.
Svo hlakkar í pólitískum hröfnum, þegar erfiðleik-
amir virðast ætla að verða meiri, en við verði ráðið.
En það verður ekki síðasta orðið í þessum málum.
Bjartsýnir menn hafa trú á framþróun skipasmíða á
íslandi.
Yiðræður Bowles og Sihanouks
prins þjóðhöfðingja Kambodiu
Chester Bowles, ambassador
Bandaríkjanna f Indlandi, kom í
fyrradag til Kambódíu, til við-
ræðna vift Sihanouk prins, þjöð-
höfðingjann og stjóm hans.
Viðrseðumar fjalla um hlut-
leysi Kambódíu og vemd þess,
eins og það er orðað, en það
sem Bandáríkjamenn vilja fá
framgengt er, að Norður-Viet-
nam haldist ekki uppi, að halda
áfram birgðaflutningum yfir
Kambódíu til liðs síns og Víet-
cong í Suður-Víetnam, né að N.-
V. haldist uppi að hafa leynileg-
ar bækistððvar í Kambódíu til
þess að fara úr til skyndiárása
yfir landamærin inn í S.-V., og
hverfa svo aftur þangað, sem
þeir geta verið í friði og búið
sig undir næsta leik.
Af bandarískri hálfu hefur nú
verið staðfest, að til athugunar
sé að taka þá stefnu, að veita
hersveitum Norður-VIetnama eft
irför inn í Kambódíu, komi þær
þaðan til átaka, og Sihanouk
prins hefur látið skína í það
stundum, að það yrði látið gott
heita, svo fremi, aö bandarískt
herlið færi ekki inn á byggð
svæði.
En það var lögð áherzla á þaö
í Washington, að engin ákvörð-
un hafi verið tekin í málinu.
Stjómmálamenn töJdu víst,
að Bowles mundi ræða þetta
mál við Sihanouk, en 1 gær var
talið óvíst, að viðræður þeirra
færu fr«rp.‘ fyrr en Cdag^þliö-
vikudag), en gærdagurinn fara
1 undirbúningsviðræöur Bowles
og ráðunauta hans, annars veg-
ar, og forsætisráöherra Kam-
bódiu og annarra ráöherra hins
vegar.
Heimsókn Bowles er tilkomin
vegna mjög óvæntrar, breyttrar
afstöðu prinsins. Hann kom sem
sé allt í einu með tilboö þess
Chester Bowles.
efnis til Johnsons forseta, að
hann sendi sérlegan sendimann
til Kambódfu til viðræðna.
Mikið var um þetta ritaö og
sagt þá og margar tilgátur komu
fram, m. a. að Sihanouk prins
vildi hindra, að Kambódía öll
yrði styrjaldarvettvangur.
Sihanouk prins rauf stjóm-
málasambandið við Bandaríkin
fyrir tveimur árum.
Áður en hann bauð Johnson
að senda sérlegan sendimann til
Kambódíu var hann miklu her-
skárri í ræðum, sagði, að öli
þjóðin yrði hervædd, ef til inn-
rásar kæmi, ef „Bandaríkjamenn
kæmu til þess að vega Kam-
bódíumenn“.
Það er vitað, að utanríkisráð-
herra Kambódíu var fyrir
skömmu I Hanoi og ræddi viö
Ho Ohi Minh. Þetta gaf þyr und-
ir báða vængi flugufregnum um,
að Bowles muni ræða frið í Ví-
etnam við Sihanouk prins, til
þess að greiða fyrir að N.-V.-.
stjóm féllist á viðræður inn frið
í N.-V., en engin staðfesting hef-
ur fengizt á þessum getgátum
neins staðar, en þar fyrir getur
vel verið, að einhver fótur sé
fyrir þessinn fréttum og að það
komi í Ijós síðar, en Sihanouk
hefur sjálfur sagt, að hann hafi
enga vísbendingu um þaö fengið
frá Norður-VIetnam eða Víet-
cong, að þeir vilji samkomulags-
umleitanir.
Eins og áður var sagt sleit
Sihanouk prins stjómmálasam-
bandi viö Bandaríkin fyrir tveim
ur ánnn, en I fyrra kom þó
bandarískur ambassador til Kam
bódíu og dvaldist þar I góðu yf-
irlæti og vig miklar vinsældir,
en hann var ekki stjómmálaleg-
ur ambassador, heldur góðvildar
John Gray Gorton, öldunga-
deildarþingmaður I Ástralíu, hef-
ur verið kjörinn formaður Frjáls
iynda flokksins og mun þvi taka
við embætti forsætisráðherra af
McEuwen, formgnni Bænda-
flokksins, sem gegndi því til
bráðabirgða.
innar og velvildarinnar, og á
hann var litið I Víetnam sem
fulltrúa bandarisku þjóðarinnar,
af Sihanouk og þjóðinni allri —
og þá kom það títt fram hjá
furstanum að Kambódía ætti í
engum deilum við bandarísku
þjóðina — ágreiningurinn væri
við sambandsstjómina I Was-
•lington. Hvort áhrifa heimsókn-
ar frú Kennedy gætir enn skal
ósagt látið, en hún kom, sá, og
sigraði.
Jónafon Hnfll-
varðsson forsefi
>
Hæstaréttar
Jónatan Hallvarðsson, hæsta-
réttardómari, hefur verið kjör-
inn forseti Hæsttréttar frá 1.
janúar 1968 að telja til ársloka
1969. Einar Amalds, hæstarétt-
ardómari, var kjörinn varafor-
seti til sama tíma.
McEuwen var vara-forsætis-
ráðherra, er Harold Holt forsæt-
isráðherra féll frá. — Tekið er
fram, að Bændaflokkurinn sé á
ehgan hátt mótfallinn Gorton
sem forsætisráðherra, en gerði
athugasemdir við ýmsa aðra.
'nKaESStsser
Gorton — nýr forsæt
isráðherra Ástralíu