Vísir - 10.01.1968, Side 2
V í S IR . Miðvikudagur 10. janúar 1968.
Ungis markvörðunum gefínn kost-
ur á að reyna sig / kvöU
^Tveir komungir markverð-
ir verja íslenzka markið í
Laugardalshöllinni í kvöld,
þegar tilraunalandsliðið
mætir hinu snjalla pólska
liði Spojnia, sem enn er ó-
sigrað á íslandi. Þetta em
þeir Birgir Finnbogason úr
FH og Guðmundur Gunn-
arsson úr Fram. „Við erum
að reyna að yngja upp“,
sagði Hannes Þ. Sigurðs-
son, „Þorsteinn Björnsson
kemur varla til greina, þar
eð hann getur ekki verið
með landsliðinu í vetur,
þegar það fer utan til Rúm-
eníu og A-Þýzkalands“.
Það mun og vekja athygli aö
Gunnlcugur Hjálmarsson er aftur
með liðinu eftir „fríið“ í lands-
leiknum gegn heimsmeisturunum
Tékkum í desember. Ingólfur Ósk-
arsson er hins vegar ekki hlutgeng
ur vegna meiðsla eftir leik Fram
við Spojnia. Liðið lítur annars
þannig út:
Birgir Finnbogason, FH —
Guðmundur Gunnarsson Fram —
Guðjón Jónsson, Fram —
Gunnlaugur Hjálmarsson Fram —
Karl Jóhannsson KR — Einar
Magnússon Víking — Jón Hjalta-
lín Víking — Geir Hallsteinsson
FH — örn Hallsteinsson FH —
Ágúst Ögnmndsson Val og Stefán
Sandholt Val.
Liðið h'tur alls ekki illa út,
gott sambland af skyttum og línu
mönnum, og markverðimir báðir |
hafa sýnt í leikjum gegn Pólverj-
um að alls góðs er af þeim að
vænta.
Leikurinn við Pólverja hefst kl.
20.30 í kvöld, en kl. 19.45 hefst for
leikur milli a og b-liða unglinga-
landsliðsnefndar.
m
Florían Albert
„knnttspyrnu-
muður Evrópu
1967#/
□ Ungverski knattspymumað-
urinn Florian Albert var kjör-
inn „knattspymumaöur Evrópu
árið 1967“ af franska knatt-
spymublaðinu France-Football.
Hlaut Albert samanlagt 68 stig
í atkvæðagreiðslu fréttaritara
blaðsins víða um Evrópu, annar
varð Bobby Charlton, Englandi
með 40 stig, Johnstone frá Glas-
gow Rangers í Skotlandi fékk
39 stig, Beckenbaúer, Þýzka
landi, varð fjórði með 37 stig
og Eusebio frá Benfica í Portu-
gal 5. með 26 stig.
□ Myndin er tekin af Albert,
þegar hann var á æfingu fyrir
Evrópubikarleikinn gegn Kefla-
vík 1964 í Reykjavík.
ÍSHOKKÍ
Íshokkí eða ísknattleikur? — Það
er erfitt að finna rétta íslenzka orð
ið yfir þessa vinsælu íbrótt. Is-
knattleikur kemur varla tii mála
einfaldlega vegna þess að í þess-
um hraða 'g skemmtilega leik er
enginn knöttur notaður, en íshokkí
er heldur ekki gott, enda eru er-
lend o/ð I málinu illá séð, en þar til
hinir visu málfræöingar finna eitt
hvert betra orð, verða menn aö
notast við Lhokkí. Myndin var
tekin af fyrstu kepnninni í Reykja
vik í þessari grein. Markvörður
Reykjavíkur er á myndinni í sínum
mlkla útbúnaði, sem kostar ekki
minna en 5000 krónur. Hann heit
ir Ölafur Björgvinsson og er all-
kempulegur að sjá.
,Okeypis" ferðal'óg kosta peninga:
Verða margir beztu manna okkar
ekki með landsíiðinu / Rúmeníu?
„Ég er alls ekki óánægður,
þótt ég hafi ekki verið valinn
í tilraunalandsliðlð, — satt að
segja frekar feginn, því að ég
er ekki í nægilega góðri æf-
ingu um þessar mundir“,
sagði Þorsteinn Björnsson,
markvörður Fram, í gærdag,
þegar hann frétti að hann
væri ekki einn af þeim, sem
vaidir voru gegn Spojnia.
„'".annleikurinn er sá aö ég
hef ekki getað einbeitt mér að
æfingum að undanförnu ég
vann mikið fyrir jólin við að
lagfæra íbúðina mína, — og
a> þess tr það ekki skrítið
þótt landsliösnefnd reyni menn
sem til greina koma í utanferð-
ina til Rúmeniu og A-Þýzka-
lands“ sagði Þorsteinn.
— Hver er ástæðan fyrir þvi
að þú getur ekkl farið utan með
liðinu?
„Hún er einfaldlega sú, að
pyngjan leyfir ekki slíkan mun
að. Að vísu er ferðin „ókeypis"
en vinnuveitendur vilja ekki
borga mönnum hálfSmánaðar
lr ..n, meðan þeir eru að sóla
sig suður í löndum. Ég hef farið
eina ferð i vetur og það er
nóg. Ég hef farið margar ferðir
utan og tekið sumarfríið upp i
en það er ekki hæfet að fórna
, si marfríinu í það óendanlega
á kostnaö fjölskyldunnar“.
Saga Þorsteins á raunar viö
um fleiri en hann. Þannig er það
með fjölmarga íþróttamenn. ,,Ó
keypis“ ferðalag getur kostað
15—20 þúsund krónur, og fyrir
unga iheimilisfeður er í flestum
tilfellúm útilokað að standa i
slíkum fjárútlátum, eða öllu
öllu heldu- að missa að slíkum
peningum. Heyrzt hefur að Guö
jón Jónsson og Sigurður Eiiiars
ron muni ekki gefa kost á sér
í ferð þessa og e.t.v. einhverjir
fleiri. Leikið verðxir í Rúmeníu
og A-Þýzkalandi í lok febrúar.
!■■■■■■■
uw
V.V/.V.V.V.’.V.^V.V.V.V.V.V.V.V.V.V
I ■_■_■_■_■ I
fjmau&smsBssz
i