Vísir - 10.01.1968, Side 7
V1SIR. Miðvikudagur 10. janúar 1968.
7
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd
DE GAULLE BÝÐUR SAMEINUÐU
ÞJÓÐUNUM GÆZLULIÐ
— ef deilasi milH Israels og Arabaríkjanna leysist
fyrir forgöngu jieirra
De Gaulle Frakklándsforseti gaf I til friðargæzlu í Austurlöndum nær, j abarikja, er gert verði fyrir milli-
£ skyn i gær, að Frakkland kynni svo fremi að þess verði þörf vegna göngu Sameinuöu þjóðanna.
að gefa kost á því að leggja til lið I samkomulags i deilu ísraels og Ar- I Þetta kom fram í bréfi, sem
Bandarísku liðhlauparnir fengu
landvistarleyfi í Svíþjóð
forsetinn skrifaði Ben Gurion, fyrr-
verandi forseta ísraels, 30. f. m., en
það var birt í gær.
Hann segir og í bréfinu, að ekk-
ert hafi verið móðgandi um ísrael
eða ísraeisku þjóðina í því, sem
hann sagði á fundi með fréttamönn-
um í París 27. nóvember.
Forsetinn telur, að unnt ætti að
vera ag leysa deiluna ef gengiö sé
út frá því að ísrael skili herteknu
svæðunum samtímis og Arabaríkin
viðurkenni I'srael sem ríki. Og
Frakkland sé fúst til samstarfs í
þessu efni, ekki aðeins á stjórn-
málavettvangi heldur og á vett-
vangi átakanna (í júnístyrjöldinni).
Og þetta er skilið svo, að Frakkland
sé fúst til að senda gæzlulið.
af mannúðarástæðum
Bandarísku liðhlaupamir fjórir
fengu leyfi sænskra yfirvalda til að
vera áfram í landinu.
Sænska útlendingaeftirlitiö tók
ákvörðunina einróma, af mannúöar-
ástæöum, en rök fundust ekki fyrir
að leyfa þeim landvist til fram-
búðar sem pólitískum flóttamönn-
um.
Liðhlaupar þessir eru sjóliðar,
sem struku af bandaríska flugvéla-
skipinu Intrepid er það lá f höfn í
Tókíó, og þaðan fóru þeir til Sov-
étríkjanna og til Svíþjóðar flugleið-
is 29. desember.
Þaö var hinn 23. október s.l.,
sem þeir struku. — Flugmennimir
hafa lýst ánægju sinni yfir ákvörð-
uninni og segja, að nú verði þeir
að læra sænsku, og þeir hugsa til
frekari menntunar.
Sænska Víetnamnefndin kemur
saman á fund í dag til þess að
íhuga hvaö sé unnt fyrir þá aö
gera.
Tillögur Wilsons um að draga úr
vörnum austan Suez gagnrýndar
Bandarísk flugvéí
hrapar skammt
fró Róm
Bandarísk herflutningaflugvél af
gerðinni C-47 hrapaði til jarðar fyr-
ir utan Rómaborg í gær.
Áhöfn var sjö menn, einn lét líf-
ið, annar meiddist, en hinir sluppu
ómeiddir.
Ætlunin hafði verið að lenda á
Campino-flugvelli, sem er ag hálfu
leyti hemaöarlegur flugvöllur.
□ Philip Blaiberg var enn á bata
vegi í gær og fékk að sitja á
rúmstokknum í stundarfjóröung,
með fæturna á gólfinu — matar-
iyst hans er ágæt og læknarnir á-
nægðir með hve honum fer fram.
enda sjást enn engin merki þess
að líkami hans muni hafna nýja
hjartanu.
□ Tassfréttastofan sovézka er 10
ára í dag 10. janúar. í Sovétríkj-
unum njóta 5.500 blöð og stofnanir
þjónustu hennar og hún miðlar
fréttufn til 70 landa og 4500 fyrir
tæki innlend og erlend fá myndir
frá henni.
□ Utanríkisráðherrar Hollands,
Belgíu og Luxemburg koma til sam-
an til fundar 15. janúar og ræða
ágreiningsmálin innan Efnahags-
bandaiagsins (EBE).
— verður jbó sennilega fylgt fast fram
Tillögur brezku stjómarinnar um
spamað mæta andspymu, en mim
verða fylgt fast fram. Þegar neðri
málstofa brezka þingsins kemur
saman til fundar í næstu viku mun
Wilson forsætisráðherra gera grein
fyrir áformum stjómar sinnar um
sparnað svo nemi 800 milljónum
punda í ríkisrekstri.
Er það degi fyrr en upphaflega
var ákveðið. Samkvæmt fréttum og
fréttaauka í Lundúnaútvarpinu í
gærkvöldi hefur Thomson samveld-
ismálaráðherra ekki fengið eins
góðar undirtektir og hann bjóst við
hjá þeim ríkisstjórnum samveldis-
landa, er hann hefur rætt viö, til
þess að gera grein fyrir áformun-
um, en þó er haft eftir Tunku Ab-
dul Rahman forsætisráðherra Mal-
ajsíu:
Þegar Bretar hafa dregiö úr eða
Fimmta hjartagræðsiu-
tilraunin gerð í gær
Sjúklingurinn i bráðri hættu
hætt'vöraunum er það okkar aö
sjá um svo sem vér bezt getum.
Forsætisráðherra Singapore hefur
hins vegar hótað ag flytja sterling-
inneign Singapore í brezkum bönk-
um, en hún mun nema 200 milljón-
um punda. Forsætisráðherrann ræð
ir við Wilson á sveitasetri brezkra
forsætisráðherra um helgina. Stjórn
málafréttaritarar í London segja,
að ekki sé líklegt, aö andspyman í
samveldislöndum austan Súez muni
verða til J>ess að breyta áformum
stjórnarinnar. Thomson er væntan-
-legur til London áður en þing kem-
ur saman, og einnig Brovm utan-
ríkisráðherra, frá viðræðum f Tókíó
og Washington, og gera þeir grein
fyrir þeim á stjórnarfundi áður en
þing kemur saman.
Soldofatav am-
bassador ó BCúpu
Fregn frá Havana hermir, að Sov-
■ étpkin muni skipa einn af helztu
j ambassadorum sínum ambassador
i í Havana á Kúbu. Hann er Alex-
j ander Soldatatov, fyrrverandi am-
! bassador í London.
j Fyrrv. ambassador á Kúbu lét
I af störfum í marz í fyrra af heilsu-
■ farsástæðum og síðan hefur settur
í sendiherra (charge d’affaires) gegnt
■ embættinu.
30 þyrlur eyðs-
i lagðar í skyndiórós
f skyndiárás Víetcongliða á
bandarísku flugstöðina í Kon Tu í
miöháler.dinu í Suður-Vietnam
•ókst þeim að valda nokkru tjóni
á flugvélum. — í frétt frá Saígon
segir, ag í árásinni hafi 11 þeirra
fallið og 7 Bandaríkjamenn.
j I framhaldsfrétt frá Saígon seg-
j ir, að í árásinni á Kon Tu hafi Viet-
congliðar eyðilagt eöa laskað 30
j þyrlur, áður en þeir voru hraktir
á brott. Heimildin fyrir þessu er
frá talsmanni suður-víetnamska
hersins. 25 bandarískir hermenn
særðust. Áður var þess getið, að 7
hefðu fallig og 11 Víetcongliðar.
í gær var framkvæmd ný aðgerð
til þess að græða nýtt hjarta i
mann. Aögerðin var gerð í Banda-
ríkjunum á 57 ára gömlum manni
og er hin fimmta, sem gerð hefur
verið. Fjórum klukkustundum síð-
ar var tilkynnt, að líf sjúklingsins
væri í hættu.
Aðgerðin tók 8 klst. og 20 mín.
Sjúklingurinn heitir Louis Block og
er slökkviliðsmaður, sem kominn
er á eftirlaun. Aðgerðin var fram-
kvæmd í Monides-sjúkrahúsi í
Brooklyn, New York. 22 sérfræð-
ingar tóku þátt í starfinu, en að-
alstarfið vann yfirmaður þeirra
Adrian Kantrowitz læknir. Hjartað
var tekið úr nýlátinni 29 ára gam-
alli konu, Helen Krouch, og fékkst
leyfi ættingja hennar til þess að
gera áðurgreinda tilraun. Block var
skammt líf hugað, ef þetta gæti
ekki orðiö til þess að bjarga því.
Þorskveiðarnar
við Grænland 1967
NTB-frétt frá Godthaab hermir, :
að þorskveiðar á Grænlandi hafi !
verið 4.1% minni 1967 en árið áð- j
ur. Veiðin var meiri en árin 1963, j
1964 og 1965, en 24% minni en á ;
metárinu 1962. Alls var landað á j
Grænlandi 23.012 lestum 1967 eða j
979 lestum minna en 1966.
uídar vestan hafs og austan
— rurig'óngutruflanir miklar og fólk hætt komið
Mi'-.Iar amgöngutruflanir hafa
orðið á Óretlandi vegna fannkomu
r ’ fi ‘ a og mest í Norður-Devon.
r Iiafa verið án rafmagns, menn
,r.. 'V5ia aö ganga frá bilum sín
—;o þúsundum skiptir, tjón
I...á búpeningi er mikið. Ekki
c~ búizt við að hlýni og batni í
\ ;Vi r.æstu 2—3 dagá.
Þyrlur björguðu 26 bömum úr
skólabifreið, sem flætt hafði kring
um.
Miklir kuldar eru í Bandaríkj-
unum. Allvíða í landinu er skólum
lokað vegna kuldanna.
I South Portland, Maine, leituðu
3500 manns hælis í herbúðum
vegna þess að upphitunarkerfi bæj
arins bilaði. Bærinn er hitaður upp
með jarðgasi.
! Hríðarveður var í gær á miklum
hluta .íeginlands Evrópu og mikl
ar truflanir á samgöngum eða jafn
vel alger stöðvun sums staðar. I
Maine-et-Loiré og víðar í Mið- og
Vestur-Frakklandi, varð tjón af
vatnavöxtum. Varaö var við flóöa
hættu í grennd við Signu.
Á Bretlandi fækkaði að mun ferð j
um jámbrautarlesta, flugstöðvum j
allmörgum lbkaö. I Birmingham i
komust 3200 verkamenn verk-
smiðju nokkurrar ekki til vinnu
sinnar.
Frétt í gær hermir, að utanríkisráðherrar Beneluxlandanna komi
saman til fundar 15. þ. m. (Sjá frétt í „Heimshorna milli). Myndin
er af Joseph Luns (sitjandi) utanríkisráðherra Hollands og Pierre
Harmel utanrikisráðherra Belgíu.