Vísir - 10.01.1968, Blaðsíða 9
V í SIR. Miðvikudagur 10. janúar 1968.
'iurrtfWiW—W—imiiiiiiTnuHflii i .nni
Fyrirtækin hljóta að standa og faBla me
hvernig þau haga sér gagnvart
Segir Þorvarður I. JúBíusson, frumkvæmdastjöri
Verzlunarrúðsins í viðtali um afkomu verzlunar-
innar á nýliðnu úri
TÖLUR, sem hafa verið notaðar í umræðum undanfarið til
að sýna fram á óeðlilegan vöxt heildsölu- og smásölufyrir-
tækja, eru mjög óábyggilegar og gera hvorki að sanna né
afsanna, að hér sé starfandi óeðlilegur fjöldi slíkra fyrirtækja.
Að ein smásöluverzlun sé á hverja 120 íbúa og ein heildsölu-
verzlun á hverja 600, eins og haldið hefur verið fram að und-
anfömu á opinberum vettvangi, er þ\ní algjörlega ósannað mál.
Tölumar em áætlaðar, og það liggur heldur lítið á bak við
þær. Raunhæfar tölur em til frá árinu 1957, en síðan eru
þetta áætlaðar tölur. — Hagstofan er nú að undirbúa nýja
fyrirtækjaskrá, sem mun leiða hið sanna í ljós. Þar verður
þó að koma í ljós skipting fyrirtækjanna eftir stærðum til
þess að hægt verði að byggja á skránni í umræðum eins og
átt hafa sér stað að undanförnu um óhæfilegan vöxt verzl-
unarfyrlrtækja og alls kyns þjónustufyrirtækja.
Jþannig mæltist Þorvarði Jóni
Júlíussyni, framkvæmda-
stjóra Verzlunarráös Islands í
viðtali við Vísi um afkomu verzl-
unarinnar á síðasta ári.
Það er heldur snemmt að tala
um afkomu verzlunarinnar á
nýliðnu ári, þar sem skýrslur
liggja ekki Ijósar fyrir ennþá,
sagði Þorvarður. Þó er sýnt, að
útkoman er heldur lakari árinu
áður. Kostnaður á árinu var
heldur meiri en 1966, en veltan
hefur ekki aukizt svo neinu
nemur. I sumum greinum hef-
ur beinlínis orðið samdráttur,
t.d. í þeim, sem eru háðar tekj-
um og afkomu sjávarútvegsins,
en í honum varð tekjusamdrátt-
ur töluvert mikill frá fyrra ári.
Heildarinnflutningur til októ-
berloka á árinu varð svo til ó-
breyttur frá fyrra ári, ef frá er
tekinn sérstakur innflutningur
eins og skip, flugvélar og inn-
flutningur vegna Búrfells. Nóv-
erbermánuður s.l, hefur at-
hylgisverða sérstööu. Þá eykst
innflutningur töluvert, sem m.
a. stafar af hamstri almennings
eftir að kunnugt varö um geng-
isfellinguna. Bankainnistæður
minnkuðu svo aö sjálfsögðu
þann mánuö við hamstrið.
Hvaða atburður nýliðins árs
er verzluninni minnisstæðastur?
Dráðabirgðasetning á verð-
lagsákvæðunum nú nýverið
er að sjálfsögðu sá atburður,
sem verzlunin man bezt. —
Þau eru fráleit. — Þau eru snið-
in eftir verðlagsákvæðum, sem
voru í gildi árið 1958, sem er
mjög ósambærilegur tfmi mið-
að við það, sem nú er. Þá voru
ríkjandi innflutningshöft og
jafnvel vöruskortur. Vöruval og
fjölbreytni voru ekki í líkingu
við það, sem nú er. Auk þess
voru tollar miklu hærri og í
sumum tilvikum margfalt
hærri, en þar sem álagning legst
ofan á kostnaðarverð vörunnar
hingaö kominnar, munar mik-
ið um tollana i álagningunni.
.4 timum, þegar þjónusta hef-
w stóraukizt og fjölbreytt úr-
val af vörum sótt víða að og
samkeppni ríkir á markaöinum,
duga ekki álagningarprósentur
sóttar 9 ár aftur í tímann, þegar
gjörólíkar aðstæöur ríktu. Nú
er kostnaðarverö vöru tiltölulega
mun lægra en þá, en kostnaður
við innkaup, birgðahald og sölu
mun hærri.
Það er oft talaö um frjálsa
verzlun, sem hinn altæka þjóð-
félagslega sannleika. Er víst
að íslenzk verzlunarfyrirtæki
séu oröin nægjanlega þroskuð
til að „þola“ frjálsa verzlun?
— Ég hef t.d. áreiöanlegar
heimildir fyrir því að viðurkennt
inníflutningsfyrirtæki hafi flutt
jnn 2. fl. sjónvarpstæki, en þar
sem sjónvarpstæki eru ný vöru-
tegund hér kunna neytendur
ekki að greina tækin eftir gæða-
mati. Innflytjandi þessi not-
færði sér vankunnáttuna og
seldi tækin með 50—60% á-
lagningu eða á svipuðu verði og
aðrir innflytjendur sjónvarps-
tækja. — Þetta mun ekki hafa
komið í ljós fyrr, en verðlags-
ákvæðin voru sett. Hvað segið
þér um þetta?
Clíkir verzlunarhættir eru auö-
vitað hrein svik og vítavert
ef rétt reynist. Þeir stórspilla
fyrir verzluninni. En með þessu,
sem og öðru, er aflaga getur
farið hjá verzlunarfyrirtækjum
eiga neytendurnir að fylgjast.
— Fyrirtækin hljóta að standa
og falla með því, hvemig þau
haga sér gagnvart kaupendun-
um.
Hin frjálsa samkeppni virðist
ekki hafa aukið hagræðingu í
verzlunarmáta?
Það er ekki rétt. Það hefur
farið fram mikil hagræðing í
verzlun á umliðnum árum, t. d.
með kjörbúðum, sem er mikil
breyting á verzlunarmáta frá
því sem áður var. Annars er
verzlun sú atvinnugrein, sem
einna erfif ,st er að koma mik-
illi hagræðingu við. Það er
einnig eölilegt að meira af
vinnuafli þjóðfélagsins leiti inn
í þjónustuna, eftir því sem vel-
megunin eykst. Aukin tækni-
menning og nýjar flóknar vélar
c tæki krefjast stöðugt auk-
innar sérþekkingar i verzlun-
arstéttinni. Innflutningsfyrir-
tækin taka oft að sér ráðgjafar-
starf, -. iðgerðir * og alls kyns
þjónustu.
Tilgangur nútímaverzlunar
er m. a. orðinn sá, að kynna
nýja erlenda tækni, leita vitt
og breytt eftir nýjustu tækni-
framförum, sem verða erlendis
og flytja þær inn í landið. Inn
í stéttina koma þv£ oft tækni-
fróðir menn, sem hvetja frekara
til þessarar þróunar.
íslenzkum fyrirtækjum virö-
ist ganga illa að ná hagkvæmri
stærð. Hér úir og grúir af litlum
innflutningsfyrirtækjum, sem
flytja inn örfáar vörutegundir.
Hvemig stendur á þessu? Er
nauðsynlegt að setja innflytj-
endum strangari skilmála, t. d.
meira hlutafé?
T nágrannalöndunum eru yfir-
leitt ekki sérstakar hömlur
á veitingu verzlunarleyfa. Verö-
lagsíhlutun hins opinbera hefur
þau áhrif að draga úr vexti
stórra fyrirtækja og gefur hin-
um minni aukið svigrúm. —
Tilhneiging íslendinga til að
vera sjálfstæðir hefur þama
eflaust einnig nokkur áhrif.
Þegar markaðurinri er að þenj-
ast út leita starfsmenn út úr
fyrirtækjunum og stofna eigin
fyrirtæki.
Getur verið að íslenzkir at-
vinnurekendur séu ekki nógu
vakaridi fyrir því að greiða
góðum mönnum hækkandi kaup
til að draga úr þeim við að
stofna eigin fyrirtæki. þeir
myndu varla ráðast 1 að stofna
eigin fyrirtæki, nema tekju-
möguleikamir væm mun meiri
í eigin fyrirtækjum?
Þetta hefur tvímælalaust sín
áhrif. Það er þó einnig stað-
reynd, að möguleikamir til aö
„hagræða“ sköttunum em tals-
vert miklir í alls kyns bíl-
skúrafyrirtækjum, sérstaklega
þeim, sem stunda þjónustu-
störf. Þetta vita allir, þó það
fari ekki hátt. Afstaða laun-
þega hafa lagt nokkum hemil
á launamismun milli úrvalsfólks
og miðlungsfólks. Allir hafa
orðið að vera nokkuð jafnir og
ekki hefur mátt gera mikið upp
á milli manna. Stækkun og
hugsanleg fækkun fyrirtækja
verður aö koma sjálfkrafa gegn-
um samkeppnina. Menn verða
að finna það form, sem þeir
hafa mestan hag af, en þannig
verður hinn hæfari ofan á f
samkeppninni.
En er víst aö samkeppnin hafi
áhrif á vömverð til lækkunar?
Landið er svo lítið ojg fámennt,
að kaupmenn gætu hugsanlega
komizt að samkomulagi um
vömverð bak við tjöldin?
-.......... ...... 'vsjrWWMwM**)
Þorvarður J. Júlíusson.
Jafnvel þó að menn hefðu
samráð um ákveðið vöru-
verð, yröu alltaf einhvprjir, sem
skæru sig úr leik. Á mörgum
sviðum verzlunarinnar yrði að
halda mörg hundruð manna
fundi til að komast að sliku
samkomulagi, sem er algjörlega
cjerlegt. Þaö yrði helzt á tak-
mörkuöum sviðum, sem þetta
kæmi til greina, en ég held aö
það yrði þó frekar í því formi
að menn hermdu hver eftir öðr-
um f sambandi viö álagningu.
Það má ekki gjeymast, að
einkafyrirtæki og samvinnufélög
neytenda keppa á íslenzkum
markaði.
Hvaða áhrif teljið þér, að
gengisfellingin muni hafa á
verzlunina á þessu ári?
Gengislækkunin hlýtur að
valda innflutningsverzluninni
allmiklum erfiðleikum, sérstak-
lega þó þeim fyrirtækjum, sem
sk .lda mikiö erlendis. Annað
vandamál, sem menn vilja
kannski ekki horfast i augu
við, er að þegar vörur eru seld-
ar samkv ut gamla genginu
en greiddar erlendis samkvæmt
nýja genginu, verður ekki hægt
að endurnýja vörubirgðirnai
með samr fjármagni. Þetta
þýðir fjármagnstap hjá verzlun-
inni, sem aftur kallar á aukið
fjármagn úr þjóðfélaginu til
'ennar.
Aö iokum. Þorvarður?
Tjað er rétt að minnast á-
nægjulegs atburðar á ný-
lið-.u ári til mótvægis viö veró-
lagsákvæöi”. sem skilja ekki
eftir sérstaklega hlýlegar end-
urminningar. — Verzlunarráð
íslands varð 50 ára 17. septem-
ber s.l. og náði þar með merk-
um áfanga. Skipulag ráðsins
hefu- nú þróazt f það, að for-
menn allra samtaka, se, eiga
aöild að því, eru sjálfskipaöir i
stjórn þess. Þannig eru 8 af 13
manna stjón sjáifskipaðir, en
10 eri kjörnir i stjórnina. Félag
ísl. iönrekenda, Félag ísl. stór-
kaupmanna, Kaupmannasamtök
Islands, Félag bifreiðainnflytj-
enda og Félag ísl. byggingar-
efnakaupmanna tilnefna full-
trúa f stjórnina en1 Apótekara-
félag íslands og Félag raftækja-
heildsala tilnefna varame
V. J.