Vísir - 10.01.1968, Síða 16
VTSÍR
VAAAAAAAA^AAAAAAAAA^
9 ARA STAL
4100 KR.
Níu ára gamall drengur reynd
izt vera valdur að hvarfi 4100
króna í peningum úr mann-
lausri ibúð í Skólagerðl í Kópa-
vogi. Peninganna var saknaö á
laugardagskvöld og lögreglunni
>ert viðvart, en af verksummerkj
um virtist lióst, að þjófurinn
hefði farið inn um glugga á
annarri hæð hússins.
Grunur féll fljótlega á dreng-
inn við rannsókn málsins og í
gær viðurkenndi hann að hafa
stolið peningunum. Hann hafði
eytt 100 krónum af þýfinu,
skilaði aftur 4000 krónum.
SÍLDIN HEFUR EKKI SÝNT Á
SÉR NEITT FARARSNIÐ
segir Jakob — En hún finnst hvergi nema á /00-/60 faðma dýpi
0 Skipum fjölgar held-
ur á miðunum fyrir
austan og allmörg skip
voru á leið austur á bóg-
inn í nótt. Mikill floti
síldarbáta leitaði í gær á
svæðinu frá Snæfells-
nesi og allt austur undir
Vestmannaeyjar, en síld
ar varð ekki vart nema
þá á 100 faðma dýpi.
Og sömu sögu er að segja að
austan. Seinast þegar fréttist í
gærkvöldi voru síldarforfurnar á
160 faðma dýpi og engin veiði.
Fyrsta síldin á þessu ári barst
til Seyðisfjarðar í gær. Þangað
kom Gígja RE með 30—40 tonn
og fór hluti af síldinni í fryst-
ingu.
Ámi Friðriksson var kominn
á síldarmiðin fýrir sfðustu helgi
og hafði Vísir samband við Jak-
ob Jakobsson, leiðangursstjóra
síldarleitarinnar í gær. Sagði
hann, að lítií sem engin hreyf-
ing hefði veriö á síldinni austur
á bóginn, hún hefði ekki sýnt á
sér neitt fararsnið, væri svipað
sfldarmagn á miöunum og fyrir
jólin, en sfldin stæði mjög djúpt
og kæmi yfirleitt ekki-ofar en
á 100 faðma.
Sagði Jakob, að síldin hefði
gengið nokkuð suður á bóginn,
en hann byggist við að hún færi
að þokast austar úr því liði á
mánudaginn. Síldin hefur raunar
haldið sig á óvenjumiklu dýpi í
allt haust og hefur það mjög
háð síldveiðunum. Sagði Jakob
ástæðuna fyrir því vera þá í
fyrsta lagi, að síldin hefði til-
hneigingu til þess að sækja
dýpra á veturna eftir því sem
hún eltist og mikill hluti síldar-
Framhald á bls. 10.
Jakob Jakobsson
Annir Selfosslögreglunnar vaxandi
— Afskipti okkar af árekstrum
fara heldur vaxandi, sagði yfirlög-
regluþjónninn á Selfossi, Jón Guð-
mundsson við Vísi í morgun.
„I fyrra, eða árið 1967, lentu
296 bílar í árekstrum, sem viö
fengum til rannsóknar, árið 1966
268 bílar, 1965, 212 bílar. Auk
þeirra 296 bíla, sem lentu í árekstr
um í fyrra, lentu 22 í veltum.
Við önnumst alla sjúkraflutninga
hér um slóðir og fórum 308 ferðir
með sjúka og slasaða.
— Slösuðust margir í þessum
árekstrum, Jón?
— 38 slösuðust í umferðarslys-
um, en í vinnu, á dráttarvélum,
inni á heimilum og svoleiðis slös-
uðust aðrir 38.
— Eru þetta allt Selfyssingar?
— Nei, því fer fjarri. Þaö er
svo mikil gegnumgangandi umferö
hér á þjóðveginum,
— Var mikið um ölvun á árinu?
— 64 voru kærðir fyrir ölvun
á almannafæri og 66 voru settir
í steininn okkar. Það eru ekki all-
ir settir inn, sem kærðir eru fyrir
ölvun. Þaö sem er þá umfram er
vegna rannsókna á einhverjum
málum.
Kærð voru 52 innbrot og þjófn
aðir. 163 kærur komu fram á árinu
vegna brota á umferðarlögum og
brota á lögreglusamþykkt, 78 kær-
ur vegna ýmissa annarra brota.
Rannsóknir á eldsvoðum urðu 11.
Rúðan, sem þjófurinn braut í nótt.
Fundu þjófinn liggj
andi ofan á þýfinu
Lögreglan handtók í nótt inn-
brotsþjóf, sem brotizt hafði inn
í Radíóver á Skólavörðustígnum
og stolið þaðan plötuspilurum, Var
þjófurinn nýfarinn af innbrotsstaö,
þegar lögreglan kom að, en eftir
nokkra leit fannst hann falinn inni
: húsagarði.
Einhver athugull þorpari varð
þjófsins var, meðan hann var að
bauka inni í verzluninni í nótt kl.
3.25. Hringdi hann til lögreglunnar
^pandreou boðið
sforf í Svíþjóð
Sænski prófessorinn Gunnar Myr-
dal sagði í gær, að tilboð, sem
Andreas Papandreou hefði verið
un) að setjast að í Svíþjóð,
stæði óhaggað.
Tilboðig innifelur, að hann fær
rtarf sem alþjóða efnahagsmála-
sérfræðingur.
og gerði hepni viðvart, en sá um
leið, hvar þjófurinn kom út meö
— að því er honum sýndist —
fangið fullt af viðtækjum. Sá mað-
urinn á eftir þjófnum gangandi
suður Bergstaðastræti.
Þegar lögreglan kom á staöinn,
var þjófinn hvergi að sjá. Leit út
í fyrstu, sem hann væri sloppinn
úr greipum þeirra. Þó gerðu lög-
reglumennirnir leit í næstu húsa-
görðum og fundu þá kauöa fljót-
lega, þar sem hann lá á jöröinni
ofan á 3 plötuspilurum, sem hann
hafði haft á brott með sér úr verzl
uninni.
Reyndist þetta vera gamall kunn
ingi lögreglunnar og hafði hann
komizt inn í verzlunina með því
að brjóta stóra rúðu í sýningar-
glugga hennar. Plötuspilararnir
höfðu skemmzt nokkuð við það,
að maðurinn lagðist ofan á þá.
Þjúfurinn var hafður í fanga
geymslu lögreglunnar í nótt.
Pétur Sveinbjarnarson ásamt tveim starfsstúlkum upplýsingastöðvarinnar í Laugardal, Esther Guö- •
mundsdóttur og Vigdfsl Pálsdóttur. •
SMÁBÖRN GANGA í\
BRÉFASKÖIA!
Lögreglan, Sumargjöf og umferðarnefnd opna
Umferðarskólann „Ungir vegfarendur"
□ „Aðalmarkmiðið með
stofnun skólans er að ná til
barna undir skólaskyldualdr-
inuin,“ sagði Óskar Ólason,
yfirlögregluþiónn, á fundi
með frétíamönnum í gær, en
þá var kynnt nýjung í skóla-
málum á íslandi. Nýjungin
var stofnun umferðarskóla,
sem hlotið hefur nafnið „Ung-
ir vegfarendur“.
Skólinn er bréfaskóli fyrir
börn á aldrinum 3-4-5-6 ára og
er öllum börnum heimil þátt-
taka, foreldrum þeirra að kostn*
aðarlausu.
Umferöarnefnd Reykjavikur
og lögreglan f Reykjavík, í sam-
vinnu við Barnavinafélagið Sum-
argjöf, hafa haft forgöngu um
stofnun skólans, en aðilar að
rekstri hans eru að auki þeirra:
Kópavogskaupstaðar, Hafnar-
fjaröarkaupstaður, Garðahrepp-
ur, Seltjarnarneshreppur og
Mosfellshreppur.
Umferðarnefnd Reykjavíkur
hefur nú tekið húsnæöi á leigu
í húsi íþróttasamtakanna i Laug
ardal og flutt þangað fræöslu
og upplýsingaskrifstofu sína en
henni stjórnar Pétur Sveinbjarn
arson fulltrúi og stjómar hann
Framhald á bls. 10.