Vísir - 20.02.1968, Side 2
FRAM HÉLT TOPPNUM MEÐ SIGRI GEGN
VAL 14:13
■ Framarar gengu frá
leik í gærkvöldi með
enn tvö stig í safn sitt, stig,
sem kunna að hjálpa þeim
að halda toppsætinu í 1.
deild út í gegn, en sann-
arlega munaði ekki miklu
að Valsmönnum tækist að
„nappa“ öðru stiginu eða
jafnvel báðum í þessum
harða og skemmtilega leik
liðanna, sem um 1100 á-
horfendur tóku virkan þátt
í með hrópum sínum.
Valsmenn sýndu nú, að þeir
standa toppliöunum Fram og FH
ekki aö baki og sannast sagna virö-
ast fjögur lið vera mjög svipuð aö
styrkleika, en fjöröa liöið er Hauka-
liðiö. Hin tvö, Víkingur og KR geta
líka svo sannarlega ógnaö svo um
munar, þaö fengu menn m. a. aö
sj* Víking gera í fyrri leiknum
þetta kvöld.
Leikurinn var frá upphafi mjög
jafn. Að vísu tókst Fram aö kom-
ast í 4:1 eftir 18 mínútna leik. Val-
ur skoraði fyrst, en mjög erfiðlega
gekk Fram aö jafna. Það gerði
Guðjón fyrst eftir 7 mínútur, en
Gunnlaugur skoraði svo 2:1 eftir
13 mín. leiktíma og bætti síöan 3:1
viö meö skoti af „61-módelinu“,
eins og einn af forystumönnum
Fram sagöi svo skemmtilega. Vals-
menn jöfnuöu 4:4 á 22. min. og
'kómust i 5:4, en Fram nær aftur
forystu meö tveim mörkum Ingólfs,
en Hermann jafnar 6:6, þegar 3
mín. eru eftir. Aðeins sekúndur
voru eftir af hálfleiknum, þegar
Gylfi Jóhannsson stökk upp og skor
aöi auöveldlega 7:6.
Bftir 7 mín. í síöari hálfleik jafna
Vaismenn 8:8, en Siguröur Einars-
son á tvö næstu mörk, og nú
það, sem hefur ekki gerzt fyrr í
þessu móti. Bergur Guönason skor-
ar EKKI úr vítakasti. Þetta var 18.
vítakastið hans í mótinu, öll hin
fyrri höfðu fariö þá leið, sem þeim
var ætlaö, í netið, en hér varöi Þor-
steinn skemmtilega. Fram tókst nú
að hafa 1—2 mörk yfir til leiks-
loka, en spenningurinn var geysi-
legur. Þegar 1 mín. og 25 sek. voru
eftir skorar Hermann Gunnarsson,
13:14, og spenningurinn er í há-
marki. Ekki sízt þegar Framarar
missa boltann, línumaöur stígur
á iínuna í góðu færi. Ekki tókst þó
Valsmönnum að skora, enda mættu
þeir Framvöminni grárri fyrir jám-
um í hvert skipti, sem reynt var aö
brjótast gegnum vamarmúrinn.
Framiiöið styrktist óneitanlega
með tilkomu Þorsteins í markið,
en beztu menn Fram voru þp þeir
Gunnlaugur Hjálmarsson, Siguröur
'Einarsson og Sigurbergur Sigsteins-
son, sem enn einu sinni var sóttur
langt að, en hann nemur nú við
íþróttakennaraskólann á Laugar-
vatni og mun eiga erfiðara í næstu
leikjum að koma vegna prófa, sem
em ekki langt undan.
Valsmenn börðust vel og liðiö í
heild sýndi prýöis leik. Finnbogi í
markinu átti ágætan leik, en Berg-
ur og Gunnsteinn áttu báðir mjög
■[L’A p[i[ JBJOjjs 3o uSaS ; 9[ddo[s uujecJ jnjaq uossjbui^ jnQjniijs
góðan leik, Hermann einnig, en átti Mjög góður dómari í þessum erf- •1
til að skjóta í vonlitlum tækifær- iöa leik var Reynir Ólafsson. J
um. | — jbp — •
LEIKUR FH OG VÍKINGS Áni FÁTT
SKYLT VIÐ HANDKNATTLEIK
Staðan
í 1. deild
. — FH vann með einu marki, 16:15
ENN MISSTU Víkingar af stigunum, — og því sitja
þeir í þeirri ömurlegu aðstöðu að hafa aðeins eitt stig
eftir 6 leiki, en eftir leiknum í gær að dæma ættu þeir
að geta krækt í nokkur stig í leikjunum, sem þeir eiga
eftir að leika gegn KR, Fram og Val. Væntanlega eru
það KR-ingar, sem munu helzt berjast um fallið með
Víking, en önnur lið virðast úr hættu.
Leikur Víkinga og FH í gær-
kvöldi átti ekki margt skylt við
handknattleiksíþrótt þá, sem sýna
átti í Laugardal f gærkvöldi. Frá
upphafi til enda var þarna sýndur
áflogaleikur og þaö í bókstaflegri
merkingu því aö í eitt skiptiö varð
dómarinn, Sveinn Kristjánsson, að
vísa tveim leikmönnum, sínum úr
hvoru félaginu, af velli fyrir aö
lenda saman í deilum. Hélt FH-
ingurinn kverkataki um Víkinginn,
þegar dómarinn skarst í leikinn,
en áöur mun Víkingurinn hafa sleg-
ig Hafnfirðinginn heldur óþyrmi-
iega. Heldur hógvær dómur aö
vita þá aðeins með 2 saklausum
mínútum utan vallar, einhver hefði
leyft leikmönnum að hvíla út leik-
inn fyrir brot af þessu tagi.
, Þaö furðulega við þennan leik
jvar það að Víkingar byrjuöu meö
| stórsókn og komust í 7:1 eftir 17
mínútur. Þeir Einar Magnússon og
jJón Hjaltalin voru drýgstir í að
skora. Loks á 18. mínútu leiksins
skorar FH sitt annaö mark, en
| það fyrra var skorað eftir nær 12
mínútur. Sennilega er þaö eins-
dæmi aö FH-skyttunum hafi veriö
haldið svo niðri sem Víkingum
.tókst þó þetta kvöld.
1 Á aöeins 3 mín. skipast veöur
á lofti og staöan er orðin 8:4 fyrir
Víking og á 28. mín. skorar Páll
tvö mörk og staðan í hálfleik þol-
1 anlegri fyrir FH, en á horfðist, 6:9.
Þaö var þó ekki fyrr en eftir 45
mínútna leik að FH tókst að jafna
1 og komast yfir. Þaö var Árni Guð-
jónsson, sem skoraði af öryggi af
línunni í bæði skiptin. Víkingar
sóttu ákaflega rólega, hver sókn
stóð 3—4 mínútur, en FH leitaði
líka vandlega fyrir sér áður en
skotið var og þannig stóð á því að
mörkin urðu eins fá og raun ber
vitni.
FH komst nú í 12:10 og seinna
í 14:11 með marki Einars Sigurðs-
sonar. Þegar 5 mín. voru eftir var
staðan 15:12 fyrir FH og þessarj
sfðustu mínútur er Auðunn Óskars-;
i son aðalmaðurinn í framlínu FH
i og skorar 3 mörk á 9 mínútum.
j FH knbeitti sér að því að „hefta"
! Jón Hjaltalín niöur, — og tókst
það, -en skelfing er þetta leiöinleg
leikaðferð. Jón hefði átt aö fara
inn á línu í stað þess að láta taka
sig algjörlega úr umferð. Það eina
sem hann gat gert óáreittur var
að taka vitaköstin og 4 mörk skor-
aði hann þannig í síðari hluta seinni
hálfleiks.
FH komst í 16:13, en þá skora
Víkingar tvö mörk úr vítaköstum
(Jón Hjaltalín). Siðara vítið fékk
Jón reyndar alls ekki aö taka ó-
áreittur. FH-menn reyndu allt sero
í þeirra’ valdi stóð til að trufla og
töfðu þannig í 26 sekúndur. Hefði
dómarinn átt að draga slíkar tafir
frá, en geröi ekki. E.t.v. hefur
þetta fært FH sigurinn, — hver
veit, en ekki tókst FH að skora á
þeim tíma sem eftir var. Þegar 5
sek. voru eftir virtist Jón Hjaltalín
eiga beina leið upp völlinn með
boltann, — en datt áður en hann
gæti gert mark. Þannig lauk þess-
um bardagaleik með sigri FH
16:15.
Það væri hreinasta firra að hæla
leikmönnum liðanna fyrir þennar.
leik, því ekki var hægt að sjá örla
á handknattleik aliar þessar
60 mínútur. Þeir einu sem eiga
heiður skilið voru markverðimir,
sem vörðu vel. Einar hjá Víkin^ og
Kristófer hjá FH. Þá vakti Einar
Magnússon athygli fyrir skot sfn.
— hann getur þetta, þegar hann
ieggur sig virkilega fram, eins og
hann gerði 1 gærkvöldi. Auðunn
Óskarsson er sívaxandi leikmaður
og sama má segja um Árna Guð-
jónsson líka. Dómarinn, Sveinn
Kristjánsson dæmdi allsæmilega
lengst af, en virtist missa tökin,
þegar á leið. Hæpinn fannst mér t.
d. vítakastsdómurinn í lok leiksins
á FH, — þar held ég að Kristófer
hafi ekki verið brotlegur á neinn
hátt.
— íbp —
• □ FH— ■Víkingur 16:15 (6:9).«
J □ Fram • —Valur 14:13 (7:6). J c
• Fram 7 5 11 150:128 11«
JFH 6 3 2 1 129:117 «:
• Valur 6 4 0 2 117:106 8»
• Haukar 6 3 0 3 139:133 o:
JKR 5 10 4 92:109 2J
• Víkingur • • 6 0 15 102:139 1 • • •
Marfca-
hæstu
menn
• Jón Hjaltalin Magnúss., Vík.,
• Bergur Guðnason, Val,
J Gunnl. Hjálmarsson, Fram,
o Geir Hallsteinsson, FH.
J Hilmar Björnsson, KR,
• Viðar Símonarson, Haukum, 28 *
• Þórður Sigurðsson, Haukum.
J Hermann Gunnarsson, Val,
• Tngólfur Óskarsson, Fram,
J Örn Hallsteinsson, FH,
•
39 J
38 •
37;
30 J
28 •
• <> Næstu ieikir:
27 •
26 !
24;
24 •
•
O
0
Haukar — FH og
Valur—KR 10. marz.