Vísir - 20.02.1968, Síða 4

Vísir - 20.02.1968, Síða 4
Leikkonan Fay Dunaway hafði betur í málaferlunum viö Otto Preminger, framleiðanda mynd- arinnar „Bonnie og Clyde.“ Hann vildi leggja bann við því, að hún kæmi fram í öðrum kvikmvnd- um, áður en hún léki í næstu mynd hans „Skidoo.“ Sagði hann að hún hefði gengizt. undir það, þegar hún skrifaði undir samn- ing hjá honum fyrir tveimur ár- um. Eftir að yfirvöld höfðu marg lesið samninginn og kynnt sér alla málavöxtu, vildu þau ekki stað- festa þessa kröfu Premingers og getur Fay leikið í hverri þeirri mynd, sem henni sýnist. Bandarískur hermaður, Ernest Wagner — margreyndur í orust- um — týndi M-14 rifflinum sín- um í bardögum við Viet Cong. Þingmaðurinn, Henry Sohade- ber, sagði í Þjóðþinginu um dag inn, að Wagner hefði borizt krafa frá hernum, sem hljóðaði upp á 4 þúsund krónur — andvirði riff- ilsins. Þingmaðurinn sagði einn- ig, að næði þessi krafa fram að ganga, ætti sjóherinn að fara á kreik og rukka vamarmálaráð- herrann, McNamara, um 1625 millj. kr. vegna tjónsins á Pu- eblo Liberty — skipinu, sem ísraelsmenn sökktu. Landssamband bandarískra stúd- enta hefur ákveðið að leita úr- skurðar dómstólanna um hvort lögum sé samkvæmt að kveða menn til herþjónustu án frests, ennfremur hvort löglegt sé að hegna andstæðingum Vietnam- styrjaldarinnar, vegna ágreinings þeirra við yfirvöldin út af kvaðn- ingum til þess að gegna herþjón- ustu í Vietnam. SÍAMSTVÍBURAR SKILDIR AÐ Fyrsta velheppnaða aðgerdin a Síamsfvíburum Hjón nokkur í Suður-Afríku þakka það 27 læknum og hjúkr- unarkonum, að yngstu börnin þeirra tvö — 4ra mánaða gaml- ir tvíburar — eru nú fullkom- lega heilbrigð og lifa eðlilegu lífi, sitt í hvoru lagi. Sitt í hvoru lagi, því þegar þau fæddust, voru þau samvax- in á höfði — eitthvert sjald- gæfasta fyrirbrigði Síamstvibura, sem nokkurn tíma kemur fyrir. I meðaltali reiknað koma slíkir tvíburar í heiminn í aðeins eitt skipti af tveimur og hálfri millj- ón fæðingá. Nú eru tvíburarnir, Shirley og Catherine komnir heim til for- eldra Sinna, Joyce og Ron O’Hara í Jóhannesarborg og eru báöir við beztu heilsu. Foreldrarnir eru í sjöunda himni. — Ég vildi, aö ég gæti sagt öllum heiminum, hvaö ég er hamingjusöm — sagði móðirin við blaðamenn, þegar hún fékk tvíburana heim. Læknisaðgerðin hefur bætt enn einni fjöður í hatt Suöur- Afríkubúa á sviði læknavisind- anna. Fyrst velheppnaðir hjarta- flutningar milli manna og nú vel- heppnuð aðgerð á Síamstvíbur- um. Þetta er í fyrsta skipti í sög- unni, sem það tekst að skilja að Síamstvíbura, samvaxna á höföi, þannig að báðir lifi aðgerðina af. Það er haft eftir dr. H. van Wyk yfirmanni Transvaal Mem- -------------------------------cs> Vinsældir Nancy Sinatra hafa vaxið geipimikið frá þeim tíma, sem hún söng Iagið, „These boots are máde for walking“ inn á plötu. Það þykir orðið alveg greinilega komið i ljós, að hún kunni að syngja og sé bara áheyrileg. Nýlega lauk hún við samningu síns eigin þáttar fyrir sjónvarp, þar sem koma fram auk hennar, faðir hennar Frank Sinatra, Dean Martin og aðrir góðir kunningjar, eins og plötuframleiðandi hennar, Lee Hazelwood. Varla hafði þátturinn verið sýndur nema einu sinni, þegar sýnt þótti að hann félli ákaflega vel í geö flestu fólki. Hver röddin eftir aðra kvaddi sér hljóðs um, hve frábær hann væri. Þetta voru allt saman margútspekúleraðir viðskiptamenn, sem að Nancy standa, og þeir sáu sér strax leik á borði og gáfu út plötu með söngvunum, sem sungnir voru i þættinum. Þetta þykir vera bezta platan hennar, sem komið hefur út hingað til, en þar syngur hún t. d. „Jackson“ með Hazelwood, „Things" með Dean Martin og fleira er á plötunni, en hins vegar syngur Frank einn lagið „Younger than springtime“. Hinir hreyknu foreldrar með tvíburana. orial barnasjúkrahússins, aö heilahimna tvíburanna hafi ver- iö samgróin og „því að- geröin mjög vandasöm." — Hann hefur þó ekki fengizt til þess að upplýsa, hverjir hafi framkvæmt aðgerðina, „vegna læknalaga Suöur-Afríku“- — eins og hann komst að orði. „Við höfum rannsakaö þær ýtar lega og við teljum, að þær verði báðar alveg eðlilegar.“ Tvíburarnir eiga þó eftir- að vera undir læknishendi fyrst framan af og munu foreldrar þeirra fara með þáer til læknis- skoöunar á tveggja vikna fresti. Dr. H. van Wyk sagði, að skurð læknarnir, sem framkvæmdu að- gerðina, hefðu fyrst leitað ráða og upplýsinga hjá læknum um víða veröld. Tvíburarnir fæddust með að- stoð keisaraskurðar 6. okt. en vegna bólgukvilla var ekki unnt að taka þá til þeirrar nauð^ynlegu rannsóknar og undirbúnings fyrir aðskilnaðaraðgerðina, fyrr en 5. des. 2. janúar úrskurðuðu lækn- arnir svo, að þær myndu vera hæfar til þess að gangast undir skurðhnífinn og hafizt var handa við að undirbúa starfslið og að stoðarfólk. Æfingamar fóru fran' og gerviuppskuröir gerðir, síðar fór sjálf aðgerðin fram 6. ian Eftir fimm og þrjáfjórðu ú) klukkustund var síðasta nál sporið tekið og tvíburarnir voru settir inn á vöggustofuna í sitt ■ivort rúmið. 8. jan. skýrðu lækn« ar frá því, að Shirley hefði þá þegar uppgötvað, að hún gset’ hreyft höfuðið. Kvartel af hrossakjöti Fréttin um hrossahvarf í ná- grenni Reykjavíkur hefur vakið allmikla athygli, og er mörgum getum leitt að því, hvað valda muni. Og það stendur ekki á gár ungunum. Þeir hringja hver i aðra og spyrja ósköp sakleysis- lega: — Á ég ekki að selja þér eins og eitt kvartel af hrossa- kjöti? Um skólabúninga Harðort bréf hefur okkur bor- izt á móti skólabúningum frá frú S.R.H. Henni finnst við hafa kommúnistiskar hugmynd- ir 1 klæðaburði að vilja láta bömin okkar fara að ganga i einkennisbúningum, í stað þeirra litriku fata, sem þau ganga í nú. Henni finnst, að sú skylda að fyrirskipa skólabún- inga sé að nokkru röskun á sjálfsákvörðunarrétti cinstakl- inganna. Þó hún hljómi illa sag- an um fátæku, óhamingjusömu börnin, sem geta ekki keppt við félaga sína i klæðaburði, þá er fátæklegi búningurinn þó betri en að vera skyldaður í einkenn isbúning. Bréfritari, sem er af erlendum uppruna segir, að til alirar hamingiu hafi hún farið í gegnum skóla, þegar skólabún ingaskyldan var liðin. Látið þessa siði aldrei verða tekna upp á Islandi. Að trúa bví, að þetta sé pen- ingasparnaður, finnst bréfrit- ara hlægilegt, hví sonur henn- ar myndi vafaiaust nota þriá einkennisbúnin^a á skólatíma- bilinu. auk annarra fata. Þetta •••■■••■•••••■•a myndi verða dýrara eftir að notkun skólabúninga yrði upp tekin. Og siðast en ekki sízt, það yrði leiðinlegt og ó- smekklegt fvrir börnin að þurfa að klæðast litum, sem ekki klæða þau. Ég þakka S. R. H. kærlega fyr ir bréfið, bó ég geti ekki fallizt á skoðanir hennar, en bað er einmitt fróðlegt að heyra hinar vmsu skoðanir á þessu máli. c ■ Enn hafa þau gleðitiðindi skeð, • að nýr banki hefur verið opnað « ur, og nú er það í Árbæjarhverfi, * enda var það einmitt það sem í mest vantaði þar uppfrá í því J nýja hverfi. Ætti nú ekki að * standa á því, að húsbyggiendur » fái smá-úrlausn til bess að full- | gera íbúðir sínar. sem þess J þurfa, og einnig er þægilegt « fyrir alla þá, sem þarna eiga J peninga afgangs að geta lagt ® þá inn i næsta nágrenni, þvi • varla eru bankaútibú bvggð ein J ungis til að skirta ávísunum. • Til hamlngju með bessa nýju { stofnun. . J f Þrándur í Gfitu. « Fagnaðarefni?

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.