Vísir - 20.02.1968, Qupperneq 8
3
V1SIR . Þriðjudagur 20. febrúar 1968.
VISIR
Dtgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson
Auglýsingar: Þingholtsstræti 1. Símar 15610 og 15099
Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. Sími 11660
Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuði innanlands
í lausasölu kr. 7.00 eintakið
Prentsmiöja Vísis — Edda hf.
Heimildir fengnar
Mörg verkalýðsfélög hafa veitt stjórn eða trúnaðar-
mannaráði heimild til að boða vinnustöðvun, þegar
henta þykir. Ákvörðunarvaldið um marzverkfall er
þannig komið úr höndum einstaklinganna í hendur
forustumannanna. Stundum er mönnum sagt, að
heimildin sé einungis formsatriði og vafasamt sé, að
henni verði beitt. Á þessari forsendu samþykkja menn
verkfallsheimild, þótt þeir séu andvígir verkfalli. En
forsendan er blekking. Þannig afhenda menn „verk-
fallshetjum“ valdið og fljóta sofandi út í verkföll.
Út af fyrir sig er eðlilegt, að menn beri traust til
forustumanna stéttarfélags síns. í þeim hópi eru til-
tölulega fáir eftir, sem stefna að upplausn í þjóðfé-
laginu til að flýta fyrir stofnun sovétríkis á íslandi.
Hinir eru miklu fleiri, sem líta á sig sem hagsmuna-
verði stéttarinnar en ekki stjórnmálastefna. En þeir
eru stundum slegnir blindu eins og aðrir menn.
Undanfarnar vikur hafa forustumenn verkalýðs-
hreyfingarinnar lagt þyngstu áherzluna á, að atvinnu-
leysi verði hindrað með öllum tiltækum ráðum. Virð-
ist svo sem þessi krafa eigi almennum skilningi að
fagna. En síðustu dagana hafa þessir forustumenn
farið að ýmsu leyti út í aðra sálma og segjast nú leggja
höfuðáherzlu á, að vísitala verði reiknuð á laun 1.
marz næstkomandi. Þessi krafa er raunar gagnstæð
hinni fyrri, því að hún verkar í þveröfuga átt.
Allur atvinnurekstur í landinu hefur orðið fyrir
miklu áfalli síðustu mánuði. Mörg fyrirtæki eru rekin
með hreinu tapi og éta nú upp eignir sínar. Samdrátt-
urinn hefur valdið atvinnuleysi því, sem víða er nú
farið að bóla á. Ef atvinnuvegirnir yrðu þvingaðir til
að greiða umrædda vísitöluuppbót, mundi fjöldi fyrir-
tækja beinlínis loka og önnur draga stórlega saman
seglin. Á örskömmum tíma yrði hér á landi almennt
atvinnuleysi.
Hin slæma rekstrarstaða íslenzkra fyrirtækja er
enginn tilbúningur. Guðmundur J. Guðmundsson
„verkfallshetja" vitnaði um ástandið í Þjóðviljanum
á föstudaginn. Því er óhætt að fullyrða, að það er
engum launungarmál, að atvinnuvegirnir þola ekki
launahækkanir eins og á stendur.
Sumir verkalýðsforingjar virðast vera komnir í
sjálfheldu í þessum málum. Þeir hafa vanið sig á að
slá um sig ,með stórum orðum á þingum og fundum.
Þeir vara sig ekki á, að með því hafa þeir bitið sig
fasta í afstöðu, sem þeir geta ekki staðið við. Baráttu-
gleðin á fundinum í gær hefnir sín með verkfalli í
dae og atvinnuleysi á morgun.
fíú eru taldar nokkrar líkur á verkföllum í marz.
Mörg félög hafa þegar falið leiðtogum sínum sjálf-
dæmi. Málin geta nú auðveldlega stefnt á sjálfvirkan
hátt í átt til upplausnar.
Wilson: „En svo er það þetta, Callaghan, að ef þeir fengju að koma, fengjum vift 200.000
þakkláta kjósendur.“
Kynþáttavandamál á Bretlandi
Þau valda vaxandi áhyggjum, ef ekki tekst aö hindra aðstreymi 200.000
Indverja frá Kenya.
1 fyrradag var sagt frá því i
fréttum frá London, að Mal-
colm MacDonald, sem er sér-
legur sendimaður brezku
stjórnarinnar í Austur- og
Mið-Afríkulöndum, væri kom
inn til Nairobi í Kenya, til
þess að ræða hvað unnt sé
að gera til að afstýra þeim
vanda, sem því er samfara,
að yfir 200.000 manns frá
Kenya af indverskum stofni,
vill komast til Bretlands, þar
sem það fær ekki lengur að
vera í Kenya. Líklega á þetta
fólk ekki í önnur hús að
venda en til Breta, en það
er brezkir borgarar og mun
standa fast á rétti sínum.
Tyfargra hluta vegna veldur
hinn nýi innflytjenda-
straumur erfiðleikum og andúð
margra, og þess hefur verið
krafizt utan þings og innan, að
þessi straumur yrði stöövaður,
eða dregið Ur honum til mikilla
muna. Málið hefur og verið rætt
á þingi, svarað fyrirspurnur
um það o. s. frv.
í frétt frá London segii
1500—2000 innflytjendur kom;
frá Kenya til Bretlands að meö
altali á viku hverri. Það er un
það bil sjö sinnum meira er
vikumeðaltal fyrir árið sem Ieu'
en samt er búizt við mikiIV
aukningu á næstu vikum
mánuðum. Með þeim hraöa se
nú er á myndu 100.000 manm
frá Kenya af indverskum stofn-
koma til Bretlands fyrir næsta
haust. Mestur hluti þessa fóíks
tryggði sér brezkan ríkisborg-
ararétt þegar landið fékk sjálf-
s^æöi og hefur óvefengjanlegan
réít til þess að fara þangaö og
setjast þar að. Brezk yfirvöld
segja, að í Kenya muni 125.000
af þessu fólki hafa brezk borg-
araréttindi. Það er vegna fram-
kváemdar Kenya-stjórnar á
þeirri stefnu, að Kenya skuli
vera land hinna blö,kku, aö það
bitnar á þessu indverska fólki,
þótt það hafi með réttu verið
búið að vinna sér þar hefðar-
rétt, því að hér er ekki um að
ræða aðkomufólk frá sfðari tfm-
um, heldur flest afkomendur
fólks sem fyrir löngu fluttist til
landsins.
Stefnan hefur verið fram-
kvæmd þannig, að segja þessu
fólki upp starfi, en útlendir borg
arar verða að sækja um vinnu-
leyfi, en þaö fá þessir „útlend-
ingar“ vart. Það er látið bitna
á þeim, að margir höfðu sterka
aöstöðu til þess að koma fram
af hörku við þá blökku fyrir
sjálfstæðið, og svo þáðu þeir
ekki boðið um að fá þegnrétt-
indi f hinu nýja, sjálfstæöa
Kenya. Þeir kusu brezkan borg-
ararétt fremur en Kenya-borg-
ararétt
Og nú er í ráði að takmaifca
mjög rétt erlendra borgara tB
þess ’að reka verzdun. Sækja
þarf um verzlunarleyfi á ný, en
þessi lagaákvæði munu áreiðan-
lega verða notuð gegn indversku
kaupsýslustéttinni í Iandinu.
Einnig er búizt við, að erfið-
ara verði fyrir þetta indverska
fólk að fá skólavistarleyfi fyrir
böm sín.
Nú hefur brezka stjómin tek-
ið málið upp við stjómina í
Kenya og það hefur aukið
strauminn vemlega — því að
flestir vilja komast til Bret-
lands, áður en samkomulag
kann að nást milli Wilsons o;>
Jomo Kenyajta.
Eitt af því, sem menn ótt
ast á Bretlandi er að allut
þessi fjöldi innflytjenda mum
auka hættuna á kynþáttavanda
málum, sem era að verða ærin
en það er nú ein milljón hör
undsdökkra manna á Bretlandi
□ Suöur-Afríka kveðst akki
breyta ákvörðunum um að senda
blandað liö hvftra manna og
hörundsdökkra á Olympíuleik-
ana, því að það væri að bregðast
Alþjóða Olympíunefndinni, sem
samþykkti að veita Suður-Af-
ríku réttindi til þátttöku að full-
nægðum settum skilyrðum Tíu
Afríkuþjóðir hafa hætt við þátt-
röku vegna ákvörðunar nefndar-
'n ar.
□ Um seinustu helgi vat
klukkunni á Bretlandi flýtt um
sina klukkustund til samræm-
is við tímann á meginlandi Evr
ópu yfirleitt og verður héðan *
frá um varanlegan sumartíma
að ræöa. — Meö þessu er ho-‘
'ð frá hálfrar , aldar venju un
að flýta klukkunni á vorin ot
seinka henni á haustin. Fyrir
1916 hafði Bretland ávallt FMT
t.íma (Greenwich meðaltfmai
verður áfram í notkun í Portú
gal og á nokkrum eyjum á At
lantshafi og í löndum í Vestur
Afríku. — .' Bretlandi veröut
áfram vitnað tíl Greenwich með
altíma svo sem um dagskrár-
efni útvarps til annarra landa
o.fl.