Vísir - 27.02.1968, Page 7
V í SIR . Þriðjudagur 27. febrúar 1968.
7
morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd
Bandaríska herstjórnin í Saigon tek-
ur upp strangt stríðsfréttaeftirlit
Um þessa mynd af bandarískum hermönnum á vígvelli í S. V. hefur veriS sagt, að hún gæti
eins vel verið frá Flandem' (Flæmingjalandi) í Belbíu í fyrri heimsstyrjöld. Þar stóð hvergi
steinn yfir steini, þar sem byggð bói höfðu verið.
Orusta í Laos —
oo margir særðust
Barizt um yfirráð samgönguleiða
Fréttaritarar teija, að j
Wheeler hershöfðingi
muni segja Johnson for-
seta, að Westmoreland
muni þurfa allmjög aukinn
herafla til þess að hernað-
arleg aðstaða versni ekki
frá því sem nú er og að
forsetinn muni fallast á að
senda allt. að 100.000
manna liðsauka til Suður-
Vietnam.
Herstjómin bandaríska I Saigon
hefir hert eftirlit meö fréttaflutn-
ingi af styrjöldinni og iætur fram-
vegis ekki í té frjálsar upplýsingar
um árásir kommúnista á bæi og
manntjón í liði þeirra. Tiigangur-
inn er, að hindra að þeir geti
dregiö ályktanir af fréttum, sem
þeim gætu komið að gagni.
Sagt er frá nýjum árásum á flutn
ingalestir kommúnista og sprengju-
árásum þeirra á alþjóöaflugvöHinn
við Saigon og á íbúðahverfi í borg-
inni. Um 100 hús eyðiiögðust.
Nákvæmar upplýsingar hafa ekki
verið iátnar í té um sprengjuárás-
ir kommúnista á flugvöilinn Tan
Son Nhut við Saigon, og er það í
samræmi við hinar nýju ákvaröanir
að heröa eftirfit með fréttum um
árásir kommúnista á Khe Sanh og
aðrar mikilvsegar herstöðvar og bæi.
Aðalstöðvar hernaðarlega lands-
stjórans í Saigon urðu fyrir 6 skot-
um. Fimm stjórnarhermenn og
tveir lögregluhermenn særðust.
I frétt frá Vientiane í Laos síð-
degis í gær segir, aö um 300 menn
hafi fallið eöa særzt í orrustu
um samgönguleiðir, sem kommún-
istar reyna að ná valdi yfir til
flutninga á liði og hergögnum til
norðurhluta Suður-Víetnam. Horf-
ur á þessum slóðum verða stöðugt
hættulegri.
Wheeler hershöfðingi sagði í
gær við brottförina frá Bangkok,
þar sem flugvél hans hafði viö-
komu á heimleið til Bandaríkjanna,
að Westmoreland fengi allt það lið,
sem hann þarfnaðist.
Hann fór í eftirlitsferö til banda-
rískra stöðva í Thailandi og sagði
við fréttamenn eftir á, að Banda-
Praouk Somly hershöfðingi yfir
Suður-Laos skýrði fréttamönnum
frá því í gær, að 42 menn úr stjórn-
arhernum í Laos hefðu fallið í
orrustunni, sem háö var í fyrradag
(sunnudag). Sjö menn særðust lífs-
hættulega. Horfurnar eru sagðar
stórum hættulegri vegna þess að
kommúnistar hafa umkringt tvo
ríkjastjórn væri staðráöin í að halda
áfram styrjöldinni í Víetnam, og
stefna að lokasigri. Hann kvaðst
ekki geta sagt neitt um, hvort
kommúnistar myndu reyna aö her-
taka Khe Sanh.
Hanri kvað kommúnistum alger-
lega hafa mistekizt aö ná
tilganginum með sókninni I Suður-
Víetnam.
300 féllu
höfuðstaði héraða Attopeu og Sara-
vane. Tiltölulega kyrrt var í Atto-
peu í gær en varðflokkar úr stjóm-
arhernum sáu til herflutningalestar,
sem í voru 50 flutningabílar komm-
únista og bendir það til, að meiri
átök séu framundan. Þetta var
milli bæjanna Saravane og Lao
Ngum. Ekki er fyllilega ljóst, hvert
mark kommúnista er (Pathet Laos
og Norður-Víetnama), en þessar til-
gátur hafa komiö fram:
1. Að Norður-Víetnamar séu að
treysta aðstöðu sina á þessum slóð-
um, ef til samkomulagsumleitana
skyldi koma.
2. Þeir séu að reyna aö ná á
sitt vald stærra samgöngusvæði en
Ho Chi Minh stígurinn liggur um,
en Bandaríkjamenn segja, að þeir
hafi lengi notað þá leiö til þess að
koma liði og birgðum yfir Laos inn
í Suður-Víetnam.
3. Þeir séu að berjast þarna við
stjórnarhersveitir til þess að geta
verið ö.ruggari um flutninga á öðr-
um leiöum.
Stjórnarherinn tók allmarga af
Iiði kommúnista til fanga. Talið er
að 68 Norður-Víetnamar hafi fallið.
■ Makarios erkibiskup fékk 94,5
% atkvæða I forsetakjörinu. —
Tyrkneskumælandi menn tóku ekki
þátt í kosningunum. Makarios fékk
220.911 atkvæði en keppinautur
hans Takis Evdokas 8.577.
■ Níu soldánar eða sheikar smá-
ríkja við Persaflóa, sem flest eru
auðug að olíu, sitja á ráðstefnu I
Dubai, og ræða stofnun sambands-
ríkis.
■ Háskólinn I Egyptalandi hefur
verið lokaður vegna ókyrröar með-
al stúdenta sem hafa mótmælt dóm
unum yfir liðsforingjunum, sem
taldir eru ábyrgir fyrir óförunum I
júnístyrjöldinni — þótti þeir of
mildir. Egypzka stjórnin hefur fyr-
irskipaö, að nýr herdómstóll skuli
taka málin fyrir.
■ Til mikilla átaka kom í gær
.mi'Hi japanskra stúdenta og bænda
og lögreglu — 499 lögreglumenn
særðust og 130 stúdentar en 23
voru handteknir. Stúdentar og
bændur höfðu safnazt saman til að
mótmæla að gerður yrði flugvöllur
í Narisa 48 km frá Tokyó. Héldu
þeir, aö hann kynni aö verða not-
aður sem bandarískur herflugvöll-
ur.
iafnaðarmanna-
flokkurinn finnski
velur forsætis-
róðherraefni í dag
Finnski jafnaðarmannai'lokkurinn
tilnefnir í dag forsætisráðherraefni
sitt. Flokksstjómin og þingflokkur-
inn hafa hiálið til meðferðar.
Fagerholm hefir neitað að verða
við óskum um að taka að sér þetta
hlutverk, eftir að atkvæðagreiðsla
hafði farið fram í flokksstjórninni,
og fékk hann 37 atkvæði, Kaarlo
Pitsinki landshöfðingi 13 og vara-
formaður flokksins Olav Linblom 1
atkvæöi. Áður en allt þetta gerðist
hafði Rafel Paasio.formaður flokks-
ins, tilkynnt, að hann gæfi ekki
kost á sér.
Rannsókn fyrirskipuð út af
brunanum í Shrewsbury
Westmoreland fær allt
það lið, sem hann þarf
Hótað að myrða
Papandreou
Hann hefur stofnað frelsishreyfingu sem
hefur lýðræði i Grikklandi að marki
Andreas Papandreou, fyrrverandi
grískur ráðherra og þingmaður, er
nú á ferðalagi um Norðurlönd. —
NTB-frétt frá Stokkhólmi hermir,
að rétt fyrir komu hans til Stokk-
hólms hafi maður nokkur hringt
til blaðs i. borginni, og sagt, að
Papandreou yrði myrtur.
Vegna þessarar hótunar voru
fimm einkennisklæddir lögreglu-
þjónar sendir til Arlanda-flugvall-
ar, áöur en flugvélin, sem hann
kom í lenti, en koma hans fór frið-
samlega fram. '
Á fundi með fréttamönnum í
gær sagöi Papandreou, aö hann
hefði stofnað frelsishreyfingu
(PAK), sem hefur aö marki endur-
reisn lýðræðis í Grikklandi.
„Við höfum marga stuönings-
Kvennadeildin sem eldurinn kom upp / var læst
á nóttunni og ekkert gæzlulið haft þar
Andreas
menn I Grikklandi," sagði hann,
„og við njótum stuðnings útlægra
Grikkja í þúsunda tali.“
■ Hann kvaðst ekki líta á sig sem
forsætisráðherraefni í Grikklandi
heldur sem forsprakka frelsishreyf-
ingar, baráttumann. Hann kvað alla
Grikki geta orðið þátttakendur í
hreyfingunni, svo fremi sem þeir
væru stuðningsmenn lýðræðis I
Grikklandi og frjálsra kosninga.
Ekki vildi hann segja neitt um
fjölda þátttakenda né neitt varð-
andi horfur á borgarastyrjöld i
landinu.
Hann lagði áherzlu á, að PAK
ætti ekki að koma í staðinn fyrir
önnur samtök I Grikklandi, sem
stefndu að sama marki.
Mikil furöa og grenija ríkir á
Bretlandi yfir því, sem komiö hef-
ur i ljós varðandi eldsvoðann í
geðveikrahælinu í Shrewsbury (sbr.
frétt í Vísi í gær).
Krafizt hefur verið rannsóknar
og lofaöi félagsmálaráðherrann,
Kenneth Robinson, I gær í þing-
ræðu, aö rannsókn yrði látin fara
fram.
Lena Jeger, þingmaöur í Verka-
mannaflokknum, sagöi að það heföi
vakið mikla skelfingu í hugum
manna, er það fréttist, aö kvenna-
deildin, þar sem eldurinn korri upp,
hafi verið læst að næturlagi og
ekkert gæzlufólk I deildinni eftir
að búið var að læsa.
Forstöðukonan, Rosamunda Butt-
ers sagði við fréttamenn að hinir
erfiðari ’sjúklingar hafi verið hafð
ir í þessari deild og sumir þeirra
haft leyfi til að reykja. Hún játaði
aö sumir hefðu farið óvarlega meú
eld.
Eldurinn kom upp laust eftn
miðnætti og komu 12 slökkviliðs
bílar á vettvang og var það fyrs:
eftir tvær klukkustundir, sem þeit
náðu valdi á eldinum og gátu hinri
að frekari útbreiðslu hans.
Lögreglan segir, að fiestar kven--
anna, sem Iétu lífið (21) hafi ver '
yfir sextugt. — Um 120 sjúklingr
af 800 voru fluttir í önnur sjúkrr
hús. — Sum sjúkrahúsanna
Shrewsbury eru yfir 100 ára göm
ul.
Vissa er ekki um eldsupptök,
nema að þau munu hafa komið
upp I herbergi á annarri hæð.