Vísir - 02.04.1968, Qupperneq 1
— segir Gestur Olafsson i Bifreiðaeftirlitinu
Aðalskoðun bifreiöa í lögsagn dag og mun fyrri hluti henn;
arumdæmi Reykjavíkur hófst í standa fram til 2. ágúst næs
58. árg. - Þriðjudagur 2. apríl 1968. - 74. tbl,
Vísis B. G.)
er tekin í morgun, en þá hófst aðalskoðun bifreiða í Reykjavik,
komandi. Fréttamenn frá Vísi
brugðu sér í heimsókn til Bif-
reiöaeftirlitsins í morgun, laust
eftir kl. 9 og voru bá þegar
mættir bifreiðaeigendur með
bifreiðir sínar.
Gestur Ólafsson, forstöðum.
Bifreiðaeftirlitsins var að sjálf
sögöu kominn til skrifstofu
sinnar og stóðu á honum öll
járn í tilefni dagsins. Þrátt fyr-
ir annríkið gaf hann sér tíma til
að ræða við fréttamanninn um
þá breytingu helzta, sem lög-
leidd hefur verið frá síðasta
ári.
— Það ber fyrst að telja ljós-
in“, sagði Gestur, „þau breytast
nú með tilliti ti’l hægri umferð
arinnar. Þeir sem hafa ,nú þegar
fengið sér Ijósker, sem gerð eru
fyrir hægrihandar akstur, verða
að láta líma yfir þau á sérstak-
m-*- 10. síða.
Hafísbreiðan tálmar siglingum fyrir
Norðurlandi
Reynt að verja hafnir fyrir ísreki —
jakar inni á smábátahöfn á Akureyri
Hafís hefur nú að méstu lok-
að öilum siglintaleiðum fyrir
Norðurlandi. Flugvél Landhelg-
isgæzlunnar, TF SIF, fór í ís-
könnunarflug í gær, og virtist ís
inn vera orðinn mjög þéttur,
víða ailt að 9/10.
Á Veðúrstofunni var skýrt
frá því, að í gær hefði ís rekið
inn á Eyjafjörð, allt til Akureyr-
ar, og voru tveir hafísjakar
komnir inn á smábátahöfnina.
Töluverður ís er kominn inn
á Patreksfjörð. Frá Galtarvita
sést talsverður ís, mest í norö-
austri. Allmikill ís er á Húna-
flóa, og á Blönduósi er nokkurt
jakahrafl, en að ööru leyti hefur
ástandið ekki breytzt, svo að
orð sé á gerandi.
Kjörvogur er fullur af ís. Hjá
Siglunesi hefur lítil breyting
oÆið, en fjörðurinn er algerlega
lokaður af ís.
Hafísinn virðist hafa rekið frá
Grímsey, og er nú mest í
tveggja til átta kílómetra fjar
lægð. Aftur á móti er mikill
jakaruðningur á öllum fjörum.
Frá Hrauni á Skaga eru þær
fréttir, að ísmagn hafi aukizt
mjög, og sjáist hvergi út yfir ís-
röndina. Auðar lænur eru á víð
og dreif í ísnum og liggja þær
frá austri til norðvesturs.
Vísir ræddi við fréttaritara
sinn á Siglufirði í morgun og
sagði hann, að þéttur ís væri
úti fyrir ströndinni og hefði tals
vert rekið inn á Siglufjörð. Þar
hefði myndazt þykkur lagís og
væri siglingaleiðin út fjörðinn
lokuð öllum veniulegum skip-
um. Þó brauzt Höfrungur til
Siglufjarðar frá Akureyri í gær
meö olíu, en við það skemmd-
ist skipið eitthvað £ ísnum.
(Glampandi sólskin var á
Siglufirði í morgun og hrikaleg
sjón aö sjá hafísinn teygjast
til hafs eins langt og augað
eygði. ísinn getur haft alvarlegar
afleiðingar fyrir atvinnuástand
ið á Sigluf. þar sem bátar kom
ast ekki á sjó, en þeir veiddu
vel seinustu dagana, sem þeir-
komust á sjó. Siglfirðingur kom
inn með 50 tonn eftir þrjá daga
í fvrradag og togarinn Hafliöi
með 100 tonn eftir mjög
skamma útivist.
Samkvæmt upplýsingum frá
fréttaritara Vísis á Húsavík er
Skjálfandaflóinn nú oröinn full
ur af ís, aðeins stöku vakir hér
og hvar. Húsavíkurhöfn hefur
verið lokað fyrir hafísrekinu
með stálvír, sem strengdur var
fyrir hafnarmynniö. En sjóinn
hefur lagt í höfninni.
Vísir hafði samband við frétta
ritara sinn á Akureyri í morg-
un og sagði hann m. a.
10. síða.
Milljónatjón er veiðarfæri lenda undirís
Húsavíkurbátar hafa orðið i af völdum ísanna. Einn bátur
fyrir gífuriegu veiðarfaeratjóni I var á sjó í fyrradag, þegar ís-
Höfrungar dauðvona í
vökum á Skjálfandaflóa
Skjálfandaflóinn er nú fullur al
is og eru aðeins smávakir í ísbreið
unni á flóanum hér og hvar. Hús-
víkingar, sem gengu út á Kald-
baksnes í gær sáu höfrunga í lít-
illi vök þar úti fyrir. um 20 — 25
stylcki og er þeim ekki hugað líf
inn tók að reka inn Skjálfanda-
flóann og náði hann ekki að
draga öll net sín. Missti hann
talsvert af þeim undir ísinn.
Margir bátar eiga net sín undir
ís og þarf væntanlega ekki að
vitja um þau frekar. - Er þar
bæði um að ræða þorskanet,
sem og rauðmaga- og grásleppu-
net.
i . ökinni. Ennfremur sáust nokkr- i Sagöi fréttaritari Vísis á Húsa-
ar hnísur í annarri vök litlu utar | vík að hér væri um að ræða tjón
á flóanum og þykir einsýnt að | sem næmi hundruðum þúsunda —
þær muni farast. —Þegar ísinn j ef ekki enn meira.
gengna mánuði og lítill afli borizt
á land.
Útlit með bátanna sjálfa var
mjög siæmt, en mönnum tókst
að taka minni bátanna upp á
land og verja höfnina með því
að strengja stálvíra fyrir hafn-
armynnið og hefur það enn
haldið, þótt segja megi að bát-
arnir í höfninni séu enn í
hættu vegna íssins, sem
leggst þungt að landinu.
er orðinn svo þéttur er hætt við
að vakirnar friósi fliótlega, meö
an frostið helzt svona mikið.
Er ástandið þeim mun alvarlegra
fyrir útgerðina á Húsavík, þar sem
þar hefur varla gefið á sjó undan-
Kðíörninn skemmdist af ís
Brauzt frá Akureyri til Siglufjaröar með oliu i nótt
Siglingaleiðin út Eyjafjörð er nú
iokuð aö heita má vegna ísa. —
Seinasta skinið sem brauzt út fjörð
inn var Haförninn, sem kom tii
Siglufjarðar í morg.n með svart-
olíu, sem var farið að skorta þar.
Nokkara skemmdir urðu á skipinu
Til Akureyrar kom Haförninn i !
gærmorgun ,eftir tvísýna siglingu
fyrir Horn og landaði hann bcnzini i
á Akureyri i gær, og gasólíu, en
þar var orðinn skortur á hvoru
tveggiu.
Hafa þeir skipverjar á Hafernin
á siglingunni í gegnum ísinn. — i um sýnt mikinn dugnað við að
flytja björg til bæjanna fyrir norð
an, þar sem aðfiutningar eru nú
engir nema á landi, vegna isanna.
Engin sigiing var út Eyjafjörð
önnur en þessi í morgun. Drangur
átti, áætiunarferð til SigJurjarðar
í morgun. en hann sat fastur í
ísnum á Akureyrarnolli, seinast er
tii fréttist.
Nýr framkvæmda-
stjóri Vísis
Nýr framkvæmdastjóri hefur
verið ráðinn við dagblaðið Vísi.
Er hann Sveinn R. Eyjólfsson,
sem nú er deildarstjóri í sölu-
deild Olíufélagsins Skeljungs
h.f. Tekur hann endanlega við
störfum á Vísi hinn 1. júní n.k.
Sveinn er fæddur 1938 i
Reykjavík, sonur hjónanna Eyj-
ólfs Sveinssonar, verzlunar-
manns og Kristínar Bjarnadótt-
ur. Hann varð stúdent frá
Verzlunarskólanum árið 1958,
starfaði síðan í Landsbankan-
um. en frá 1961 í Skeljungi h.f.
Stjórn Reykjaprents h.f. býð-
ur Svein velkbminn til starfa
og óskar honum heilla í starf-
inu.
ÞEIR LÆGST NÚMERUÐU
MÆTA TÍMANLEGAST