Vísir - 02.04.1968, Blaðsíða 2
- ■ '
:
Siglfirðingarnir vöktu verðskuldaða athygli. Þeir heita Jóhann Jónsson, Sig. Steingnmsson,
„VILDI HAFA Þ
MEÐ MÉR, HAUKANA"
— segar nýliðinn í Inndsliðinu, ÞÓRÐUR SIGURÐSSON
© Um næstu helgi stendur slagurinn við Dani í lands-
leik í Laugardal, — öðru sinni hér heima gegn þess-
um „erfðafjöndum“, sem alltaf hafa „s!oppið“ með
sigur yfir landsliði okkar í handknattleik. Lið íslands
hefur verið kynnt í blöðurn, og leikur einn nýliði með
liðinu, Þórður Sigurðsson úr Haukum, en hann þekkja
handknattleiksunnendur fyrir skemmtilega leiki, góða
knatttækni og skothörku í leikjum með „spútnik“-lið-
inu Haukum.
Þórður er 23 ára gamall fæddur
3. fhaí 1944 í Hafnarfirði og varð
hann þar af leiðandi snemma
spenntur fyrir handboltanum eins
og fleiri þar um slóðir, en Hafn-
firðingar hafa útvegað ófáa menn i
landsjiðið eíns og kunnugt er og
er Þórður sá nýjasti 1 hpói lands-
liðsmanna þaðan.
Þóröur fékk eins og fleiri Hafn-,
fiðingar tilsögn frá Hallsteini j
Hinrikssyni í æsku. Hallsteini má i
þakka það öðrum fremur aö hand- I
knattleikurinn, leikurinn, sem virö j
ist eiga svo vel við íslendinga, !
festi rætur hér á landi. Hallsteinn j
„ól upp“ jafnaðarlega stóra hópa af j
handknattleiksfólki, — og sjálfur j
„útvegaöi“ hann afbragðs fólk í i
raðir íþróttamanna í Firðinum, m.a. í
keppa tveir synir hans, Örn og j
Geir með landsliðinu um helgina. j
Það var með FH, sem Þórður
byrjaði að leika. Þaö var í 3. fl„
en tveim árum síðar skipti hann
yfir í Hauka með félögum sínum
úr sama bæjarhverfi, seni ákváðu
að fara að keppa fyrir þetta hálf
gleymda og hálfdauða félag, sem
þá var. Ári síðar varð Þórður Is-
landsmeistari með Haukum í 3.
flokki, var þar lykilmaður ásamt
Ólafi Ólafssyni og frjálsíþrótta-
manninum Kjartani Guðjónssyni. I
2. flokki var Þóröur lítt virkur, en
þegar Haukar byrjuöu í 2. deild
kom hann aftur fram á sjónarsvið-
iS-
Haukar reyndust þegar mikilr'
keppnismenn og skemmtilegt lið,
lið, sem fólk kunni aö meta, liðið
sem gat gert hið óútreiknanlega.
Li,6ið fór upp í 1. deild og hefur
vérið þar í nokkur ár. Þórður, sem
er lærður mátsveinn fór utan eitt
ár, steikti gimilegar lambasteikur
úti við glugga Iceland Food Centre
steinsnar frá Piccadilly Circus í
London, en nú hefur hann ásamt
öðrum sett á laggimar matvöm-
verzlunina Kjöt og Réttir við
Strandgötu í Hafnarfiröi. Vinnur
hann einnig að sinni grein, sér um
veizlur í heimahúsum m.a.
Þórður hefur alltaf reynzt drjúg-
I áð skora mörk fyrir lið sitt
og ævinlega veriö meðal marka-
hæstu manna í 1. deild, en eihnig
hefur hann verið varnarmaður í
bezta flokki:
Við röbbuðum við Þórð stuttu
eftir að landsliðsnefnd tilkynnti val
sitt. Þóröur hafði þá ekki fengið
neina vitneskju um að hann hefði
verið valinn.
„Ég bjóst hreinlega ekki við að
verða valinn, þó að ég væri £ lið-
inu gegn pressuliðinu á dögunum,
það komu svo margir tii greina £ lið
ið þetta sinn. Ég er yfir mig ánægð
ur með að fá þetta tækifæri og
verð að segja að ég er mjög ánægð
ur með liöið í heild. Ég hef kynnzt
strákunum i gegnum æfingamar
og finnst að „mórallinn", liðsand-
inn, sé eins og bezt verður á kosið
þó að menn væm ekki ánægöir
eftir jafnteflið við pressuna. En það
er kannski ekki að undra þvi að
allt of oft hefur landsliðið tapað nið
ur því sem áunnizt hefur í fyrri
leikjum. Þetta verður að laga sem
fyrst, —og það áður en við
keppum við Danina'*.
— Hverja mundirðu vilja hafa
með þér í landsliðinu úr Haukalið-
inu, ef þú mætt.ir velja? spyrjum
við Þórð.
„Alla“, segir hann af bragði,
„en þó sérstaklega þá Ólaf Ólafs-
son og Stefán Jónsson. Með Óla
er gott að leika handbolta". segir
Þórður. Þetta sama sagði „maður
inn á þröskuldinum“, Gísli Biöndal
við undirritaðan, eftir að hann lék
með Ólafi í pressuliðinu á dögun-
um. — klp —
Haraldur Kornelíusson og Jóhannes Guðjónsson, efnilegustu
leikmenn okkar í unglingaflokkum.
Badminton á réttri leið:
Nú koma unglingarnir
fram í sviðsljósið
Dagana 23. og 24. marz s.I.
var háð í Reykjavík landsmót
ungmenna I badminton, hið
fyrsta sinnar tegundar á Islandi.
Þátttakendur voru ails 33 að
tölu, og skiptust milli féiaga sem
hér segir:
Frá Tennis- og badmintonfélagi
Siglufjarðar 4. Frá íþróttabandalagi
Akraness 7. Frá Knattspymufélagi
Reykjavíkur (K.R.) 3. Frá Knatt-
spyrnufélaginu Val 10. Frá Tennis-
og badmintonfélagi Reykjavikur 9.
Keppt var i þrem flokkum, þ. e.
unglingaflokki, drengjaflokki og
sveinaflokki.
Orslit urðu þessi:
í unglingaflokki einliöaleik sigr-
aði Haraldur Komelíusson frá TBR.
Jóhannes Guðjónsson frá ÍA, meö
15:6 og 15:2.
Unglingar tvíliðaleikur: Jóhannes
ansson frá TBR sigruöu Harald
Kornelíusson og Finnbjöm Fiim-
bjömsson meö 15:11 og 15:8.
I drengjaflokki einliðaleik sigr-
aði Jón Gíslason, Val, Sigurð
Steingrímsson frá Siglufirði, með
11:5 - 1:11 og 12:10.
í drengjaflokki tvíliðaleik sigr-
uðu Gunnar Blöndal og Ingólfur
Jónsson þá Jóhann Jónsson og
Sigurð Steingrímsson, með 18:14
— 12:15 og 15:4, en allir þessir
piltar em frá Siglufirði.
Sveinaflokk einliöa vann Hörð
ur Jóhannsson frá Akaanesi. Keppi
nautur hans ver Helgi Benedikts-
son frá Val. Hörður sigraði með:
12:10 — 11:8.
í sveinaflokki tvíliðaleik sigruðu
Helgi Benediktsson Val og Þórhall
ur Bjömsson einnig frá Val, þá
Öm Geirsson TBR og Hörö Jó-
hannesson frá Akranesi með 15:6
— 15:2.
Mót þetta, sem stjómað var af
Garðari Alfonssyni, fór í alla staði
vel fram og var spennandi á að
horfa allt til loka.
Eftirtektarvert var hve Siglfirð-
ing eiga efnilega pilta þegar tekiö
er tillit til þess skamma tíma sem
þeir hafa haft góða aðstöðu til
badmintoniðkana .
En mesta eftirtekt og aðdáun
áhorfenda vöktu þrír leikmenn i
unglingaflokki, þeir Jóhannes Guð
jónsson frá Akranesi, og Haraldur
Kornelíusson og Sveinn Kjartans-
son frá TBR.
ICS8 skipar í nefndir
KSÍ hefur nú skipað í hinar
ýmsu nefndir, sem vinna eiga hin
margvíslegu verk fyrir sambandið
á næsta starfsári og skýrir stjórn
in frá skipun þeirra í nýútkomnu
fréttablaði, sem er nýjung frá þeim
bæ. Nefndirnar eru þannig skipað-
ar.
Unglinganefnd skipa:
Árni Ágústsson
Öm Steinsen
Steinn Guðmundsson
Dómaranefnd skina.
Einar Hjartarson
m-* 10. síða.
V í SIR . Þriðjudagur 2. april 1968.
Q