Vísir - 02.05.1968, Blaðsíða 4

Vísir - 02.05.1968, Blaðsíða 4
w ☆ Kvöld eitt fyrir allmörgum jár-; um skrifaði Andrew Taylor í Kirk entillochj Skotlandi, ríáfn dóttur sinnar, Sheena, á bréfmiða, sem hann síðan setti í fiösku og fleygði í Norðursjó. Andrew sagði dóttur sinni, að ævintýraprinsinn mundi finna flöskuskeytið og koma og giftast hénrii. í sfðustu viku, tuttugu árum síðar, fann Robby Shoof, sem býr í Ams,ter- dam flöskuna á strörícfinrii *' og skrifaði til Sheenu,-en það yar um seinan. Hún er nú 23 ára gömul, og ber ættarnáfnið Herid- erson, gift og búsett í Suður- Afríku. ☆ Ungi hollenzki faðirinn. lagði leið sína í síðustu viku á borgar- skrifstofurnar í Utrecht til þess að láta skrá sitt fyrsta barn, sem nýlega var búið að skíra.-'Hinn fimm daga gamli sonur hans hlaut nafnið Maurits Willem Piet- er Hendrik van Orange Nassan van Vollenhoven, prins. Foreldrar hans eru Margriet prinsessa og Pieter van Vollenhoven. Nú er háka, nef og augabrún- ir tilbúnar. Yfir eyrun eru sett heljarstór plasteyru. Von Richthofen lendir hinni illræmdu flugvél sinni af Fokk er-gerð. 50 ár eru liðin og minningln um „Rauða baróninn" lifir enn 21. apríl, 19Í8, lenti brezki or- ustuflugmaðurinrii A. Roy Brown, kapteinn í Hinum konunglega flugher, í loftorustu vfir Frakk- landi við eldráuða' Fokker-orustu- vél, Fokkernum var stjómað af frá bærri sniild, en þetta var ein- mitt hamingjudagur Brown kap- teins. Þjóðverjinn var skotinn nið ur. Þannig voru endalok Man- freds von Richtofens baróns. Hann var aðeins 25 ára gamall, en minning hans iifir enn í beztu yelgengni. 21. apríl sl. minntist 71. or- ustusveitin í vestur-þýzka flug- hernum Richthofens með hátiö- legri athöfn í flugstöðinni Witt- mundhaveri. Meðal viðstaddra var hinn eini eftirlifandi meðlimur úr flugsveit Richthofens, hinn fyrrverandi hershöfðingi Karl Bodenschatz og einn af andstæöingum þeirra Manfred von Richthofen barón, sem kallaður var „Rauði baróninn“. brezki flugmarskálkurinn Robert S. Foster. Þrátt fyrir að von Richthofen hefði skotiö niöur 80 flugvélar bandamanna, áður en hann beið sjálfur bana, báru andstæðing- arnir ekki kala til hans. Frakk- arnir veittu honum útför, þar sem honum var sýnd hermannleg kurt eisi og viðhöfn, og myndum af athöfninni var kastað yfir víg- línur Þjóðverja, svo að þeir gætu ekki notfært sér í áróðursskyni sögur um, að líkamsleifum þýzku þjóöhetjunnar hefði ekki verið sýnd nægjanleg virðing. Aftur á móti fékk von Richt- hofen ekki að liggja lengi í gröf sinni, því að bein hans voru síðar, 1925, flutt til Þýzkalands og graf- in með mikilli viðhöfn. Hér verður maður- inn aftur að apa „Pláneta apanna" heitir kvik- mynd, sem gerö var ekki alis fyr- ir löngu. Hún fjallar um geim- fara, sem hafna á framandi plán- etu, en þar búa menn, sem líkj- ast dýrum — öpum nánar tiltek- ið. Helztu aparnir eru leiknir af Roddy McDowall og Kim Hunter, sem við sjáum hér á myndunum, þegar verið er að færa hana í gervi sitt. John Chambers heitir sá, sem hafði umsjón meö andlitsförðun- inni, en það tók þrjá klukkutíma að setja upp gervið og síðan aðra þrjá að taka það niður. Þeir sem léku apa voru neydd- Eftir þrjá klukkutíma er andlitið loksins tilbúið. Þetta ætti að geta verið ungum stúlkum góð ábending um það, hvað hlýzt af ógætilegri meðferð andlitslita. ir til að nota brúnar kontakt- Myndin, „Pláneta apanna" er linsur, því að dýrafræðingar full- gerð eftir sögu Pierre Boulle, sem yrða, að bláeygðir apar séu alls einig skrifaði „Brúna yfir Kwai ekki til. fijótið." Borgarbragur og glæsibragur Það er tvennt, sem mér hefur alltaf fundizt setja sérstæðan blæ á borgarlifið hjá okkur, en þaö eru hinir mörgu og glæsi legu iandsfundir sem ýmis féiög og félagasambönd halda og svo allar málverkasýningarnar, en það liggur við, að yfir standi ein og tvær málverkasýningar allt árið um kring nema rétt á jólunum. Auðvitað er þetta ágætt, er vottur um grósku á ýmsum sviðum. Að undanförnu hefur staðiö yfir þing þeirra félagasamtaka, sem einna traustust eru 1 þessu landi, en það er Slysavarnarfé- lag fslands. Slysavarnarfélögln eiga djúpar rætur í íslanding- um, sem þurft hafa að héyja harða hildi við náttúruöflin. Ár- angur mikils starfs hefur ekki látið á sér standa. En ekki mun látið staöar numið, því verkefn- in eru næstum óþrjótandi, þó að vettvangurinn hafi flutzt til og nái ekki einungis til hafsins og hættuleera stranda, því auk- in iðnvæðing og gífurleg umferð hafa haft með sér stóraukna slysahættu i borgum og bæj- um og í verksmiðjunum. Nýjum tímum fylgja nýjar hættur, og segja má, að flestum nýjung- um fylgi eitthvað þaö sem var- ast þarf. Það er eins og einn á- gætur maður sagði: „Það er hollt og gott að borða banana, en bað er lífshættulegt að henda hýðinu af beim á götuna.“ Þann ig má segja að ný og ný atriði skapist í smáu og stóru. En öll hin stóru og mikils- virtu landssambönd og félög sem koma til hinna miklu lands funda mega bara varast almennt að láta sína merku fundi ekki taka á sig blæ skrums og aug- lýsinga, því að minnsta kosti þau sem eiga djúpar rætur í fólkinu sjálfu, þurfa ekki á því að halda, bví fóikið dæmir þau af verkum sinum, en ekki skruminu. Athyglisverð hugmyndasamkeppni Það er almenn skoðun að Is- lendingar hafi ekki gætt hófs i húsbyggingum sínum og vilja margir álíta, að þeir menn sem almennt teikni húsin eigi þar nokkra sök í máli, þar sem þeir teikni þannig, að ekki sé þess nægilega gætt að húsið verði sem ódýrast fyrir þann sem byggir. Nú er nýlokið hugmyndasam- keppni um teikningar að ein- býlishúsi, og hlaut hugmynd þriggja ungra manna 1. verð- laun, sem talin er vera einkar hagkvæm og ódýr i byggingu. Slíkar hugmyndasamkeppnir eru til mikillar fyrirmyndar og eru þess virði að almenningur gefi þeim rikan gaum. Þrándur í Götu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.