Vísir - 25.05.1968, Síða 3

Vísir - 25.05.1968, Síða 3
V Í S IR . Laugardagur 25. maf 1968. 3 Hér er einn af yngstu flokkunum að dansa barnadansa og hafa allar tclpumar mislitar blöðrur í dansinum. Einn - tveir - og upp á tá! • Á annad hundraö ungir listdansarar á • nemendasýningu Þjóðleikhússins u eru liklega dálítið tauga- óstyrk í dag, bömin sem Myndsjáin heimsótti i vikunni, þar sem þau voru að æfa fyrir nemendasýningu Listdansskóla Þjóðleikhússins, sem veröur í dag kl. 3. Mörg þeirra hafa aldrei dansað opinberlega fyrr, en sum hafa fengið að taka þátt í leiksýningum hjá Þjóðleikhús- inu og dansað þar, t.d. í Bangsímon. Þegar við komum í Þjóðleik- húsið vom hinir ungu dansar- ar sem óðast að búa sig í ýmiss konar skrautlega búninga, sem saumastofa Þjóðleikhússins hef- ur saumað á þá. Dýrabúningar, þjóðbúningar og ýmiss konar fallegir dansbúningar hanga á slám á göngunum, og hvarvetna má sjá telpur vera að reima á sig táskó og festa á sig hár- bönd. Innan skamms hefst svo æf- ingin, og kemur hver flokkurinn á fætur öðrum fram á sviðiö. Þær sem koma inn eftir hlé, sitja aftast í dimmum salnum og horfa á þær sem eru á und- an. Fay Werner ballettkennari Þjóðleikhússins situr framar- lega í salnum og fylgist vel með öllu sem fram fer á sviðinu og gefur fyrirskipanir. Henni til að- stoðar er Ingibjörg Björnsdóttir, sem einnig kennir við skólann. Þama eru sýndir barnadansar, æfingar á slá, þjóðdansar, dýra- dansar og ýmiss konar fallegir listdansar og hefur Fay Werner samið suma þeirra. Flestir nemendurnir sem taka þátt í sýningunni eru telpur, en nokkrir drengir eru þar líka á meðal. Nemendumir hafa verið 2 —8 ár í skólanum. Eins og fyrr segir er sýningin í dag kl. 3 í Þjóðleikhúsinu og rétt er að geta þess aö hún verður ekki endur- tekin. Ein af hinum ungu dans- meyjum í Listdansskóla Þjóð- leikhússins. Þjóðdansarnir eru mjög skemmtilegir og búningarnir, sem notaðir eru í þeim, ákaflega fallegir og litskrúðugir. Hér sjáum við nokkra nemendur dansa þjóðdansa. 'OGREIDDIR l REIKNINGAR * LATIÐ OKKUR INNHEIMTA... Oad sparar ydur t'ima og ób.ægindi INNHEIMT USKRIFST OFAN Tjarnargötu 10 — 111 hæd-Vonarstrætismegin — S'imi 13175 (3l'inur) KSREE*- " mia&wsat'!: !

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.