Vísir - 25.05.1968, Blaðsíða 4

Vísir - 25.05.1968, Blaðsíða 4
 skakka, læpulega fyrirsæta, Twiggy, hefur ákveðið að rekja aftur þá tízku, sem hún hefur innleitt og afla sér nýs yfir bragös og —einkanlega — kven legs vaxtarlags. Að því loknu ætl ar hún að snúa sér að kvikmynd unum. Hin átján ára gamla Lundúna mær, sem hefur fengið ötöluleg- an fjölda stúlkna um heim all- an til að likjast „gúmm-uppi- stöðunni", hefur viðurkennt: „Þetta hefur sífellt angrað mig, og ég get ekki litið lengur út eins og liðamótalaus dúkka". Ákvörðunin var tekin í ibúð vinar hennar og framkvæmda- stjóra Justin de Villes. Twiggy hin nýja mun væntanlega líta út á allt annan veg. Hún læt- ur hár sitt vaxa að bitla-sið og gengur i síðum buxum. Fyrsta kvikmynd hennar verður „Pjötlutréð", og fer hún með hlutverk tánings. Justin de Ville hringdi til Frank Sinatra til þess að bjóða honum aukahlut verk í myndinni, og fylgir sög- unni að svar hans hafi ekki ver ið með vingjamlegu möti. HITLER í FYRSTU Fyrir s'kömmu efndi sænska blaðið Expressen til skoðana- könnunar meðal Iesenda sinna, um það hver væri „mest elskaði" maður heims og hver væri „mest hataði" maðurinn. Þátttakan var mjög góð og vöktu úrslitin mikla athygli, eink um þó um það síðarnefnda. Það kemur mjög á óvart að Lyndon B. Johnson hlýtur ekki mikla náð hjá Svium og enginn af fram- bjóðendunum 1 næstu kosningum í Bandaríkjunum kemst á blaö. Til gamans æt'lum við að birta þessa lista, en þeir lita þannig út: 6. Lenin. 7. Krústjév. 8. Kekkonen. 9. Gunnar Stráng. 10. Lee Harvey Oswald. „Mest elskaði maðurinn." 1. Jo'hn F. Kennedy. -i 2. Dag Hammarskjöld. 3. Lenin. 4. Barnard. 5. Lyndon B. Johnson. 6. Martin Luther King. 7. Krústjév. 8. Mao Tse-tung. 9. Gustav Adolf. 10. Kekkonen. „Mest hataði maðurinn": 1. Adolf. Hitler. 2. Lyndon B. Johnson. 3. Stalin. 4. Nasser. 5. Mao Tse-tung. Á fallanda fæti um að hætta öllum afskiptum af eiturlyfjum. Þeim ætlar ekki að verða káp- an úr klæðinu piltunum þeim og virðist nú sigurljömi þeirra far- inn að hnigna, en þeir hafa und- anfarin ár voriö ein vinsælasta unglingahljómsveit heimsins og vakið mikla athygli. En það virð ist af sem áður var og þá hugga þeir sig við eiturlvfianeyzlu. Brian Jones, einn meðlima hínna frægu Rolling Stones, var fyrir skömmu handtekinn öðru sinni fyrir neyzlu eiturlyfja. Fram kvæmdi Scotland Yard húsleit hjá honum í fbúð hans í Chelsea og fann gífurlegt magn af marij- uana sígarettum. Brian, sem er 25 ára, var sleppt gegn loforði KENNEDY OG SÆTUNUM - EKKI ALLIR ÁNÆGÐIR MEÐ JOHNSON FORSETA! Bréf um verðlagið „Mig langar til að vita hvort verðlagseftirlit er ennþá til eða bara á pappírnum. Ég hefi oft orölð var við hækkanir á þeim vörum, sem ég kaupi í verzlun- um 1 Reykjavík. Ekki þar með sagt að þær hækkanir séu ekki af eðlilegum orsökum, en stund um finnst manni þær undarleg- ar. Það þykir kannski smávægi legt þó Pop-corn hækki i verði á einni nóttu, en það er bara ekkert smávegis, ,sem verzlan- ir seija af þessum brennda maís, því bprnin bókstaflega moka þessu í sig dag eftir dag á götunum og í þeisum sjopp- um. Föstudaginn 10. maí keypti ég 2 poka af Pop Corn í sjoppu, og kostaði pokinn kr. 7. Daginn eftir kostaði pokinn kr. 8. Ann ar sölustaður við hliðina á sjopp unni selur þessa sömu vöru að minnsta kosti ennþá á kr. 7 pok ann. Mér fannst þetta því undar- legra þar sem ég tas fyrir stuttu síðan í dagþlöðum borg- arinnar að komvörur iækkuöu i veröi að mun, þar sem farið væri að flytja þær lausar ,en ekki sekkjaðar til iandsíns en mais er ef til vill ekki taiinn til kornvöru og þvi ekki flutt- ur laus í skipum. Ég hef annars rekið mig á það, að það er ágætt iyrir þá, sem annars þurfa að kaupa sæl- gæti upp í marga smámunna og eru staddir í miðborginni, að verzla í söiuturninum . .. Þar kostar innihald úr Coca Cola flösku kr. 5,25 en ódýrast ann- ars staðar á kr. 5,50 og þaðan af meira. I.akkrís-rör kosta kr. 2.00 en ná.kvæmlega sams kon- ■ ar Jakkrisrör kostar t.d. i verzluh' kr. 2.50 er þvi þarna um mikinn verðmismun að ræða. Tyggi- gúmmí kostar kr. 8,00 i sölu- turninum, en yiirieitt í öðrum verziunum kr. 10. Það mætti lengi telja upp svona verðmismun hér í mið- borginni.... Ein stórverzlun í miðborginni seldi smávoru eins og fuglakorn í pokum á kr. 37.50 hvern poka, en önnur verzlun ofar i bænum seldi sams konar fugla- korn á kr. '5,50. Þegar um dýr ari og stærri Muti er að ræða, kemur oft gífurlegur verðmis- munur fram. ' Ivað veldur þessu skal ég ekki segja um, en ein- hvers staðar liggur þundurinn grafinn. Að mínuni dómi bjTftu að vera til þess skipaðir menn af því opinbera, sem hefðu full komið leyfi til þess helzt viku- iega eða oftar að fara í verzlan ir til að kanna innkaupsreikn- inga og verðlag, og sem fylgd- ust vel með álagningu þeirra, sem vöruna selja." „S. p.á.“ Ég þakka b’éfið. Vegna þess arar fyrirspurnar er hægt að upplýsa, að verðiagseftirlit höf- um við i fullu fjöri. Þegar vara er flutt inn til landsins eru skjöl afhent verðgæzlunni, sem hreiniega reiknar út hvað leggja má á viðkomandí vöru. 1 verzl- anir ganga með stuttu millibiii starfsmenn verðlagsstjóra og lita eftir því að áiagning sé rétt eins og heimilað er. Hins vegar geta vörur verið mismun- andi að verðlagi vegna innkaupa eða mismunandi flutningsgjalda svo mismunandi verðlag getur verið af eðlilegum ástæðum af þeim sökum. Hitt getur líka átt sér stað, að sölustaðir leggi ekki á einstaka vöruflokka eins og þeim er heimilt í þvf skyni að auka viðskipti sin, enda er slíkt heilbrigt og gott, ef fært bykir. Verðlag er mjög misjafnt á nær öllum vörum sem á boðstólum eru, brátt fyrir eftirlit, en hins vegar verður öruggasta og bezta verðiagseftirlitið, og jafn framt það áhrifaríkasta, í hönd- um kaupenda sjálfra, með því að beina viðskiptum sínum til þeirra sem ódýrastar hafa vör- urnar, hvort sem það er vegna hagkvæmra innkauna eða minni álagningar. Þrándur í Götu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.