Vísir - 13.06.1968, Síða 2
Islandsmótið í handknattleik fj'ólmennt:
LOKS KEMST BIKARINNINN FYR-
IR BORGARMÖRK REYKJAVÍKUR!
Eftir viku á íslands-
mótið í handknattleik að
byrja, — að þessu sinni
gagnstætt venjunni í
Reykjavík. Hins vegar
þarf bikarinn alls ekki
endilega að ílendast í
Reykjavík gagnstætt
venjunni, því eins og all-
ir vita hefur hann verið
í Hafnarfirði undanfarin
12 ár. Hins vegar má það
til tíðinda teljast að bik-
arinn mun komast inn
fyrir borgarmörk
Reykjavíkur, a. m. k.
kvöldið sem afhendingin
fer fram!
Það er handknattleiksdeild
KR, sem sér um framkvæmd
mótsins að þessu sinni og verö
ur það haldið á skólalóð Mela-
Þetta er eitt af FH-Iiðunum, sem vann Islandsbikarinn utanhúss.
skólans í Reykjavík. Verður
reynt að „fóðra“ girðingu lóð-
arinnar, þannig að svæðið sé
lokað fyrir öðrum en þeim sem
greiða aðgang.
Fleiri félög en nokkru sinni
fyrr hafa tilkynnt þátttöku,
alls 13 félög með 25 lið, en alls
má búast við að 275 keppend-
ur taki þátt í þeessu móti sem
oftast hefur verið tiltölulega fá
mennt.
Hefur veriö horfið að því ráði
að keppa í riðlum. í karlaflokki
eru Ármann, FH, Þróttur, KR
og Valur í a-riðlinum, en Fram
Víkingur, Haukar og ÍR í b-
riðli — tvö efstu liðin úr hvor-
um riöli leika til úrslita.
I kvennaflokki eru 6 lið og
eru Valur, Fram og Breiðablik
í a-riðli en KR, Ármann og
Vikingur í b-riðli. Flestir eru
þó í 2. flokki kvenna, 10 lið,
Valur, KR, EH, Njarðvik og
Breiðablik í a-riðli og Þór, Vest
mannaeyjum, Völsungar, Húsa-
vik, Víkingur, Fram og Ármann
í b-riðli. Keppninni í þessum
flokki á að ljúka um eina helgi
vegna utanbæjarliðanna.
HAUKAR UNNU ÞRÓTT
MEÐ 3:0 í GÆRKVÖLDI
Hafnarfjarðarliðin standa sig vel / 2. deildar-
keppninni — Þróttur virðist hafa misst mögu-
leika á útslitasæti
• Haukar unnu Þrótt í ann-
ari deild f gærkvöldi með 3:0
Minnka líkur Þróttar að ná til
úrslitanna óðum, — tveim leikj-
um þeirra f deildinni lokið,
báðum með tapi. Virðist ekld
annað vænlegt fyrir þetta lið,
sem hefur Iöngum verið í hópi
sterkustu Iiða 2. deildar en að
hugsa sitt mál nú betur, — hug-
leiða hvert stefni með þetta fé-
lag, bæði í þessum flokki og
öðrum.
Haukar eru frískir leikmenn og
verðskulduöu að vinna í gærkvöldi
þótt markatalan 3:0 talaöi alls ekki
réttu máli um leikinn. Jóhann Lars
en, miðherji Haukanna frískur pilt
ur og sprettharður, skoraði laglega
fyrsta markið, en 2:0, sem einnig
kom, í fyrri hálfleik átti hinn ungi
markvörður, sem virtist hafa mætt
til leiks beint úr vinnunni án við-
komu f búningsherbergjum vallar-
ins i Hafnarfirði, a.m.k. ef dæma
má eftir klæðnaði hans, átti sök
á þessu marki. Sama má segja um
síðasta markið.
í seinni hálfleik höfðu Þróttarar
góðan vind í bakið, en skottilraun
ir þeirra, sem voru eigi fáar, voru
víðs fjarri lagi, langt yfir eða fram-
hjá, eöa þá hrein æfingaskot á
markvörð Haukanna, sem jafnóðum
spyrnti boltanum beinustu leið út
af vellinum f átt til heimilis síns
vestan viö völlinn.
Leikurinn var annars hálfgerð
„kómedía“ útfærö í knattspyrnu-
búning léleg skrumskæling af því
sem kallað hefur verið knattspyrna.
Fram - Akureyri í
1. deiEd frestað
Leikurinn milli Fram og Akur-
eyringa í 1. deild fer fram þriðju
daginn 18. júní á Laugardalsvell-
inum. Hefst hann kl. 20. Leikurinn
átti að fara fram á laugardaginn
kemur samkvæmt keppnisskrá.
Luisis:
87.66 í
sleggjukasti
• Rússinn Jan Luisis kastaði
sleggjunni 87.66 m á móti í Pots-
dam í Þýzkalandi í gærkvöldi. Er
það bezti árangur í heimi í ár.
Sjálfur átti hann bezta afrek árs-
ins áður, 86.30 m.
Mono Lisu í
Finnlundi
— stjarna á
hlaupabrautinni
# Ung stúlka í Finnlandi, með
ekki minna heillandi nafni en Mona
Lisa og ættarnafniö Strandvall ger-
ir það ekki endasleppt á hlaupa-
brautinni.
• í gærkvöldi setti hún nýtt
finnskt met í 100 metra hlaupinu
á 11,9 sek, en hafði nýlega jafn-
að metlð á 12.0 sek.
AUGLÝSIÐ í
VÍSI
ÍSLANDSMÓTIÐ
í kvöld kl. 20.30 leika á Laugardalsvelli
VALUR - K.R.
Dómari: Magnús Pétursson.
Veit'mgahúsnæði
til leigu um 200 ferm. — Tilboð sendist augl d.
blaðsins fyrir laugard. merkt „1. júlí — 1890“.
Staðan
í 1„ 2. og 3. deild
I Staðan í 1. deild er þessi:
Akureyri
i Vestm.eyjar
I Valur
i Fram
KR
! Keflavík
4 4:0
2 3:1
2 4:3|
1 2:2 ,
1 2:5 '
0 0:4 1
Markhæstu menn í 1. deild.
Kári Ámason, Akureyri 3
Helgi Númason, Fram 2
Sigmar Pálmason, Vestm. 2
Reynir Jónsson, Val 2
Staðan í 2 deild í knattspymu:
A-riðill.:
Haukar 2 1 1 0 3 6:3
Víkingur 2 1 1 0 3 4:3
FH 2 0 2 0 2 4:4
Þróttur 2 0 0 2 0 2:6
B-riðill:
Aðeins einn leikur hefur farið
fram af tveim, sem ráðger var
samkvæmt mótaskrá að væru
búnir nú. Það voru Breiðablik
og Selfoss, sem gerðu jafntefli á
Selfossi, ekki í Kópavogi, eins
og slysaðist í fyrirsögn í blað-
inu í gær. Leiknum sem var
frestað var leikur milli Akranes
og þess liðs, sem tekst að haida
sér fram í 2. deild þ.e. annað
hvort Siglufjarðar eða Isafjarð-
ar, en fyrri úrslitaleik liðanna
lauk með jafntefli, og verða
liðin því að mætast ööru sinni.
Staðan í 3. deild er þessi:
A-riðill:
Víðir 2 2 0 0 4 13:8
HSH 2 2 0 0 4 11:5
Hrönn 2 0 0 2 0 8:14
Njarðvík. 2 0 0 2 0 5:10
i Þess mun vart vanþörf að ,
kynna þessi nýju lið lítillega.
1 Viöir er lið úr Gerðum i Garöi, ‘
I gamalt félag, sem var endurvak )
ið á síðasta sumri, HSH er lið ,
Snæfellinga. Hrönn er félag ung
templarastúku með sama nafni
hér i Reykjavík.
B-riðill:
1 Keppni þar hefur enn ekki haf 1
izt, bæði vegna þess að úrslit |
I 2. dcildar, þ.e. fallið liggja ekki
fyrir og eins vegna þess aö
Völsungar frá Húsavík fengu 1
I frestað leik sínum gegn Reyni
| i Sandgerði um siöustu helgi,
höfðu fengið mótsskrána of
seint í hendur.