Vísir - 22.06.1968, Page 6
6
TÓJ9ABÍÓ
íslenzkur texti.
Mjög vel gerö og æsispenn-
andi, frönsk sakamálamynd í
litum.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
KÓPAVOGSBÍÓ
íslenzkur texti.
(The Wild Angels)
Sérstæð og ógnvekjandi, ný,
amerísk mvnd í litum og Pana
vision.
Peter Fonda
Nancy Sinatra
Sýnd kl. 5.15 og 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
NÝJA BÍÓ
Rasputin
tslenzkir textar.
Stórbrotin amerísk mynd.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 5. 7 og 9.
STJÖRNUBÍÓ '
Fórnarlamb safnarans |
Sýnd kl. 9.
Jóki Björn
Bráðskemmtileg ný teikni- ;
mynd.
Sýnd kl. 5 og 7.
AUSTURBÆJARBÍÓ
Blóð Maria
Höhkuspennandi ný, frönsk- j
ítölsk sakamálamynd í litum. í
Ken Clark
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5 og 9.
V í SIR . Laugardagur 22. júní 1968.
JT'iske-skákmótinu, sterkasta
skákmóti sem hér hefur
verið haldið, er lokið. Rússun-
um tókst nú að sigra Friörik á
heimavelli en það hefur ekki
skeð síðan Tal sigraði á Reykja-
víkurmótinu 1964. Taimanov
virtist taka mótið nokkuð létt
og komst aðeins einu sinni í
vandræði. Var það gegn Frey-
steini, sem fann þó ekkert af-
gerandi I tímahrakinu. Vasjúkov
lagði mun meiri vinnu í skákir
sínar og teflir þyngri stll. 1
síðustu umferö virtist Vasjúkov
einna næstur sigri í mótinu en
hann lét sér nægja jafntefli í
skák sinni gegn Braga, lítt
tefldri. Friðrik byrjaði fremur
illa. Æfingaleysi hans kom
fram í mikilli tímaeyðslu á fyrri
helming skákanna og gegn
Vasjúkov kostaöi þetta heilan
vinning og efsta sætið í mótinu.
Byme tefldi léttan og lipran
skákstíl, þótt hann virtist skorta
styrkleika á við Rússana og
Friðrik. Byrne er sagöur vin-
sælasti skákmeistari Bandaríkj-
anna og vissulega var hann á-
nægjulegur fulltrúi lands sins
á móti þessu. Uhlmann virkar
skákþreyttur enda hefur hann
kvartaö undan miklu álagi sem
eini stórmeistari A.-Þýzkalands.
Þáttur Guömundar Sigurjóns-
sonar er vissulega ánægjuleg-
asti hluti mótsins. Til að ná titli
alþjóölegs skákmeistara þarf
mikinn skákstyrkleika, styrk-
leika sem Guðmundur hefur og
virðist sífellt vera að bæta við.
Freysteinn tefldi einnig mjög
vel og vantaði aðeins hálfan
vinning til að ná sama árangri
og Guðmundur. Freysteinn
tefldi sérlega vel gegn Rúss-
unum og hafnaöi reyndar jafn-
teflistilboðum frá báðum, þótt
hann yrði að sætta sig viö
skiptan hlut í lokin.
Gegn Júgóslavanum Ostojic
tefldi Guömundur mjög létt og
skemmtilega og vann sannfær-
andi. Fram að þessari skák
hafði Guömundur ávallt hafiö
tafliö með e4, en breytti nú
útaf með eftirfarandi árangri.
Hvítt: Guðm. Sigurjónsson.
Svart: P. Ostojic.
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7
4. e4 d6 5. f3.
Samisch-árásin sem löngum
hefur verið beittasta vopniö
gegn kóngsindversku vörninni.
5. ... 0-0 6. Be3 b6.
Ein af mörgum leiðum gegn
Samisch-árásinni. Markmið henn
ar að koma í veg fyrir langa
hrökun hjá hvítum, sem væri
slæm á þessu stigi málsins.
7. Bd3! Bb7.
Þvingað. Ef 7. ... c5 8. e5
Re8 9. Be4 og vinnur skipta-
mun.
8. Rge2 c5 9. d5 e6 10. 0-0
exd 11. cxd Ra6
Hér er algengara að leika 11.
... Ba6 og ef 12. Rb5 Rxd! 13.
exd De8 og vinnur manninn
aftur með betri stöðu. Leikur
Ostojics reyndist full hægfara.
12. Dd2 He8 13. Bg5 Rc7 14.
Rg3 Dc8 15. Bh6 Bh8 16. Hael
Ba6 17. BxB DxB 18. Df4 b5 19.
Rf5 b4 20. Rdl Rb5 21. Rde3
Rh5?
Vafasamur leikur. Betra var
að leika 21. Rd7 og ná tangar-
haldi á reitnum e5.
22. Dh4 Bxb 23. g4 Rg7 24.
RxR BxR 25. BxB KxB 26. g5
Kh8 27. Rg4 f6.
Sókn hvíts er nú orðin óstöðv-
andi. Síðasti leikur svarts var
þvingaður vegna hótunarinnar
Rf6 og mát á h7.
28. gxf Db7 29. Rh6 Hf8 30.
e5! Dxd 31. e6 g5 32. De4! DxD
33. fxD Rd4 34. e7 Hxf.
Svartur var hér í þvílíku tíma
hraki aö hann mátti ekki vera
að því aö gefast upp.
85. HxH Kg7 36. Hf8.
Einfaldast. Hvítur hefur nú
heilan hrók yfir.
36. ... HxH 37. exHDt KxD
38. Hflt Ke8 39. Rf5 og hér
tapaði svartur á tíma.
Jóhann Sigurjónsson.
Fréttabréf frá Herferð gegn hungri:
Unnið að vélvæðingu
áraskipa
Á þróunarsvæðum Asíu og
Afríku er nú unnið svo stööugt
og kappsamlega að því aö færa
fiskveiðar og fiskiönaö til nú-
tímahorfs, að útbúnaöur sá sem
látinn er 1 té heldur oft alls
ekki til jafns við það sem fiski-
mennirnir raunverulega þarfn-
ast.
í Austur-Pakistan báðu til
dæmis 700 fiskimenn nýlega um
285 hentugar utanborðsvélar til
að búa fiskiskip sín og fiski-
báta. Alls stendur til að leggja
fram 600 utanborðsvélar sam-
kvæmt vélvæðingaráætlun SIDA
(Sænska alþjóðlega þróunar-
nefndin), sem hrint hefur verið
á flot af Herferð gegn hungri
meö Matvæla- og landbúnaðar-
stofnun Sameinuðu þjóðanna að
bakhjarli. I Indlandi hafa um
5000 bátar verið búnir innan-
borðsvélum og miklu fleiri er
enn þörf. f Dahomey ræða fiski-
menn meira að segja um það
að snúa baki við utanborðsvél-
um en taka þess I stað upp afl-
.neiri innanborðsvélar og aðrar
jafnvel enn kraftmeiri. Önnur
landsvæði hafa skýrt frá vax-
andi þörf fyrir nælon-net, önn-
ur veiðiáhöld og bætta aö-
stöðu á landi, þar á meðal
frystingu. Fiskimenn hafa og
hvarvetna farið fram á, að þjálf-
un í nýrri tækni verði stórlega
aukin.
Utanborösvél var fyrst reynd
I frumstæöu fiskiskipi árið 1951
á vegum FAO á Ceylon. Tilraun
in bar góðan árangur og hug-
myndin breiddist út til annarra
þróunarsvæða, þar sem hún
varð fyrsti vitnisburðurinn um
þróun fiskveiðanna frá „frum-
stæði“ til „nýtízku". Auövitað
er ekki hægt að ætlast til þess
að fiskimenn, sem aldir eru upp
við hefðbundnar, gamaldags að
ferðir, verði f einu vetfangi fær
ir um að fara með stóran, ný-
tízku togara. Þeir mundu ekki
vita hvað þeir ættu við hann
að gera. Þaö er ærið skref til að
byrja með að aðlaga þau skip,
sem fyrir eru, lítilli vél.
Að sjálfsögðu leiðir vélvæð
ing til framfara í tilhögun og
tækni við fiskveiðar og viö
geymslu, dreifingu og sölu
fisks. Byrjað var að þjálfa fiski
menn, sem áður höföu aðeins
þekkt hinar gömlu, hefðbundnu
aðferðir við störf sín, en sem
komust nú aö raun um að þeir
gátu náð til mun víðáttumeiri
svæða og aflað þrisvar eða fjór
um sinnum meira. Bætt meðferð
aflans, þar á meöal með fryst-
ingu, minnkaði til muna aflatjón
vegna skemmda og gerði miklu
stærri hluta aflans markaðshæf
an og skilaði fiskimönnunum
þarmeð auknu verðmæti.
Herferð gegn hungri hefur
mjög stuðlað að framförum af
þessu tagi með áætlunum sfnum
um stuðning við fiskiönaðinn,
en þar er gert ráð fyrir vélvæð
ingu báta, bættri meðferð afl-
ans, auknum fiskmörkuöum sam
fara notkun kælitækni, stofn-
un fisksölusamtaka og þjálfun
starfsliðs. Frá 1963 hefur HGH
haft með höndum eða haft með
að gera átján slíkar áætlanir í
fimmtán löndum, þar sem sam-
anlagt verðmæti aðstoöar og út-
búnaðar hefur numið hvorki
meira né minna en $ 4.403.873.
Meðal þeirra landa, sem notið
hafa góös af. má nefna Lýðveld
ið Filippseyjar, Mali, Samein-
aða Arabalýðveldið, Madagascar
Togo, Dahomey og Austur-Paki-
stan.
Sérlega athyglisverð er vél-
væðingaráætlunin fyrir Austur-
Pakistan. Þeim $ 526.573 sem
þangað hafa runnið, hefur verið
ráðstafað til Cox Bazar, Kaptai
og Rangamati, þar sem unnið
hefur verið að vélvæðingu, end-
urskipulagningu og þjálfun fiski
manna. Til þessa hefur 285 ut-
anborðsvélum, 6 og 12 hestafla,
verið úthlutað af 600 áætluðum
Vélarnar sem Svíar hafa gefið
Herferö gegn hungri, eru seld
ar fiskimönnunum með sér-
stökum kjörum (leigu-kaupa-
10. síöu.
GAMLA BÍÓ
Njósnaförin mikla
(Operation Crossbow)
Ensk stórmynd með:
Sophia Loren
George Pappard
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 5 og ö.
Bönnuö innan 14 ára.
KAFNARBÍÓ
Hættuleg kona
Sérlega spennandi ■ g viðburða
rík ný ensk litmynd.
Mark Surns og Patsy Ann
Noble,
Islenzkur texti.
Bönnuö innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
BÆJARBfÓ
HÁSKÓIABÍÓ
Sim* 22140
Vetrargleði tónafloð
(The Sound of Music)
Sýnd kl. 5 og 8.30.
RAUOARABSTlG 31 SlMI 22022
Einkalif kvenna
(Veriíisberg)
Sérkennileg og djörf, ný, þýzk
mynd um konur enskt tal, leik
stjóri Rolf fhiele.
Sýnd kl. 9.
Bönnuð bömum.
Hver var Mr. X
Gamansöm og spennandi leyni
lögreglumynd.
Sýnd kl. 5.
ISLENZKUR TEXTI
Sýnd fcl. 5, 7 og 9.
VEFARINN H.F.
GÓLFTEPPALAGNIR
GÓLFTEPPAHREINSUN
HÚSGAGNAHREINSUN
Söluumboð fyrir:
7é
TEPPAHREINSUNIN
Bolholti 6 - Simor 35607,
35785
NÝJUNG f TEPPAHREINSUN
ADVANCE
Tryggir að tepp-
i ðhleypur ekki.
Reynið vlðskipt-
in. Uppl. verzl-
Axminster, simi
30676. Helma-
simi 42239.
I