Vísir - 10.07.1968, Blaðsíða 6
VlSIR . Miðvikudagur 10. júlí 1968,
TÓNABÍÓ
Tom Jones
íslenzkur texti.
Heimsfræg og snilldar vcl
gerð ensk stórmynd í litum
er hlotið hei'ur fimm Óskars-
verðlaun, ásamt fjölda annarra
viðurkenninga.
Albert Finney
Susannh York
Endursýnd Kl. 5 Og 9.
Bönnuð börnum.
KÓPAVOGSBÍÓ
VILLTIR
ENGLAR
Serstæð og ógnvekjandi, ný,
amerisk mynd I litum og Pana
vision.
Peter Fonda
Nancy Sinatra
Synd kl. 5.15 og 9.
BönnuO börnurx. innan 16 ára.
BÆJARBÍÓ
/ hringiðunni
(The Rat-race)
Amerísk litmynd meö:
Tony Curtis og Debbie Reyn-
olds.
Sýnd kl 9.
Dætur næturinnar
Japönsk mynd með dönskum
texta.
Sýnd kl. 7
Bönnuð börnum.
HÁSKÓLABÍÓ
FARAO
Fræg stórmynd'i litum og Diali
scope frá „Film Polski" Leik
stjóri Jerszy Kawalerowic
Tónlist Adam Walacinski
Myndin er tekin I Usbekistan
og Egyptalandi.
Bönnuð innan 16 ára.
íslenzkur texti.
Aðalhlutverk: George Zelnik
Barbara Bryl. ,
Sýnd kl. 5 og 9.
AUSTURBÆJARBÍ6
Orrustan mikla
Stórfengleg og mjög spenn-
andi ný amerísk stórmynd f litum
og Cinemascope.
íslenzkur texti.
Bönnuð börnum innan 14 ara.
Sýnd kL 5 og 9.
[— Listir -Bækur -Menningarmál-
Tjegar líöur á sumar eru fyrstu
leikrit næsta leikárs svið-
sett í leikhúsum stórborganna.
Leikhúsmenn um allan heim
fylgjast vel með þeim atburöum
og leikarar gera sér ferðir til
að .fylgjast með væntanlegum
afrekum „kolleganna". Hér á
landi hefur leikhúslíf blómgazt
og dafnaö á seinni árum og
hefur þegar myndazt hópur
fjölda áhugamanna um eikhús
mál. Ef þeir eiga ferð um stór-
borgir á næstunni er ekki siður
skemmtilegt fyrir þá en atvinnu
menn að nota tækifæriö og sjá
a.m.k. eina eöa tvær leiksýning
ar í leiðinni.
London hefur títt verið gist
af íslenzkum leikurum og er
nú talin einna fremst leikhús-
borga. Þar hafa nú nýlega verið
settar á sviö tvær sýningar, er;
vakið hafa athygli.
önnur er nýtt leikrit „The
Real Inspector Hound^' eftir
Tom Stoppard ungt enskt leik
skáld. Þetta er annað verk þessa
höfundar sem vakti heims-
Gagnrýnendurnir í hinu nýja leikriti Stoppard. Þeir, eru leiknir af Ronnie Barker t. v. og
Richard Bríers t. h. ,
Tvö leikrit
tvö leikskáld
athygli með fyrsta leikverki
sínu „Rosenkrantz og Gylden-
stern eru dauðir".
Þær vonir, sem bundnar voru
viö hið þrítuga-leikskáld hafa
eitthvað daprazt með nýja leik-
ritinu, sem fékk misjafna dóma.
í fyrra leikriti Stoppard voru
Rosenkrantz og Gyldenstern
Tom Stoppard.
sem í harmleikritinu Hamlet
eru aukapersónur, gerðar að að-
alpersónum leiksins. í nýja leik
ritinu eru tvær aðrar auka-
persónur, leikhúsgagnrynendurn
ir f fyrstu sætaröð, sem eru
dregnir með inn í leikritið, sem
þeir voru komnir til að gagn-
rýna. Leikhúsverkið, sem þeir
horfa á er findin skopstæling
af „Músagildru", Agatha Christ
ie (það leikrit hefur árum sam
an gengið í London) eða öðru
svipuðu og aðaluppistaða leiks
ins er ást og morð.
Leikhúsgagnrýnendurnir tveir
geta samhæft sig „aöaltemum"
leiksins ást og morö. Annar
þeirra hefur leynilega ástkonu
sem er leikkoria að átvirinu og
er á nálum um að ef upp kom-
ist um sambandið muni það eyði
leggja álit hans sem hlutlauss
gagnrýnanda. Hinn er ekki bet
ur á vegi staddur þar sem hann
þjáist af öfund út í annan gagn
rýnanda þekktari en hann sjálf
ur, sem hann leysir af þetta
kvöld.
Gagnrýnendurnir sitja aftar-
lega á sviðinu og horfa á leik-
ritið sem er leikið fyrir þá.
Hvísl þeirra er sent með hátöl-
urum til hina raunverulegu á-
horfenda. Þaö kemur frairi að
á meðan þeir horfa á leikritið
læðast að þeim hugsanir sem
þeir myndu aldrei hleypa fram
í dagsljósið. Hvor um sig sam
hæfir sig elskhuga og morðingja
leiksins og skrifa niður á meö-
an yfirdr'fið gagnrýnendakjaft-
æði á sn;ssíu leikskrárinnar. 1
þessu tekst Stoppard mjög vel
upp og þannig lýkur fyrsta
þætti. Eftir þennan þátt bland-
ast gagnrýnendurnir inri I sjálft
leikritið og rekjum við þá sögu
ekki lengra.
llitt leikritið er „Hótel i
Amsterdam" eftir John Qs
borne, sem leikhúsgestir hér
munu kannast við. Osborne er
sem kunnugt er einn af fram-
vörðum nýju bylgjunnar i leik-
skáldskap enskum og varð
heimsfrægur eftir að leikrit
hans „Horfðu reiður um öxl",
var fyrst sett á svið. Osborne,
en hljótt hefur veriö um hann
að undanförnu, hlýtur góða
dóma fyrir þetta leikrit sitt. I
stuttu máli er efni þess á þessa
Ieið:
Hópur starfsmanna kvik-
myndavers eins flýr einræði
K.L. yfirmanns síns til þess að
njóta frelsisins, nafnlausir I
Amsterdam Þeir hlakka yfir van
mætti K.L., þ'egar hann mun
komast aö því að þeir eru
horfnir eða ein's og rithöfundur
inn Laurie segir „Látum K.L.
krossfesta sjálfan sig". Hann
getur ekki ráðið við sig né neinn
hinna f hópnum hvaða veitinga-
staö í Amsterdam þeir eigi að
heimsækja þetta fyrsta frelsis-
kvöld í Amsterdam. Þeir koma
með uppástungur og hætta við
þær. Inn í samræöurnar flétt-
ast einnig upphrópanir þeirra og
ánægja yfir óþægindum K.L. En
þeim stendur ekki á sama,
skuggi K.L. hvflir yfir þeim,
þeir eru hræddir. Laurie, rithöf
undinn leikur Paul Scofield
með yfirburöum, en hann vann
sér fyrst verulegan frama með
aðalhlutverkiriu f kvikmyndinni
„A Man for all Seasons".
1 raun og veru fjallar leikrit
ið um óttann sem stundum á
rétt á sér en oftar ekki, ótt-
ann, sem gripur miðaldra fólk,
þegar framtíðin virðist ekki eins
björt og fögur og áöur. Leikritiö
er einnig um vináttu og gðð-
leika.
Eftír ummælum uin þetta leik
rit Osþorne, virðist hann aftur
vera að rlsa úr öskustónni, en
hann o.fl. frægustu leikskáld
Breta hafa mörg undanfarin ár
látið sér nægja að semja kvik-
mynda og sjónvarpshandrit og
hlotið fyrir ámæli yngri full-
huga í brezku leikhúslífi.
John Osbbrne
GAMLA BÍÓ
Njósnaförin mikla
Sophla Lorer
George Papparr'
Islenzki.i texti.
Sýnd kl. 9.
Bönnuð innan x4 ára.
Kappakstursmyndm:
Fjör 'i Las Vegas
með Elvis Presley og Ann-
Margaret. — Sýnd kl. 5.
Bless bless Birdie
islenzkur texti.
Bráðskemmtileg ný kvikmynd.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
NÝJA BÍÓ
Ótrúleg turbuterb
Sýnd kl. 5, 7 og 9
íslenzkur texti.
LAUGARASBBO
I KLÓM GULLNA
DREKANS
ÍSLENZKUR TEXTI
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum.
Auglýsið í VÍSI
Nýfcs bíloþiénustan
Lækkið viðgerðarkostnaðinn —
mef |)vi að i/inna slálfir að
viðgerð bifreiðarinnar — Fae
menn veita aðsto? ef ðskaf er
Rúmgóð húsakynm. aðstaða tii
þvotta.
ónustun
Hafnarbraut 17 - Simi 42530.
Opið frá ki. 9—23.
m m mmn*