Vísir - 13.07.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 13.07.1968, Blaðsíða 1
Þekkt hús rifið Fjöldi manns \ sól og hita að Eiðum 58. árg. - Laugardagur 13. júlí 1968. - 153. tbl. Handfæraafli heldur uppi atvinnu- lífinu norðunlands og austan • Fjöldi fólks var kominn til Eifla í gær, en landsmót ungmenna- félaganna hófst þar með keppni í starfsíþróttum í gærkvöldi. í gær var miög gott veöur þar eystra, sóiskin, logn og 16 stiga hiti. Keppnin hefst. af fullum krafti á morgun, og heldur áfram og lýkur á sunnudag. Dansleikir verða í sam- komuhúsinu að Eiðum og í Vala- skjálf á Egilsstöðum í kvöld annað kvöld og á sunnudagskvöldið. Er gert ráð fyrir miklu fiölmenni eystra um helgina og fór fölki mjög fjölgandi þar í gær. Er blaðið fór i prentun í gærkvöldi, var ekki kunnugt um úrslit i þeim starfs- iþróttum, sem keppt var í í gær- kvöldi. f Visi á mánudag verður nánar skýrt frá mótinu. Handfæraafli hefur mikiö til haldið uppi atvinnu í frystihúsum margra kaupstaða og kauptúna norðanlands og austan síðustu dagana. Mjög góður færaafli hefur verið við Langanes og hafa margir bátar sótt á þau mið frá Austfjarðahöfnum og Norður- landshöfnum. Auk þess hefur góður afli fengizt á troll allt til þessa, en óvenju mikill afli hefur verið hjá togveiðibátum nyrðra allt síðan í vor. Handfærabátar frá Neskaupstað hafa komið með upp i 40 skippund eftir 4ra til fimm daga útivist en tveir 40 tonna bátar stunda þessar veiðar frá Neskaupstað og tveir minni dekkbátar. Auk þess hafa trillur aflað vel á nærmiðum. Trillur frá Húsavík hafa fengið 3—i tonn yfir sólarhringinn, en 2- 3 menn eru á hverjum bát og hafa þeir góð dagiaun. Sumir róa einir á bát og hafa þeir fengið jafnvel 1—2 tonn yfir daginn. , Hins vegar er daufara yfir ufsa- nótaveiðinni seinustu dagana. Mikil vinna hefur verið í frystihúsinu á Húsavík og var unnið til eitt og tvö á nóttunni suma dagana í síð- ustu viku, en heldur hefur þó I Aftur á móti hefur verið unnið dregið úr eftirvinnunni þar sein-! til kl. 11 á hverju kvöldi í frysti ustu dagana. I húsunum á Neskaupstað. Vísir í vikuiokin fylgir ölaöinu i dag til askrifenda Erum ekki óvanir árásum — segir Águst Kristjánsson form. Fjár- eigendafélags Reykjavikur ■ Við viljum ekki að skepn- urnar okkar eyðileggi garða fyrir fólki né annað ræktað land, sagði Ágúst Kristjáns- san formaður Fjáreigenda- féiags Reykjavíkur í samtali Grænmetisskortur um mitt sumar Reykjavík — Ekki hægt ab jafna grænmeti niður á allar verzlanir — Sölufélag garðyrkjumanna vill taka crð sér innflutning grænmetis B Grænmeti hefur verið með allra minnsta móti í verzlunum undanfarið eins og komið hefur fram í frétt- um Vísis. Hvítkálið mun vera þrem vikum á eftir tímanum vegna lélegs tíðarfars. Græn- metisverzlun landbúnaðarins átti von á hvítkálssendingu frá Danniörku en vegna stór- rigninga þar í landi var farm- inum ekki skipað upp í Gull- foss á réttum tíma. Það litla grænmeti, sem kemur í verzl- anir fyrir utan tómata og gúrkur gengur strax til þurrð ar. Talaði Vísir viö Níels Mart- einsson hjá Sölufélaginu; sem sagði að grænmeti væri keyrt út í verzlanir á þriðjudögum og föstudögui.. og væri reynt að jafna því niður á verzlanirnar eins og mögulegt væri. Nytu út- hverfin þó meiri forrcttinda vegna þess, að miðbærinn með öllum sínum stóru verzlunum myndi annars yfirtaka sending- arnar eins og þær legðu sig. Sagði Níels það vera bagalegt að ekki væri meira flutt inn af erlendu grænmeti þegar þörf væri á eins og nú og oftar áður. Kvað hann Sölufélagið vera reiðubúið til að taka þann inn- flutning að sér enda hefðu þeir garðyrkjumenn fulla vitneskju um það hvenær væri þörf á inn flutningi til þess að bæta úr grænmetisskortinum hverju við Visi í gær. Skýrði Ágúst ennfremur frá því, að borgar- yfirvöldin ættu að sjá um að hindra sauðfé í því að nota skrúðgarða Árbæjarhverfis, sem beitiland. Hefðu borgar- yfirvöldin sett nokkra ungl- inga sem verði við gæzlu á veginn við Aimannadai, sem liggur upo gegnt Rauðhólum á vjnstri hönd en það verk hafi verið slælega unnið. — Þegar v.ið erum búnir að koma fénu á fjall getum við ekki gætt þess lengur, sagði Ágúst, við höfum ekki ábyrgð- ina lengur, heldur sveitafélög- in, samkvæmt fjallskilareglum. Við vöfum sótt um vörzlu fjár- ins í bréfi í fyrra til borgarráðs en vorum ekki virtir svars. Við hefðum gjarnan viljað taka að okkur vörzluna og bera með því ábyrgðina á kindonum enda okk ar hagur að standa okkur vel í þvf starfi. Þá sagði Ágúst, að féitu væri venjulega sleppt á fjall á Sand- skeiði og við Kolviðarhól, en þar væri upprekstrarland Reykjavík- 10- siða Stórvirkar vinnuvélar unnu f gær við það aö rífa husið afl Bergstaðastræti 36, þar sem lengi bjó Gísli Þorbjarnarson kallaður búi. Hús þetta stendur á horni Hellusunds og Bergstaða strætis. Liklega var húsið byggt um aldamótin, og hin síðustu ár var það f eigu Reykjavíkurborg MINNKANDI HORFUR Á SELVEIÐI I ÁR r — Isinn hefur rekið selinn suður á bóginn, betri söluhorfur á selskinnum erlendis ■ Búizt er við minni sel- veiði í ár en áður, að því er Skúli Ólafsson, deildarstjóri í búvörudeild Sambands ísl. samvinnufélaga sagði Vísi í gær. Sagði Skúli, að svo virt- ist, sem hafísinn hefði algjör- lega spillt veiðum sels á sum- um stöðum, og valdið minnk- andi veiðum annars staðar. Söluhorfur á selskinnum eru nú betri en áður, sagði Skúli ennfremur. Á Breiðafirði er svipuð veiði og verið hefur og var í fyrra. Veiðin á Húnaflöa, f Stranda- sýslu hefur aftur á möti minnk- að, hafísinn hefur þar skemmt láturnar. Við venjulegar aðstæð ur er A-Skaftafellssýsla mikið selveiöasvæði, en þar, svo sero við Stokksnesiö, er svo til engin veiði. Við Hornafjörð hafa veið- arnar og ^tórlega dregizt saman. Aftur á móti er nú meiri veiði en áður í Öræfunum, sagði Skúli Virðist sem hafísinn hafi rekiö selinn suður á bóginn. Otflutningshorfur og markaðs horfur á selafurðum eru nú betri en oft áður. Af selnum er skinn ið verkað, og selt til V-Þýzka- lands, Hollands, Frakklands og Danmerkur. Þar sem eldra fólk er á bæjum, þar sem selveiðar eru stundaðar, er kjöt selsins sums staðar verkað, sagði Skúli að lokum .

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.