Vísir - 13.07.1968, Blaðsíða 3
MYNDSJA
mmifift
Menntaskólinn á Akureyri útskrifaði stúdenta í 40. sinn í vor. Þar voru um 500 nemendur í vetur í sömu skólastofum og
fyrir 40 árum. Nú er verið að byggja hús yfir náttúrufræðideild og sést það hér á myndinni.
■
’
..."
ifÉ
r«»t»'t+t* ttf.'ýý
Logreglustoðvarhus biöur ertir utihurö siðan 1 apnl. En vonandi biður þaö ekki lengi enn þá. 1
í tveim smákompum, sem bíða eftir því að gegna hlutverki verkamannaskýlis hjá Akureyrarbæ.
••
Keppzt er við að gera nýtt hús Amtsbókasafnsins nothæft fyrir næsta vetur. Þar verður einnig til húsa héraðsskjalasafn.
VlSIR . Laugardagur 13. júlí 1968.
Byggt og byggt....þó er ekki nóg byggt!
Iðnskólabygging er risin og standa vonir til að Iítill hluti henn ar verði tilbúinn til notkunar í haust. Tækniskólinn er í leigu-
húsnæði. Það þarf að byggja yfir hann. — En Iíklega er enn meiri nauðsyn á að byggja nýtt gagnfræðaskólahús og nýtt
barnaskólahús. y
\ Akureyri er talsvert undir
af byggingaframkvæmdum
hjá bæ og ríki, tvö skólahús,
þvottahús fyrir Fjóröungs-
sjúkrahúsið, lögreglustöövarhús
og bókasafnshús fyrir Amts-
bókasafniö. Og fleira en smærra
mætti tína til. Já, þaö ér byggt
og byggt. Þó er hvergi nærri
nóg byggt! Þetta hljómar
kannski eins og sígild plata.
Engu að síður er um staðreynd
að ræða — og það alvarlega
staðreynd í bæ, sem á framtíð
sína undir því, að verða viöur-
kenndur ásinn í mikilvægri
uppbyggingu strjálbýlisins í
náinni framtíö.
Þess má nú sjá merki, svo
aö ekki verður um deilt, að
skortur á athafnasemi bæjaryf-
irvalda og vöntun á viðurkenn-
ingu ríkisvaldsins á Akureyri,
sem framtíðarbæ, eru að drepa
vöxt bæjarins í dróma. Þetta
gerist á sama tíma og uppbygg-
ing bæjarins ætti að vera að
taka fjörkipp.
„Það er nú það, — sagði
kallinn og hló við fót“. Og
hvað ættu menn svo sem að
vera að kippa sér upp viö þetta
á meðan bæjaryfirvöldin bera
harm sinn í hljóði. Það hlýtur
allt að vera í hirpnalagi þarna
á Akureyri á meðan enginn úr
þeim virðulega hóp kvartar.
En, því miður, það er ekki
allt í lagi. Þetta forystuafl S
strjálbýlinu er lamað. Og það
bitnar á allt of mörgum.
Sá kjarni, sem fyrir hendi er
á Akureyri, gefur vissulega til-
efni til betra hlutskiptis. Það
er og sitt hvaö, sem stefnir
fram á við. En umgerðina vant-
ar, stórhuga ákvarðanir, skipu-
lagningu og athafnir af hálfu
hins opinbera, bæjar og ríkis.
Við svo búiö má ekki standa.
Byggingaframkvæmdir eru
teknar hér sem dæmi. Þeim
framkvæmdum, sem unniö er
að, miðar áfram nokkurn veginn
skv. áætlunum. Þó hefur lög-
reglustöðvarhúsið staðið full-
gert að hluta og nothæft fyrir
lögregluna síðan S apríl, án
þess að flutt sé í það. Útihurð
vantar erlendis frá. En svo
vantar bara nauðsynlega tvö
skólahús til viðbótar og æskilegt
væri að byggja það þriðja. Mikil
hnfnargerð bíður og uppbygging
margs konar aöstöðu í því sam-
bandi. Gatnagerð úr varanlegum
efnum er langt á eftir samtíð-
inni, þrátt fyrir nýlega keypta
malbikunarstöð. Og þannig
mætti lengi telja.
Berum þetta saman við höf-
uðborgarsvæðið. Þar er að vísu
ekki allt í himnalagi. En hví-
líkur reginmunur er ekki að
verða þarna á milli?
Þetta er mergurinn málsins.
Aðstöðumunur fólksins er að
breikka svo geigvænlega, að
stórátak þarf til að taka f taum-
ana, svo að nokkuð gagni.
Lítum þá aftur á bygginga-
málin. Nú er rfkið oröið bygg-
ingafyrirtæki í og með. Það
byggir allt í Breiöholti í Reykja-
vfk. Hundruð íbúða eru seldar
með helmingi betri kjörum en
áður hafa þekkzt hér á landi. _
Á sama tíma eru ekki komin
venjuleg lán út á fjolbýlishús
á Akureyri, sem var fullgert fyr
ir einu ári sfðan. Þar eru fram-
kvæmdir viö fjölbýlishús strand
aðar. Og þessar vikurnar eru
12—15 fjölskyldur ungra iðnað-
armanna á Akureyri að flytja
suður f aðstöðuna.
Þetta gengur ekki.— herb.