Vísir - 13.07.1968, Blaðsíða 9
V1SIR . Laugardagur 1*3. júlí 1968.
9
Kappkostum að koma sterkustu skák-1[®® ITO
mönnum okkar á framíæri
“ Segir Guðmundur Arason, forseti Skáksambands Islands. — Stór-
viðburðir framundan hjá islenzkum skákmönnum.
□ íslendingar eru skákþjóö, á því Ieikur ekki vafi. Þetta
sýndi meðal annars hin mikla aðsókn aö stórmótinu í vor.
Skákáhuginn hefur farið stórum vaxandi síðustu árin. Eitt
Iítið dæmi þar um er fundarsóknin á aöalfundi Skáksam-
bandsins í vetur, en þar mættu 56 fulltrúar frá 12 félögum
víös vegar af landinu. 1965 voru þeir 15 frá 12 félögum.
□ Ég held að skáklífið hafi tekið mjög drjúgan fjörkipp viö
Kúpumótið og hinn eftirtektarverða árangur íslenzku
skákmannanna þar. Stórmótin, sem haldin hafa verið hérna,
hafa líka haft sitt að segja. Þetta var hið þriðja í vor. Þau
hafa tekizt mjög vel. Og þaö mikilsverðasta við þetta er, að
þetta er ekki bóla, sem þýtur upp og hjaðnar. Við eigum að
geta haldið þessu striki, ef rétt er á málúm haldið.
Jjetta sagði Guömundur Ara-
son, forseti Skáksambands-
ins meðal annars, þegar Vísir
hitti hann nýlega að máli til
þess að ræöa um hina öru þró-
un skáklistarinnar og ýmsa
merka viöburöi, sem framundan
eru í skáklífinu hér. — Þetta
ár er þegar orðið merkisár í
sögu skáklistarinnar hér á landi,
en þó eru ekki nærri öll kurl
komin til grafar og nú beinist
hugurinn meöal annars að næsta
Ólympíumóti i Sviss í haust.
— Svo við víkjum að stór-
mótinu í vor?
Eftir því sem ég kemst
næst, segir Guðmundur, vaknaði
hugmyndin að slíkum alþjóðleg-
um stórmótum fyrst í hófi sem
haldið var til heiðurs Inga R. í
sept. ’63, en hann var þá ný-
bakaður alþjóðlegur meistari.
Ásgeir Þór Ásgeirsson, þá-
verandi forseti S. I. reifaði þá
tillögu um aö haldið yröi al-
þjóðlegt skákmót hér í Reykja-
vík annað hvert ár. — Til þess
yrði meöal annars stofnað meö
það fyrir augum að mótin veittu
skákmönnum okkar tækifæri til
þess að vinna sér alþjóðleg
meistararéttindi. Fyrsta Reykja-
víkurmótið var svo haldið 1964
og þar kepptu meðal annarra
Tal fyrrverandi heimsmeistari
og Nína Gabrindasvili þáverandi
heimsmeistari .kvenna. Þetta
mót var haldið ,f minningu hins
þjóðkunna fræðimanns og -skák
snillings Péturs Zophoniassonar.
Eftir stórmótið 1966 varð það að
samkomulagi milli Skáksam-
bandsins og Taflfélags Reykja
víkur að annast þessi mót til
skiptis og í vor var komið að
Taflfélaginu.
Stúdentaskákmótin prófsteinn
á styrkleika Ungu skákmann-
anna.
— Og svo stendur fyrir dyr-
um mikil orrahríð hjá íslenzku
skákmönnunum?
— Já Islenzka skáksveitin er
farin utan til þess aö taka þátt
í 15. heimsmeistaramóti stúd-
enta. Tuttugu og fjórar sveitir
hafa þegar tilkynnt þátttöku í
þessu móti og má búast við að
þær veröi fleiri. — Þessi stúd-
entaskákmót eru öröin mikil-
vægur liöur í að kanna styrk-
leika yngri mannanna og skák-
sambönd allra landa taka mikið
mark á þeim í því tilliti.
Það hefur tekizt mjög ánægju
ieg samvinna milli Skáksam-
bandsins og Stúdentafélags Há-
skólans um skipulag á þessu
móti. - cg það tel ég mjög
mikilsvert.: — Einn íslenzku
keppendanna í stúdentasveit-
inni heldur svo áfram keppnis-
för sinni, að stúdentamótinu
loknu. Það er Haukur Angantýs
son. Hann mun fyrst keppa á
skákmóti unglinga, (undir 20 ára
aldri ) í Danmörku i því móti
taka þátt unglingar frá 13 þjóð
um. Síðan fer Haukur til Tallin
í Eistlandi og tekur þátt í
keppni milli unglinga frá Norð-
urlöndunum cg Sovétríkjunum.
— Þetta veröur því alls 1l/2 mán
aðar skákför hjá Hauki.
Ég hef trú á að stúdentasveit
in okkar standi sig vel. Þeir eru
í góðu formi eftir veturinn og
stórmótið í vor.
Nú um helg'ina hefst hér í
Reykjavík mót norrænna bif-
reiða- og sporvagnastjóra á veg
um Taflfélags Hreyfils. Þar
veröa 19 keppendur frá ísl. og
15 frá hinum Noröurlöndunum.
— Hreyfilsmenn hafa alla tíð
staðið sig mjög vel í þessum
mótum — oftast unnið þau.
VIÐTAL
DAGSINS
Tólf æfa fyrir ólympíumót .
Svo eru æfingar hafnar fyrir
ólympíuskákmótið sem hefst í
Sviss, seinnipartinn í október
og stendur fram í nóvember. —
Þessar æfingar fara fram í húsa
kynnum Skáksambandsins. Friö-
rik Ólafsson stjórnar þeim. —
Tólf menn hafa veriö valdir til
--------- , V ,, J .
Guðmundur Arasoh.
þessara æfinga, en endanlegt
val -ólympíuliðsins veröur að
vera ákveðiö 31. júlí. — Æf-
ingarnar hafa , farið fram einu
sinni í viku til þess aö byrja
með, en Friðrik mun taka á-
kvöröun um það, hversu þeir
herða æfingarnar, þegar nær
dregur mótinu.,
— Hvernig gætir þú hugsað
þér aö íslenzka ólympíuliðið
yrði sterkast skipað?
— Ja, ef ég ætti að setja upp
óskalista þá mundi ég kjósa
5'riörik á fyrsta borð að sjálf-
sögðu, Inga R. á annað borð,
Guðmund Pálmason á þriðja og
Guðmund Sigurjónsson á fjórða.
Til þess að auðvelda störf
Skáksambandsins, sem gerast
nú æ umfangsmeiri, höfum við
Skákáhugi hefur aukizt mjög meöal unglinga.
nú ráðið til okkar framkvæmda
stjóra, Þórir ólafsson hefur orð
ið fyrir valinu. — Hann hefur
það að vísu að aukastarfi, en
við gerum okkur vonir um að
með þessum starfsmanni get-
um við aukiö samskipti sam-
bandsins viö félögin úti um
land. Þau hafa orðiö of mikið
út undan hingaö til. Það þarf
að gera meira af þvf að senda
skákmeistara út um land og
þ. u. 1.
Til fjáröflunar höfum við svo
hugsað okkur að koma af stað
happdrætti. Við munum meðal
annars senda félögunum úti á
Iandi miða, meiningin er að þau
fái 40% af sölunni til styrljtar
sinni starfsemi. Þetta fyr-
irtæki fer sennilega af stað f
ágúst. Auk þess munum við svo
koma af staö firmakeppni fyrir
Ólympíumótiö til þess aö afla
fjár til þess, en þetta var gert
með góðum árangri fyrir síðasta
Olympíumót.
BorgarbókasafniO gengur f lið
með skákmönnum.
Skáksambandið hefur nýléga
gert dálítið merkilegan samn-
ing viö forráöamenn Borgarbóka
safnsins um útvegun skákrita til
safnsins. Við höfum sent safn-
inu óskalista yfir merkar skák-
bækur, sem safnið mun síðan
panta og hafa til útlána. — All-
ar þær bækur sem við lögðum
mesta áherzlu á að yrðu fengn-
ar eru væntanlegar í haust.
Þetta er viöleitni í þá átt að gefa
efnalitlum skákmönnum tækj-
færi til áð stúdera skák. Skák-
árahgur byggist alltaf meira og
meira á slíkri kunnáttu. Það
heyrist orðið miklu minna um
undrabörnin í skáklistinni en áð
ur var. — Menn hafa samt sem
áður misjafna skákhæfileika
eins og gefur að skilja, en þeir
duga ekki einvöröungu. — Þetta
leiðir svo af sér að menntamenn
hafa miklu betri aöstööu til að
kynna sér nýjungar vegna þess
að þeir hafa betri aðgang að er-
lendu skákritunum.
Kann svo að fara að menn á
borð við Friðrik verði ekki til-
viljun einvörðungu.
— Erum við í betri aðstöðu
nú en áður til þess að fylgjast
með á alþjóðavettvangi?
— Aöstaðan hefur gerbreytzt
frá því sem var. Það er kapp-
kostað að koma okkar sterkustu
skákmönnum á framfæri og við
eigum aö geta náð góðum ár-
angri ef forysta skákmála er
vel uppbyggð.
— Eigum við einhverja von í
öðrum manni eins og Friörik
Ólafssvni?
— Það var tilviljun aö skák
maöur eins og Friðrik skyldi
koma upp hjá svo lítilli þjóö.
Viö getum varla búizt við öör-
um slfkum alveg á næstunni. En
ef þessi þróun heldur áfram
kann svo að fara að skákmenn
eins og Friðrik verði ekki það
sem við getum kallað tilviljun
eingöngu.
— Er okkur svo einhvers
virði, svona frá þjóðhagslegu
sjónarmiði séð, að eiga blómlegt
skáklíf og góða skákmenn?
— Ég held að fólk geri sér
ekki fulla grein fyrir því hversu
mikils virði það er að eiga nafn
í skákheiminum, sem Friðrik Ö1
afsson er. Hann er þaö sem Al-
bert Guömundsson er í knatt-
spyrnuheiminum. — Við getum
ekki búizt við aö fá slíka menn
fram á sjónarsviðið nema með
almennum áhuga og öflugu skák
lífi.
J. H.
ao pessu smni íögöum v-o
leið okkar til nokkurra þekKtra
Reykvíkinga og lögðum fyrir
þá spurninguna:
Hvernig eyðið þér sum-
arleyfinu?
Ómar Ragnarsson, skemmti-
kraftur: Ef ég á þess nokkurn
kost að taka sumarfrí, fer ég
alltaf norður í Langadal til að
moka hrossataö, en nú skellti
ég mér vestur á Langasand til
að moka ,,gúmmítað“.
I \ ' '■ ''' ■
Sr. Árelíus Nfelsson: Á sama
hátt og undanfarin þrjú sumur.
Ég fer stutta ferð til annarra
landa til að kynna mér eitt-
hvað, sem oröið gæti til bless-
unar hér, þeim sem lifa í skugg-
anum. Þannig finnst mér aö ég
geti borið sólskiniö úr Sumar-
leyfi mínu til annarra.
Gunnar Eyjólfisson, leikari:
Ég er nú bóndi austur í Ölf-
usi í sumarleyfinu. Ég hef þar
nokkur hross og nokkrar kind-
ur, og er yfirleitt við búskapinn
í flestum frfstundum mínum.
Ég geri þetta til að geta verið
úti við. Ég geri ráð fyrir, að geta
byrjaö slátt í næstu viku.
Jón Múli Árnason, útvarps-
þulur: Ég fór upp í Borgarfjörö
og málaði kirkjuna á Stórási.
Búinn að mála kirkjuna og bú-
inn meö sumarfríið.
Markús Örn Antonsson, sjón-
varpsfréttamaður: Ég vinn i
þessu sumárleyfi. Er búinn að
ráöa mig hjá feröaskrifstofu
einni hér í borginni og vinn að
móttöku ferðamanna. Hef engar
áætlanir eins og er um sumar-
leyfi, nema ef til vill í haust.