Vísir - 13.07.1968, Síða 16
,»«»'>'■- 'ssasa^esasr ■ggiaBB—>— ■mr,,., Majjj—tiir,ajjgif»3a'j.*m.feÆ8gg»gEaBP«QCPgg^^.i'ii»iÉi«JAr,"*rr'- iiahrMgE
SKiPU-
LEGA AÐ MARKAÐSMÁLUM
— Félag islenzkra iðnrekenda setur á stofn
■ Félag íslenzkra iðnrekenda hefur í hyggju að ráða mann
til að veita forstöðu útflutningsskrifstofu á vegum samtak-
anna, sem sett verður á stofn á næstunni. Vísir ræddi við
Þorvarð Alfonsson, framkvæmdastjóra Félags íslenzkra iðn-
rekenda í þessu sambandi. Sagði Þorvarður, að það væri
nauðsynlegt, að fara að vinna skipulega að markaftsmálum
til að fyrirtæki fari aft sinna útflutningi að verulegu leyti.
NAUÐSYNLEGT AÐ VINNA
VISIR
Laugardagur 13. jují 1968.
Fjör í íþróttunum
um helqinu
# Mikið verður um að vera í
íþróttunum um helgina. í dag
verður leikið til úrslita i Unglinga-
meistaramóti Norðurlanda í knatt-
spymu. Á morgun verða Ieiknir
tvelr leikir í 1. deildarkeppninni i
knattspyrnu, og annað kvöld leikiö
til úrslita á útihandknattleiksmót-
inu. Landsmót ungmennafélaganna
hófst í gær austur á Eiðum og
stendur alla heigina.
Mesta eftirvæntingin verður fyrir
úrslitaleikinn í Norðurlandameist-
aramótinu, en leikurinn hefst á
Laugardalsvellinum kl. 15.00. Má
10. síða
Þorvarður sagði, að helzta
hlutverk þessa manns yrði að
kanna markaði erlendis og leita
eftir viðskiptasamböndum er-
lendis fyrir iönfyrirtæki, sem
hefðu áhuga á slíku. Svo og aö
leita eftir vörum hér innan-
lands, sem hefðu sölumöguleika
erlendis, að annast gerö sölu-
samninga við erlenda aðila. Þá
útflutningsskrifstofu
myndi það og veröa hlutverk
skrifstofunnar að veita innlend-
um fyrirtækjum upplýsingar
um markaðshorfur og markaðs-
verð á hverjum tíma og veita
fyrirtækjum leiðbeiningar um
markaðsmöguleika á hverjum
tíma. Jafnframt að vinna aö
skipulagningu og undirbúningi
að þátttöku iðnfyrirtækja í kaup
stefnum erlendis.
Þorvarður kvaðst gera ráö
fyrir, að sá sem ráðinn yrði, færi
utan sem fyrst og kynntist
starfsemi sambærilegra stofn- j-
ana erlendis, aðallega á Norður- |
löndum. Þorvarður sagði, að 0
mörgum fyrirtækjum hér á landi H
yxi í augum að selja framleiðslu |
vörur sínar á erlendum mörk- I
uðum, og komið hefði fyrir, að
sölumöguleikar væru fyrir
hendi, en fyrirtækin hefðu bá
bakkað á síöustu stundu. Við
gerum okkur ekki vonir um ár-
angur á fyrstu mánuðum eða
jafnvel árunum, én vonum, að H
þetta sé leið til að koma skipu- |
lögðu, föstu formi á þessi mál, |
sagði Þorvarður.
iSl!
íslenzkt hundakyn ræktað að Ólafsvöllum
■ Unnið er af kappi austur
f sveitum að varðveizlu og
ræktun alíslenzka hunda-
stofnsins, sem hætta er á að
deyi aiveg út, ef ekki eru
gerðar ráðstafanir til að við-
halda honum. Eru vafalaust
fáir óblandaðir hundar af al-
íslenzku bergi brotnir eftir í
landinu.
■ í vetur stofnuftu hjónin
Sigríður Pétursdóttir og Kjart
an Georgsson á Ólafsvölíum
á Skeiðum hundabú og rækta
þar eingöngu alfslenzka
hunda. Verfta ríokkrir þeirra
á landbúnaðarsýningunni í
Laugardalshöllinni, þegar þar
að kemur.
Talaði Vísir í gær við Sigríði
Pétursdóttur um hundaræktun-
ina.
— Hundabúið er alveg nýtt,
sagöi Sigríður, við stofnuðum til
þess í vetur. Ég var búin að
biðja Pál A. Pálsson yfirdýra-
lækni um hvolp fyrir tveim ár-
um, en hann lét mig fá tík og
stakk upp á því að við tækjum
til við ræktun íslenzks hunda-
stofns, þannig að hugmvndin er
, frá honum runnin. Var ég ekk-
ert hrifin af því í byrjun. Nú
erum við með þrjár tíkur. Það
hefði verið ákaflega leiðinlegt
að láta hundana af íslenzka kyn-
inu deyja út og hverfa á land-
inu. Þess hefur ekki verið gætt
að láta þessar útlendu tegundir,
sem fluttar hafa verið inn ekki
blandast íslenzka hundakvninu.
Ennþá er ræktunin í deiglunni,
þó höfum við látið burt sex
hvolpa. — Jú, það er heilmikil
vinna orðin við ræktunina, þeg-
ar hundarnir eru ‘orðnir þetta
margir. Það þarf að vera mikið
10. síða
Kátur er aö hálfu uppistafta íslenzka hundastofnsins, sem rækt-
aöur er austur á Ólafsvöllum.
Unnið aft samsetningu tvöfalda botnsins á öðru strandferðaskipinu f skipasmíftahúsi Slipp-
stöðvarinnar h.f. (Ljósm: herb.)
Kjölur aö fyrra strandferöaskipinu lagöur hjá Slippstööiiliii hf. á Aklireyfi
Nokkrar tafir urðu á und-
irbúningsframkvæmdum
Happdrætti
Blindra-
félagsins
Dregið hefur verið f happdrætti
Blindrafélagsins. Eftirtalin númer
hlutu vinning: 12932 (Vauxhall Vict
or fólksbifreið) og 20518 (ferð fyrir
tvo til Mallorca). Vinninganna má
vitja á skrifstofu Blindrafélagsins
mánudag og þriðjudag. Eftir þaö
veröa veittar upplýsingar í síma
51763. (Birt án ábyrgðar).
Fékk 14 stór-
laxa á 2 dögum
Mikil laxagengd / Miðfjarðará
9 Framkvæmdir viö smíði
strandferðaskipanna tveggja
fyrir Skipaútgerð rfkisins eru
smátt og smátt að færast í
eðlilegt horf hjá Slippstöftinni
h.f. á Akureyri, sem tók þær
aft sér á grundvelli útboðs á
sl. ári. Ýmsar ástæður hafa
valdið nokkrum töfum á und
irbúningsframkvæmdum, svo
að búast má við einhverri
seinkun á afhendingu, en
naumast fram yfir þá fyrir-
vara, sem settir voru f verk-
samning, nema ný vandamál
komi upp á teningnum. Er
ekkl ástæða til aft ætla ann-
að en byrjunarörðugleikarnir
séu úr sögunni.
Orsakakeðja liggur að baki
þessum töfum, sem orðnar eru.
I fvrsta lagi drógust samninga-
umleitanir óeðlilega á langinn í
vetur, svo að undirbúningsfram-
kvæmdir bar upp á miðjum
vetri. Þá dróst einnig óeðli-
lega að fá samþykktar teikning
ar. Þetta hvort tveggja olli því
að ekki var unnt að panta efni
eins fljótt og vonir stóðu til.
Síðan lentu efnisaðdrættir á haf
ístíma fyrir Norðurlandi en þá
röskuðust skipaferðir verulega.
En um þaö var fyrirvari í verk
samningi.
Þrátt fyrir þetta hefur fram-
kvæmdum ekki seinkaö nema
um 1—2 mánuði.
Um leið og skipasmíðarnar
hafa verið að taka á sig eðli-
lega mynd hefur Slippstöðin hf.
ver)ð aö fjölga starfsmönnum
og eru þeir nú um 180 talsins.
Þeim verður enn fjölgað á næst
unni, vegna skipasmiðanna og
skipaviðgerða, en viðgerðir hafa
legið niðri að verulegu leyti um
tíma, þar sem unnið hefur verið
að stækkun annarrar af tveim
tir dráttarbrautum Akureyrar-
hafnar, sem Slippstöðin hf. hefur
á leigu. Stækkunin er nú svo vel
á veg komin, að búast má við
fyrstu viðgerðarverkefnum á
hana á næstu vikum.
Þessi endurbyggða dráttar-
braut verður álíka stór og
stærsta braut sem fyrir er í land
inu, f Reykjavík, og verður unnt
að taka upp á hana 2000 þunga-
tonna skip.
Vísir náði í gær tali af einum
laxveiðimanni, sem var að koma
norðan úr Miöfjarðará. Var það
Kristján Sigurmundsson fram-
kvæmdasljóri. Sagði Kristján að
mikil ganga af stórlöxum hefði
komið í ána á miðvikudag og
fimmtudag og há tvo daga heföi
hann veitt 14 laxa.
Og laxarnir vorb engir smá-
Iaxar. Var þingdin 10 — 14 pund
Kristján sagðist hafa séð mikla
göngu mjög stórra laxa ganga í
ána, og hefði hún verið áberandi
á miðvikudagsnóttina. Veður
þarna nyrðra hefur verið mjög
gott, og veiöimenn notið útiver
unnar og veiðiskaparins með
mikilli ánægju.